Morgunblaðið - 03.03.1983, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. MARS 1983
35
Hagnaður Chrysler um
170 milljónir dollara
Bandarískur bflaiðnaður réttum megin við strikið í heild sinni
TALSMAÐUR ('hrysler-bílaverk-
smiðjanna bandarísku sagði i fundi
með blaðamönnum í liðinni viku, að
rekstrarhagnaður fyrirtækisins á síð-
asta ári hefði verið um 170 milljónir
dollara, þrátt fyrir að rekstrartap á
4. ársfjórðungi hefði verið um 96,1
milljón dollara, vegna verkfalla
starfsmanna í Kanada-verksmiöjum
fyrirtækisins.
Það kom ennfremur fram á
blaðamannafundinum, að fyrir-
tækið hefði verið rekið með tapi
undangengin fimm ár. „Við teljum
okkur vera komna yfir það versta
og að bjartari tíð sé framundan,"
sagði talsmaðurinn ennfremur.
Hagnaður Chrysler í fyrra jafn-
gildir um 1,84 dollurum á hlut, en
á árinu 1981 var rekstrartap
Chrysler um 475,6 milljónir doll-
ara, en fyrirtækið hafði verið rek-
ið með tapi allt frá árinu 1977,
þegar rekstrarhagnaður þess var
um 163,2 milljónir dollara.
Allir bandarísku bílaframleið-
endurnir hafa nú kynnt útkomu
síðasta árs og er fróðlegt að sjá, að
General Motors, stærsti bíla-
framleiðandi heims, var með 962,7
milljónir dollara í rekstrarhagnað
í fyrra. Ford var hins vegar með
657,8 milljónir dollara í rekstrar-
tap á síðasta ári og American
Motors tapaði um 153,5 milljónum
dollara. Heildarútkoman I banda-
rískum bílaiðnaði er því jákvæð
upp á um 321,5 milljónir dollara,
en útkoman hefur verið í mínus
frá árinu 1979, þegar rekstrar-
hagnaður bílaiðnaðarins var um
3,03 milljarðar dollara.
Velheppnuð námsstefna fyrir fram-
kvæmdastjóra í málmiðnaðarfyrirtækjum
.A gengust Samband málm- og
skipasmiðja og Iðnþróunarverkefni
SMS fyrir þriggja daga námsstefnu
fyrir framkvæmdastjóra málmiðnaða-
fyrirtækja. Námsstefnan fór fram í
Hótel Borgarnesi.
Á námsstefnunni var fjallað í
fyrirlestrum og starfshópum um
stjórnunarlegt hlutverk og viðfangs-
efni framkvæmdastjóra. Kynnt var
fyrirtækið Grandi hf., sem er meðal-
stór málmiðnaðarfyrirtæki og á við
verulega fjárhagsörðugleika að etja.
Viðfangefni þátttakenda var að
skilgreina helstu vandamál fyrir-
tækisins og leggja fram tillögur um
Höfum fengið
meiri áhrif
á gang mála
— segir Kristján
Kristjánsson
„ÉG KR mjög ánægður með starfið
það sem af er, en það hófst í ágúst
á síðasta ári. Það lofar óneitanlega
góðu,“ sagði Kristján Kristjáns-
son, sem starfar í prentdeild
Plastprents, í samtali við Mbl., er
hann var inntur eftir áliti sínu á
starfi gæðahringa.
„Starfsemi hópanna er já-
kvæð, bæði fyrir starfsmenn
Starfið já-
kvætt og er
til bóta
— segir Bjarni
Karlsson
„MÉR hefur fundist þetta starf
vera mjög jákvætt og til bóta,“
sagði Kjarni Karlsson, starfsmaður
í pokasal l’lastprents, í samtali við
endurbætur í rekstrinum er leitt
gætu til bættrar fjárhagsstöðu.
Vandamál Granda hf. eru svipaðs
eðlis og margra íslenskra iðnfyrir-
tækja. Fyrstu aðgerðir beindust þar
af leiðandi einkum að því að endur-
skipuleggja stjórnun fyrirtækisins
og daglegan rekstur þess innávið
sem útávið.
Þátttakendur voru á einu máli um
að slík námsstefna fyrir fram-
kvæmdastjóra íslenskra málmiðnað-
arfyrirtækja væri ákaflega þýð-
ingarmikill liður fyrir hvern ein-
stakan í að ná betri tökum á starf-
inu. Þrátt fyrir mikinn fjölda nám-
Kristján Kristjánsson
Bjarni Karlsson
skeiða af ýmsu tagi, hefur nokkuð
þótt á skorta að fræðslu- og upplýs-
ingastarf sem lýtur að stjórnun ís-
lenskra iðnfyrirtækja hafi verið á
boðstólum í nægjanlegum mæli.
Samtök málmiðnaðarfyrirtækja
tóku því málið í sínar hendur og
gengust fyrir umræddri námsstefnu.
Af viðbrögðum þátttakenda er ljóst
að þörfin er fyrir hendi og áhugi
þátttakenda sýndi fram á að stjórn-
endur málmiðnaðarfyrirtækja vilja
talsvert á sig leggja til að uppfylla
kröfur um nútíma stjórnun sem án
efa er forsenda þess að íslenskum
málmiðnaði takist að standast
harðnandi samkeppni á markaðnum.
sjálfa og kannski ekki síður
fyrirtækið," sagði Kristján
ennfremur.
„Við ræðum um ýmsa hluti,
sem betur mættu fara í starf-
semi fyrirtækisins. Með þessu
starfi fáum við meiri áhrif á
framgang mál, en verið hefur.
Við höfum t.d. verið að ræða um
loftræstingu í prentdeildinni, en
hana vantar tilfinnanlega. Við
höfum gert ýmsar mælingar og
athuganir, en niðurstöðunum
verður siðan safnað saman áður
en endanleg ákvörðun verður
tekin," sagði Kristján Krist-
jánsson.
Kristján sagði aðspurður, að
hann teldi rétt að halda þessu
starfi áfram og jafnvel auka það.
Mbl. er hann var inntur eftir áliti
sínu á starfsemi ga>ðahringa í
fyrirtækinu, en hann hefur tekið
þátt í starfi eins hópsins frá upp-
hafi.
„í gæðahringsstarfinu fá
menn betra tækifæri til að tala
saman um það sem er að gerast
hverju sinni og reyna að komast
að niðurstöðu í vandamálum,
sem koma upp.
Við höfum t.d. verið að ræða
um hvernig hægt sé að koma í
veg fyrir galla í framleiðslunni,
og ég held að þegar hafi náðst
ákveðinn árangur," sagði Bjarni.
Bjarni sagði aðspurður, að í
hans hópi hefðu verið sjö manns,
og stefnt væri að því að halda
áfram þessu starfi.
Stórmarkaðs-
verð
* Leyft Okkar
verö verö
Bragakaffi 1 kg 83,30 74,80
Kakó Rekord 1 kg 110,40 86,45
Síróp 1 kg 72,20 63,70
Sveskjur 1 kg 76,00 64,00
Rúsínur 1 kg 81,20 73,00
Ferskjur 1/i d. .41,20 34,90
Ora rauörófur V* d. 18,30 15,15
Ora rauörófur 'Æ d. 24,15 21,95
Coop gr. baunir 1/i d. 21,90 19,85
Coop gr. baunir V2 d. 13,20 11,35
Coop bl. grænmeti 1/i d. 26,80 23,40
Coop bl. grænmeti V2 d. 17,30 14,25
Gulr. og gr. baunir 1/i d. 31,20 23,35
Gulr. og gr. baunir V2 d. 16,45 12,40
Bl. ávaxtasafi Sanita's 1 I 30,90 25,25
Appelsínusafi Sanitas 1 I 26,00 21,30
Appelsínusafi sykursn. 31,80 25,90
Jaröarberjasulta 450 g 34,00 22,20
Leni WC pappír 8 stk. 71,20 61,90
C-11 3 kg 103,30 85,90
C-11 10 kg 299,00 269,50
Vex 5 kg 149,20 130,70
Skipp 3 kg 153,20 132,50
Arial 600 g 31,20 26,35
Vipp express 29,90 25,15
Lux spænir 425 g 34,15 29,40
Luvil 700 g 43,20 36,60
Ofnpottar 2 geröir frá kr. 420,00
Bollapör frá kr. 37,00
Gallabuxur á 4—10 ára frá kr. 216,00
OPIÐ TIL 22 FÖSTUDAGA OG
HÁDEGIS LAUGARDAGA
Stórmarkaðurinn
Skemmuvegi 4, Kópavogi.