Morgunblaðið - 11.02.1983, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. FEBRÚAR 1983
19
Líbanon:
Bandaríkjamenn
með nýjar tillögur
Hoirnt IH fakniar A1» ^
Breskir friöargæsluliöar aka um götur Beirút í dag á skriödrekum.
Beirút, 10. febrúar. Al*.
ELIE Salem, utanríkisráð-
herra Líbanon sagöi í dag, aö
Bandaríkjamenn hefðu boriö
fram nýjar tillögur, sem gætu
orðið grundvöllur fyrir sam-
komulagi „innan eins eða
tveggja mánaða“ og orðið til
þess, að það 60.000 manna
erienda herlið, sem er í Líb-
anon, yrði á brott þaðan.
Salem sagði ennfremur, að
ísraelsmenn hefðu fallið frá
sumum kröfum sínum og sýnt
sveigjanleika í öðrum kröfum.
Væri þetta góðs viti í viðræðum
þessum, sem hingað til hafa
verið á hálfgerðu öngstigi, þar
sem lítil von var um árangur.
Sagði Salem, að þessar nýju til-
lögur væru „mjög skynsamleg-
ar“ og auðvelt ætti að vera að
semja um þær, þar sem þær
nálguðust mjög sjónarmið Líb-
anonsmanna.
Salem nefndi ekki þær kröfur
sem ísraelsmenn eiga að hafa
fallið frá. Hann sagði stjórn
sína þegar hafa tekið jákvæða
afstöðu til hinna nýju tillagna
Bandaríkjamanna og hann
væri vongóður um, að ísraels-
stjórn myndi gera það einnig, elsstjórn þyrfti greinilega
þótt viðbrögð hennar lægju meiri tíma til þess að tileinka
ekki fyrir að svo komnu. ísra- sér tillögur Bandaríkjamanna.
Nefnd Sameinuðu þjóðanna:
Mannréttindi í E1
Salvador eru gróf-
lega fótum troðin
Genf, 10. febrúar. Al\
NEFND á vegum Sameinuðu
þjóöanna undir forsæti Spánverj-
ans Jose Antonio Pastor Ridru-
ejo skilaði í gær áliti sínu, en hún
hefur rannsakað meint mannrétt-
indabrot í El Salvador. Skýrsla
ncfndarinnar sagði mannréttindi
í landinu gersamlega fótum troð-
in og stjórnin stæði á bak við
flest hinna fjölmörgu pólitísku
morða sem þar eru framin.
í skýrslunni stóð að herinn,
þjóðvarðliðið og lögreglan
Norski Rauði krossinn
kaupir skreið fyrir Ghana
hefði drepið flesta hinna 4.777
sem vitað er að myrtir voru
fyrstu 11 mánuði síðasta árs.
Skýrslan vítir einnig skæruliða
vinstri manna fyrir brot á
mannréttindum, en segir þá
hins vegar ekki standa að baki
morðanna að neinu marki. Seg-
ir skýrslan að oft séu það
dauðasveitir hægri manna sem
sjái um morðin, en herstjórnin
beri ábyrgðina.
En auk morðanna, sakar
nefndin herstjórnina um al-
varlegar pyntingar á pólitísk-
um föngum, „fangar eru barðir
til óbóta, stórslasaðir og
hengdir upp í hinum ýmsu
stellingum. Undir slíkum
kringumstæðum er sýru gjarn-
an hellt yfir þá og/eða að
rafskautum er stungið í við-
kvæma líkamshluta".
framleiðendur óttast tilboð útlendinga
NORSKA ríkisstjórnin hefur veitt
5 milljónir n.kr. (13,5 millj. ísl.
kr.) til Rauða kross Noregs í því
skyni að keypt verði skreið fyrir
flóttamenn frá Nígeríu í Ghana.
Oslóarblaðið Aftenposten segir í
frétt um þetta, að Thor Olstad í
Sölusamlagi norskra fiskifram-
Bush á
heimleið
Lundúnum, 10. febrúar. Al\
GEORGE Bush varaforseti Banda-
ríkjanna sagöi í dag aö augljóst væri
að „núll-lausnin" svokallaöa væri sá
valkostur sem NATO-ríkin styddu,
en annað mál væri hvort Sovétríkin
myndu nokkurn tíma samþykkja
hana.
Hann sagði þetta við brottför-
ina frá Lundúnum í dag, en hann
hefur verið á ferð um Evrópu und-
anfarna tólf daga. Hann sagðist
myndu færa Ronald Reagan
Bandaríkjaforseta allar nýjustu
tillögur sem fram hefðu komið í
afvopnunarmálum sem og öðrum.
Handtóku 53
mafíubófa
(’atanzaro, Ítalíu, 10. febrúar. Al\
RÚMLEGA 300 lögreglumenn hand-
tóku 53 menn grunaða um að vera
meölimir í mafíusamtökunum í
þrcmur héruöum Kalabríu í gær.
Notaði lögreglan bæði þyrlur og
brynvarða bíla í aðgerðunum sem
voru með þeim stórfelldari. 20
hinna handteknu voru gripnir
samkvæmt tilskipun, en hinir
voru gómaðir við ólögmætt at-
hæfi. 25 stolnir bílar fundust í fór-
um hópsins, einnig mikið magn
skotvopna.
leiðenda (Fiskeprodusentenes
Fellessalg) telji óraunhæft annað
en Rauði krossinn kaupi skreiðina
af norskum framleiðendum. Með
lokun skreiðarmarkaðarins í Níg-
eríu verða Norðmenn af því að
selja þangað 1.500 lestir af skreið
á mánuði.
Norðmenn sitja nú uppi með
240 þúsund lestir af skreið. Frá
því í apríl á síðasta ári hefur
verið mælst til þess af félögum
fiskframleiðenda að menn verk-
uðu ekki í skreið. En ýmsir stór-
ir aðilar á Lófóten-svæðinu hafa
haft þessi tilmæli að engu.
Af fréttinni í Aftenposten má
ráða, að fiskframleiðendur í
Noregi hafi af því nokkrar
áhyggjur að Rauði krossinn
muni festa kaup á skreið utan
Noregs og senda til Ghana. Odd
Grann framkvæmdastjóri
Rauða krossins lét orð um það
falla í blaðaviðtali fyrir síðustu
helgi, að Rauði krossinn kannaði
einnig tilboð um skreið frá öðr-
um en Norðmönnum. í viðtali
við Aftenposten á mánudag
sagði Grann, að hann liti svo á,
að Rauði krossinn væri skyldur
til að kaupa af norskum aðilum,
hins vegar hefðu erlendir
skreiðarútflytjendur haft sam-
band við skrifstofu Rauða kross-
ins í Osló.
í fyrstu ferð á að senda 90
lestir af skreið til Ghana og
næsta sending fer af stað þegar
hin fyrsta er örugglega komin á
leiðarenda.
INDIKA Gandhi forsætisráöherra
Indlands hóf kosningabaráttu sína í
dag í Assam-fylki meö þeim afleiö-
ingum, aö harkaleg átök brutust þar
strax út, þar sem 12 manns voru
drepnir. Fimmtíu manns hafa verið
drepnir á undanförnum sjö dögum í
blóðugum átökum í þessu fylki, þar
sem miklar óeiröir hafa átt sér staö.
Hafa margir íbúar í Assam
Nefndin heimsótti E1 Salva-
dor í sex daga í september síð-
astliðnum og byggir skýrslu
sína á fjölda viðtala við ein-
staklinga.
krafizt þess, að fólk frá nágranna-
fylkinu Bangladesh, sem sezt hef-
ur að í Assam, eigi ekki að hafa
þar neinn kosningarétt og með
réttu eigi að reka það burt úr fylk-
inu. Þeir, sem fyrir þessum mót-
mælaaðgerðum standa, hafa hótað
að koma algerlega í veg fyrir
fyrirhugaðar kosningar, sem fram
eiga að fara 14,—20. febrúar.
Rússar segja sig úr WPA
Alþjóðasambandi geðlækna
Vínarborg, 10. Tebrúar. Al\
SOVÉTKÍKIN hafa sagt sig úr
Alþjóöasambandi geölækna,
WPA, vegna gagnrýni þess efnis,
að geðlæknar þar misbeiti starfi
sínu til þess aö kveða niöur and-
ófssinna. Staðfesti talsmaöur al-
þjóöasambandsins þetta í dag.
Þessi úrsögn kemur á óvart
nú, þegar fimm mánuðir eru
þangað til að haldið skal þing
WPA í Vínarborg. Er talið, að
markmiðið með úrsögninni sé
að verða fyrri til og koma í veg
fyrir, að sambönd geðlækna á
Vesturlöndum komi sér saman
um að reka sovézka geðlækna-
sambandið úr samtökum
þeirra.
Það var samband brezkra
geðlækna, sem talið var, að
ætti eftir að leggja fram til-
lögu til ályktunar á komandi
þingi WPA þess efnis, að sov-
ézka geðlæknasambandinu
yrði vísað úr WPA.' Banda-
ríska geðlæknasambandið hef-
ur ekki viljað ganga svo langt,
en hafði í hyggju að fá því
framgengt að sovézka geð-
læknasambandinu yrði vísað
úr samtökunum til bráða-
birgða.
Serbsky-stofnunin, þar sem
fjöldi sovézkra andófsmanna
hefur veriö í „geörannsókn“.
Tólf drepnir í Indlandi
Nýju Delhí, 10. febrúar. Al\