Morgunblaðið - 22.10.1983, Page 14
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. OKTÓBER 1983
í Hóiabrekkuskóla stunda um 1100 nemendur nám og tóku þeir flestir
þitt í skrúðgöngu í tilefni umferðardags skólans f ger. Á myndinni sést
Sigurjón Fjeldsted, skólastjóri Hólabrekkuskóla, þar sem hann gengur í
broddi fylkingar og slær taktinn.
verkefni ekki bitna á neinum
ákveðnum kennslugreinum,
heldur skipta þeim niður eftir
bestu getu. Ég vil nú geta þess,
að mikil þolinmæði og hjálpsemi
var höfð í heiðri milli kennara
og þvi gekk allur undirbúningur
mjög vel.“
Verkefni fyrir umferðardag-
inn voru ákveðin af kennurum,
sem síðan skiptu þeim niður.
Hver aldurshópur fékk ákveðnar
hugmyndir að verkefnum, en
síðan komu bekkirnir sér saman
um hvernig þeir unnu úr þeim
hugmyndum. Einn hópur útbjó
umferðarmerki og áróðursspjöld
með áletrunum eins og „Notið
bílbelti!", „Niður með ökufanta!".
Annar hópur vann að vettvangs-
könnun undir yfirskriftinni
„Hvað er að umferðinni í hverf-
inu okkar?“. 5. og 6. bekkur skól-
ans útbjó skólann sem umferð-
arsvæði og sá síðan um „lög-
gæslu“ í skólanum í gær. Elstu
nemendurnir unnu fræðsluer-
indi undir heitinu „Afleiðing
umferðarslysa" og fluttu síðan
erindin fyrir hina yngri. Sumir
fóru í heimsókn til lögreglunnar
og öfluðu sér upplýsinga þar,
aðrir unnu að könnun um trygg-
ingarmál. í þeirri könnun kom
m.a. fram, að flestir þeirra, sem
eru slysatryggðir, hafa lent í
umf erðaróhappi og verið
ótryggðir er óhappið átti sér
stað.
Yngstu nemendur Hóla-
brekkuskóla fá umferðarfræðslu
í hverri viku og fellur hún undir
samfélagsfræðina sem þeim er
kennd. Umferðardagurinn í gær
fór vel fram að sögn kennara
skólans. Honum lauk með skrúð-
göngu sem farin var um þrjú-
leytið í gær og tóku foreldrar
sumra barnanna þátt í henni.
Móðir eins nemanda sagðist
mjög ánægð með þetta framtak.
Sagði hún þetta örugglega bestu
leiðina til fræðslu, því krakkarn-
ir hefðu fengið frjálsar hendur
við vinnslu verkefnanna og
hefðu þar af leiðandi verið
áhugasamari og ánægðari í skól-
anum en áður. Ekki var annað
séð en nemendur væru áhuga-
samir og ánægðir með umferð-
ardaginn. Að minnsta kosti
glotti einn pilturinn út í annað
er blaðamaður yfirgaf skólann á
„hægri akrein" að sjálfsögðu.
Umferðardagur Hólabrekkuskóla í gær
„Heyrðu kona, kanntu
ekki umferðarreglurnar? “
Umferðardagur var haldinn í Hólabrekkuskóla í fyrradag. Allir nem-
endur skólans og kennarar tóku virkan þátt í undirbúningi umferðar-
dagsins, en undirbúningur hefur staðið í um það bil viku. Umferðardagur
þessi er haldinn í framhaldi af Umferðarvikunni 3.—8. október.
„Heyrðu kona!,“ sagði drengur
er blaðamaður gekk um skólann
og skoðaði sig um. „Hvað er að
þér? Þú átt að ganga hægra
megin. Kanntu ekki einu sinni
umferðarreglurnar, eða hvað?“
Gangar skólans voru alsettir
umferðarmerkjum og á gólfið
höfðu verið límdar hvítar ræmur
sem skiptu gólfinu í tvær „ak-
reinar“. Blaðamaður hafði ekki
gert sér grein fyrir tilgangi
hvítu línanna og æddi því um
ganga skólans sem hinn argasti
„ökufantur", en lofaði að halda
sig hægra megin eftir þessa
ábendingu drengsins. Umferðar-
merkin og myndir úr umferð-
inni, sem héngu á veggjum skól-
ans, voru unnar af nemendum
sjálfum undir leiðsögn kennara.
Sigurður Lyngdal, kennari, sagði
að undirbúningur þessa umferð-
ardags hefði hafist fyrir u.þ.b. 2
vikum, en þá hafi undirbúnings-
nefnd verið stofnuð. „Kennarar
Hólabrekkuskóla tóku hugmynd-
inni að umferðardegi strax mjög
vel,“ sagði Sigurður. „Krakkarn-
ir hafa síðastliðna viku unnið
ýmiskonar verkefni sem varða
umferðina og umferðarreglur.
Sem betur fer voru kennarar
mjög jákvæðir og tilbúnir að
„fórna“ einhverjum kennslu-
stundum fyrir umferðarverkefn-
in. Við reyndum að láta þessi
Krakkarnir hönnuðu sjálfír áróðursspjöldin. Einnig útbjuggu þeir skólann sem umferðarsvæði með löggæslu og
flestu því sem tilheyrir umferðinni. Ljósm. Júiíus.
Húsavík:
Mynd hf. hefur framköllun litfilma
NU MUNU Húsvíkingar og ná-
grannar þeirra geta fengið litfílmur
framkallaðar á einum sólarhring í
stað að minnsta kosti viku áður.
Framköllunarfyrirtækið Mynd hf.
hóf starfsemi sína þann 14. október
og annast framköllun litfílma,
stækkanir og myndbrennslu á diska
og fleira. Er þetta fyrsta fyrirtækið
utan Reykjavíkur, sem veitir slíka
þjónustu að sögn forráðamanna
þess.
Mynd hf. var stofnað í maí á
þessu ári og er eign 38 hluthafa.
Hlutafé er um hálf milljón króna
en stofnkostnaður nálægt einni
milljón króna. Segja forráðamenn
fyrirtækisins, að aðaláherzlan
verði lögð á húsvískan markað og
næsta nágrenni Húsavíkur, en
fyrirtækið sé tilbúið til að taka
filmur hvaðan sem er. Umboðs-
menn séu nú um alla sýsluna og
hafi menn allt vestur frá ísafirði
sýnt þessu áhuga. Það tekur um
það bil 20 mínútur að renna film-
unum í gegn um framköllunar- og
stækkunarsamstæðuna og afkast-
ar hún um 100 filmum á átta
klukkustundum. Þetta er því ekki
hraðari vinna en í Reykjavík,
heldur liggur mismunurinn í því,
að ekki þarf að senda filmurnar
með pósti til og frá Reykjavík. Á
þessu ári hafa að meðaltali farið
18 litfilmur frá Húsavík til
Reykjavíkur á dag og hefur af-
greiðslutími verið um ein vika.
Telja forráðamenn Myndar hf. sig
verða að fá um 28 filmur daglega
til framköllunar eigi reksturinn
að standa undir sér.
Roy Philips, filmtæknifræðing-
ur, veitir fyrirtækinu forstöðu, en
hann hefur unnið um árabil við
slík störf, bæði í Reykjavík og í
Englandi. Formaður stjórnar
Myndar hf. er Árni Haraldsson.
Roy Philips fílmtæknifræðingur við framköllunarsamstæðuna.
Mor|«»bU»i*/Albfrt
HAMRABORG 3, KÓPAVOGI, SÍMI 42011
Sænsk
húsgagnakynning
Qpið til kl. 4 í dag