Morgunblaðið - 23.08.1983, Page 46

Morgunblaðið - 23.08.1983, Page 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. ÁGÚST 1983 „Þá er ekkert annað eftir fyrir Hafstein en að vinna," sagði Ómar þegar hann og Jón voru fallnir úr keppni eftir að hafa náð nauniri forystu á fyrsta degi rallsins. Halldór Úlfarsson og Tryggvi Aðalsteinsson voru að vonum ánægðir að hafa náð öðru sæti og skáluðu í Tropí-safa en Ljóma-smjörlíki styrkti keppnina og því þótti það vel viðeigandi. Ljómarallið: Hafsteinn og Birgir sigruðu auðveldlega LJOMA tpRALLy83 4th International rally in lceland EFTIR erfiðustu rallkeppni sem fram hefur farið hérlendis stóðu þeir HafSteinn Hauksson og Birgir Viðar Halldórsson sem sigurvegarar í Ljómarallinu, en þeir óku á Ford Escort RS. Urðu þeir átta mínútum á undan Halldóri Úlfarssyni og Tryggva Aðalsteinssyni á Toyota Corolla 1600. Sérstaka athygli vakti góður árangur Ríkharðs Kristinsson- ar og Atla Vilhjálmssonar sem urðu þriðju á Lada 1600, en Ríkharður hóf keppni í rallakstri á þessu ári. Ljómarallið var geysilega erfitt og síðasti dagur rallsins reyndist mönnum dýrkeyptur, bæði vegna erfiðra leiða og vegna þess að keppnin dróst á langinn. Strax á fyrsta degi urðu bræðurnir sigur- sælu, þeir ómar og Jón Ragnars- synir að hætta keppni er drif í Renault þeirra brotnaði. Endaði þar eiginlega keppnin um fyrsta sætið. Hafsteinn og Birgir náðu góðri forystu á Halldór og Tryggva, sem þeir héldu allt til loka. Skotarnir Tom Davies og Philip Walker á Toyota duttu úr keppni á Kjalvegi þegar framfjöð- ur öðrum megin bilaði. Voru þeir þá byrjaðir að auka hraðann, eftir að hafa haldið bílnum í góðu ásig- komulagi. Höfðu þeir dregið upp þrjá keppnisbíla þegar fjöðrunin bilaði. „Við erum mjög ánægðir með að hafa komið til fslands," sagði Philip Walker í samtali við Morgunblaðið. „Við höfum fengið stórkostlegar móttökur og eignast marga vini. Ég hef keppt I níu þjóðlöndum og hvergi mætt eins mikilli hlýju og hjálpsemi og hér á íslandi. Við komum örugglega aft- ur á næsta ári og með nokkra öku- menn í viðbót. Þá skulum við sjá hvað gerist," sagði Walker bros- andi. Ævar Haildórsson og Ægir Ármannsson sigldu Jája“ Subaru sínum upp í fjórða sæti með jöfn- um akstri á kraftlitlum bílnum og slógu þar með við Ævari Hjart- arsyni og Áma óla Friðrikssyni í Lada, sem var orðinn illilega „las- inn“ er hann nálgaðist lokamark- ið. Eiríkur Friðriksson og Matthí- as Sverrisson komu næstir í mark á Escort 2000, en það var ekki fyrr en eftir mikið basl, því kúpling bílsins bilaði og þurfti að ýta bíln- um af stað á sérleiðum síðasta dagsins. Mæðgurnar Helga Jó- hannsdóttir og Jónína Ómarsdótt- ir urðu í sjöunda sæti á Subaru 1800 4WD. „Ég held að þetta sé það skemmtilegasta, sem ég hef gert um ævina," sagði Jónína er í mark kom. Suzuki Úlfars Hin- rikssonar og Sigurðar Sigurðsson- ar varð á eftir þeim mæðgum og er undravert að hann skildi ljúka jafn erfiðu ralli. Má ætla að sumar árnar, sem keppendur þurftu að leggja að baki hafi allt að því flotið yfir bílinn, en jap- anska „kreppukrílið" eins og ein- hver kallaöi bílinn í keppninni skilaði sér í mark og kvað Úlfar bílinn hafa eitt litlu bensíni þrátt fyrir allan hamaganginn. Síðasti bfllinn í mark var Lada Ara Arn- órssonar og Gunnars óskarssonar. Þeir óku mjög vel í keppninni, en urðu fyrir því óhappi að festast er þeir voru að aðstoða annan fastan keppnisbíl og töpuðu miklum tíma. En eins og máltækið segir, sá sem er síðastur verðu fyrstur, og er greinilegt að Ari hefur réttu handtökin til að láta það rætast. Ljómarallið var haldið af Bif- reiðaíþróttaklúbbi Reykjavíkur og lagði fámönnuð keppnisstjórn margar svefnlausar nætur á sig til að rallið færi vel fram, en það tókst þó ekki í alla staði. Verður keppni af sama mælikvarða og Ljómarallið að vera betur skipu- lögð, sérstaklega þar sem erlendir keppendur munu örugglega leggja leið sína hingað á komandi árum. Nánar verður sagt frá Ljómarall- inu síðar og svaðilförum öku- manna. G.R. Staðan í íslandsmeistara- keppninni: Halldór Úlfarsson 65 stig Ómar Ragnarsson 52 stig Jón Sigþórsson 20 stig Rikharöur Kristinsson 20 stig Hafsteinn Hauksson 20 stig Ævar Sigdórsson 18 stig Ævar Hjartarsson 18 stig Skotarnir Tom Davies og Philip Walker voru í þriöja sæti og byrjaðir að auka hraðann þegar boltar í framfjöðrun gáfu sig. Spurningin er hvernig rallið hefði endað, ef þessi bilun hefði ekki komið upp, en „ef-in“ eru mörg í rallakstri. MorioinblaAið/ Gunnlaufpir R. Þrír Lada bflar hófu keppni og allir skiluðu sér í mark. Hér sjást Ríkharður og Atli, sem náðu þriðja sæti með glæsilegum akstri í erfiðu rallinu á Lada 1600. ■mm Lokastaðan í Ljómarallinu 1. Hafsteinn Hauksson/ Birgir V. Halldórsson 2. Halldór Úlfarsson/ Tryggvi Aðalsteinsson 3. Ríkharður Kristinsson/ Atli Vilhjálmsson 4. Ævar Halldórsson/ Ægir Ármannsson 5. Ævar Hjartarsson/ Árni Óli Friðriksson 6. Eiríkur Friðriksson/ Matthías Sverrisson 7. Helga Jóhannsdótttir/ Jónína Ómarsdóttir 8. Úlfar Hinriksson/ Sigurður Sigurðsson 9. Ari Arnórsson/ Gunnar Óskarsson Flokkasigurvegarar: 0—1600 Gengi 2 Rikharður Kristinsson/ Atli Vilhjálmsson Lada. Sigursveit: Hafsteinn/ Birgir, Halldór/ Tryggvi, Eiríkur/ Matthías í sveir Eika Grills Gnoðarvogi. refs. mín. Escort RS 51,52 Corolla 1600 59,57 Lada 1600 87,44 Subaru „jájá“ 95,32 Lada 1600 105,22 Escort 2000 122,48 Subaru 4WD 143,57 Suzuki Alto 166,56 Lada 1500 190,12

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.