Morgunblaðið - 02.06.1983, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 1983
BÍLLINN
BÍLASALA SÍMI 79944 SMIÐJUVEGI 4 KÓPAVOGI
Einstakt tækifæri
Eigum til á lager þessa tvo bíla bankaborgaöa og á
gamla góða genginu.
Dodge Ramcharger
V8-318, sjálfsk. með vökvastýri aflhemlum og fl. Verð
447.000,00.
Dodge Van B-250
með gluggum, 6 cyl., sjálfsk. meö vökvastýri, afl-
hemlum o.fl. Verð 434/1^^11 ^^f)00,00 til atvinnu-
bílstióral. Rá4:«t' 1979.
s
JÖFUR
HF
Nýbýlavegi 2 - Kópavogi - Sími 42600
Hinir landsþekktu „Soma-bátar“ trá Bátasmiðju Guðmundar,
sími 50818 í Hafnarfirði, eru aliir framleiddir með Eberspacher.
Fullkomin viðgerða- og varahlutaþjónusta.
Skeifunni 3, sími 84210.
Framleiðir 7 stærðir af bátahiturum í
allar stærðir og gerðir báta.
Hitarinn er samþykktur af Sigl-
ingamálastofnun ríkisins
Leitið nánari upplýsinga.
Sendum í póstkröfu.
Forsvarsmenn söfnunarinnar sýna blaðamönnum framkvæmdir viö sundlaugina. Morgunblaðíft/ KEE.
Sundlaug við Kópavogshælið:
Sex hundruð þús-
und hafa safnast
Foreldrafélag Kópavogshælis hef-
ur frá áramótum staðið fyrir söfnun
vegna byggingar sundlaugar við
Kópavogshælið. Þegar hafa safnast
600 þúsund krónur, en talið er að
bygging sundlaugarinnar fullklár-
aðrar komi til með að kosta IV2
milljón króna. Foreldrafélagið hefur
opnað gíróreikning 72700—8, þang-
að sem hægt er koma framlögum.
Upphaf sundlaugarbyggingar-
innar er að Kópavogshælinu barst
að gjöf plastsundlaug árið 1978
sem ekki hentaði hælinu. Var hún
því seld og hafist handa um bygg-
ingu sundlaugar 1980 og hafa
framkvæmdir staðið yfir síðan.
Engar sérstakar fjárveitingar
hafa komið til frá hinu opinbera,
heldur hefur verið reynt að standa
undir byggingarkostnaði með því
að taka hann af rekstrarfé hælis-
ins. Hafa framkvæmdir því eðli-
lega gengið hægt og ákvað for-
eldrafélagið því að efna til söfnun-
ar í því skyni að ljúka við bygg-
ingu sundlaugar nú í sumar. Hef-
ur söfnunin gengið vel og mörg
fyrirtæki til dæmis gefið efni ,til
byggingarinnar.
Þessar upplýsingar komu fram
á blaðamannafundi sem foreldra-
félagið boðaði til, til að kynna
söfnunina. Nú a að gera átak í
söfnuninni og reyna að klára laug-
ina fyrir júlílok. Verður sveita-
félögum á landinu meðal annars
sent bréf þar sem óskað er stuðn-
ings, en sjúklingar úr flestum
sveitafélögum landsins dveljast á
hælinu. Sagði Birgir Guðmunds-
son, formaður foreldrafélafsins að
það væri von manna að vel yrði
tekið í söfnunina, svo takast
mætti að ljúka sundlauginni eins
og til stæði, því hún væri mikil
nauðsyn endurhæfingamálum
hælisins og mætti teljast furðu-
legt, að hún hefði ekki verið byggð
fyrir löngu síðan.
Kaupfélag Skaftfellinga:
Mótmælir innheimtuadgerð-
um Áburðarverksmiðjunnar
AÐALFUNDUR Kaupfélags Skaft-
fellinga var haldinn á Kirkjubæj-
arklaustri 29. apríl sl.
f frétt frá kaupfélaginu segir, að
23 kjörnir fulltrúar hafi setið fund-
inn auk stjórnar, framkvæmda-
stjóra, starfsmanna og gesta. f
skýrslu stjórnar og framkvæmda-
stjóra kom m.a. fram, að afkoma fé-
lagsins í heild batnaði frá fyrra ári.
Hagnaður varð eftir afskriftir 413
þúsund, en afskriftir námu 2 millj-
ónum. Stærsta vandamálið er hinn
gífurlegi fjármagnskostnaður, sem
hækkaði um 53% frá fyrra ári, bók-
færð fjármagnsgjöld voru 606 þús-
und. Heildarvelta var 88,6 milljónir
og hækkaði um 62% milli ára.
Launagreiðslur voru 12 milljónir og
181 maður komst á launaskrá. Fastir
starfsmenn um síðustu áramót voru
90.
Fjárfestingar á árinu námu
2.231 þús.
Úr stjórn áttu að ganga: Sigurð-
ur Ævar Harðarson, Vík í Mýrdal,
Valur G. Oddsteinsson, Úthlíð, og
Tómas Pálsson, Litlu-Heiði, og
voru þeir allir endurkjörnir.
Formaður er Jón Helgason, Segl-
búðum. Kaupfélagsstjóri er
Matthías Gíslason.
Eftirfarandi tillaga var sam-
þykkt: „Aðalfundur Kf. Skaftfell-
inga, haldinn 29. apríl 1983, mót-
mælir harðlega þeirri ákvörðun
Áburðarverksmiðju ríkisins, að
ofan á stórhækkað áburðarverð,
sem nú hefur verið ákveðið, skuli
eiga að herða innheimtuaðgerðir
við bændur freklega frá því sem
verið hefur, þar sem samkvæmt
tilkynningum skuli áburður greið-
ast að hálfu fyrir maílok og að
hálfu í ágústlok. Síðan komi
álagðir dráttarvextir. Það er aug-
ljóst að slíkar skuldbindingar geta
bændur ekki staðið við. Afleiðing-
in mun því verða stórfelldur sam-
Aðalfundur Bandalags kvenna í
Reykjavík gerði eftirfarandi ályktan-
ir um neytendamál á aðalfundi sín-
um:
1. Aðalfundurinn skorar á ríkis-
stjórn að fella niður hátolla af
lækningatækjum til sjúkrahúsa
og annarra heilsugæslustöðva
sem þurfa á tækjum að halda,
svo hægt sé að veita þá bestu
þjónustu við almenning sem völ
er á.
2. Aðalfundurinn þakkar verð-
lagsstofnun það framtak, sem
hún hefur sýnt í sambandi við
verðkannanir á neysluvörum,
sem framkvæmdar hafa verið
að undanförnu.
Hvetjum við verðlagsstofnun
eindregið til að halda áfram svo
hinn almenni neytandi fái sem
bestar upplýsingar um verð og
vörugæði á hverjum tíma.
3. Aðalfundurinn lýsir yfir
ánægju sinni að hljóðvarp skuli
hafa tekið upp að nýju þátt um
dráttur í heyöflun og í öðru
heimafengnu fóðri. Skorar fund-
urinn því á stjórn verksmiðjunn-
ar, að þessu verði tafarlaust
breytt, svo að greiðslubyrði verði
ekki þyngri en verið hefur hingað
til.“
neytendamál. Skorum við á
sjónvarp að það taki einnig upp
fræðslu um þessi mál í þágu
neytenda.
4. Aðalfundurinn skorar á alla
neytendur að vera vel á verði
hvað varðar vörugæði og verð-
lag, því neytandinn getur verið
besta verðlagseftirlitið í land-
inu.
Friðarhreyfing
og kvennaathvarf
Fundurinn samþykkti ennfrem-
ur ályktun um kvennaathvarf: Um
leið og Bandalag kvenna í Reykja-
vík þakkar alla aðstoð veitta
kvennaathvarfinu, skorar banda-
iagið á ríki og borg að veita því
nauðsynlegt fjármagn til rekstrar
starfseminnar.
Þá hvatti aðalfundurinn í sam-
þykkt konur til að taka þátt í
stofnun friðarhreyfingar kvenna.
Bandalag kvenna:
Þakka verðkannanir