Morgunblaðið - 03.03.1983, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. MARS 1983
27
Verðkönnun eða
verðblekking?
Neytandinn hefur síðasta orðið
Athugasemd
við auglýsingu
Dagblöð eru sjálfsagt ekki vett-
vangur málareksturs um ólögmæta
viðskiptahætti, en vegna auglýsingar
frá Samvinnuferðum-Landsýn, sem
tvívegis hefur birzt í Morgunblaðinu
og augljóslega er gerð í því skyni að
valda Ferðaskrifstofunni Útsýn tjóni
og gera viðskipti hennar tortryggi-
leg, óskar Útsýn birtingar á eftirfar-
andi athugasemd.
Eftir því sem áætlun Samvinnu-
ferða-Landsýnar gefur til kynna,
virðist það fyrirtæki aðeins hafa á
boðstólum eigin leiguflugsferðir á
einn stað í sólarlöndum, þ.e. Rim-
ini, þó með millilendingu í nokkr-
um ferðum fyrir farþega til Porto-
ros, en Útsýn býður sólarlanda-
ferðir til Portúgal, Torremolinos,
Marbella, Mallorca og Italíu. Sam-
anburður á verðskrám erlendra
ferðaskrifstofa bera með sér, að
Rimini er verðflokki lægri en
flestir aðrir sólbaðstaðir Evrópu
og fara þá gæðin venjulega eftir
því. Hvað S.L. telja „eðlilegan
fjölda í íbúð“ og „sambærilegt að
gæðum“, er þeirra eigið mat og
ekki endilega einhlítt eða trúverð-
ugt fremur en aðrar tölur þeirra,
sbr. t.d. „ókeypis flugfar innan-
lands“. í svokallaðri „verðkönnun“
eru aðeins teknar tvær tölur út úr
verðskrá Útsýnar með 450 mis-
munandi verðtilboðum, og miðað
við að allir sem ferðast séu fjöl-
skyldur, þ.e. hjón með 2 börn, 5 og
9 ára, og aðeins miðað við brott-
farir í ágúst! Miðað er við aðeins
einn gistimöguleika, þ.e. 3ja her-
bergja íbúð fyrir 2 fullorðna og 2
börn. Af auglýsingunni má ráða,
að átt sé við Giardino, sem er í
Riccione en ekki Rimini og um 1
km frá strönd og borið saman við
Lunu hjá Útsýn í Lignano, sem
stendur alveg við „gullnu strönd-
ina“. Gæði og þægindi fara ekki
aðeins eftir herbergjafjölda held-
ur fremur búnaði og stærð. Sé
miðað við tveggja herbergja álíka
stóra íbúð að flatarmáli og þá sem
L.S. auglýsa í „verðkönnuninni" er
verð þeirra 80 kr. lægra á mann í 3
vikur, eða tæplega 4 kr. lægra á
dag. En dettur nokkrum í hug að
gera gæðasamanburð á Riccione
og Lignano með valdri aðstöðu og
fullkomnum búnaði á gististöðun-
um Olimpo og Luna með eigin
skrifstofu Útsýnar og yfir 30 þjón-
ustufyrirtæki á jarðhæð? Útsýn
hefur og íslenzkt starfsfólk sem
ræstir íbúðir farþega daglega, en
hjá S.L. er ræsting einu sinni í
viku. Ekki þarf annað en skoða
áætlanir beggja fyrirtækjanna,
S.L. og Útsýnar, til þess að ganga
úr skugga um gæðamun gististaða
og fá raunhæfan verðsamanburð.
í fyrrgreindri auglýsingu um
„verðkönnun" er sagt: „hvergi er
reynt að skekkja myndina heldur
leitast við að draga upp raunhæf-
ar tölur tveggja aðila"! Vísast hér
til reynslu almennings og dóm-
greindar um sannleiksgildi þess-
ara orða, en haldi S.L. áfram upp-
teknum hætti að gera „samkeppn-
isaðila' tortryggilegan með aug-
lýsingum og fölsunum af þessu
tagi, áskilur hann sér rétt til að
krefjast aðgerða gegn meintum
ólögmætum viðskiptaháttum.
Samanburðurinn um dönsku
sumarhúsin er jafnvillandi og
hinn. Hvergi er getið um stærð,
staðsetningu né búnað húsanna,
en aðeins teknar 2 tölur af mörg-
um til samanburðar og þá miðað
við minnstu húsin hjá Útsýn,
vegna þess að sú tala gefur nei-
kvæðan samanburð. öll sumar-
húsin, sem Útsýn býður eru sér-
stæð og með stórum, vel grónum
görðum, garðhúsgögnum, góðum
svefnherbergjum, eldhúsi, bað-
herbergi, og rúmgóðum stofum.
S.L. gleyma gæðasamanburðinum,
og minnast hvergi á að sængur-
fatnaður, ræsting, rafmagn, hiti
og sjónvarp er innifalið hjá Útsýn
en ekki hjá þeim, sennilega til að
„skekkja ekki myndina"? Þeim
sem kjósa að dveljast í sumarhús-
um í Danmörku, vill Útsýn að
sjálfsögðu veita beztu þjónustu
eins og öðrum. En íslendingar
þurfa sól, veðursæld og góðan að-
búnað í sumarleyfum sínum. Þess
vegna leggur Útsýn áherzlu á að
koma fólki til suðurlanda og skapa
því beztu aðstöðu fyrir lægsta
mögulegt verð. Þetta hefur Útsýn
leyft sér að kalla „toppferðir með
toppafslætti", vegna þess að
sparnaður farþegans í slíkri ferð
er þeim mun meiri í krónutölu,
sem meira er til ferðarinnar vand-
að, og hámarks afsláttur í boði
miðað við raungildi almenns
ferðakostnaðar. Og reyndin sýnir,
að Útsýn hefur tekizt þetta í 27 ár.
Áfram verður haldið á sömu
braut, blekkingarlaust og án árása
á samkeppnisaðila, en neytandinn
hefur síðasta orðið um hverjir séu
trausts verðir.
Ingólfur Guðbrandsson.
Austurríski blásarakvintettinn.
Kjarvalsstaðir:
Austurrískir blásarar og
íslenzkir á tónleikum
Afmælistónleikar verða á Kjar-
valsstöðum annað kvöld í tilefni 10
ára afmælis austurríska félagsins
Austria.
Fyrir hlé leikur austurríski
blásarakvintettinn verk eftir
Hassler, Farkas, Beethoven, Tak-
acs, Fucik, Schickele, Khatcha-
turian og Werner Schulze. Austur-
ríska blásarakvintettinn skipa:
Heidi Bauer flauta, Alfred Hertel
óbó, Ewald Wiedner klarinett, AI-
ois Schler horn og Werner Schulze
fagott.
Eftir hlé bætast 6 íslenskir
listamenn við hópinn. Saman leika
þeir verk eftir Jiri Druzecky,
Herbert H. Ágústsson og F. Mend-
elssohn-Bartholdy. íslensku blás-
ararnir eru: Kristján Þ. Stephen-
sen óbó, Sigurður Snorrason klar-
inett, Herbert H. Ágústsson horn,
Hans Ploder fagott, Björn Árna-
son fagott og Lárus Sveinsson
trompet.
Stjórnandi á tónleikunum er
Páll Pampichler Pálsson.
Leiðrétting
í VIÐTALI við Sverri Hermanns-
son um störf Norðurlandaráðs-
þings var ranghermt eftir honum,
að Pálmi Jónsson landbúnaðar-
ráðherra hefði flutt ræðu á þing-
inu um varnarmál. Hið rétta er að
Olof Palme forsætisráðherra Svía
flutti þessa ræðu, sem Sverrir
sagði að ekkert nýtt hefði komið
fram í um stöðu varnarmála. Biðst
Mbl. velvirðingar á þessu mis-
hermi.
Úrvalsbingó Áskirkju
í Sigtúni í kvöld, 3. mars, og hefst kl. 20.30.
Húsið opnað kl. 19.30.
Stórglæsilegir vinningar. Tvær sólarlandaferöir að andvirði 15.000 hvor. Ein
sólarlandaferö aö andviröi 25.000. Flugfarseöill fyrir tvo eftir vali til
Kaupmannahafnar, London eöa Lúx aö verömæti 30.000. 10 stykki 10 gíra
reiðhjól. 1 vinningur, matur fyrir tvo á Hótel Sögu, Naustinu, Laufás, Pottinum
og pönnunni, Svörtu pönnunni, Kokkhúsinu og Loftleiöum.
Engin aðgangseyrir
Bingospjaldió a kr. 75.-
Gunnar Eggertsson hf.
Sundagörðum 6, sími 83800.
Iðnaðarbanki íslands hf.
Laugarnesútibú, Dalbraut 3,
sími 85488.
YAMAHA
E4
EB6Í«T KMSTJANSSON KT
CdPIONEER
• ý RAFAFL
NÝLAGNADEILD
Neytondaþ)ónusta - Vlðgarðir
Smlðshöfða 6 - Simi 85955
Stá(\I
HUSGOGN
Olíufélagið Skeljungur h.f.
Einkaumboö fyrir ..SHELL" vörur
Skúlagötu 61
sími 12987
olis
OLÍUVERZUJN
ÍSLANDS HF.
Frímerkja og
myntverslunin Magni
Laugavegi 15, sími 23001.
/S