Morgunblaðið - 08.03.1983, Page 44

Morgunblaðið - 08.03.1983, Page 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. MARZ 1983 * Mundu e-ftir blóðfsrý.s-fcirvgnuno ! ” Þad skyldi þó aldrei vera að farar- stjórinn hafi skipulagt þetta til að gera ferðina enn eftirminnilegri? HÖGNI HREKKVtSI Gleymt er því ad musteri Guðs eru hjörtun sem trúa Árni Helgason skrifar: „„Alkóhólismi er sjúkdómur." Þetta heyrir maður nú víða og það er hamast við að koma því inn hjá mönnum að svo sé. Og svo er færst í aukana: „Alkóhólismi er ólækn- anlegur, en það er hægt að halda honum niðri." Þessar raddir heyr- um við líka. Sem sagt áfengis- drykkja er sjúkdómur og getur orðið ólæknanleg. Og svo kaupa menn þennan sjúkdóm dýrum dómum. Og ekki nóg með það. Þeir sem hann fá eru þjóðfélaginu til lítils eða a.m.k. ekki mikils gagns og stundum beinlínis til erfiðleika. Svo verða skattborgararnir að borga brúsann, reisurnar gegnum meðferðarstofnanirnar. Og þýðir ekkert að fást um það. Og er nema von að þeir heilbrigðu spyrji: „Hvers vegna er ekki allt gert, bæði af valdsmönnum og öðrum til að koma í veg fyrir að þessi sjúkdómur geti þrifist meðal manna, sjúkdómur sem menn kaupa sér, jafnvel fyrir sinn síð- asta eyri. Hví ekki að uppræta slíka verslun?" Og er furða þótt menn spyrji hvernig standi á því að eiturlindir séu látnar spretta upp úti um allt land, svo menn eigi hægt með að kaupa sjúkdóminn? Eru menn virkilega svona skyni skroppnir? Þetta og annað kemur í huga manns þegar fréttir berast um kapp ýmissa persóna á Sauðár- króki og víðar til að greiða mönnum leið á vit pestar þessar- ar. Það lítur út fyrir að heill æsk- unnar og örlög haldi ekki vöku fyrir þeim því freistingarnar verða henni erfiðastar eins og víð- ar. Og svo þarf alls staðar sjúkra- rými fyrir þá sem detta í áfengis- pyttinn, en gamalt fólk og þeir sem þjást af öðrum sjúkdómum verða oft að bíða eftir sjúkrahús- vist mánuðum og jafnvel árum saman. Hvílíkt öfugstreymi, hví- líkur manndómur og hvílík kaup- mennska! En áfengisauðvaldið makar krókinn í skjóli leppa sinna og Ieigupenna. Heilbrigð skynsemi bendir okkur aftur á móti á að gera allt sem unnt er til að forða mönnum frá því að verða þessum sjúkdómi að bráð. Mér verður hugsað til Þjóð- kirkjunnar okkar. Þjónar hennar eiga að vita að áfengisneysla er einhver versti óvinur kristinnar trúar og siðgæðis, að undir áhrif- um áfengis eru fleiri og stærri syndir drýgðar en af völdum nokk- urs annars efnis. Hvers vegna sker kirkjan ekki upp herör gegn slíkum vágesti? Á sunnudaginn var var freisting Jesú texti dags- ins. Aðrar freistingar gleymdust víða. Mér finnst kirkjan hugsa alltof mikið um hið veraldlega. Oft var þörf ... Kristinn Vilhjálmsson skrifar: „Velvakandi. Sjálfsagt hefur það ekki farið framhjá mjög mörgum að SÁÁ er að safna fé um þessar mundir. Átján hundruð krónur eru menn beðnir að reiða fram, ekki allar samtímis þó. Og þykir fáum mikið þegar um þjóðþrifastarfsemi er að ræða. Að vísu þurfa sjúklingar sumir hverjir, þeir sem búa við aðra fötl- un en þá sem hlýst af drykkju, að bíða mánuðum og jafnvel árum saman eftir sjúkrahúsvist. En það stendur vonandi til bóta líka. Að einu leyti finnst mér SÁÁ fara of varlega í sakirnar í auglýs- ingastarfi sínu. Hví ekki að benda á að 300—400 krónur á tveggja mánaða fresti er raunar smáræði, jafnvel fyrir Sóknarkonur? Þetta er augljóst ef til þess er litið að þegar rúmin 60 á Ártúnshöfðan- um eru fullskipuð verða skatt- borgararnir nauðugir viljugir að gjalda um 50 þúsund krónur á dag til stofnunarinnar. Daggjaldakerfi ríkisspítalanna sér um það. Einhver öndvegismaðurinn sagði í utvarpinu um daginn að engin atvinnugrein væri jafnmikið niðurgreidd og vínsala. — En það er nú annað mál. Við skulum hins vegar styðja SÁÁ rækilega svo stofnunin nýja rísi sem fyrst, daggjöldin fari að streyma inn frá rikinu og með- ferðarstjórarnir og dagskrárstjór- arnir og hvað þeir nú kallast allir saman í kerfinu fái kaupið sitt og engar refjar." Þessir hringdu . . . Elskulegar móttökur f Leitarstödinni Ilúsmóðir í Kópavogi hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Á mánudaginn var fór ég í krabba- meinsrannsókn, en hafði áður fengið bréf frá félaginu, því að langt var um liðið, frá því að ég kom síðast (minn trassaskapur). I þetta skipti, sem jafnan áður þeg- ar ég hef komið í Leitarstöðina, voru móttökurnar þar elskulegar og allir, læknir og annað starfs- fólk, alúðlegir. Og ég sé svo sann- arlega ekki eftir 100 krónunum, sem ég greiddi fyrir (hefur senni- lega hækkað 1. mars), og vinn ég þó ekki úti, þar sem ég er „bara húsmóðir". Mér hefur virst, að konur, sem vinna úti, fái veikindafrí og frí til að fara til læknis, á fullu kaupi. Aftur á móti fá heimavinnandi húsmæður hvorki sjúkratrygg- ingu, sjúkradagpeninga né neinar aðrar greiðslur, þó að þær séu veikar mánuðum eða árum saman og þurfi jafnvel á spitala vegna rannsókna eða annarra aðgerða. En mennirnir þeirra eru skatt- lagðir að fullu. Þjónar Verðlags- stofnun landinu öllu eða aðeins Reykjavík? Grétar Karhmann hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Ég hef verið að velta því fyrir mér, hvort Verðlagsstofnun þjóni öllu landinu eða aðeins Reykjavik. Við erum nefnilega að leiða hugann að því, lítilsigldir Hafnfirðingar, hvernig stendur á því, að stofnun- in skiptir sér ekkert af fargjöldum strætisvagnanna okkar. Við þurf- um að borga 27 krónur fyrir hverja ferð og það virðist vera fjarri því að ná til tárakirtlanna á verðlagsstjóra. Metið á rúmar 200 krónur á mánuði Guðrún Jakobsen hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Fari svo að samþykkt verði hundalaga- frumvarp það, sem nú liggur fyrir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.