Morgunblaðið - 02.06.1983, Page 22

Morgunblaðið - 02.06.1983, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. JÚNl 1983 Lestunar- áætlun Skip Sambandsins munu ferma til íslands á næstunni sem hér segir: HULL/GOOLE: Jan ............. 13/6 Jan ........... 27/6 Jan ............. 11/7 ROTTERDAM: Jan ............. 14/6 Jan ............. 28/6 Jan ............. 12/7 ANTWERPEN: Jan .............. 2/6 Jan ............. 15/6 Jan ............. 29/6 Jan ............. 13/7 HAMBORG: Jan .............. 3/6 Jan ............. 17/6 Jan .............. 1/7 Jan ............. 15/7 HELSINKI: Helgafell ....... 10/6 Helgafell ....... 11/7 LARVIK: Hvassafell ....... 6/6 Hvassafell ...... 20/6 Hvassafell ....... 4/7 Hvassafell ...... 18/7 GAUTABORG: Hvassafell ....... 7/6 Hvassafell ...... 21/6 Hvassafell ....... 5/7 Hvassafell ...... 19/7 KAUPMANNAHÖFN: Hvassafell ....... 8/6 Hvassafell ...... 22/6 Hvassafell ....... 6/7 Hvassafell ...... 20/7 SVENDBORG: Dísarfell ........ 2/6 Hvassafell ....... 9/6 Helgafell ....... 17/6 Hvassafell ...... 23/6 Hvassafell ....... 7/7 ÁRHUS: Dísarfell ........ 2/6 Hvassafell ....... 9/6 Helgafell ....... 17/6 Hvassafell ...... 23/6 Hvassafell ....... 7/7 GLOUCESTER MASS.: Jökulfell ........ 1/6 Skaftafell ...... 21/6 Skaftafell ...... 21/7 HALIFAX, KANADA: Skaftafell ...... 23/6 Skaftafell ...... 23/7 SKIPADEILD SAMBANDSINS Sambandshúsinu Pósth. 180 121 Reykjavík Sími 28200 Telex 2101 Höföar til .fólksíöllum starfsgreinum! Karl og Díana steypt í vax Mynd þessi var tekin er verid vmr að leggja síðustu hönd á vaxmyndir af Karli Bretaprins og Díönu prinsessu af Wales í hinu þekkta vaxmynda- safni Madame Tussaud’s. Bresku blöðin brugðust »f við er þau sáu afsteypuna af Díönu, en þótti Karl hafa heppnast vel. Mótmæli Green- peace í N-íshafi OhIó, 1. júní. Frá Jan Krik Lauré, fréttaritara MorgunhlaA.sins. EITT skipa Greenpeace-samtakanna hefur lagt upp frá Lundúnum áleiðis til Norður-íshafsins, þar sem ætlun samtakanna er að mótmæla hrefnu- veiðum Norðmanna. Að sögn talsmanna Greenpeace er markmiðið ekki að reyna að stöðva veiðarnar, heldur aðeins að taka kvikmynd af veiðunum. Ætla samtökin að nota kvikmyndina til framdráttar mótmælum sínum gegn hvalveiðum í heiminum. Norðmenn hafa heimild til að veiða 1690 hrefnur í ár, 100 dýrum færra en á síðustu vertíð. Frá fundi varnarmálaráðherra Atlantshafsbandalagsins, sem hófst f gær í aðalstöðvum bandalagsins í Briissel og á að standa í tvo daga. Danmörk: Aukning þjóðartekna aðeins 1% á árinu Eiturlyf fyrir 70 millj. dala gerð upptæk Kaíró, 1. júní. AP. SAMEIGINLEGAR aðgerðir egypskra, bandarískra og grískra yf- irvalda hafa leitt til þess að þau hafa komist yfir heróín- og morfínbirgðir að verðmæti 70 milljónir dollara. Fundust eiturlyfin um borð í grískri snekkju á Súezskurðinum. Að sögn Mamdouh Selim Zaki, yfirmanns fíkniefnadeildar egypsku leynilögreglunnar, stóð alþjóðlegur eiturlyfjahringur að baki þessari smygltilraun. Sagði Zaki að markmið þessa hrings væri greinilega „að drekkja heim- inum í heróíni, þessu hættulegasta og dýrasta allra eiturlyfja". Alls komust lögreglumenn yfir 215 kíló af heróíni og 25 kíló af morfíni. Hefur egypska fíkniefn- alögreglan aldrei í sögu sinni kom- ist í jafn feitt. Aðgerð þessi átti sér stað þann 24. maí sl., en ekki var opinberlega skýrt frá þessu fyrr en i dag. Piííb, 1. júní. AP. í SKÝRSLU Efnahags- og framfara- stofnunarinnar (OECD) um horfur í efnahagslífi Danmerkur, sem birt var í gær, er eindregið mælt með því við dönsk stjórnvöld að halda fast við þau áform, þrátt fyrir líkur á litlum hagvexti í bráð, að draga sem mest úr verðbólgu í landinu allt fram til loka ársins 1984. 1 skýrslunni segir ennfremur, að á þessu ári verði aukning þjóðar- tekna ekki nema 1% og sennilega aðeins Vfe% á næsta ári, en hún nam 3,1% á síðasta ári. Þá er talin mikil hætta á, að atvinnuleysi eigi eftir að vaxa enn og verða allt að 12,5% 1984, en það var 9,8% á síð- asta ári. Iðnaðarframleiðsla landsins mun sennilega ekki aukast nema % % 1983 og 1984 en nún nam 2,6% á síðasta ári. En þegar litið er til lengri tíma, ætti stefna dönsku stjórnarinnar án nokkurs vafa að hafa í för með sér jákvæð áhrif á efnahag Danmerkur og þegar sæjust merki um árangur. Þannig væru horfur á batnandi viðskiptajöfnuði Danmerkur við útlönd á þessu ári, enda þótt ástæðan fyrir því væri þó fyrst og fremst lækkandi olíuverð. Herstöðvasamningur upp á 900 millj. dala Manila, Filippseyjum, I. júní. AP. FULLTRÚAR Bandarfkjamanna og Filippseyinga skrifuðu í dag undir nýjan samning í Manila varðandi herstöðvar Bandaríkjamanna á eyj- unum. Þessi nýi samningur færir heimamönnum 900 milljónir dollara í aðra hönd, auk þess sem stjórn allra mannvirkja færist í auknum mæli yfir á þeirra hendur. Samningurinn, sem er til fimm ára, tekur til Clark-flugstöðvar- innar, flotastöðvarinnar í Subic- flóa og fimm minni stöðva. Banda- ríkjamenn líta á bækistöðvar sín- ar á tveimur fyrsttöldu stöðunum gegna lykilhlutverki í varnarkeðju sinni. Samningaviðræður fulltrúa þjóðanna stóðu í rúma tvo mán- uði, áður en endanlegt samkomu- lag tókst á milli Michael Arma- kost, sendiherra Bandaríkjanna á Filippseyjum, og Benjamin Romu- aldez, sendiherra Filippseyja í Washington. Romualdez er mágur Marcosar forseta. Marcos og eiginkona hans voru viðstödd undirritun nýja samn- ingsins, sem fór fram í forseta- höllinni. Reyndar átti að undirrita samninginn í gær en þá kom upp smávægilegur ágreiningur um orðaval á einum stað í samningn- um. Var því kippt í liðinn og geng- ið frá öllum hnútum í dag. Veður víöa um heim Akureyri Amsterdam Aþena Barcelona Berlín Briissel Chicago Dyflinni Feneyjar Frankfurt Genf Helsinki Hong Kong Jerúsalem Jóhannesarborg Kairó Kaupmannahöfn Las Palmas Lissabon London Los Angeles Madríd Malaga Mallorca Mexíkóborg Miami Moskva Nýja Delhí New York Osló París Perth Río de Janeiro Reykjavík Rómaborg San Francísco Stokkhólmur Sydney Tel Aviv Tókýó Vancouver Vinarborg bórshöfn 2 skýjað 23 heiðskírt 29 heiðskírt 22 mistur 26 skýjaö 25 heiöskírt 15 skýjað 14 rigning 25 þoka 24 skýjað 24 skýjað 17 skýjað 30 skýjað 30 skýjaö 18 heiöskírt 33 heiöskírt 15 skýjað 22 léttakýjaö 17 rigning 22 skýjaö 21 skýjað 25 heiðskírt 25 lóttskýjað 23 léttskýjað 30 heiðskírt 24 rigning 24 skýjað 41 heiðskírt 21 skýjað 17 heiöskírt 26 skýjað vantar 28 skýjað 7 léttskýjaö 28 heiðskírt 21 heiöskírt 14 skýjað vantar 33 heiöskírt 29 skýjaö 20 skýjað 24 heiðskírt 7 skýjað Framleiddi amfetamín í frístundum Ósló, I. júní. Frá Jan Krik Lauré, fréttaritara Óslóarlögreglan hefur handtekið efnafræðikennara við skóla í ná- grenni borgarinnar. Er honum gef- ið að sök að hafa framleitt amfeta- mín til sölu og eigin nota í frístund- um eftir að kennslu hans í efna- fræði í skólanum lauk á daginn. Þegar lögreglan gerði húsleit heima hjá kennaranum fundust efni, sem nægja til framleiðslu á þremur kílóum af amfetamíni. Raunvirði þess magns á frjálsum markaði nemur mörgum milljón- um norskra króna. Ekki er enn vitað hversu mikið magn amfetamíns kennaranum tókst að framleiða, né heldur hversu mikið af efninu hann hef- ur selt. Leifar af amfetamíni fundust í tækjum, sem hann not- aði við framleiðsluna, en þau keypti hann í nærliggjandi apó- teki í nafni skólans. Sjálfur seg- ist kennarinn hafa verið þvingað- ur af hópi manna til þess að framleiða amfetamínið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.