Morgunblaðið - 11.02.1983, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. FEBRÚAR 1983
13
Kjúklingaverð hér og í Danmörku:
Lakara kyn, orkuverð
hærra, fóðurbætisskattur
Hluti skýringarinnar á því hvers vegna
kjúklingar eru hér 140,3% dýrari en i Danmörku
„Ástæður þess að verð á kjúkl-
ingum er svo miklu hærra hér en í
Danmorku eru fjölmargar," sagði
Gunnar Jóhannsson, bóndi á As-
mundarstöðum í Rangárþingi, í
samtali við Morgunblaðið f gær.
„Ég get til dæmis nefnt að við er-
um með kjúklingakyn sem gefur
minna af sér en það sem Danir
nota, orkuverð er hér mun hærra,
fóðurbætisskatturinn illræmdi er
snar þáttur í þessu og fleira mætti
nefna,“ sagði Gunnar.
Gunnar rekur eitt stærsta
kjúklingabú landsins á Ásmund-
arstöðum ásamt bræðrum sín-
um, og hann á sæti í stjórn Fé-
lags kjúklingabænda. í sjónvarpi
kom nýlega fram hjá Jóhannesi
Gunnarssyni hjá Verðlagsstofn-
un, að verð kjúklinga er hér mun
hærra en í Danmörku. Jóhannes
sagði í samtali við blaðamann
Morgunblaðsins í gær, að verðið
væri 140,3% hærra í Reykjavík
en í Kaupmannahöfn hvert kg.
Hér kostaði hvert kg. 122,55
krónur, en í Kaupmannahöfn
51,00 krónu. Verðið sagði hann
miðað við lok síðasta árs, könn-
unin hefði verið gerð á svipuðum
tíma í löndunum, fyrir gengis-
fellinguna í upphafi þessa árs.
Jóhannes sagði kjúklinga hér á
landi vera selda án söluskatts,
en í Kaupmannahöfn væri 22%
söluskattur, sem væri innifalinn
í áðurgreindu verði þar.
„Meðal þess sem er mikilvæg-
ast í því að skýra þennan verð-
mun,“ sagði Gunnar Jóhannsson,
„er það, að hér á landi þurfum
við 4 til 4,5 kg af fóðri til að
framleiða hvert 1 kg af kjúkling-
um. í Danmörku þarf hins vegar
ekki nema 2 kg til að framleiða
sama magn. Mismunurinn liggur
í því, að þeir nota önnur kyn en
við. Við ræktum hér kjúklinga af
norskum stofni, sem ekki gefur
eins mikið af sér. Þar hefur hann
verið ræktaður lengi án sjúk-
dóma, og það hefur þótt of mikil
áhætta að taka hingað til lands
nýja stofna, sem ef til vill flytja
með sér sjúkdóma sem við höf-
um verið lausir við. Þetta er hins
vegar spurning um hvort það
telst áhættunnar virði eða ekki.
Ef til vill má segja að um sé að
ræða að ná fram 20 til 30% meiri
hagkvæmni fyrir 1% áhættu eða
minni. Sú áhætta kann þó að
vera meiri en nóg, og kjúkl-
ingabændur hér á landi hafa
ekki leitað stíft eftir því að fá að
flytja inn ný kyn, hvað sem verð-
ur.
Hér notum við því mun meira
fóður, og það segir til sín með
fóðurbætisskattinum, sem gerir
um 10% af heildarverðinu. Þá
erum við einnig mjög háð geng-
isbreytingum í okkar fóðurbæt-
iskaupum, nú er til dæmis ókom-
in í verðlagið 20% fóðurbætis-
hækkun vegna gengisfellingar
og gin- og klaufaveikinnar í
Danmörku. Það hefur áhrif til
hækkunar hér því við keyptum
fóðurbætinn af Dönum. Upp-
haflega kemur fóðrið hins vegar
allt frá Bandaríkjunum, og öll-
um er kunnug hin óhagstæða
þróun dollarans undanfarin
misseri.
Enn eitt sem þarf að hafa í
huga, er að orkuverð hér er mun
hærra en í Danmörku. Við höf-
um okkar fallvötn og stóru virkj-
anir en Danir framleiða raf-
magn með olíukyndingu. Þó
kostar raforkan þar ekki nema
V& af því sem við greiðum hér, en
kjúklingabú nota mikið raf-
magn. I um 60% verðbólgu hér
undanfarin ár hefur rafmagn
verið að hækka um 120% á ári.
Þá skiptir það vafalaust einnig
miklu máli þegar litið er á þessi
mál í heild, að hér er og hefur
heldur verið amast við kjúkl-
ingarækt en hitt. Hún á ekki upp
á pallborðið hjá stjórnvöldum,
nema þá sem tekjuöflunarleið til
að fá fjármagn til niðurgreiðslu
á kindakjöti. Meðan þannig er
ástatt er varla von á góðu, þegar
svo við bætist hið endalausa ör-
yggisleysi í öllu efnahagslifi
hér,“ sagði Gunnar að lokum.
blillliil.liliUIJ
Jóhann Hjálmarsson
Ólafur Jóhann Sigurðsson:
NOKKRAR VÍSUR UM VEÐRIÐ
OG FLEIRA.
Kvæði 1934—1951.
Önnur útgáfa aukin.
Mál og menning 1982.
Nokkrar vísur um veðrið og
fleira er með hófsamari bókar-
heitum og sama má segja um ljóð-
in. Þau eru flest yfirlætislaus og
eins og kveðin til hugarhægðar.
Bókin kom fyrst út 1952, en nú
birtist hún í annarri útgáfu með
viðauka, þ.e.a.s. kvæðum frá sama
tímbili. Þetta er í alla staði hin
geðfelldasta ljóðabók.
Eins og mönnum er kunnugt
kom Ólafur Jóhann Sigurðsson
fram á ný sem ljóðaskáld með Að
laufferjum (1972) eftir tuttugu ára
Þráin
hlé. Síðan kom Að brunnum (1974)
og Virki og vötn (1978).
Þegar ljóðin í Nokkrar vísur um
veðrið og fleira eru borin saman
við ljóðin í helstu bókum skáldsins
kemur í ljos að það er greinilegt
samhengi í skáldskap þess. Yrkis-
efnin eru lík, vinnubrögð svipuð og
alltaf vönduð.
Fögnuður yfir undrum náttúr-
unnar og hin rómantíska þrá
leyna sér ekki í Kvöldvísu til
dæmis:
Eldský í vestri speglar lítil lind,
logandi skikkja sveipar fjallsins tind,
en gullnir strengir milli trjánna titra
og tvístrast ört um lauflð stillt og rótt.
Senn munu dalir drúpa um sumarnótt
og döggin ta r á svölum runnum glitra,
litirnir slokkna, lindin breyta svip
og lognkyrr móða hjúpa tindinn gráa.
Senn munu kvöldsins léttu skýjaskip
skarlatsrauð hverfa út í geiminn bláa,
en lyngið njóta draums við dökkan stein
í djúpri kyrrð. Og engill Ijósrar nætur
blikvængjum hylur blóm við fjallsins rætur.
Blundar þá jörð. Og þrá mín vakir ein.
jr ^ ^
Ólafur Jóhann Sigurósson
vakir
Fljótið, eina órímaða ljóðið í
bókinni, er mælskt eins og slík
ljóð verða oft hjá þeim sem er
hefðbundið form tamara. Það er í
senn vegsömun náttúru og hug-
leiðing um vegferð mannsins.
I Viðauka er eitt ljóð þar sem
hin næma náttúruskynjun skálds-
ins víkur fyrir ugg sem er í ætt við
myrka lífssýn efasemdamanna
meðal samtímaskálda:
Kinn leitar þögla nótt að sjálfum sér.
A sömu nóttu annar fótaber
í örvæntingu í yztu myrkur flýr
undan þeim streng, sem við hans hjarta býr.
I»ú gengur einn um hverfulleikans heim.
Sem hnöttur stakur brunar kaldan geim,
unz aldur leysir liti hans og gerð,
svo lýkur einnig þinni brautarferð.
(Tómleikastökur)
UM HELCINA — 1983 ÁRGERÐIRNAR
OPIÐ: LAUCARDAC FRÁ KL. 10.00 -17.00 SUNNUDAC FRÁ KL. 13.00 -17.00
Auöi
I
AUD1100 - JETTA CL
PASSAT CL - G0LF C
G0LF CL - G0LF c sendibfll
vw sendibíll (Rúgbrauð)
meö vatnskældri bensínvél
vw „Double Cab"
vinnuflokkabíll, með vatnskældri dieselvél
audi 100 var valinn bíll ársins 1983 í Evrópu
vestur - þýskt
handbragð, hugvit og natni
[hIheklahf
Laugavegi 170 -172 Sími 212 40