Morgunblaðið - 11.02.1983, Síða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. FEBRÚAR 1983
Niðurstaða skýrslu UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna:
Minnka mætti vannær-
ingu og barnadauða um
helming fyrir aldamótin
Ef leiðtogar stórveldanna tækju sig saman og gengju um eitthvert þorpa
þriðja heimsins kæmu þeir aðeins auga á vannæringu hjá 2% þeirra
barna, sem í raun byggju við matarskort í þorpinu. Reyndar er svo erfitt
að koma auga á vannæringuna, að í 60% tilvika töldu mæður barna, sem
áttu við vannæringu að etja, að þau væru fyllilega eðlileg.
Fjórðungur allra barna í þriðja
heiminum á í dag við þessa
„duldu“ vannæringu að etja í mis-
miklum mæli. Vannæringin dreg-
ur úr orku barnanna, kemur hægt
og bítandi í veg fyrir eðlilegan
vöxt og minnkar viðnámsþrekið.
Orsök og afleiðing eru óaðskilj-
anlegir þættir þegar barn sýkist.
Sjúkdómurinn á greiðari aðgang
að barninu vegna vannæringar-
innar sökum þess að hún dregur
úr viðnámsþrótti.
Afleiðing vannæringarinnar er
sú, að á síðasta ári létu meira en
40.000 börn lífið dag hvern. Fyrir
hvert það barn, sem lét lífið, berj-
ast sex við hungur og sjúkdóma,
sem eiga eftir að hafa varanleg
áhrif á framtíð þeirra.
Að leyfa 40.000 börnum að
deyja dag hvern á þennan hátt er
nokkuð, sem hinn siðmenntaði
heimur getur ekki horft upp á, án
þess að finna til sektar. Þrátt
fyrir allar framfarirnar í tækni
og vísindum er það hryggileg
staðreynd, að árangurinn af bar-
áttunni gegn hungrinu fer nú
minnkandi.
Á tímabilinu frá lokum síðari
heimsstyrjaldarinnar og fram til
fyrstu ára síðasta áratugar tókst
að minnka barnadauöa í löndum
þriðja heimsins um nálega helm-
ing. Á undanförnum árum hefur
ekki reynst unnt að halda í horf-
inu. Lífsskilyrði barna í fátæk-
ustu löndum heims, sér í lagi i
Afríku og fátækustu héruðum
Asíu og Suður-Ameríku, hafa far-
ið versnandi samfara lakari efna-
hagsstöðu foreldranna.
Fari svo, sem nú horfir, bendir
allt til þess, að stöðugt vaxandi
hlutfall þeirra, sem búið hafa við
skort á mat og vatni, takmarkaða
heilsugæslu og litla sem enga
menntunarmöguleika undanfar-
inn áratug, verði það sama um
aldamótin 2000 og það er nú.
Samkvæmt upplýsingum mat-
væla- og landbúnaðarstofnana
Sameinuðu þjóðanna myndi fjöldi
vannærðra barna vera orðinn um
650 milljónir árið 2000 verði engin
breyting á þeirri þróun, sem nú á
sér stað. Það þýðir hvorki meira
né minna en 30% aukningu á
fjölda vannærðra barna í heimin-
um.
Barnahjálp Sameinuöu þjóð-
anna hefur verið starfrækt í 36 ár.
Á þeim tíma hefur gífurlegum
fjármunum verið varið til rann-
sókna og athugana í þvi augna-
miði að bæta lífsskilyrði barna í
þróunarlöndunum. Þrátt fyrir að
útlitið kunni aö virðast svart seg-
ir í skýrslu Barnahjálparinnar, að
rofað hafi til á sviði hjálpar-
starfsins með tilkomu nýrra að-
feröa læknavísindanna, sem eigi
eftir að valda straumhvörfum.
Ýmsar aðferðir hafa komið
fram innan læknavísindanna á
síðasta ári og stuðla að lægri tíðni
barnadauöa en til þessa hefur
þekkst. Eru það einkum fjórar
nýjungar, sem vakið hafa sér-
staka athygli og reynst vel, en
stöðugt er unnið að rannsóknum
og endurbótum.
Samkvæmt skýrslu Barna-
hjálparinnar um ástandið I
þróunarlöndunum á síðasta ári
vegur ORT-aðferðin þyngst á
metunum í leiðum til hjálpar. Að-
ferð þessi felst í því að „endur-
vökva" líkamann ef hægt er að
nota það hugtak.
Uppþornun í líkamanum í kjöl-
far magakveisu og stöðugs niður-
gangs er algengasta dánarorsökin
hjá börnum þriðja heimsins. Fái
barn slæman niðurgang getur allt
að 15% líkamsþyngdarinnar tap-
ast á aðeins 2—3 dögum. Að auki
raskast jafnvægi líkamssaltanna
og þegar svo er komið er dauðinn
á næstu grösum. í u.þ.b. 5 milljón-
um tilfella ár hvert leiðir maga-
kveisa til slíkrar uppþornunar.
Hægt er að bæta vökvatapið
upp með sáraeinfaldri aðferð, en
að mati breska læknavísinda-
tímaritsins The Lancet engu að
síður einhverri þeirri merkustu,
sem upp hefur verið fundin á
þessari öld. Ekki nægir einvörð-
ungu að gefa börnunum óblandað
vatn að drekka, heldur þarf að
blanda í það eilitlum sykri og salti
og slíkt er á hvers manns færi.
Unnið hefur verið ötullega að því
að kenna mæðrum í löndum
þriðja heimsins að útbúa vatns-
blönduna.
Ýmsar aðrar framfarir innan
læknavísindanna hafa orðið til
þess, að tekist hefur að stemma
stigu við barnadauða víða um
heim. Mislingar eru önnur algeng-
asta dánarorsökin hjá ungbörnum
í löndum þriðja heimsins. Á síð-
asta ári er talið, að hálf önnur
milljón barna hafi orðið þeim að
bráð. Miklar framfarir hafa orðið
í gerð bóluefnis og hafa þær leitt
til þess, að unnt hefur verið að
koma í veg fyrir dauða mikils
fjölda barna.
Bólusetning kostar ekki nema
um 2 krónur, en það sem helst
hefur staðið í vegi fyrir ríkari
notkun bóluefnisins eru vand-
kvæði við geymslu þess. Bóluefnið
hefur til þessa þurft að geyma í
frysti þar til klukkustund fyrir
notkun. Þessi skilyrði hafa gert
það að verkum, að ógjörningur
hefur verið að ferðast um af-
skekkt héruð þróunarlandanna
með efni til bólusetningar. Nýja
Mikilvægi og kostir brjóstagjafar eru meðal þeirra atriða, sem Barnahjálp
SÞ leggur áherslu á að gera Ijós og kynna. Á vinstri myndinni má sjá konu
með barn á brjósti, en á þeirri hægri er dæmigerð mjólkurgjöf kornabarns í
þróunarlöndunum. Mjólkin gefin úr þvottalagarbrúsa, sem e.Lv. hefur litt
eða ekki verið hreinsaður.
Fyrstu viðbrögð vannærðs barns er að draga úr öllum hreyfingum sínum
Leikþörf hverfur og barnið drcgur sig inn í skel eigin hugarheims. Vart þarl
að skýra frá því, að barnið til vinstri býr við matarskort.
LAIIN
MERICA
USA
USSR
AFRICA
Þannig skiptast börn undir fimm ára aldri á milli heimshluta. Myndirnar eru í samræmi við fjölda þeirra á hverjum
stað. llm 43% barna á þessu aldursskeiði eru í þróunarlöndunum.
bóluefnið þarf ekki að frysta,
heldur þarf einvörðungu að halda
því vel köldu. Árangur þessarar
þróunar kynni vel að vera sá, að
mislingar bættust í hóp þeirra
sjúkdóma, sem tekist hefur að
kveða í kútinn fyrir fullt og allt.
Þriðja aðferðin, sem skaut upp
kollinum á síðasta ári, en hefur
reyndar verið drepið á oftlega áð-
ur án þess að fá nægan hljóm-
grunn, felst í því að gera mæðrum
landa þriðja heimsins ljósa nauð-
syn þess að hafa börn sín á
brjósti. Þróunin hefur verið sú
undanfarin ár, að mæður hafa
tekið börn af brjósti eins fljótt og
unnt hefur verið, og gefið þeim
þess í stað úr pela.
Rannsóknir hafa nú sýnt, að
börnum, sem eru vanin á pela, er
3—5 sinnum hættara við ótíma-
bærum dauða en þeim börnum,
sem njóta brjóstagjafar. Ástæð-
urnar fyrir þessari auknu hættu
barna, sem gefið er af pela, eru
margar. I mjög mörgum tilfellum
geta mæðurnar ekki stautað sig
fram úr leiðbeiningunum á
þurrmjólkurumbúðunum. Þá er
ennfremur algengt, að mæður
hafi ekki efni á að kaupa nægt
þurrmjólkurduft. Enn ein ástæð-
an, og e.t.v. sú algengasta, er að
mæðurnar sótthreinsi útbúnað-
inn, sem notaður er við mjólkur-
blöndun og gjöf, ekki nægilega
vel.
í skýrslu UNICEF segir m.a.:
„Um leið og fátæk móðir, sem er
neydd til þess að hætta brjósta-
gjöf og gefa barni sínu af pela,
neyðist hún til þess að eyða stór-
um hluta lítilla tekna sinna í
þurrmjólkurduft og e.t.v. er hún
óafvitandi og óviljandi að leiða
kornabarn sitt á braut vannær-
ingar, sýkingar og um leið ótíma-
bærs dauða."
Baráttan fyrir brjóstagjöf hef-
ur verið að aukast hægt og bít-
andi á undanförnum árum. Nú
hafa 35 þjóðir víða um heim kom-
ið á fót reglugerðum um sölu og
dreifingu efna, sem koma eiga í
stað móðurmjólkur. Þá er enn-
fremur í undirbúningi á vegum
SÞ herferð þar sem vakin er at-
hygli á kostum brjóstagjafar. I
skýrslu UNICEF segir orðrétt:
„Tækist þessi herferð á þann hátt,
sem til er ætlast, væri hægt innan
áratugar að bjarga lífi milljón
ungbarna á ári hverju.
Fjórða hugmyndin, og sú sem
e.t.v. kemur um leið mest á óvart,
er skráning mæðra á mánaðarleg-
um vexti og framförum barna
þeirra. Mikilvægi skráningar-
spjaldanna felst fyrst og fremst i
því, að vannæring barnanna er
iðulega hulin mannlegum augum.
Könnun á Filippseyjum hefur
t.d. gefið til kynna, að 60%
mæðra, sem áttu vannærð börn,
höfðu ekki minnstu hugmynd um
að svo væri. Með því að vigta
börnin mánaðarlega og faera
niðurstöðurnar inn á þar til gert
spjald, er hægt að sýna móðurinni
fram á vannæringu barnsins.
Sjái hún, að ekki er um eðlilega
þyngingu að ræða, eru fyrstu
viðbrögð hennar að gefa barninu
meira að borða, sé nægur matur
fyrir hendi. Ennfremur að hvetja
barnið til að borða, jafnvel þótt
þvi finnist það vera lystarlaust.
Önnur könnun hefur ennfremur
sýnt, að í flestum tilfellum er það
sú staðreynd, að móðirin gerir sér
ekki grein fyrir því að allt sé ekki
eins og það á að vera, fremur en
skortur á mat, sem er orsökin
fyrir vannæringu barnsins.
í Indónesíu hafa tvær milljónir
mæðra í yfir 15.000 bæjum og
þorpum skráð reglulega vöxt
barna sinna og allt bendir til þess,
að komið hafi verið í veg fyrir
vannæringu í fjölda tilvika.
Árangur af þessum skráningum
kemur fyrst f ljós síðar á þessu
ári.
Lokaorð skýrslu UNICEF eru á
þá leið, að félags- og váindalegar
framfarir séu nú slíkar í heimin-
um, að hægt eigi að vera að valda
algerri byltingu í heilsugaeslu
barna heimsins. „Taki almenning-
ur og ríkisstjórnir heimsins hönd-
um saman um að berjast gegn
vannæringu og barnadauða er
hægt að minnka núverandi hlut-
fall um helming fyrir lok þessarar
aldar."