Morgunblaðið - 15.05.1983, Qupperneq 48
Veist þú um einhverja
góóa frétt?
H
ringdu þá í 10100
iOíC0nt#lteíji]íí>
SUNNUDAGUR 15. MAÍ 1983
Sími 44566
RAFLAGNIR
samvirki JS\f
Geir og
Stein-
grímur
í við-
ræðum
í gær
GEIR Hallgrímsson formaður
Sjálfstæðisflokksins og Steingrímur
Hermannsson formaður Framsókn-
arflokksins sátu á fundi um hádeg-
isbilið í gær, laugardag, og var fundi
þeirra ekki lokið um það leyti sem
Mbl. fór í prentun. Búist var við því
að þingflokkur Sjálfstæðisflokksins,
sem boðaður var til fundar kl. 14 í
gær, ræddi ósk Framsóknarflokks-
ins um áframhaldandi viðræður
flokkanna um ríkisstjórnarmyndun
og hinn nýja umræðugrundvöll, sem
Steingrímur mun hafa kynnt Geir á
fundi þeirra í gær.
Samkvæmt heimildum Mbl.
héldu forustumenn Alþýðuflokks-
ins og Bandalags jafnaðarmanna
áfram viðræðum sínum í gær um
samstarf þeirra í milli í hugsan-
legri ríkisstjórn þeirra með
Sjálfstæðisflokki. Fyrirhugað var
að viðræður þessar héldu áfram
um helgina.
Fegurðardrottningar kgnntar
Stúlkurnar tíu, sem taka þátt í úrslitakeppninni um titilinn „Fegurðardrottning íslands 1983“, voru kynntar á Broadway í fyrrakröld. Hér eru þær á
síðkjólum, aftari röð frá vinstri: Anna María Pétursdóttir, Unnur Steinsson, Hulda Lárusdóttir, Inga Valsdóttir, Lilja Hrönn Hauksdóttir og Elín
Sveinsdóttir. Fremri röð frá vinstri: Katrín Hall, Stella Skúladóttir, Kristín Ingvadóttir og Steinunn Bergmann.
Sjá fleiri myndir og frásögn af krýningarkvöldinu á bls. 2 og 3.
Glaðst yfir ný-
fæddu lambi
SAUÐBURÐUR er hafínn
eða í þann veginn að hefjast
um allt land. Vegna vorkuld-
anna norðanlands og austan
hafa orðið vandræði og víða
þarf að hafa fé í húsum. En
það er sama hvort ærnar
bera úti eða inni, gleðin yfír
nýfæddu lambi er alls stað-
ar sú sama, eins og með-
fylgjandi mynd ber með sér.
Hún var tekin í vikunni á
bænum Vfk í Fáskrúðsfírði.
Morgunblaðtö/RAX.
Sjá nánar um sauð-
burðinn á bls 2 og 3.
Aukið lóðaframboð í Reykjavík:
1538 lóðum verður
úthlutað nú í vor
ÚTHLUTAÐ verður 1.538 lóðum í
Reykjavík nú í vor, að því er Davíð
Oddsson borgarstjóri tjáði blaða-
manni Morgunblaðsins í gær. Lóðirn-
ar verða auglýstar innan skamms, en
af þeim veröa 1.038 byggingarhæfar í
haust, 250 verða byggingarhæfar
1984 og 250 lóðir verða byggingar-
hæfar árið 1985, en lóðarhafar geta
byrjað að greiða inn á þær nú í
sumar.
Lóðirnar 1.038, sem byggingar-
hæfar verða í haust eru eftirtaldar:
24 einbýlishúsalóðir og 10 raðhúsa-
lóðir í Seljahverfi. 77 einbýlishúsa-
lóðir og 57 raðhúsalóðir í Selási.
480 einbýlishúsalóðir, 192 raðhúsa-
lóðir og lóðir fyrir 198 íbúðir í fjöl-
býlishúsum í Grafarvogi. Lóðirnar
500, sem byggingarhæfar verða
1984 og 1985 verða í Grafarvogi.
Líkfundur
í Reykja-
víkurhöfn
LAUST eftir hádegi í gær fannst
lík af manni við Austurbakka í
Reykjavíkurhöfn. Ekki er vitað
um tildrög en Rannsóknarlögregla
ríkisins rannsakar málið venju
samkvæmt.
Auk framangreindra 1.538 lóða
sagði borgarstjóri að byggingar-
verktökum yrði úthlutað lóðum í
Selási og nýja miðbænum, en ekki
liggur ljóst fyrir hve margar þær
lóðir verða. Einnig sagði borgar-
stjóri hugsanlegt að auglýstar yrðu
nokkrar lóðir í öðrum hverfum
GRÓÐURLENDIÐ á Suður-Græn-
landi reynist vera þrisvar sinnum
betra beitiland en gróðurlendi ís-
lands. Þetta kemur m.a. fram í við-
tali í blaðinu í dag við Ingva Þor-
steinsson magister um beitarrann-
sóknir sem íslenzkir rannsókna-
menn unnu undir hans forystu á ár-
unum 1977—81, og í vetur kom út
lokaskýrslan. Grænlendingar hyggj-
ast gera sauðfjárrækt að stærri þætti
í efnahagslífi sínu og fjölga fé, án
þess að ganga á landið, og fengu því
Islendinga til að gera þessa úttekt.
Þarna er um 7 þúsund kmz þurr-
lendis í Eystribyggð að ræða og
borgarinnar, en frá því yrði skýrt
innan tíðar.
Þess má geta, að á síðasta kjör-
tímabili var rösklega 450 lóðum út-
hlutað árlega í Reykjavík að með-
altali, en í ár verður sem fyrr segir
úthlutað 1.538 lóðum, þar af 1.038,
sem byggingarhæfar verða 1983.
segir Ingvi að þar af séu 2.500 km2
af einhverju því fallegasta beiti-
landi sem hann hafi séð. Mikið af
gróðurlendinu er nánast ósnortið
af beit. Og er landið svipað að gróð-
urfari og grósku og það land sem
við finnum best á Islandi á örfáum
stöðum, þar sem gróður hefur verið
hóflega nýttur eða friðaður. Reikn-
að er með að þetta beitarland geti
borið 60 þúsund fjár og þá miðað
við að fé yrði aldrei fjölgað meira
en svo að haldist þessi blómagróð-
ur og kjarrlendi sem þarna er. En
ræktun á túnum til heyöflunar set-
ur því einhver takmörk.
Sjá nánar á bls. 36 og 37.
Miklu betra beiti-
land á S-Græn-
landi en fslandi