Morgunblaðið - 11.02.1983, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. FEBRÚAR 1983
25
Óánægja meö hitunarkostnað á Höfn:
„Helmingur teknanna
í að borga fyrir hita“
— segir Jónína
Kristjánsdóttir
„Kftir því sem ég kemst næst ríkir
mikil óánægja meö þessa háu orku-
reikninga, enda ekki við ööru að bú-
ast þegar allt að helmingur launanna
fer í að greiöa fyrir hitaveituna,“
sagði Jónína Kristjánsdóttir, hús-
móðir á Höfn í Hornafirði, í samtali
við Morgunblaðið í gær.
Þau hjónin Jónína og Þormar
Ragnarsson, sjómaður, Hlíðartúni
15, urðu að greiða rúmar 6.900
krónur fyrir tveggja mánaða hita
og sagði Jónína það dæmigerða
upphæð fyrir húshitunarkostnað á
Höfn, en kvaðst þó vita um hita-
veitureikninga upp á rúmar átta
þúsund krónur.
„Á móti þessu koma engar bætur
eða niðurgreiðslur. Olíustyrkurinn
var tekinn af okkur um leið og búið
var að leggja hitaveituna í götuna,"
sagði Jónína. „Okkur var á sínum
tíma lofað því að hitaveitan yrði
hagkvæmari en olíukynding, en ég
er smeyk um að reyndin sé önnur,“
sagði hún.
„Þegar var sem kaldast í haust
fór hitinn í þessu húsi ekki upp
fyrir 17 gráður þótt kynt væri á
fullu. Það er auðvitað ekki nema
hálfur hiti, en samt þurfum við að
greiða í topp.
Ég veit ekki hvernig maður á að
borga þetta þar sem föstu launin
eru 11 þúsund krónur á mánuði, en
af þeim þurfum við að borga af hús-
inu sem við hjónin erum nýbúin að
kaupa, og fæða okkur og klæða, en
við eigum tvö ung börn,“ sagði Jón-
ína.
Meðfylgjandi eru reikningar
þriggja heimila frá Hitaveitu Hafn-
arhrepps, reikningur þeirra Þor-
mars Ragnarssonar og Jónínu, og
reikningar tveggja heimila ann-
arra, en eins og sjá má eru þeir allir
upp á rúmar sex þúsund krónur.
Judith Bauden og Marc Tardue.
Syngja í Gamla bíói
NÆSTKOMANDI sunnudag 13. febrúar klukkan 17.00, halda Judith Bau-
den sópran og Marc Tardue píanóleikari tónleika í Gamla bíói á vegum
íslensku óperunnar. Allur ágóði af tónleikunum mun renna til styrktar
íslensku óperunni.
Á efnisskránni eru eingöngu
verk bandaríska tónskálda, m.a.
„The Knoxville Summer of 1915“
eftir Samuel Barber svo og aríur
og söng%rar eftir Menotti, Hage-
man, Victor Herbert, Foster og
Nilos.
Judith Bauden er fædd í Banda-
ríkjunum. Hún stundaði söngnám
í Peabody Conservatory of Music í
Baltimore, Maryland. Kennari
hennar þar var Marjlyn Cotlow.
Hún útskrifaðist þaðan með Bach-
elor of Music gráðu í söng 1977.
Hún hefur síðan sungið reglulega
hlutverk í óperum, óratoríum og
með sinfóníuhljómsveitum í
Bandaríkjunum auk fjölmargra
einsöngstónleika.
Undirleikari hennar er eigin-
maður hennar Marc Tardue. Hann
hefur dvalið hér á íslandi síðan í
haust, en hann hefur einmitt
stjórnað flestum sýningum ís-
lensku óperunnar á Töfraflaut-
unni sem nú er sýnd fyrir fullu
— eftir Steinar
Guðmundsson
Góðu heilli hefur mikið verið
um ofdrykkjuvandann skrifað
upp á síðkastið, en illu heilli
virðist ráðandi sú skoðun að
alkóhólismi skuli teljast til
sjúkdóma. Vegna sjúkdóms-
hugtaksins mynda Miinchaus-
ensjúklingar biðraðir við
hjálparstöðvarnar.
Samt finnst mér öllu ískyggi-
legra að hugsa til afleiðinga ef
tækist að slæva sjálfsábyrgðar-
kennd skólaæskunnar með þess-
um hártogunum. Segja mætti
mér, að þessi grátlegi misskiln-
inppir gæti kostað þjóðina ekki
bara eina, heldur margar nýjar
meðferðarstofnanir strax um
næstu aldamót.
Reiknað út frá föstudagsös-
inni við vínbúðir og bari, má
ætla að helgardrykkja sé al-
gengasti drykkjumátinn hér á
landi. Ástæðan hlýtur að vera
sú, að vínneitandinn geri sér
Ijóst að gott sé að eiga frídag
eftir fylleríið. í ákvörðun sinni
um helgardrykkjuna grípur
hann því til skynsemi sinnar, og
ef ástríða ræður helgardrykkju,
hlýtur hér að vera um skynsem-
istengda ástríðu að ræða, en að
mínu viti hlýtur ástríða sem lýt-
ur stjórn skynseminnar að
hætta að vera ástríða — hún
tekur á sig svip ákvörðunar. Og
þannig held ég að ástríðuhug-
takið mundi oftar velta um
sjálft sig ef grannt væri skoðað.
En ástriða er ein af aðaluppi-
stöðum sjúkdómshugtaksins.
Sjúkdómshugtakið er svo mót-
sagnakennt, að það eykur á
ruglið í drykkjumanninum, ein-
mitt því meini sem leiðbeinand-
inn er að reyna að koma skipu-
lagi á. Til dæmis mætti nefna,
að margur maðurinn byrjar
sumarfrí sitt með rösku fylleríi,
en ákvæði í samningum vinnu-
veitenda og launþega kveða svo
á um, að sjúkdómur í sumarfríi
skuli bættur með viðbótarfríi.
Hræddur er ég um, að þetta
gæti orðið þeim sem sinna ís-
lenskum ofdrykkjuvörnum seig-
ur biti þegar fram í sækir ef
sjúkdómshugtakið nær undir-
tökunum hjá skjólstæðingum
þeirra.
Mjög algengt er að menn
bendi á utangarðsmennina þeg-
ar rökstyðja á sjúkdómshugtak-
ið. Ábendingin er rétt að því
leyti, að þarna er um sjúklinga
að ræða. Þarna eru menn sem
ráfað hafa til hliðar í þjóðfélag-
inu og okkur ber skylda til að
sinna.
Utangarðsmenn, eða auðnu-
leysingjar, safnast saman í
þéttbýlinu. Þetta er algild regla.
Ég kynnti mér þessi mál úti í
Skotlandi árið 1970, en þá fór
þar fram fagleg og ítarleg könn-
un á þessum þætti drykkjuskap-
„SjúkdómshugtakiÖ er
svo mótsagnakennt, að
það eykur á ruglið í
drykkjumanninum, ein-
mitt því meini sem
leiðbeinandinn er að
reyna að koma skipulagi
á. Til dæmis mætti
nefna, að margur mað-
urinn byrjar sumarfrí
sitt með rösku fylleríi,
en ákvæði í samningum
vinnuveitenda og laun-
þega kveða svo á um, að
sjúkdómur í sumarfríi
skuli bættur með við-
bótarfríi.“
ar. Við heimkomuna kastaði ég
tölu á auðnuleysingjaflokkinn
hér, enda stóð ég vel að vígi, því
ég hafði meira og minna alist
upp með þessum mönnum og
þekkti obba þeirra með nafni.
Útkoman varð um 160, sem í dag
má telja líkleg mánaðarafköst
SÁÁ, en af þessum 160 var um
helmingur inni á hælum og öðr-
um stofnunum þegar talningin
fór fram að sumarlagi 1970.
Á sama tíma var talað um að
húsi viku eftir viku. Hann stjórn-
aði einnig æfingum Töfraflaut-
unnar auk þess sem hann stjórnar
æfingum á næsta verkefni óper-
unnar, Míkadó, sem frumsýnt
verður bráðlega.
Þau hjónin búa í Washington
D.C. en þar starfar hann sem æf-
ingastjóri og hljómsveitarstjóri
við margar stofnanir í tónlistarlífi
Washingtonborgar auk þess sem
hann stjórnar Laurgl^ Oratorio
Society kórnum í Washington.
Marc er píanóleikari og undirleik-
ari við söng.
Grátbroslegur misskilningur
íslenskir alkóhólistar gætu alls
ekki verið færri en 6 þúsund.
Með þeirri þekkingu sem við nú
búum við efast enginn um að
þarna var um lágmarkstölu að
ræða. En könnun mín, sem náði
til Stór-Reykjavíkursvæðisins
auk Árnes- og Rangárvalla-
sýslna, benti til þess að hlutur
þessa fólks hafi ekki farið mikið
yfir 3%. Ég vona að menn geri
sér ljóst, að 1% af 100 drykkju-
mönnum er 1 drykkjumaður, og
þegar um íslenska útiganginn er
að ræða, má geta þess, að hann
verður ekki allur rakinn til
ofdrykkju.
Nú er verið að byggja sjúkra-
stöð, eða réttara sagt
slysavarnastöð, sem ég tel að sé
mjög stór þáttur í öllum
ofdrykkjuvörnum. Með þessu
lofsverða framtaki SÁÁ er verið
að vinna óeigingjarnt starf í
þágu okkar allra sem þetta land
byggjum. Þeirri krónu er vel
varið, sem sett er í púkkið til að
reisa þessa menningarstofnun
við Grafarvoginn, því þannig er
hlúð að vanræktustu slysavörn-
um á íslandi. En gleymum því
ekki, að ef menn almennt gerðu
sér ljóst hvernig sjúk-
dómshugtakið er notað, bæði af
drykkjumönnum og ofstopa-
mönnum sem skýla sér á bak við
það, er hætt við að menn legðu
þessa réttlætingu til hliðar og
krefðust þess, að jafnt drykkju-
menn sem aðrir væru álitnir
ábyrgir gjörða sinna.
Sextán ára piltur í Ghana með
margvísleg áhugamál:
Fred Boachie Danquah,
c/o Mr. Ebk Ieboah,
Box 120,
Suntani,
Ghana.
Frá V-Þýzkalandi skrifar 27 ára
stúlka. Hennar aðaláhugamál eru
dýr:
Renate Holub,
Postfach 201,
I>8100 Garmisch-Partenkirchen,
W-Germany.
Sextán ára piltur í Ghana með
margvísleg áhugamál:
leboah Asuama James,
c/o Mr. Ebk Ieboah,
Box 120,
Suntani,
Ghana.
Átján ára piltur á Möltu í Mið-
jarðarhafi skrifar og segist hafa
lesið mikið um ísland og segir
tíma til kominn að eignast hér
pennavini. Hefur mikinn áhuga á
íþróttum og landafræði, heldur
mest upp á Val í Reykjavík af
knattspyrnuliðum, og segir Ásgeir
Sigurvinsson uppáhaldsknatt-
spyrnumann sinn. Veit hins vegar
ekki að hann fór frá Bayern
Munchen í fyrra til Stuttgart.
Spáir íslenzkum sigri (3:1) í leik
íslands og Möltu í Evrópukeppn-
inni á Sikiley 5. júní n.k., en von-
ast þó eftir sigri sinna manna:
Stephan Borg,
St. Joseph,
St. Joseph Street,
Zonqor,
Marsascala (Wied il-Ghajn),
Malta.