Morgunblaðið - 03.03.1983, Page 44

Morgunblaðið - 03.03.1983, Page 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. MARS 1983 pa&sann þjnn! HÖGNI HREKKVlSI „ \>Af> EK Tl5<U - S^HbiG í cSAMGi.'' Verkaði á mig sem allsherjaráróð- ur gegn þessum frönsku flugtækjum Ágúst Ásgeirsson, skrifar: „Heiðraði Velvakandi. Talsvert hefur borið á gagnrýni á fréttastofur útvarps og sjón- varps ríkisfjölmiðlanna sem vilja kenna sig við hlutleysi. Ég hef ekki blandað mér í þessa umræðu þótt oft hafi mig langaö til, en eftir kastljós sjónvarpsins sl. föstudagskvöld, þar sem ólafur Sigurðsson, fréttamaður, fjallaði mjög einhliða um frönsku herþyrl- urnar, sem hér eru í heimsókn, get ég ekki orða bundist. í þættinum dró Ólafur fram ýmsa aðila, sem fundu veru frönsku þyrlanna allt til foráttu, svo sem flugrekstrarstjóra lítils flugfélags, sem er í eigu einkavin- ar fréttamannsins. Flest af því sem flugrekstrarstjórinn sagði um getu þyrlanna, einkum miðað við aðrar þyrlur, voru staðlausir staf- ir. Einnig þau orð hans að fram- leiðendurnir sætu uppi með hundruð óseldra þyrla af þessari tegund og öðrum. Þeir sem eitt- hvað vita og fylgjast með flugmál- um, vita auðvitað betur, og því vakti það athygli mína, að Ólafur fréttamaður skyldi ekki kanna hvað hæft væri í fullyrðingum flugrekstrarstjórans og annarra; það hefði eflaust éerið hægur vandi. Flugrekstrarstjórinn sagði m.a. að þyrlurnar væru hingað komnar því frönsku framleiðendurnir, sem sjá vart fram úr verkefnum, hefðu platað ráðamenn; þetta væri bragð á hálfu framleiðendanna til að kynna þyrlurnar hér sér að kostanaðarlausu. Eftir því sem ég kemst næst áttu framleiðendurnir ekki hlut að máli, heldur eru þetta herþyrlur, sem hingað eru komnar að ósk íslenzkra stjórnvalda. Þátturinn um þyrlurnar verkaði illa á mig, sem allsherjaráróður gegn þessum frönsku flugtækjum. Það eina sem mér fannst raunar vanta var að fréttamaðurinn til- kynnti þjóðinni í lokaorðum, að eiginkona hans væri umboðsmað- ur fyrir Sikorsky-þyrlur hér á landi, en þyrla Landhelgisgæzl- unnar er einmitt þeirrar tegund- ar.“ „Hún Bryndís Schram var með mjög fræðandi og skemmtilega brúðuþætti í „Stundinni okkar“, sem voru frá „Brúðubílnum". Getum við ekki fengið þessa þætti endursýnda?“ Stundin okkan Yngri börnin virðast hafa gleymst Jórunn Sigurðardóttir, Isafirði, skrifar: „Ágæti Velvakandi. Það hefur oft verið gott að eiga þig að, þegar maður þarf að koma einhverju málefni, sem manni liggur á hjarta, á framfæri. „Þriggja barna móðir“ kvartar 24. febrúar sl. undan því að börnin hennar gráti á hverjum sunnudegi yfir „Stundinni okkar“, þar sem þau séu svikin um teiknimynda- flokkinn „Smjattapattana“, sem er vinsæll erlendur teiknimynda- flokkur, þannig að nú er hún farin að kvíða fyrir sunnudögunum. Það vita allir hvað börnin geta hrifist með í slíkum þáttum, því hæfileiki þeirra til innlifunar er mikill, og vonbrigði þeirra eru okkur hinum fullorðnu skiljanleg. Ég er svo sannarlega sammála »þr>KKja barna móður“. Mér finnst barnatíminn höfða orðið meira til eldri barnanna, en þau yngri virð- ast hafa gleymst. Nú hlýtur að vera til eitthvað af íslensku efni fyrir minnstu börn- in. Börnin mín höfðu t.d. mjög gaman af Emil í Kattholti, en þau litlu geta ekki lesið textann. Hún Bryndís Schram var mjög fræðandi og skemmtilega brúðu- þætti í „Stundinni okkar" sem voru frá „Brúðubílnum". Getum við ekki fengið þessa þætti endur- sýnda? Börnin eru enn að tala um „Geiturnar þrjár“ og umferðar- þáttinn um telpuna sem rataði ekki heim. Þarna var börnunum sýnt hvernig á að nota gönguljósin og hvernig lögreglan getur verið vinur þeirra í raunum. Þetta þótti börnunum okkar í sveitinni fræð- andi og skemmtilegt, en þau búa ekki við umferðarvanda, eins og börnin í borginni. Einnig langar mig til að beina því til Sjónvarpsins hvort það geti ekki kannað hvort „Brúðubíllinn" eigi ekki til meira af slíku efni, því þeim virðist vera sérstaklega létt að ná til barna með fræðandi og skemmtilegu efni. 1 von um að þú birtir þetta sem allra fyrst, Velvakandi góður, kveð éf? þig “

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.