Morgunblaðið - 22.10.1983, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. OKTÓBER 1983
Ekki einfalt
að snúa til
fyrri ritháttar
Tillögu á Kirkjuþingi um
beygingar á nafninu Jesú
SAMKOMULAG varð á Kirkjuþingi
í gær, um að vísa til allsherjarnefnd-
ar tillögu um að taka upp fyrri beyg-
ingu nafnsins Jesú, en beygingunni
var breytt fyrir fáum árum og var frá
tillögunni sagt í Morgunblaðinu í
gær. Var það gert að tillögu flutn-
ingsmanns Séra Halldórs Gunnars-
sonar, prófasts í Holti undir Eyja-
fjöllum.
Biskup íslands, herra Pétur Sig-
urgeirsson sagði málið viðkvæmt
og vandasamt, en ekki væri óeðli-
legt að málið yrði tekið fyrir á
Kirkjuþingi, eftir þá umræðu sem
hefði átt sér stað um þetta efni á
opinberum vettvangi að undan-
förnu. Að hverfa aftur til fyrri rit-
háttar væri hins vegar ekki einfalt
mál, því Biblían, sálmabókin og
handbókin hefðu verið gefnar út
með hinum nýja rithætti. Þeir
sem hefðu staðið að þessum breyt-
ingum á sínum tíma hefðu gert
það í góðum hug tii að gera beyg-
inguna meðfærilegri og aðgengi-
legri. Hins vegar væri vandamálið
að hverfa aftur til fyrri
vísað til allherjarnefndar
hvað þetta snerti mest í sambandi
við íslenskan sálmakveðskap og
einna mest í sambandi við Passíu-
sálmana, því séra Hallgrimur
hefði beiðst þess að ekki yrðu
gerðar breytingar á sálmunum
þeim, frá því sem hann gekk frá
þeim, en rím getur breytst vegna
þessara breytinga á beygingunni.
Hann fyrir sitt leyti sagðist ekki
treysta sér til þess að breyta út
frá þessari ósk séra Hallgríms er
að endurprentun Passíusálmanna
kæmi.
Flutningsmaður kvað ekki eðli-
legt að séra Hallgrímur nyti sér-
stöðu umfram aðra í þessum efn-
um.
Útfór Eiríks Ásgeirssonar, forstjóra Strætisvagna Reykjavíkur, var gerð frá Dómkirkjunni í Reykja-
vík í gær og stóðu eitt hundrað strætisvagnabflstjórar heiðursvörð þegar kistan var borin úr kirkju.
Koma mun til uppsagna
ísiand í um allt land á næstunni
Gfstft S30ÍÍ Rætist ekki úr aflabrögöum, segir skrifstofustjóri LÍÚ
ÍSLENZKA skáksveitin er í efsta sæti
á átta landa keppninni, sem fram fer í
Osló. Fyrir síóustu umferðina hefur ís-
land 23 vinninga. Danir eru í öðru sæti
meó 201/? vinning og bióskák. Pólverjar
er í þriAja sæti mcð 20 vinninga og 3
biðskákir. f 4.-5. sæti eru Svíar og
V-I>jódverjar með 20 vinninga og
biðskák, Norðmenn hafa 17 vinninga
og biðskák, Finnar 14 vinninga og
biðskák og Færeyingar hafa 4'A vinn-
ing.
ísland telfdi í gær við Færeyinga
og vann 5'A — 'k. Guðmundur Sigur-
jónsson vann Ziska, Margeir Pét-
ursson gerði jafntefli við Hansen,
Helgi Ólafsson vann Apol, Jóhann
Hjartarson vann A. Ziska, Áslaug
Kristinsson vann Klingen og Karl
Þorsteins vann Nielsen. Jóhann
vann tvær biðskákir í gær, Grun frá
V-Þýzkalandi og Wibe, Noregi. Is-
land vann Pólland 3'A—2'A á
fimmtudag.
„ÞAÐ ER mjög víða slæmt ástand
og ef ekkert fer að rætast úr afla-
brögðum verður ekki lengur um
einstök tilfelli að ræöa, heldur
mun þetta breiðast út og koma
mun tjl uppsagna um allt land,“
sagði Ágúst Einarsson, skrifstofu-
stjóri LÍÚ, í samtali við blaða-
mann Morgunblaðsins í gær, er
borin voru undir hann ummæli
sjávarútvegsráðherra í blaðinu í
gær og fréttir af uppsögnun fisk-
vinnslufólks á Stokkseyri og
Eyrarbakka.
„Það er aflaleysið fyrst og
fremst sem er að,“ sagði Ágúst,
„það er allt að drepa. Haustið er
alltaf erfiður tími, en þetta er
miklu erfiðara nú en við höfum
átt að venjast á þessum árstíma
undanfarin ár. Það verður að
fara langt aftur til að finna
svipað ástand."
Eins og sagt var frá í Morgun-
blaðinu í gær, var talsvert á
annað hundrað starfsmönnum i
fiskiðnaði sagt upp i vikunni á
Stokkseyri og Eyrarbakka
vegna skorts á hráefni í frysti-
húsunum. Bátar eru þó á veið-
um, og vinna hefst um leið og
o
afli kemur að landi. Þótt ekki
hafi mjög víða komið til upp-
sagna enn sem komið er, mun
ástandið þó litlu skárra víða um
land. Á Ólafsfirði var starfsfólki
í fiskvinnslu til dæmis sagt upp
í vikunni og var ekki unnið í
gær. Nú hefur hins vegar borist
afli á land á ný og verður unnið
á mánudaginn aftur og togarar
frá Ólafsfirði eru væntanlegir
inn með afla í næstu viku. Þar
verður því unnið eitthvað áfram.
Sóley frá Grundarfirði tekin:
Klæðning í poka
vörpunnar ólögleg
INNLENT
Á miðvikudag var togbáturinn
Sóley, SH 150, frá Grundarfirði stað-
inn að togveiðum með ólögleg veið-
arfæri tæpar 7 sjómflur út af
Öndverðarnesi. Varðskipið Týr kom
Viljum frið í frjálsum heimi:
Vökumenn sigruðu í 1. des. kosningunum
VAKA, FÉLAG lýðræðissinnaðra
stúdenta, sigraði naumlega í kosn-
ingum til hátíðarnefndar 1. des.,
sem fram fóru í háskólanum á
fimmtudagskvöldið, en vinstri
menn hafa sigrað í þessum kosn-
ingum sl. 12 ár. Fengu Vökumenn
308 atkvæði gegn 306 atkvæðum
Félags vinstri manna, en aðrir list-
ar buðu ekki fram. Níu seðlar voru
auðir og tveir ógildir. Kjörsókn var
15,76%.
„Við erum auðvitað í sjöunda
himni," sögðu fulltrúar Vöku-
manna sem litu inn á ritstjórn
Mbl. í gærdag, „þótt við hefðum
reyndar verið sigurvissir allan
tímann. Því sannleikurinn er sá
að vinstri bylgjan er að fjara út
meðal háskólastúdenta, auk þess
sem við buðum fram aðgengi-
legra umfjöllunarefni en vinstri
menn. Okkar efni er „Friður,
frelsi, mannréttindi", en með
þessum orðum viljum við draga
fram þá staðreynd að raunveru-
legur friður hlýtur að grundvall-
ast á frelsi og mannréttindum.
Þannig viljum við leggja okkar
skerf til friðarumræðunnar, en á
Nokkrir fulltrúar Vökumanna. Frá vinstri: Stefán Guðlaugsson, Óli Björn
Kárason, Ragnar Pálsson, Baldur Erlingsson og Gunnar Jóhann Birgis-
son, formaður Vöku. Morgunblaðið/Kristjín Einarsson.
annan hátt en tíðkast almennt
hjá friðarhreyfingum, sem setja
kröfuna um einhliða afvopnun á
oddinn. Við leggjum aðaláherslu
á friðarsamstarf vestrænna
þjóða, því við viljum frið í frjáls-
um heimi.
Viðfangsefni vinstri manna
var heldur klént að þessu sinni,
„Sjálfstæði — eitthvað ofan á
brauð", og byggðist barátta
þeirra öll á árásum á núverandi
ríkisstjórn og var greinilega
miðstýrt beint frá Þjóðviljanum.
Þetta sáu margir vinstri menn,
sem eru ekki hallir undir Al-
þýðubandalagið og Þjóðviljann,
og sátu því heima.
En það setur óneitanlega
skugga á þessar kosningar hve
þátttaka var dræm. Skýringin á
því er tvíþætt að okkar mati. I
fyrsta lagi sú að aðeins var kosið
á milli klukkan átta og tólf á
fimmtudagskvöldið auk þess sem
framboðsræður fóru fram á
sama tíma. Þessi tilhögun er
verk vinstri manna, en þeir neit-
uðu, í krafti meirihluta í kjör-
stjórn, að hafa kosningar allan
daginn, þrátt fyrir eindreginn
tilmæli Vöku. Þeir vita sem er,
að meirihluti þeirra stúdenta
sem ekki taka virkan þátt í póli-
tísku starfi, fylgja lýðræðissinn-
um að máli. Með því að þrengja
kosningatímann á þennan hátt
draga þeir úr kjörsókn þessa
hóps.
Hin skýringin á þessari
dræmu kjörsókn er sú, að vinstri
menn hafa undanfarin ár mis-
notað 1. des.-hátíðarhöldin í
pólitískum tilgangi. Stúdentar
eru orðnir þreyttir á þessu og
leiða því þessa kosningar hjá sér
í auknum mæli.“
að bátnum, sem var að toga með
skutvörpu og reyndist klæðning
vörpunnar ólögleg. Skipstjóra var
fyrirskipað að halda til Grundar-
fjarðar og bíða fyrirmæla sýslu-
mannsins í Stykkishólmi.
Málið var tekið fyrir og leyst
með dómsátt. Skipstjórinn var
dæmdur til þess að greiða 45 þús-
und krónur í ríkissjóð. Embætti
ríkissaksóknara heimilaði dóms-
átt í málinu.
Lánskjaravísi-
tala hækkar
um 3,01%
SEÐLABANKINN hefur reiknað út
lánskjaravísitölu fyrir nóvember-
mánuð og reyndist hún vera 821 stig.
Lánskjaravísitala hefur því hækkað
um 24 stig milli mánaða, en hún var
797 stig í október. Hækkunin milli
mánaða er 3,01%.
Hækkun lánskjaravísitölunnar
nú er nokkru meiri, en hækkunin
milli mánaðanna september og
október þegar hún hækkaði um
1,4%. Meginástæðan fyrir því, að
hækkunin nú er mun meiri, er
áhrif hækkunar á landbúnaðar-
vöruverði og hækkunar launa um
síðustu mánaðamót.
Vegna smávægilegrar bilunar {
prentvél Morgunblaðsins er stærð
blaðsins takmörkuð við 40 síður {
dag.