Morgunblaðið - 11.02.1983, Qupperneq 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. FEBRÚAR 1983
Endurskoðendur Norræna Menningarsjóðsins:
Athugasemdir við „menningar-
veiðar“ i íslenzkri laxveiðiá
Iscross á Suðurnesjum haldið
á vegum nýstofnaðs bflaklúbbs
NÝSTOFNAÐUR bílaklúbbur á
Suðurnesjum, Akstursíþróttafélag
Suðurnesja, mun nk. sunnudag
halda keppni í íscrossi. Fer hún fram
á Seitjöm, sem er í næsta nágrenni
við Grindavíkurafleggjara á Kefla-
víkurveginum. Búast þeir Suður-
nesjamenn við um 10 keppendum,
þar af tveim úr sínu sveitarfélagi.
Iscrossið hefst stundvíslega kl.
14.00. Um 50 meðlimir munu vera í
hinum nýja klúbb og er áhuginn
mikill. Hefur klúbburinn m.a. f
hyggju að byggja fullkomna rally-
cross braut, sem lengi hefur vantað
hérlendis. Allnokkrir rallbflar munu
þegar vera í smíðum ásamt rally-
cross bflum. Formaður Aksturs-
íþróttafélags Suðurnesja er Magnús
Jenssen. Má að lokum geta þess að
fundir eru á fimmtudagskvöldum í
Skátaheimili Keflavíkur, þar sem
AIFS hefur aðstöðu.
Kaupmannahofn, 9. fcbrúar. Frá frétta-
ritara Morgunhlaðsins Ib Hjörnbak.
EINS dags „menningarveiðar“ við
íslenzka laxveiðiá sumarið 1981
verða trúlega ræddar á fundi Norð-
urlandaráðs, sem hefst í Ósló síðar í
þessum mánuði. Tveir danskir end-
urskoðendur, þingmaðurinn Otto
Mörch og ríkisendurskoðandi, J.
Bredsdorff, hafa gert athugasemdir
við reikninga Norræna menningar-
sjóðsins. Stjórn sjóðsins er gagnrýnd
fyrir aö hafa notað 35 þúsund krón-
ur danskar, eða 76.500 krónur ís-
lenzkar, til hóteldvalar á íslandi
1981, en þá var einum degi einnig
varið til laxveiði.
Norræni menningarsjóðurinn
hafði þetta ár 9,6 milljónir króna
til ráðstöfunar og fer það fé til
ýmissa verkefna. I kostnað vegna
stjórnar sjóðsins og funda fóru
283 þúsund krónur árið 1981 og
þar af 144 þúsund krónur vegna
eins af fjórum árlegum stjórnar-
fundum sjóðsins. Formaður sjóð-
stjórnar er formaður norska
hægri flokksins, Jo Benkow, og
varaformaður er norski ráðuneyt-
isstjórinn Olav Hove. Þeir þurfa
að gera grein fyrir þessum reikn-
ingum á næstunni.
Laxveiðitúrinn umræddi var
farinn í júlí 1981, en þá stóð yfir
fjögurra daga fundur stjórnarinn-
ar á Íslandi. f stjórn sjóðsins sitja
10 menn, en þeir tóku ekki allir
þátt í laxveiðitúrnum, til dæmis
ekki K.B. Andersen fyrrum
menntamálaráðherra Danmerkur.
Endurskoðendurnir hafa einnig
gagnrýnt að greiðslur til stjórn-
armanna voru hækkaðar og auk
þess gera þeir athugasemdir við
nokkrar af styrkveitingum sjóðs-
ins.
VIÐTALSTIMI
Alþingismanna og
borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins
í Reykjavík
Alþingismenn og borgarfulltrúar SjálfatnAisflokkains verða til
víðtals f Valhöll, Háaleitisbraut 1 á laugardögum frá kl. 14.00 til
10.00. Er þar tekiö á mðti hvera kyna fyrirspurnum og
ábendingum og er öllum borgarbúum boðið að notfsara sér.
viðtalstima þessa.
Birgir Thorlacius, ráðuneytisstjóri:
Haldið til laxveiða í Norðurá
f stað þess að enda fundinn með
veizlu fyrir hina erlendu gesti
FULLTRÚAR íslands í stjórn Norræna menningarsjóðsins eru þeir Birgir
Thorlacius ráðuneytisstjóri og Sverrir Hermannsson alþingismaður. Morgun-
blaðið ræddi í gær við Birgi, sem setið hefur í stjórn sjóðsins frá upphafi, og
innti hann hann eftir skýringum á þessu máli. Birgir sagðist í upphafi vilja
taka þetta mál á sig þar sem hann hefði haft veg og vanda af því að
skipuleggja þennan umrædda stjórnarfund sjóðsins.
„Fundurinn var haldinn að Bif-
röst í Borgarfirði dagana 19,—22.
júlí 1981,“ sagði Birgir. „Venjan er
sú, að fjórði hver fundur er hald-
inn á íslandi, Noregi, Svíþjóð eða
Finnlandi, en aðrir fundir í Dan-
mörku. Þetta sumar var komið að
okkur og í stað þess að enda fund-
inn með veizlu fyrir hina erlendu
gesti okkar, eins og venja er, var
ákveðið að halda til laxveiða við
Norðurá í einn dag. Mennta-
málaráðuneytið borgaði mat í
veiðihúsinu, en sjóðurinn veiði-
leyfi og gistingu. Fundurinn hér
kostaði sjóðinn 144 þúsund krónur
danskar, en inni í þeirri tölu er
ferðakostnaður hinna erlendu
gesta til og frá landinu.
{ endurskoðun dönsku ríkisend-
Vigdís fer að
Osló, 8. febrúar, frá Jan Erik Laure,
fréttaritara Mbl.
Vigdís Finnbogadóttir, forseti ís-
lands, hefur þegið boð um að heim-
sækja Noreg og Verdal í tilefni
Olsok-hátíöahaldanna 29. júlí
næstkomandi.
Forsetinn verður viðstaddur
fyrstu sýningu leikritsins „Spelet
om heilage OIav“ (leikritið um
Ólaf helga) á 30. sýningarári
verksins. Leikritið var samið í
minningu Ólafs helga, sem féll í
Stiklastaðaorrustu í Verdal árið
1030. Leikritið er sýnt í nágrenni
Stiklastaða.
Stiklastöðum
Forsetinn verður einnig
viðstaddur frumsýningu nýs leik-
rits um hólmgöngu Gunnlaugs
ormstungu og Skáld-Hrafns á
Dinganesi, er þeir börðust um
Helgu fögru. Hólmgöngur af þessu
tagi voru bannaðar á lslandi 1008,
svo víkingarnir tveir urðu að fara
til Noregs til að útkljá ágreining-
inn um Helgu fögru að víkinga-
hætti.
Aðstandendur Olsok-hátíðar-
innar eru mjög ánægðir með að
Vigdís Finnbogadóttir skuli hafa
þegið boð um að vera heiðursgest-
ur sýninganna í Verdal.
urskoðunarinnar er fundið að
þessari veiðiferð og farið fram á,
að sambærileg útgjöld verði ekki
að finna í reikningum sjóðsins
framvegis. Þarna er því aðeins um
mildilega ábendingu að ræða, en
ekki annað. Vel kann að vera, að
þessi veiðiferð hafi ekki átt rétt á
sér, en mér finnst mál þetta lykta
af því, að pólitískir andstæðingar
séu að reyna að ná sér niðri á Jo
Benkow, formanni sjóðstjórnar.
Varðandi greiðslur til stjórn-
armanna, þá voru þær 4 þúsund
danskar krónur á ári til óbreyttra
stjórnarmanna og 6 þúsund krón-
ur til formanns. Þær voru síðan
hækkaðar í 8 þúsund krónur til
stjórnarmanna og í 10 þúsund
krónur til formanns sjóðstjórnar.
Sjóðstjórnin er sjálfstæð og
ákveður laun sín sjálf, en
Norðurlandaráð kýs fimm menn í
stjórnina og menntamálaráðherr-
ar landanna tilnefna síðan fimm
embættismenn í stjórn sjóðsins,"
sagði Birgir Thorlacius.
Hann var að lokum spurður
hvort margir laxar hefðu veiðst í
Norðurá þennan sumardag árið
1981 og svaraði hann því til, að
hópurinn hefði fengið 14 laxa.
Hann staðfesti ennfremur, að K.B.
Andersen hefði ekki tekið þátt í
veiðiskapnum, en aðrir stjórnar-
menn hefðu haldið til veiða.
SIMAR 21150-21370
S01USTJ LARUS Þ VALDIMARS
L0GM J0H Þ0RÐARS0N HDl
Til sölu og sýnis auk annarra eigna:
Vinsæl timburhús til sölu í borginni
f gamla góða austurbænum, timburhús nýklætt aö utan. Grunnflötur
um 50 fm. Á hæö er stofa, skáli og eldhús. Á efri hæö 2 rúmgóö herb. og
bað. i kjallara 2 íbúöarherb. og þvottahús. Eignarlóö. Verð aöeins 1,2 til
1,4 millj.
í Skerjafiröi, reisulegt timburhús meö 4ra herb. ibúö á hæö og í risi.
Eignarlóö. Trjágaröur. Laus strax. Verö aöeins kr. 1,3 millj. Leitiö nánari
uppl. á skrifstofunni.
í tvíbýlishúsi í Kópavogi
5 herb. sér neöri hæö um 135 fm. Inngangur, hiti, þvottahús, allt sér.
Bílskúr. Útsýni.
Helst í Fannborg í Kópavogi
Þurfum að útvega góöa 2ja til 3ja herb. íbúö i Kópavogi. Góö íbúö
veröur borguö út. Örar greiöslur.
Húseign meö tveimur íbúöum
óskast til kaups. Má vera í smíðum. Ýmiskonar eignaskipti.
Góö íbúö á 1. hæö óskast
helst í Þingholtunum, Hlíöum eöa nágrenni. Skipti möguleg á húseign í
Þingholtunum.
Skammt frá Landspítalanum
Steinhús tvær hæöir og kjallari. Grunnflötur um 100 fm. Getur veriö
þrjár íbúðir. Hentar ennfremur sem verslunar- og/eöa skrifstofuhús-
næöi. Ræktuð stór lóö. Rúmgóöur bílskúr. Teikn. á skrifstofunni.
Ný söluskrá heimsend.
Kynnið ykkur sölu-
skrána.
ALMENNA
FASTEIGWASAIAM
LAUGAVEG118 SÍMAR 21150 - 21370
r í Heloarhorninu
Föstudags- og laugardagskvöld , sunnudagshádegi og kvöld
Nú bjóöum viö upp á júgóslavneska stemningu, bæði músík og mat.
Feðgarnir Jónas Þórir og Jónas Dagbjartsson leika Ijúf lög á fiðlu og píanó.
I. Matseðill II. Matseðill
Köld súpa Tartor Júgóslavneskar rúllur Sarma
Grísahryggur Culbastija flambé Kjúklingur Belgrad
Jarðarber Romanoff Rjómaostsábætir Paskha
á kr. 310.- á kr. 275.-
Brauðborð og salatvagn
í barnahorninu verða sýndar skemmtilegar barnamyndir.