Morgunblaðið - 15.05.1983, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. MAÍ 1983
Á Hjólreiðadaginn 28. maí næst-
komandi er áætlað að 1000 börn
komi saman á Lækjartorgi, þar sem
Davíð Oddsson borgarstjóri tekur á
móti börnunum, þau afhenda söfn-
unarféð, þiggja hressingu og ýmis-
legt verður gert til skemmtunar.
komandi. Það fé, sem safnast að
þessu sinni, rennur allt til upp-
byggingar sumardvalarheimilis
fyrir fötluð börn í Reykjadal í
Mosfellssveit. Sigurður sagði, að
vonast væri eftir meiri þátttöku
nú en nokkru sinni, eða um sex
þúsund barna.
Þúsundir barna eru þegar byrj-
aðar að safna fjárframlögum, í
Reykjavík, Mosfellssveit, Hafnar-
firði, Kópavogi, Garðabæ og Seltj-
arnarnesi. Öll hafa þau fengið sér-
stök söfnunarkort, prentuð með
bláu letri. Á kortin skrifa þeir,
sem styrkja vilja málefnið, nöfn
sín og tilgreina þá upphæð er þeir
láta af hendi rakna. Er söfnuninni
lýkur, skila börnin peningunum
ýmist í skóla sína eða koma með
þá niður á Lækjartorg. Þar verður
peningunum síðan safnað saman,
og allir sem þátt taka í söfnuninni,
fá viðurkenningarskjöl að launum.
Viðurkenningarskjölin eru jafn-
framt happdrættismiðar, og verð-
ur dregið um milli 100 og 200
happdrættisvinninga á Lækjart-
orgi. Þar verður mikið um að vera
á Hjólreiðadaginn, sagði Sigurður,
þekktir skemmtikraftar koma
fram, hljómsveitir leika, boðið
verður upp á hressingu og margt
fleira, en það verður nánar kynnt í
fjölmiðlum næstu daga.
Hjólreiðadagurinn 1983 til styrktar fötluðum börnum:
Ollu því fé er safnast verður varið til sumar
dvalarheimilis fatlaðra barna í Reykjadal
— Rætt við Sigurð Magnússon, framkvæmda-
stjóra Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra
Hjólreiðadagurinn 1983 verður haldinn hinn 28. maí næstkomandi, eins og
fram hefur komið í fréttum Morgunblaðsins. Þúsundir skólabarna af höfuð-
borgarsvæðinu munu hjóla niður á Lækjartorg í lögreglufylgd, og afhenda
þar fjármuni, sem þau hafa safnað til styrktar sumardvalarheimili fatlaðra
barna í Reykjadal í Mosfellssveit. Það er Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra,
sem skipuleggur Hjólreiðadaginn, en þetta er í þriðja sinn, sem hann er
haldinn. Blaðamaður Morgunblaðsins hitti Sigurð Magnússon framkvæmda-
stjóra Styrktarfélagsins að máli nú í vikunni, og spurði fyrst hvernig HjóÞ
reiðadagurinn hefði orðið til í upphafi.
Sjúkraþjálfarar aðstoða fötluð börn í Endurhæfíngastöðinni sem Styrktarfé-
lag lamaðra og fatlaðra rekur við Háaleitisbraut í Reykjavík.
Hugmyndin komin
frá Kanada
„Hugmyndin kom fyrst fram ár-
ið 1981, á ári fatlaðra," sagði Sig-
urður, „en þá komu til mín þeir
Þór Jakobsson veðurfræðingur og
Vésteinn sonur hans, og ræddu við
mig um hvort ekki mætti skipu-
leggja eins konar hjólreiðadag, til
styrktar fötluðu fólki. Þeir höfðu
kynnst þessu í Kanada er þeir
bjuggu þar, og datt nú í hug hvort
ekki mætti nýta hugmyndina hér
á landi, en í Kanada hafði ágóða af
hjólreiðadegi eða skipulögðum
hjólreiðum einnig verið varið til
styrktar fötluðum. Eftir skamman
umhugsunartíma sá ég að hér var
um athyglisverða hugmynd að
ræða, og ráðist var í að skipu-
leggja „Hjólreiðadaginn 1981“. —
Ég taldi einkum tvennt vinnast
með skipulagningu dags af þessu
tagi; annars vegar gæti safnast
umtalsvert fjármagn, sem mikil
þörf væri fyrir, og í öðru lagi væri
hægt að virkja á þennan hátt
hundruð og þúsundir barna til
styrktar fötluðum jafnöldrum
þeirra, börnin myndu sjálf komast
í snertingu við vanda þessara
jafnaldra sinna, og þar með fá
aukinn skilning á málefninu.
Hjólreiðadagurinn 1981 var til-
einkaður íþróttum og útivist fatl-
aðra barna, og 1982 var hann til-
einkaður öldruðu fólki. Þetta hef-
ur allt gengið vonum framar, og ég
sé ekki annað en að hjólreiðadagar
af þessu tagi muni verða árviss
viðburður í starfsemi okkar 1
framtíðinni."
Fjölmargir aðilar
hafa aðstoðað
— Árið 1981 komu um 3000
börn hjólandi á Laugardalsvöllinn
á Hjólreiðadaginn, og í fyrra voru
þau milli 4 og 5 þúsund talsins.
Það hlýtur að vera mikið verk að
skipuleggja söfnun og samkomu-
hald af þessu tagi?
„Já, að baki þessu liggur gífur-
leg vinna. Styrktarfélag lamaðra
og fatlaðra hefur skipulagt dag-
inn, en notið til þess aðstoðar fjöl-
margra aðila. — Fyrst ber auðvit-
að að nefna börnin sjálf, án þeirra
yrði enginn Hjólreiðadagur. Þá
höfum við notið ómetanlegrar að-
stoðar skólastjóra og kennara.
Lögreglan hefur verið okkur afar
vinveitt, og séð um skipulagningu
á hjólreiðunum og alla löggæslu
með þeim hætti, að engin slys eða
óhöpp hafa orðið. Þá hafa félagar
í Hjólreiðafélagi Reykjavíkur ver-
ið til aðstoðar, lagt til menn er
fara fyrir og á eftir hverjum hjól-
andi hópi. Lionsklúbburinn Njörð-
ur hefur veitt margháttaða að-
stoð, og hið sama á við um
Kvennadeild Styrktarfélagsins,
Svölurnar — félag núverandi og
fyrrverandi flugfreyja — og
marga aðra. Nýja sendibíiastöðin
hefur lagt til sendiferðabíla, sem
fylgt hafa hópunum, og aðstoðað
börnin sé þess þörf, og Coca Cola-
verksmiðjurnar hafa lagt öllum til
hressingu. Enn get ég nefnt að við
höfum fengið aðstoð hjá fjölmörg-
um skemmtikröftum, sem komið
hafa fram á Hjólreiðadaginn, og
þeir hafa í flestum tilvikum gefið
sína vinnu. Þannig gæti ég haldið
áfram; okkur hefur borist aðstoð
úr öllum áttum, hún hefur gert
mögulegt að halda hjólreiðadag og
fyrir hana erum við afar þakklát."
í hjólreiðadagsnefnd 1983 eru,
auk Sigurðar Magnússonar, sem
er formaður hennar: Þór Jakobs-
son og Vésteinn Þórsson. Ásgeir
Heiðar frá Hjólreiðafélagi
Reykjavíkur, Baldvin Ottósson
lögregluvarðstjóri og Björn Ág-
ústsson frá Lionsklúbbnum Nirði.
Stefnt aö þátttöku
6000 barna
Sem fyrr segir verður Hjól-
reiðadagurinn 1983 haldinn á
Lækjartorgi hinn 28. maí næst-
Einnig leitað
til fyrirtækja
„Hjólreiðadagurinn hefur tekist
afskaplega vel undanfarin ár,“
sagði Sigurður," og það er ótrúlegt
hve börnin hafa getað safnað
miklu fé, starfsemi fatlaðra til
ómetanlegs gagns. Það hvílir eng-
in skylda á börnunum að vera með
í þessu, en reynslan hefur sýnt að
þúsundir barna vilja vera með.
Engar reglur eru heldur um hve
miklu hver og einn eigi að safna,
litlar sem stórar fjárhæðir koma
að gagni. Ég hef hins vegar þegar
heyrt í fjölmörgum krökkum sem
hafa sagt að 500 krónur virðist
vera mjög hæfileg upphæð, en hún
svarar til þess að hvert heimili
gefi 50 krónur, ef börnin tala við
tíu aðila. — Auðvitað verða svo
þessar upphæðir bæði hærri og
lægri eftir aðstæðum hvers og
eins, en við vonumst til að söfnun-
in komi okkur á verulegt skrið
með Reykjadalsheimilið.
Sú framkvæmd er hins vegar
svo umfangsmikil, að auk þess
sem við væntum góðs af hjálp
skólabarnanna, munum við leita
til atvinnurekenda og fyrirtækja
um stuðning. Fjölmörgum fyrir-
tækjum hefur þegar verið sent
bréf, þar sem vakin er athygli á
Hjólreiðadeginum, og fólk á okkar
vegum mun hafa samband við
framkvæmdastjóra þeirra næstu
daga. Vissulega eru erfiðleikar hjá
atvinnufyrirtækjum víða um þess-
ar mundir, en við vonumst þó eftir
að sem flestir geti séð af einhverju
framlagi til þessa brýna verkefn-
is.“
Byggja Reykjadals-
heimiiiö frá grunni
„Reykjadalsheimilið í Mos-
fellssveit var á sínum tíma byggt
af miklum vanefnum," sagði Sig-
urður. „Það var á sínum tíma
stórkostlegt átak að koma því upp,
og það hefur verið fötluðum börn-
um til ómetanlegs gagns allar göt-
ur síðan, og er enn.
Það breytir því á hinn bóginn