Morgunblaðið - 24.03.1983, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. MARZ 1983
45
r íl f < t ð l
i ? H ! 5
I ’ 1 i 5 S J
...érJímuúk.ú
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 11—12
FRÁ MÁNUDEGI
l
„Hinir viröulegu alþingismenn hafa sannarlega ekki setið auðum höndum í
vetur, það sýna pappírshlaðarnir, er vaxið hafa upp — þó nokkuð myndar-
lega, í bak og fyrir.“
Hvílfk fjarstæða
Valtýr Guðmundsson, Sandi,
skrifar:
„Vinsæli þáttur.
Ég ætla nú ekki að reka hornin í
þá ágætu ríkisstjórn, sem nú fellir
brátt hendur í skaut eftir vel unn-
in störf, — það væri hið mesta
óréttlæti.
Efndir hinna fögru loforða, sem
gefin voru fyrir valdatöku, eru
sennilega rúm 2 prósent — og það
er satt að segja ekki svo lítið af-
rek, svo maður tali nú ekki um
Þá rennur
kannski
upp ljós
fyrir þeim
1665-7093, 9199-0563, 3287-9764,
6439-4126, 0371-4373, 6878-1698,
6386-5273 skrifa:
„Velvakandi.
Það hefur ekki farið fram hjá
landsmönnum undanfarið að SÁÁ
er hjálparþurfi. Mörgum hefur
fundist hart gengið eftir og
greiðslur háar, en nóg um það.
Það er mikið rætt og rifist um
hvort alkóhólismi sé sjúkdómur
eður ei, en hvort heldur sem er
finnst okkur að ýmsu mætti
breyta í rekstri og meðferð hjá
SÁÁ.
T.d.: Af hverju er ekki hægt að
minnka rekstrarkostnað á Sogni
og fleiri meðferðarhælum með því
að „sjúklingarnir" vinni á meðan á
meðferð stendur? Á Sólheimum í
Grímsnesi og í Skálatúni í Mos-
fellssveit og fleiri stöðum um land
allt dvelur vangefið fólk, sem
steypir kerti, hnýtir mottur og
gerir ails konar handavinnu. Þetta
fólk býr við illan aðbúnað og ýmsu
ábótavant í þeirra meðferð.
En hefðu ekki „sjúklingarnir" í
SÁÁ betra af því að hugsa um
eitthvað annað en sjálfan sig,
vinna eitthvað og lækka rekstr-
arkostnað um leið? Og er virkilega
hollt að tala og hugsa svona mikið
um sjálfan sig? Er mönnum ekki
hollara að beina athygli og áhrif-
um frá sjúkdómnum (drykkjunni)
og hugsa um aðra og taka tillit til
annarra?
Hvað með að þeir færu og hjálp-
uðu til á stofnunum fyrir vangefið
fólk og fatlað? Þá rennur kannski
upp ljós fyrir þeim að fleiri eigi
við erfiðleika að etja.“
blessaða krónuna okkar, sem held-
ur gildi sínu og vel það. Telja þó
ýmsir að nagað sé úr henni svo til
daglega með það fyrir augum að
bjarga sjávarútveginum, en það er
nú bara eins og hver önnur vit-
leysa, — svo og að dýrtíðin hafi
aukist meir en nokkurn tíma áður;
hvílík fjarstæða.
Meira að segja hefur láglauna-
og vísitölubótum verið úthlutað til
hinna ríku, vegna þess að hinir fá-
tækari hafa ekkert með þær að
gera.
Svo eru það atvinnumöguleikar
iðnaðarins í heild, sem eru virki-
lega í blóma vegna innflutnings á
vörum, nákvæmlega sömu teg-
unda og hægt er að framleiða hér
innanlands, með prýðilegum
árangri. En það verður að koma
gjaldeyrinum í lóg, er safnast
fyrir í bönkum — það hljóta allir
að sjá.
Hinir virðulegu alþingismenn
hafa sannarlega ekki setið auðum
höndum í vetur, það sýna papp-
írshlaðarnir, er vaxið hafa upp —
þó nokkuð myndarlega, í bak og
fyrir. Sumir telja að þetta sé nú
orðið helst til of mikið af svo góðu,
en ég er þeirrar skoðunar, að þetta
hljóti að vera allt í lagi á meðan
hinn ágæti Vilmundur okkar sést
upp yfir ruslahaugana, en aftur á
móti ef það gerðist að maðurinn
kaffærðist með öllu, væri brýn
nauðsyn á að safna í brennu.
Sjálfsagt yrði það til mikilla bóta
á þessum góðkunna stað, að koma
upp hnefaleikaaðstöðu, annað-
hvort á bamum eða þá á kaffiterí-
unni, — um nokkurs konar Holly-
wood er sennilega ekki að ræða
vegna plássleysis."
Brjót þú,
Mangi, ég
skal borga
Guðjón Ólafsson, gamall togara-
strákur, skrifar:
„Velvakandi.
í Morgunblaðinu 17. mars sl. er
frétt frá borgarstjórn um að sótt
hafi verið um leyfi til að hefja
veitingarekstur í kjallara Nýja
bíós.
Þegar ég las þetta, rifjaðist upp
fyrir mér grein sem birtist í D&V
12. okt. sl., eftir Pál Finnbogason,
undir fyrirsögninni „Skrifaðu
flugvöll". í síðustu málsgrein
nefndrar greinar segir: Saga er
sögð af útgerðarmanni, sem
staddur var á hóteli í Englandi,
ásamt félaga sínum. Hafði þá
þessi félagi gerst umsvifamikill,
en útgerðarmaðurinn sagt: Brjót
þú, ég skal borga.
Þetta gerðist ekki úti í Eng-
landi, heldur í veitingastofu Rós-
enbergs í kjallara Nýja bíós.
Þarna voru á ferð tveir fyrrver-
andi skipstjórar og, þegar þetta
var, forstjórar útgerðarfyrirtækja
í Reykjavík, Magnús Magnússon í
Defensor og Jón ólafsson frá
Sumarliðabæ, forstjóri Alliance
og seinna alþingismaður og
bankastjóri.
Þeir fóru að fá sér kaffi hjá Rós-
enberg, en þegar inn kom, voru
engin borð laus. Á þeim borðum
sem ekki var setið við, var leirtau
eftir fráfarandi gesti. Þá hafði
Magnús (en hann var kallaður
lipri) gert sér lítið fyrir, gengið að
næsta borði, tekið í dúkinn og
svipt öllu út á gólf. Þá hafði Jón
sagt: „Brjót þú, Mangi, ég skal
borga.“ Hafði Magnús þá gengið á
röðina og hroðið borðin.
Ekki man ég hvað sagt var að
Jón hefði þurft að borga, en það
var víst töluvert. Þetta gerðist ár-
ið 1922, að mig minnir.
Með þökk fyrir birtingu."
Ifl bmfrl « M. Má* rm * m h^.7wtK
Veitingastaður í
kjallara Nýja Bíós?
til »4 nýu
m tr i kjnllnrn blóhúuin*. rn
ir árinu 1920 vnr þarnn nil-
ingnhut Scgir I bráfinu »« jnfn-
fmntt mum Smlknrinn af ukn við
nf Nnaý. vaitingntuónum l Auat
urntrmti, og yrfli hinn nýi aUéur
r»kmn l uncnlum vió Smlkrrnnn
tf Sngir I bráfinu n« hufmynd
þvui hnfi vvrié kynnt fulltrUum
hnlhrigAia d( •IdvnrnnnftirliU.
Mál þntU rr nú til umfjollunnr
hjá horgnryfirvotdum
GÆTUM TUNGUNNAR
Stundum er sagt: Hann er ástfanginn í henni.
Betra væri: Hann er ástfanginn af henni.
Q3P S\G6A V/ÖGA £ A/LVtRAN
Lokað vegna breytinga
Viö lokum verzlun okkar í dag, fram yfir páska,
vegna breytinga. Viö biöjum viðskiptavini okkar
aö sýna þolinmæöi og skilning á meöan á breyt-
ingunum stendur.
'LIPPBUDIN
VID HÖFNINA
Mýrargötu2 - sími 10123
Utankjörfundar-
atkvæðagreiösla
vegna alþingiskosninga 23. apríl 1983 hefst í Reykja-
vík laugardaginn 26. marz 1983.
Kosiö veröur í Miöbæjarskólanum alla virka daga kl.
10—12, 14—18 og 20—22, sunnudaga og helgidaga
kl. 14—18. Þó veröur opið kl. 14—18 laugardagana
26. marz og 2. apríl og lokað föstudag 1. apríl og
páskadag.
Borgarf ógetaem bættiö
í Reykjavík.
Hamar og sög
er ekkinóg
NEMA ÞÚ VEUIR RÉTTA EFNIÐ**
Vegg- og loftklæðning
í glæsilegu úrvali
úr eik, furu, aski, oregon-pine
gullálmi, perutré, brenni, antik-
eik og 10 tegundum til viðbótar.
Verð frá aðeins kr. 51 .-pr. m2.
BJORNINN HF
Skulatuni 4 - Simi 25150 - Reykjavík
RFRHM ÚRÞVÆTTI€>\
ÞITTí EKKERT HRNGSf
ÞETTR ER EKKERTQftM*?!^®
HVÍLDRRHÆUÍ HVERSLR6S *U4Á
LETI ER ÞETTR f TRKTU R ÞVl,
PlTTf
EF ÞETTR PU6IR EKKI.
HEY0UM5T Vl£> TIL
LRTR HRNR FRRP