Morgunblaðið - 23.08.1983, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. ÁGÚST 1983
31
Hagsmunafélag hrossabændæ
Fjarlægja þarf lélegustu
hrossin úr hrossastofninum
Morgunblaðinu hefur borist eftir-
farandi fréttatilkynning frá Hags-
munafélagi hrossabænda:
„Vegna þeirra áróðurskenndu
umræðna, sem orðið hafa í fjöl-
miðlum að undanförnu um hrossa-
eign landsmanna vill Hagsmuna-
félag hrossabænda láta eftirfar-
andi koma fram:
Að það sé m.a. tilgangur sam-
takanna að hlutast til um að
hrossabúskapur í landinu sé rek-
inn með sem mestri hagkvæmni,
með tilliti til arðsemi og ræktun-
ar.
Bein afleiðing af þvi hlýtur að
verða að fjarlægja úr hrossastofn-
inum lélegustu hrossin og þau er
hvorki eru til arðs eða neinskonar
nota.
Aldrei getur samrýmst arðsem-
issjónarmiðum að hafa fleiri hross
en svo að samrýmist beitarþoli
landsins og fóðuröryggi þeirra,
sem hrossin eiga.
Þess vegna vill Hagsmunafélag-
ið vinna að sem arðsamastri af-
setningu hrossa, svo að sem auð-
veldast sé að halda hrossaeigninni
í sem beztu samræmi við fram-
angreind sjónarmið á hverjum
tíma og telur að nokkuð hafi þar
áunnist með aukinni viðurkenn-
ingu á verðmæti hrossaafurða.
Hagsmunafélag hrossabænda
lýsir fullum stuðningi við það
sjónarmið að vernda og auka gróð-
ur landsins, en varar hinsvegar
við öfgafullum áróðri þar um og
telur að slíkt hljóti að skaða eðli-
lega samvinnu við þá, sem beiti-
lönd eiga og hafa forræði fyrir,
svo sem bændur og sveitarstjórn-
armenn.
Bendir Hagsmunafélagið á, að
gefnu tilefni, að á afréttum Hún-
vetninga og Skagfirðinga eru um
fjögur þúsund hross eða innan við
8% af heildarhrossastofni lands-
manna. Hefir beitartími þessara
hrossa á afréttum verið styttur á
undanförnum árum og er nú innan
við 2 mánuðir.
Hagsmunafélag hrossabænda
telur að hrossabúskapur samrým-
ist, öðrum búgreinum betur,
óskum þjóðarinnar, bæði í þéttbýli
og dreifbýli og vill þar um eiga
sem bezta samvinnu við alla þá, er
láta sig ræktunarmál skipta.“
Kirkjusandur í stað Kletts
í sl. laugardagsblaði voru birtar myndir af þeim fyrirtækjum sem viðurkenn-
ingar hlutu fyrir fegrun og snyrtingu á umhverfi sínu frá Reykjavíkurborg.
Þar átti m.a. að birtast mynd af Sfldar- og flskimjölsverksmiðjunni að Kletti,
en í stað þess birtist mynd af Hraðfrystihúsinu Kirkjusandi. Hér birtist nú
rétta myndin og eru hlutaðeigendur beðnir velvirðingar á þessum mistökum.
Luktin sem hvarf
Fyrirlestur um siglingar sjóminja
safn Álendinga í Norræna húsinu
I grein um fiskmarkað í Reykja-
vík er birtist í Morgunblaðinu sl.
sunnudag var rætt um það sem
fyrir augun bar á mynd þeirri er
fylgdi greininni. Þar var m.a.
komist svo að orði að lengst til
hægri á myndinni væri lukt —
gaslukt, því þetta var fyrir daga
rafljósa. Nú urðu þau mistök að
luktin kom alls ekki með á mynd-
inni. Það olli vonbrigðum grein-
arhöfundar og árangurslausri leit
margra lesenda. Við ýmsu hafði
maður búist hjá Mogganum, bæði
góðu og misjöfnu, svo ekki sé rætt
um aðrar hliðar, en að Morgun-
blaðið tæki sig til og skerti hægri
hliðina og það svona tilfinnanlega,
því hefði maður naumast búist
við. Nú bið ég blaðið að gera brag-
arbót og færa út víglínuna á hægri
kanti, í þessu tilviki, þannig að
myndin komist til skila eins og til
var ætlast. Það má ekki taka
tommu af vinstri hliðinni til þess
að ná þessu marki. Það verður að
gerast með öðrum hætti.
Ef einhver í hópi lesenda kynni
að þekkja kunningja eða vin í
flokki fiskkaupenda á markaðnum
væri þðkk í því að fá upplýsingar
þar um.
Pétur Pétursson þulur.
GÖTE SUNDBERG, forstöðumaður
Sjóminjasafns Álandseyja í Marie-
hamn, heldur í kvöld kl. 20.30 fyrir-
lestur með kvikmynd um sjóminja-
safnið og siglingar Álendinga frá
fyrri tímum og fram til dagsins í dag.
Sjóminjasafnið í Mariehamn er
sérsafn um flest það er að segl-
skipum og siglingum á þeim lýtur
og mjög merkilegt á sínu sviði.
Svo sem kunnugt er hafa Álend-
ingar verið miklir sægarpar og eru
enn, en skipafloti þeirra hefur
breyst með tímanum og í dag sigla
þeir ekki lengur á seglskipum um
heimsins höf eins og þeir gerðu
fyrr og raunar lengst allra Norð-
urlandabúa eða allt fram um síð-
ustu heimsstyrjöld.
Kvikmyndin, sem sýnd verður,
er um seglskipið Passat og sigl-
ingu þess milli Englands og
Álandseyja árið 1938, og er mynd-
in um 20 mínútna löng.
Fyrirlesarinn, Göte Sundberg,
er eins og áður sagði forstöðumað-
ur sjóminjasafnsins, en var áður
skólastjóri sjómannaskóla
Álandseyja. Hann var sjómaður
árum saman og meðal annars á
seglskipum.
Fyrirlesturinn um sjóminjasafn
og siglingar Álendinga er öllum
opinn og aðgangur ókeypis.
(FréttatilkynninK.)
Fróöleikur og
skemmtun
fyrirháa semlága!
i
o
l
V \\
iiitiiLMiisS!
ItiiiiiSS
SÆNSK-ÍSLENZK
YERDBYLTING
Á ELEŒROLUXbwzoo
UPPÞVÖTTAVÉLUM
Viö geröum góð kaup með því að kaupa 213 Electrolux BW 200
GOLD uppþvottavélar í einu lagi. Þannig fengum við verulegan
afslátt sem kemur þér til góða.
Fullkomin uppþvottavél á afsláttarverði, ein hljóðlátasta vélin
á markaðnum - frábær þvottakerfi (með sparnaðarrofa) - öfl-
ugar vatnsdælur sem þvo úr 100 ltr. á mínútu - þrefalt yfirfalls-
öryggi - Ryðfrítt 18/8 stál í þvottahólfi - Barnalæsing á hurð -
Rúmar borðbúnað fyrir 12-14 manns.
Fullkomin Electrolux BW 200 uppþvottavél á tilboðsverði sem
þú trúir tæpast - og ekkert vit er í að hafna.
VERÐLISTAVERÐ
OKKARVERÐ
Kr. 25.271.-
Kr. 17.490.-
Vörumarkaðurinn hf.
ARMULA ÍAS 86117