Morgunblaðið - 03.03.1983, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 03.03.1983, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. MARS 1983 45 m - 53' VELVAKANDI SVARAR I SÍMA 10100 KL. 11—12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS i „Vittu hvað skeður“ Reykvíkingur skrifar: „Kæri Velvakandi. Hér með sendi ég þér eitt af þessum svokölluðu keðjubréfum, sem mér barst á dögunum. Eigin- lega á ég engin orð til að lýsa með réttu reiði minni og fyrirlitningu á svona hótunarbréfum, sem auk- inheldur felur í sér guðlast, að mínu mati. Mín fyrstu viðbrögð voru þau að henda þessu bréfi beint í ruslið. En svo datt mér í hug að rétt væri að birta það opinberlega til að vekja athygli á þeim óleik, sem fólki er gerður með svona send- ingum. Og hér kemur svo ósóminn. „Set. Antoine de Sedi. Þessi keðja sem er komin frá Venezuela er skrifuð af trúboðanum Set. Antoine de Sedi frá Suður- Ameríku. Bréfið er búið að fara marga hringi í kringum jörðina og boðar heppni, því verður þú að gera 20 bréf eins og þetta og senda til einhvers sem þér þykir vanta heppni í lífinu, eða bara vina og vanda- manna. — Nokkrum dögum eftir að bréfin hafa verið send munt þú fá óvæntan glaðning. Conctantine Dine tók á móti keðjunni 1953. Hann bað einkaritarann sinn að gera 20 afrit af bréfinu og senda þau. Níu dögum seinna vann hann 2 milljónir dollara í happdrætti. Skrifstofumaðurinn Carlos Prant fékk keðjuna en týndi henni. Tveim- ur dögum seinna missti hann vinn- una. Hann fann bréfið og sendi 20 afrit af bréfinu og níu dögum seinna fékk hann nýtt og betra starf. Lista- maðurinn Ken Freidmann prófaði að senda bréfin. Innan átta daga fékk hann tilboð í tvö verkefni sem hann tók að sér. Þessi verkefni voru svo tekin til sýningar í frægu listasafni sem gerði hann þekktari í sinni grein. í annarri keðju sem hann fékk senda sagði hann frá þessu láni sínu sem hann tengdi fyrri keðjunni. Björn Sveinbjörnsson fékk senda keðjuna frá Danmörku. Hann dró að senda bréfin út og nokkrum dögum seinna lenti hann í bílslysi með þeim afleiðingum að bíllinn gjöreyðilagð- ist en hann slapp með skrekkinn, fjórum dögum seinna datt hann og fótbrotnaði ... Af engum ástæðum má slíta þessa heppnis-keðju. BÆN Stólaðu á Herrann af öllu þínu hjarta og þú munt sjá að hann vísar þér veginn. Zaria Berrestille fékk keðjuna, hann trúði ekki á hana og henti bréf- inu. Níu dögum seinna lést hann ...? Af heppni er þetta bréf sent til þín, þú munt öðlast heppni innan 4 daga ef þú sendir bréfin áfram þá leið sem það á að fara s.s. hring í kringum hnöttinn. Vinsamlegast sendið enga peninga. Láttu ekki dragast að senda bréf- in, því innan 96 tíma frá því þú sérð bréfið skaltu senda 20 afrit frá þér og vittu hvað skeður? Settu nafn þitt neðst á listann og strikaðu út efsta nafnið á listanum. M.B. Sörensen J.P. Thögersen A. Jensen L Famne Kr. Gunnarsson F. Björnsson Johnny Midtgaard J. Villadsen A. Sörensen G. Sörensen M. Pedersen A. Þórðarson M. Sigurðard. A. Vilhjálmsson G. Kristjánsson M. Einarsson I. Baldvinsson J. Guðmundsson Sig. Jónsson G. Jónsson. Þessir hringdu . Frá þingi Norðurlandaráðs í Ósló í febrúar sl. Eins og óyggj- andi sannleikur Hilmar Halldórsson hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Mér finnst mjög skrýtið að sýna í Stundinni okkar þátt um þróunar- kenninguna og láta sem þessi vís- dómur sé óyggjandi sannleikur, en ekki kenning. I þættinum er al- gerlega gengið framhjá persónu- leika Guðs og persónuleika okkar mannanna. Við erum misjöfn. Frægasti vísindamaður þessarar aldar, Albert Einstein, sagði: „Líf- ið á jörðinni og jörðin sjálf eru það stórkostleg fyrirbæri, að þau hljóta að lúta stjórn einhvers afls, sem gefið hefur.“ Gæti sparað óþarfa kostnað og fyrirhöfn Ingibjörg Olsen hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Svoleiðis er, að ég var að fá pakka frá for- eldrum mínum í Færeyjum, m.a. kjöt. Eins og talað hefur verið um í Velvakanda má ekki leysa pakka af þessu tæi út hérna. Ekki má opna pakkann til að taka annað úr honum, því að þá verður að henda kjötinu. Því er ekki um annað að ræða en sendingin fari í heilu lagi sömu leið aftur og hefur þetta auðvitað mikinn óþarfa kostnað og fyrirhöfn í för með sér. Mér fyndist ekki fram á of mikið farið, þó að yfirvöld hér á landi, sem þennan innflutning banna, sæju til þess með auglýsingum erlendis, að fólk væri ekki að senda slíkan varning hingað erindisleysu. Mergjað erindi Skólamaður hringdi og hafði eft- irfarandi að segja: — Mig langar til að vekja athygli á mergjuðu út- varpserindi sem Baldvin Krist- jánsson flutti í gærkvöldi, í þætt- inum Um daginn og veginn. Þetta voru sannarlega orð í tíma töluð hjá Baldvin. Átaldi hann þar mjög vinnubrögð Alþingis og stjórn- málaflokkanna. Hafði hann meðal annars fyrir satt að um 20 manns hefðu verið í þeim fríða flokki sem sendur var á þing Norðurlanda- ráðs, meðal þeirra, margir sem ekkert hefðu kunnað til verka þar, og í rauninni verið úr leik strax af tungumálaástæðum. Sagði Bald- vin, að farið hefði verið allt til afdala til þess að ná í menn, sem þurfti að hygla með setu á þessu þingi. Það er gott til þess að vita, að enn er á meðal okkar maður, sem þorir að segja sannleikann, en lætur ekki eigin hagsmuni eða kjarkleysi knýja sig til þagnar. GÆTUM TUNGUNNAR Sagt var: Aukningin nemur þrjátíu pró sent. Rétt væri: Aukningin nemur þrjátíu prósent- um (eða þrjátíu hundruðustu). (Ath.: prósent er eitt orð (að sjálfsögðu með áherslu á fyrra atkvæði: prósent); það er hvorugkyns (prósentið) og merkir hundrað- asti hluti.) G3P S\G€A V/öGA 2 VLVZ9AU 'KVENSflN JrtTflR.YORR 'hÖN SEGIST BflRP VERfl SVONfl VElK 76E9JR OG W HÚN HRFI EINFRLDLEGR EKKI RRÐIE) W SIG PEóflR HÚN SR , (HFKJSINN R FÓRNRRLRNBINU SVONR Nfl; \LÆ6T SÉR 06 HRFf)l VOPNI0 HLVE6 W HÖNPINR \\ Carnegie námskeiðið er aö hefjast 9. marz nk. ★ Námskeiöiö getur hjálpaö þér aö: ★ Öölast HUGREKKI og meira SJÁLFS- TRAUST. ★ Bæta MINNI þitt á nöfn, andlit og stað- reyndir. ★ Láta í Ijósi SKOÐANIR þínar af meiri sannfæringarkrafti í samræöum og á fund- um. ★ Stækka VINAHÓP þinn, ávinna þér VIRÐ- INGU og VIÐURKENNINGU. ★ Taliö er aö 85% af VELGENGNI þinni sé komin undir því, hvernig þér tekst aö um- gangast aöra. ★ Starfa af meiri LÍFSKRAFTI — heima og á vinnustað. ★ Halda ÁHYGGJUM í skefjum og draga úr kvíða. Fjárfesting « menntun gefur þér arð ævilangt. Innritun og upplýsingar í síma 82411 Einkaleyfi á íslandi STJÓRNUNARSKÓLINN Konráð Adolphsson Sölutækni — Starfsþjálfun Mánudags- og fimmtudagsmorgna frá kl. 9.45 til kl. 12.00. — 5 skipti. Námskeiöiö fjallar um: 1. Hvernig á aö muna mannanöfn — sem hjálpar þér aö ná betra sambandi viö fólk. 2. Aö skilja sjálfan sig og aðra betur — iæra hvernig viö getum stýrt okkar viöhorfi. 3. Aö gera starfið skemmtilegra — til þess aö veröa ánægöari einstaklingar. 4. Að ákveða þarfir viöskiptavinarins og draga fram staðreyndir og kosti vörunnar. 5. Að verða þakklátari einstaklingur — gera sér grein fyrir verömæti jákvæörar hugsunar. 6. Að bregðast vinsamlega viö kvörtunum — aö leysa úr vandamálum viöskiptavinarins á réttan hátt. 7. Að hjálpa viðskiptavininum að taka jákvæöa ákvörðun — beina sölunni í réttan farveg. 8. Að skilja verömæti eldmóðsins og setja sér markmiö til að auka sðluna. 9. Að Ijúka sölunni á öruggan hátt. 10. Ad lifa og starfa árangursríkara með öðru fólki. Fjárfesting í menntun gefur þér arð ævilangt. Innritun og upp- lýsingar í síma 82411 82411 Einkaleyfi á islandi STJÓRNUNARSKÓLINN Konráð Adolohsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.