Morgunblaðið - 03.08.1983, Qupperneq 1
48 SÍÐUR
172. tbl. 70. árg.
MIÐVIKUDAGUR 3. ÁGÚST 1983
Prentsmiðja Morgunblaðsins
A FUND FORSETA
Nýskipaður sendimaður Reagans Bandaríkjaforseta í Mið-Austurlöndum, Robert McFarlane, ræðir við Amin
Gemayel, forseta Líbanon, í sumarbústað forsetans í Bikfaya í dag. Sendimaöurinn ítrekaði fvrirætlanir
Bandaríkjastjórnar um að fá erlendar hersveitir til að hverfa burt frá Líbanon. í fréttum frá Tel Aviv segir að
ísraelsmenn hafí í dag tekið traustataki bækistöðvar kristinna skæruliða í suðurhluta landsins. Einnig skutu
ísraelsmenn skriðdrekaeldflaugum og stórskotaliðssprengjum að herstöðvum Sýrlendinga í austurhluta lands-
ins, eftir að Sýrlendingar særðu einn ísraelskan hermann í byssuskothríð.
Sjá frekar um Mið-Austurlönd á bls. 20.
Tök stjórnar á
Sri Lanka hert
Líbýumenn segja
að Habre sé allur
Trípóli, Líbýu, N’djamena, (’had, Washinglon, 2. ágúsl. AP.
LÍBANSKA fréttastofan Jana full-
yrti í dag að forseti ('had, Hissene
Habre, hefði látið lífíð í bardögum
við uppreisnarmenn norður af borg-
Hélt sig
sálaðan
Akron, Ohio, 2. ágúsl. AP.
MAÐUR nokkur, sem varð fyrir
því óláni aö það laust í hann
eldingu, segir að hann hafí talið
sig framliðinn og þess vegna
hafí hann brugðizt ókvæða við
er læknar hófu tilraunir til að
vekja hann aftur til lífsins.
„Ég veit það hljómar an-
kannalega," sagði John
Loughry, tuttugu og níu ára
gamall, „en ég fylgdist með
sjálfum mér í sjúkrabílnum
meðan læknarnir voru að
reyna með raflosti að fá hjart-
að til að slá.“ Loughry segist
hafa fundið til ánægjulegrar
og svífandi vímu og hafi því
fyrstu viðbrögðin orðið þau að
hann spurði sjálfan sig: „Hvað
gengur á? Af hverju láta þeir
mig ekki í friði? Ég hef sjald-
an verið hressari."
Loughry var á fiskveiðum á
smábát í Mahoning-héraði í
Ohio ásamt vini sínum, þegar
skyndilega byrjaði að rigna.
Réru vinirnir til lands og leit-
uðu skjóls undir tré. Loughry
segist muna eftir að hafa sagt
við vin sinn að óskynsamlegt
væri að liggja undir tré í
þrumuveðri. Hafði hann varla
sleppt orðinu er eldingunni
laust niður.
inni Faya-Largeau. Utanríkisráö-
herra Chad, Idriss Miskine, sagði
hins vegar að stjórnin myndi „ekki
lúta svo lágt“ að svara slíkum sögu-
sögnum. Segir í fréttum frá N’djam-
ena að herir stjórnarinnar, undir for-
ystu Habres, hafí haldið áfram gagn-
sókn sinni þrátt fyrir loftárásir Líb-
ýumanna fjórða daginn í röð.
í frásögn fréttastofunnar sagði:
„Staðfest hefur verið að Hissene
Habre hafi verið drepinn í stór-
skotaliðsárás herja lögmætrar
stjórnar landsins, sem nú hafa
umkringt borgina Faya-Largeau.“
Þar sem fréttamönnum er ekki
hleypt í nánd við vígstöðvarnar
hefur þó ekki tekizt að fá óyggj-
andi sannanir fyrir fréttinni.
Talsmaður stjórnarinnar í
N’djamena, Mahamat Soumailla,
sagði í dag að hermenn stjórnar-
innar hefðu „hundelt" uppreisn-
arlið Goukouni Oueddeis, fyrrver-
andi forseta, og hrakið það í átt til
borgarinnar Kirdimi í norður-
hluta landsins. Sendifulltrúi
Chads í París, Ahmat Allam-Mi,
sagði hins vegar að Habre væri
einungis að reyna að mynda varn-
argarð umhverfis Faya-Largeau í
undirbúningsskyni við væntanlega
árás Líbýumanna. Sendifulltrúinn
sagði: „Mér hafa í dag borizt upp-
lýsingar um að Líbýumenn séu að
búa sig undir að beita ítölskum
sprengjuflugvélum af gerðinni
SF-260 til stuðnings árásarliði á
jörðu niðri.“
Stjórnvöld í Frakklandi og
Bandaríkjunum virðast taka stað-
hæfingar stjórnar Habres alvar-
lega og hafa ákveðið að flytja loft-
varnaeldflaugar til landsins.
Fréttir frá N’djamena herma að
Líbýumenn hafi stóraukið loft-
árásir sínar á Faya-Largeau síð-
ustu fjóra daga og sé borgin að
hluta til í rústum. Starfsmaður
bandaríska utanríkisráðuneytis-
ins, Joseph Reap, sagði í dag að
Bandaríkjamenn hefðu ákveðið að
senda loftvarnaeldflaugar til
Chad til að gefa stjórnarhernum
færi á að verjast stöðugum loftár-
ásum Líbýumanna.
t fréttum líbönsku fréttastof-
unnar segir einnig að franskir og
bandarískir málaliðar berjist með
stjórnarhernum við Faya-
Largeau.
Colombo, Sri Lanka, 2. ágúst. AP.
NÍTJÁN manns hafa verið hand-
teknir og tólf annarra er leitað á
evnni Sri Lanka eftir aö stjórnin
bannaði þrjá marxíska smáflokka,
sakaða um samsæri gegn henni.
Bandarískum fréttamanni var í dag
skipað að yfirgefa eyna fyrir „gróf-
legt brot“ á ritskoðunarlögum.
Þrír hinna eftirlýstu stjórn-
málamanna eru áhrifamiklir fé-
lagar Peramusa- og Samaj-flokk-
anna og er talið að þeir fari nú
huldu höfði. Dómsmálaráðherra
landsins, Douglas Liyanage, sagði
að alþýða manna hefði verið hvött
til að gefa upplýsingar um fylgsni
mannanna og vöruð við að refsi-
vert væri að hylma yfir með af-
brotamönnum. Hann sagði að
föngunum yrði gert að sæta
varðhaldi án réttarhalda þar til
tekizt hefði að binda enda á það
neyðarástand, sem ríkt hefur síð-
astliðna níu daga á eynni.
Marxistaflokkarnir þrír voru
bannaðir um helgina eftir að
stjórnin sakaði þá um að færa sér
í nyt upplausnarástand í kjölfar
kynþáttaátaka. Sex manns hafa
látið lífið á Sri Lanka síðan á
föstudag og hafa því tvö hundruð
og þrettán týnt lífi síðan átökin
hófust. Þrátt fyrir að þúsundir
heimila og fyrirtækja hafi verið
eyðilagðar segir dómsmálaráð-
herra landsins að regla sé óðum að
komast á aftur í höfuðborginni
Colombo og annars staðar. Fjár-
málaráðherra landsins, Ronnie de
Mille, sagði í dag að skálmöldin á
Sri Lanka hefði tafið efnahags-
uppbyggingu um allt að fimm ár.
Fréttamanni UPI, Stewart Sla-
vin, var í dag fylgt frá hóteli sínu
í Colombo á flugvöllinn eftir að
valdhafar höfðu lesið frásögn
hans af ástandinu á Sri Lanka.
Ekki hefur komið fram hvað Sla-
vin reit í grein sinni, en stjórnin
mun hafa bannað hótelstjórum í
Colombo að leyfa erlendum frétta-
mönnum héðan í frá að nota tel-
ex-tæki á hótelum sínum.
Þrir menn létu í dag lífið í átök-
um við lögreglu á Indlandi eftir að
Tamilar, búsettir á Indlandi,
efndu til mótmæla í stærstu borg-
um. Hundruð Tamila mótmæltu
og fyrir utan sendiráð Indlands í
París stefnu stjórnarinnar á Sri
Lanka. Einnig lögðu þeir fram
bænarskjal í sendiráðinu þar sem
Indira Gandhi, forsætisráðherra
Indlands, var hvött til að grípa í
taumana minnihlutahópi Tamila
til bjargar.
í fréttum frá Washington segir
að stjórn Reagans hafi í ráðum að
auka fjárhagsaðstoð sína við Sri
Lanka af mannúðarástæðum.
Stjórn í
burðarlið
hjá Craxi
Kóm, 2. ágúsl. AP.
BETTINO Craxi, maðurinn, sem vænt-
ir þess að verða fyrsti forsætisráðherra
italska lýðveldisins úr röðum sósíal-
ista, sagði í dag að hann myndi e.t.v
hafa ríkisstjórn sína tiibúna á morgun,
miðvikudag.
Craxi, sem er fjörutíu og níu ára
að aldri, hefur haft forgöngu um
myndun stjórnar á Ítalíu síðan Pert-
ini forseti fól honum umboð til þess
hinn 21. júlí sl. I dag ræddi Craxi við
fulltrúa allra aðila samsteypustjórn-
ar sinnar um skiptingu ráðherra-
embætta, en flokkarnir eru fimm
talsins, kristilegir demókratar, jafn-
aðarmenn, repúblíkanar og frjáls-
lyndir, auk sósíalista. Einu stór-
flokkarnir, sem ekki koma við sögu
við myndun ríkisstjórnar þessu
sinni, eru Kommúnistaflokkurinn og
Ný-fasistaflokkurinn.
Það var Bettino Craxi sjálfur, sem
kom síðustu ríkisstjórn, undir for-
ystu kristilegra demókrata, á kné ári
áður en kosningar áttu að fara fram.
Þrátt fyrir að flokkur hans ynni ekki
umtalsverðan sigur í kosningunum,
styrktist staða Craxis þar sem
kristilegir demókratar fóru mjög
halloka.
Khadafy seilist
til Karíbahafsins
SL (ieorjje’s, (irenada, 2. ágúst. AP.
KHADAFY Líbýuleiðtogi eyðir nú
milljónum Bandaríkjadala á eyríki
á austanverðu Karíbahafí og er
áhugi leiðtogans á svæðinu slíkur
að einstökum ríkisstjórnum þykir
keyra um þverbak.
Miðstöðin fyrir afskipti Khad-
afys er smáríkið Grenada, þar
sem hann setti upp sendiráð eft-
ir að vinstrisinninn Maurice
Bishop steypti Sir Eric Gairy af
stóii 1979. Líbýa hefur lagt af
mörkum fjögurra milljóna doll-
ara vaxtalaust lán við Grenada
til byggingar nýs flugvallar, auk
þess að hafa gefið eynni þrjú
hundruð tonn af stáli, tuttugu
þúsund tonn af steypuefni og
átta þúsund tunnur af olíu.
Einnig hangir málverk af Khad-
afy í gestaherbergi stjórnarinn-
ar.
Eyjarnar Sankti Lúcia, Dóm-
iníka, Antigua og Barbuda hafa
heldur ekki farið varhluta af ör-
læti Khadafys. Forsætisráð-
herra Sankti Lúcíu, John Comp-
ton, segir t.d. að Khadafy hafi
gefið „framfarasinnuðum"
stjórnmálaflokkum þar og á öðr-
um eyjum eina milljón dollara
og að auk þess þjálfi hann
hryðjuverkamenn til að gera
íhaldssömum stjórnum skrá-
veifu. Forsætisráðherra Domin-
íku, Eugenia Charles, sagði frá
því ekki alls fyrir löngu að Líb-
ýumenn hefðu laðað ungmenni
frá eynni til náms í Líbýu með
styrkjum og fögrum fyrirheit-
um, en öll hefðu þau snúið aftur,
er kom á daginn að „uppfræðsl-
an“ færi fram í byltingarherbúð-
um. Leiðtogi frelsishreyfingar
Karíbaþjóða á Antigua, Tim
Hector, mun nýlega hafa farið í
Khadafy
heimsókn til Líbýu og snúið aft-
ur með rekstrarfé fyrir málgagn
sitt með nafninu „The Outlet".
Maurice Bishop, forsætisráð-
herra Grenada, segir að tengslin
við Líbýu séu þáttur í tilraunum
hans til að mynda sambönd við
hinn „sósíalíska og óháða heim“.
Fréttamenn AP hafa farið þess á
leit við Líbýumenn að þeir
skýrðu frá markmiðum sínum á
Karíbahafi, en hafa ekki fengið
svör til þessa.