Morgunblaðið - 23.07.1983, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 1983
3
Morgunblaðið/Kristján.
Kassabílvelta
í Hafnarfirði
HIÐ árlega kassabílarall Hafnfirðinga fór fram í gær á
Linnetsstíg þar í bænum. Á þriðja tug bíla tóku þátt í
rallinu að þessu sinni og áhorfendur voru fjölmargir að
vanda. Ekki gekk keppnin óhappalaust fyrir sig, eins og
meðfylgjandi myndaröð sýnir. Kassabíll nr. 15 valt
skammt frá markinu en meiðsli urðu sem betur fer
smávægileg.
Lánskjara-
vísitalan
hækkar
um 5,36%
V erðbólguhraðinn
mælist 87,16%
SEÐLABANKINN hefur reiknað út
lánskjaravísitölu fyrir ágústmánuð
og er hún 272 stig, sem er 5,36%
hsekkun frá vísitölu júlímánaðar.
Sé verðbólguhraðinn metinn út
frá þessari hækkun, mælist hann
87,16% á tolf mánaða tímabili.
Lánskjaravísitala júnímánaðar
var 656 stig og í júlí 690 stig og var
sú hækkun 5,18% og mældist
83,38% á tólf mánaða tímabili.
Hins vegar var verðbólguhraðinn
metinn á tólf mánaða tímabili út
frá hækkun lánskjaravísitölu maí
mánaðar 158,9%.
Slysið í Hafnarfirði:
Stúlkan
minna
slösuð
STÚLKAN sem lenti í árekstri við
tengivagn á sendiferðabíl, á mót-
um Stekkjarhrauns og Dalshrauns
í Hafnarfirði í fyrradag, er minna
slösuð en óttast var í fyrstu. Hún
er sködduð á hálsi, viðbeinsbrotin
og mikið marin. Hún þarf ekki að
vera á gjörgæsludeild.
Eru
þeir að
fó 'ann
-?
m
Verið lélegt í Blöndu
„Augabrýnnar eru aðeins að
lyftast, enda komu 18 laxar á land
í gær. Það var reyndar ekki met-
dagur, einn daginn komu 22 á
land, en það hefur verið afar dauf
veiði í Blöndu það sem af er
sumri. Það eru ekki komnir nema
um 150 laxar á land, en á sama
tíma í fyrra voru þeir milli 700 og
800 talsins og þótti það lélegt þá,“
sagði Sigurður Kr. Jónsson á
Blönduósi í samtali við Mbl. í gær.
Sigurður sagði að menn kynnu
engar skýringar á veiðideyfðinni,
áin hefði að vísu verið köld fram-
an af vegna snjóleysinga, en hún
hefði verið tiltölulega vatnslítil og
hrein um skeið, en samt sem áður
virtist hreinlega mjög lítið af
fiski vera gengið í ána, aðeins
milli 200 og 250 fiskar hafa farið
um teljarann. Veiðin hófst 9. júní,
en lax veiddist ekki fyrr en 25.
júní og síðan kom eyða áður en
menn fóru að slíta upp fisk á ný.
Sagði Sigurður 3—10 laxa hafa
komið á land á dag að meðaltali á
þær fjórar stangir sem leyfðar
eru í Blöndu. Framan af var lax-
inn mjög vænn, en smálaxa hefur
gætt í aflanum upp á síðkastið og
því hefur meðalviktin lækkað. Þó
taldi Sigurður að hún væri enn
9—10 pund. Stærsta laxinn til
þessa veiddi Ellert Svavarsson,
það var 21 punds lax og veiddist á
spón. Þá hafa nokkrir 16—17 lax-
ar komið á land.
Að glæðast í Laxá
„Við erum líka með fallega á á
leigu sem heitir Laxá í Refasveit
og þar hefur veiðin verið að glæð-
ast. Ætli það séu ekki komnir um
20 laxar á land og mikið líf hefur
sést í henni síðustu dagana. Þarna
hafa verið miklar framkvæmdir,
fiskvegur verið gerður og seiðum
sleppt. Áin datt mjög niður síð-
ustu sumur, ég held að það hafi
bara veiðst um 40 fiskar í henni í
fvrra og milli 70 og 80 árið 1981.
Áður gaf hún stundum vel, á
þriðja hundrað fiska þegar vel
gekk,“ sagði Sigurður einnig.
Laxá er „miðlungsstór" á og
laxinn hefur til þessa verið mjög
vænn, 8—12 pund. Veitt er á tvær
stangir.
Mokveiddi lax í
Meðalfellsvatni
„Það kom mikill kippur hérna í
gær,“ sagði Gísli Ellertsson, bóndi
á Meðalfelli í Kjós, í samtali við
Mbl. í fyrradag, „ég hafði frétt af
aðeins einum laxi sem komið
hafði á land, en svo veiddust allt i
einu 14 laxar hérna," bætti Gísli
við.
Gísli sagði að það hefði
snögghlýnað í Kjósinni og þá
hefði laxinn farið að taka. Færey-
ingarnir þrír, sem voru að veiðum,
fengu 10 laxa, hinir fjórir dreifð-
ust á aðra veiðimenn, m.a. veiddi
Árni Gunnarsson fyrrum alþing-
ismaður einn lax. Þetta voru 5—8
punda laxar og veiddust allir á
maðk að sögn Gísla. Sagði Gísli að
laxinn hefði gengið seint í Bugðu
og vatnið, líklega vegna þess að
framan af sumri var Laxfoss f
Laxá illfær laxinum vegna mikils
vatns.
Gísli sagði að silungsveiðin
hefði gengið upp og ofan, einn
hefði tekið 30 silunga á einu
kvöldi og fengið svo aðeins einn
daginn eftir. „Menn greinir á um
hvort fiskurinn er að stækka
hérna,“ sagði Gísli, en Meðal-
fellsvatn hefur verið mikið grisjað
síðustu árin, enda var það orðið
troðfullt af afar smárri hor-
bleikju. Góður urriði er þó til í
vatninu og veiðist oft.
OpiÖídagtilkl3
SAAB-eigendurathugiö, tökum þann gamla upp
í nýjan — eða seljum hann fyrir þig ef þú vilt
heldur. Mikil eftirspurn tryggir hagstæð skipti.
TÖGGURHR
SAAB
UMBOÐIÐ
BÍLDSHÖFÐA 16, SÍMI 81530