Morgunblaðið - 11.02.1983, Síða 31
31
i
\
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. FEBRÚAR 1983
líka orðið fíknilyf og þá er mikil
hætta á ferðum. Sem betur fer, er
það ennþá aðeins lítill hluti ung-
menna, sem glatar þannig lífi og
heilsu, en þeim hefði verið minni
hætta búin, ef þeir hefðu getað
leitað í tíma til móður sinnar, eða
sálusorgara, hvort sem hann var
faðir eða móðir.
Klám
íslenzka orðið klám, sem hefur
óverðskuldað fengið á sig einhvern
sóðalegan blæ, mun vera dregið af
„clam“ í latínu, en það er at-
viksorð og á við það sem gerist
leynilega eða f felum. Af sama
stofni eru svo latnesku sagnmynd-
irnar „clamare" og „exclamare"
(franska: clamer og exclamer),
sem báðar merkja að láta eitthvað
áður leynilegt í ljós með ofsaleg-
um orðum eða hrópum. Nú er orð-
ið klám aðeins notað hér um til-
teknar mannlegar athafnir og orð-
bragð, og eru aðalmerkingarnar
mannlegt kynlíf og fjölmiðlun í
máli og myndum á slíkum athöfn-
um, ásamt auglýsingum á konum
sem munaðarvöru. Er birting
þesskonar efnis orðin ein örugg-
asta fjáröflunarleið fjölmiðlanna,
og ganga kvikmyndirnar lengst í
þessum „clameur". Virðast eitt
eða fleiri kynlífsatriði vera orðin
ómissandi í hverri kvikmynd, til
þess að útgáfan borgi sig. Jafnvel
virðuleg leikhús eru tekin að
senda eina eða fleiri persónur
naktar inn á sviðið, til þess að
örva aðsóknina.
Útgefendur bóka og blaða hafa
fyrir löngu komið auga á þessa
fjáröflunarleið. Auk „fag“-tíma-
rita og -bóka í þessari grein, fer
það mjög í vöxt, að dagblöð freist-
ist til þess að birta eina og eina
nektarmynd, eins og krydd í text-
ann hjá sér.
Myndir af fáklæddum konum
eru mikið notaðar í auglýsingum,
einkum frá skemmtistöðum og
ferðaskrifstofum. Þannig eru birt-
ar myndir frá suðrænum bað-
ströndum, þar sem hálfnaktar
konur liggja út um allar fjörur,
eins og rekaviður á Hornströnd-
um. Á báðum stöðum virðist auð-
velt að hirða einn eða fleiri ítur-
vaxna boli, að minnsta kosti í aug-
um þeirra landa okkar, sem búa á
rekajörðum.
Þá færist mjög í vöxt að haldn-
ar séu sýningar á konum, svo-
kallaðar fegurðarsýningar, með
verðlaunaveitingum og öllu til-
heyrandi, líkt og gerist á vörusýn-
ingum og á búfjársýningum
bænda. Óneitanlega er þarna verið
að „exklamera" líkamsfegurð
kvenna, gegn staðgreiðslu sýn-
ingargesta, og þeim til augnayndis
og ánægju.
Ljótar listir
Hér er full ástæða til að minn-
ast á aðra tegund kláms, sem
laumað hefur verið inn á svið fag-
urra lista, eins og skáldskapar,
tónlistar og myndlistar, fyrir til-
verknað nýgræðinga, sem gerst
hafa hér iðkendur „ljótra lista“.
Heiti á skáldsögu eins og
„Kvennaklósettið" eða nafn á
hljómsveit eins og Tappi Tíkar-
rass, gefur í skyn, að hér sé á ferð-
inni eitthvað, sem tæpast getur
talist fagurt eða siðlegt. Þá getur
sú myndlist tæpast talist fögur,
sem er svo fáfengileg, að nota
verður til hjálpar alls konar uppá-
komur (performances), byggðar á
fáránlegum tilburðum flytjenda,
til þess að náð verði tilætluðum
áhrifum. Sem sagt, tilgangurinn
helgar meðalið, og tilgangurinn er
að selja ljóta list fyrir hátt verð.
Fari maður að benda á það, að
myndir þessara nýgræðinga séu
engin list, heldur pár og klessur
settar á pappír af handahófi, eða
að tónlistin þeirra sé „holtaþoku-
væl“, þá er bara sagt, að hann hafi
ekki vit á list. Svo einfalt er þetta.
Hér er verið að blekkja fólk og
svíkja, laumast að baki meðborg-
aranna og spilla dómgreind
þeirra. Þetta eru klámhögg, sem
þjóðinni eru veitt, en um þau
kveður Grímur Thomsen: „Mín eru
örin öll að framan, aldrei klám-
högg neinn mig hjó.“
Einn hring ennþá,
móðir mín
Þann 22. janúar sl., birtist í
Lesbók Morgunblaðsins grein eftir
Tryggva V. Líndal, undir fyrir-
sögninni: „Barnsmóðurhlutverk
kvenna. Undirstaða karlaveldis-
ins.“ Tryggvi er sýnilega á svip-
aðri skoðun og karlhatarinn
Knusmann, og langar til að taka
„einn hring ennþá“, svo að vitnað
sé til prestsins í Hruna. Fyrstu
dansspor þessa unga rauðsokka er
að fjalla um „hefðbundna yfir-
burði karla í stórum dráttum" og
telur hann upp eftirtalda átta
slíka, sem karlar hafi framyfir
konur: „Fjölbreyttari þekkingu og
reynslu á umheiminum"; „fleiri
persónuleg sambönd"; „úrslita-
aðstöðu við öflun lífsnauðsynja";
„að bera vopn til veiða á stórum
dýrum og til varnar heimabyggð-
inni“. Starf karla býður „upp á
meiri hvíld og afslöppun"; þeir eru
„betur fallnir til flestra líkam-
legra áreynslustarfa og íþrótta";
en einu andlegu yfirburðirnir, sem
karlmenn hafa framyfir konur,
„er hæfileikinn til að meta þess
konar fjarlægðarhlutföll, sem
reynir á, þegar hlutum er kastað í
mark“; og í áttunda og síðasta lagi
hafa karlmenn „notið góðs af því,
þegar ungbörnum var fargað", „en
þá voru það oftar meybörnin, sem
urðu fyrir barðinu á því.“
Við þessari upptalningu er ekk-
ert að segja og mega karlmenn vel
við una, nema hvað fullyrðingin
um andlegu yfirburðina er hinn
mesti þvættingur, og það er ekki
hægt að kenna körlum um nærri
allan barnaútburðinn. Benda má á
það, að nú hefur „barnaútburður"
verið tekinn upp aftur, en nú í
formi fóstureyðinga. Talið er, að
brátt verði unnt að finna það á
ódýran máta í upphafi meðgöngu-
tímans, hvort konan gengur með
sveinbarn eða meybarn. í framtíð-
inni getur þá „fóstureyðingastjóri
ríkisins" ráðið því, hversu mörg
börn fæðast af hvoru kyni. Eftir-
sóknarverð staða, eða hvað?
Tryggvi sýnir fram á það,
hvernig spara má karlmenn. „Ef
eitt sveinbarn væri látið lifa, en
tíu meybörn, þá gæti sú kynslóð
uppkomin getið af sér eitt hundr-
að börn, þar eð hinn eini karlmað-
ur gæti frjóvgað allar konurnar.“
Skrá um diplómatíska
starfsmenn komin út
Út er komin árleg skrá utanrík-
isráðuneytisins, „Diplomatic
List 1983“, með upplýsingum
um diplómatíska starfsmenn,
heimilisföng, símanúmer og tel-
exnúmer erlendra sendiráða
sem annast samskipti við ísland.
Þau eru nú nær 70 talsins, þar af
tólf í Reykjavík en hin í ná-
grannalöndunum.
Jafnframt hafa 28 ríki kjör-
ræðismenn á íslandi og er
þeirra getið í útgáfunni.
Þá er þar birt yfirlit yfir
þjóðhátíðardaga og íslenska
fánadaga.
Heftið er fáanlegt í utanrík-
isráðuneytinu, Hverfisgötu
115, 5. hæð.
V^terkurog
k-/ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
fRergiimMi&tfr
Skákkeppni stofn-
ana og fyrirtækja
Vel að merkja, ef hann ætti 10
börn með hverri. Svo geta menn
reiknað áfram.
Tryggvi lýkur grein sinni með
því, sem hann nefnir „fagnaðarer-
indi“, en það er á þessa leið: „í
skrifstofustörfum nútímans
standa konur næstum jafnt að vígi
körlum, þótt þær séu ófrískar öðru
hvoru.“ Hér lætur höfundurinn
móðurhlutverkinu lokið með fæð-
ingu barnsins. Barnið á þá sýni-
lega að leggja inn á einhverja upp-
eldisstöð ríkisins. Og svo heldur
„fagnaðarerindið" áfram, þegar
hinni ævafornu aðstöðu karl-
mannsins hefur verið hnekkt, og
tekur Tryggvi svo til orða: „Má þvi
búast við, að karlaveldið hrynji,
þegar tækni okkar iðnvædda þjóð-
félags nær því stigi, að líkamleg-
um erfiðisstörfum verður útrýmt."
Hér gleymir þessi boðandi fagnað-
arerindisins þvi, að tölvuvæðingin
er að yfirtaka skrifstofustörf nú-
tímans, svo að hinni nýfengnu að-
stöðu konunnar verður líka
hnekkt. Við tekur nær algert að-
gerðarleysi. Enginn hefur neitt að
gera, hvorki karlar né konur,
nema nokkrir valdamiklir tölvu-
meistarar. Vinnan, þetta eilífa
viðfangsefni hverrar heilbrigðrar
manneskju, hefur verið tekin af
fólkinu, lögð niður eins og heimil-
ið.
í einhverri fjarlægri „Kreml"
sitja „yfirtölvumeistararnir",
„Ríkisalmættið". Með tölvustýrðri
tækni lætur það framleiða brauð
og vímugjafa handa þjóðinni. En
alþýðan, andlegir og efnalegir ör-
eigar, heimilislausir og iðjulausir,
hópa sig saman í hjarðir og drepa
tímann með því að dansa. Þar er
kominn Hrunadans siðmenningar-
innar. f æðiskenndri vímu æpir
fólkið á Almættið: „Einn hring
ennþá, móðir mín.“ Og hver hjörð-
in af annarri hverfur af yfirborði
jarðar.
Sigurður Pétursson
gerlafræðingur.
SKÁKKEPPNI stofnana og fyrir-
tækja 1983 hefst í A-riðli mánu-
daginn 14. febrúar kl. 20 og í
B-riðli miðvikudaginn 16. febrúar
kl. 20. Teflt verður í félagsheimili
Taflfélags Reykjavíkur að Grens-
ásvegi 44—46. Keppnin verður
með svipuðu sniði og áður, segir í
fréttatilkynningu frá Taflfélagi
Reykjavíkur.
Tefldar verða sjö umferðir
eftir Monrad-kerfi í hvorum
flokki um sig. Umhugsunartími
er ein klukkustund á skák fyrir
hvern keppanda. Hver sveit skal
skipuð fjórum mönnum auk
1—4 til vara.
Fjöldi sveita frá hverju fyrir-
tæki eða stofnun er ekki tak-
markaður. Sendi stofnun eða
HÓTEL Loftleiðir efna til mikillar
síldarveislu í Blómasal hótelsins
dagana 11.—20. febrúar í samvinnu
við íslensk matvæli. Á hverju kvöldi
verður mikið úrval af sfldar- og fisk-
réttum á boðstólum og hafa gestir úr
liðlega 30 tegundum að velja að
ógleymdum salötum og ídýfum.
Einnig stendur þeim til boða sér-
stakur salatbar og brauðbar, segir í
fréttatilkynningu frá Loftleiðahóteli.
Meðal nýjunga sem kynntar
verða, má nefna innbakað laxa-
paté og hörpudiskapaté. Þarna
gefst einnig tækifæri til að
smakka reyktan og grafinn karfa,
svo nokkuð sé nefnt.
fyrirtæki fleiri en eina sveit,
skal sterkasta sveitin nefnd
a-sveit, næsta b-sveit o.s.frv.
Þátttökugjald er kr. 900 fyrir
hverja sveit. Nýjar keppnis-
sveitir hefja þátttöku í B-riðli.
Keppni í Á-riðli fer fram á
mánudagskvöldum, en í B-riðli á
miðvikudagskvöldum. Fyrsta
kvöldið verður tefld ein umferð
en tvær umferðir þrjú seirini
kvöldin. Mótinu lýkur með
hraðskákkeppni, en nánar verð-
ur tilkynnt um það síðar.
Þátttöku í keppnina má til-
kynna í síma Taflfélagsins á
kvöldin kl. 20—22. Lokaskráning
í A-riðil verður sunnudaginn 13.
febrúar kl. 14—17, en í B-riðil
þriðjudaginn 15. febrúar kl.
20-22.
Félag harmonikkuunnenda
sendir fulltrúa sína á staðinn á
laugardags- og sunnudagskvöld,
og munu þeir skemmta gestum og
skapa rétta síldarstemmningu.
Skagamenn munu síðan fjöl-
menna 18. og 19. febrúar og
skemmta með leikþætti og söng.
Þátttaka i síldarævintýrinu
kostar 195 krónur á- mann. Að
sjálfsögðu geta þeir sem það vilja
valið sér aðra rétti af matseðli
Blómasalarins. Síldarævintýrið
verður á dagskrá á hverju kvöldi
fram til 20. febrúar, en í hádeginu
er kalt borð með þorraívafi.
Sfldarréttir og Akranes-
dagar á Hótel Loftleiðum
LAGER
ALA
PARTNER -búðinni
Laugavegi 30.
oQc. Prjónavesti 50,-
' %**»**<#
Peysura195.- ^Pur 4g0 “•
JJ 10 Pör af sokkum á
V aðeins kr. 195.-
LAGERINN Smiðjuvegi 54.