Morgunblaðið - 22.10.1983, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. OKTÓBER 1983
23
Minning:
Jón Stefánsson
frá Skaftafelli
Fæddur 20. september 1899
Dáinn 7. október 1983
Látinn er sannur íslands sonur,
Jón Stefánsson frá Skaptafelli í
Öræfum. Segja má, að þjóðgarður-
inn hafi misst eitt af sínum feg-
urstu blómum.
Jón var sonur hjónanna Jó-
hönnu Jónsdóttur og Stefáns
Benediktssonar í Hæðum í
Skaptafelli. Þeirra börn urðu fjög-
ur og var hinn látni þeirra elstur.
Næstur honum kom Benedikt
(1903—1975), en hann starfaði öll
sín manndómsár hjá Tollendur-
skoðunarskrifstofunni í Reykja-
vík. Guðlaug (1906—1977), einka-
systir þeirra, var þriðja í röðinni,
en yngstur er Ragnar bóndi í
Skaptafelli, sem er landsmönnum
löngu kunnur fyrir störf sín sem
þjóðgarðsvörður.
Undirritaður hitti fyrst þetta
sómafólk í maímánuði 1945, þegar
Ragnar kom honum á hesti frá
flugvellinum á Fagurhólsmýri til
Hæða í Skaptafelli. Þá stóðu þau á
hlaðinu til að bjóða borgarbarnið
velkomið þau Guðlaug, Jón, og
faðir þeirra Stefán, sem studdist
fram á birkistaf úr skóginum,
enda orðinn gamall og gigtveikur.
Guðlaugu, sem við kölluðum
Lullu, man ég helst fyrir góða
matreiðslu og bakstur. f sælgæt-
isleysinu þóttu smákökur hennar
úr kókosmjöli hreint afbragð. Hún
átti til að vera þunglynd á köflum,
en þess utan var Lulla ræðin og
skemmtileg. Hún hleypti eiginlega
ekki heimdraganum fyrr en eftir
fertugt og lést hér fyrir sunnan
eftir langvarandi veikindi.
Stefán, faðir þeirra, var mikill
öðlingur og átti til að bregða á leik
með ungviðinu. Þegar ég fékk mér
birkistaf og þóttist vera gigtveik-
ur eins og hann, þá elti hann mig
gjarnan með sinn staf á lofti og lét
sem hann væri mikið reiður. í
leikslok hló hann svo dátt, að tár-
in trilluðu niður kinnarnar.
Ragnari kýnntist ég einna
minnst, enda var hann bústjórinn
og fór því oftast af bæ í ýmsum
erindagjörðum. Var hann alltaf
hlýr og tillitssamur við malar-
strákinn.
Jóni kynntist ég best, enda
sinnti hann mér mest. Að öllum
öðrum ólöstuðum hefur mér þótt
eina mest vænt um Jón af öllum
mönnum um mína daga. Hann var
fríður og góður, skynsamur og að-
gætinn, kærleiksríkur og óhrekk-
vís, ljóðelskur og söngvinn, gam-
ansamur og svo mikið náttúru-
barn, að flest virtist leika í hönd-
unum á honum.
Þrátt fyrir alla sína kosti
kvæntist Jón aldrei. Hann fór til
Er ég sá að æskufélagi minn,
Garðar ólafsson, væri skyndilega
látinn, varð mér hverft við. Þar
fór góður drengur. Hugurinn leit-
aði til baka, aftur um yfir 20 ár,
vestur á Snæfellsnes, þar eru
okkar æskustöðvar. Þá var gaman
að vera ung að árum og þá ekki
síst ef maður átti góðan vin.
Leiðir okkar Garðars lágu sam-
an er ég var 15-16 ára. Hann var
einstaklega skemmtilegur og góð-
ur félagi, heiðarlegur og prúður í
allri framkomu. Ég mun ætíð
minnast hans með söknuði og um
leið þakklæti fyrir árin sem við
áttum samleið. Guð gefi honum
höfuðborgarsvæðisins skömmu
fyrir 1930 og stundaði smíðar hjá
Reykdal í Hafnarfirði, en þar var
ein sú fyrsta rafstöð, sem í gang
fór hér á landi. Seinna gerðu þeir
bræður sér rafstöð í bæjarlæknum
í Skaptafelli. Jón dvaldi um
tveggja ára skeið fjarri átthögun-
um og lét vinnuna sitja í fyrir-
rúmi. Til að mynda stóðu lengi tvö
bárujárnsklædd timburhús
skammt fyrir austan Hveragerði
og voru þau eins á að líta, en þar
frið og veiti huggun öllum hans
nánustu.
Hulda
„Allt eins og blómstrið eina
upp vex á sléttri grund
fagurt með frjóvgun hreina
fyrst um dags morgunstund,
á snöggu augabragði
af skorið verður fljótt,
lit og blöð niður lagði,—
líf mannlegt endar skjótt."
(H.P.)
Þegar ég frétti um hið sviplega
andlát virktavinar míns, Garðars
hafði Jón verið að verki. Nú hefur
a.m.k. annað þeirra verið rifið.
Til allrar hamingju fyrir Jón og
okkur, sem dvalið höfum lengur
eða skemur í Skaptafelli, hvarf
hann heim aftur á vit þess ægi-
fagra vistheims, er hann unni svo
heitt. Þar lifði Jón í kærleiksríku
samspili við tilveruna og naut þess
að vera hluti sköpunarverksins.
Það var ómetanlegt fyrir ungan
dreng að kynnast Jóni og mega sjá
jurta-, dýra- og steinaríkið með
augum hans. Það var líka ómet-
anlegt að læra til verka hjá slíkum
manni á meðan enn var búið með
gamla laginu í sveitinni án
vélknúinna heyvinnslutækja. Á
rigningardögum voru helstu
ljóðskáld íslendinga kynnt í
skemmunni og hrynjandinn féll
vel að sveiflum hverfisteinsins hjá
Jóni, þegar hann lagði á ljáina.
Tæki hann sér hvíld fékk sveinn-
inn ungi að syngja lítið lag úr
skólaljóðunum og þá lyngdi Jón
stundum aftur augum og ekki
annað að sjá, en honum þætti
flutningurinn góður. Var þetta svo
örvandi, að stundum tók sveinninn
aukalag óbeðinn. Annars var
svona söngur aðeins hvursdags.
Eftir hádegisverð á sunnudögum
var oft gengið til stofu og hlustað
Ólafssonar, brast sá strengur, er
tengt hafði vináttubönd vor um
tíu ára skeið.
Ég á honum og eftirlifandi unn-
ustu, Særúnu, mikið að þakka.
Þegar tímar voru erfiðir hjá mér,
gat ég ávalit leitað til þeirra, þau
veittu mér ómetanlega ásjá og
verð ég þeim æfinlega þakklátur
fyrir það. Það brást ekki að er ég
af uppundnum grammifóni á Elsu
Sigfúss syngja tregablandna
söngva eins og „Þess bera menn
sár um ævilöng ár, sem aðeins var
stundarhlátur." „Þeim gleymist
oft er girnast söng og dans uð
ganga hljótt hjá verkamannsi i3
kofa“ eða „Nú ríkir kyrrð í djúpum
dal“. Rómantíkin og ástin til lífs-
ins og tilverunnar átti hugi okkar
á þessum stundum. Allt var svo
eðlilegt þar sem túlkurinn var Jón.
Nú ríkir kyrrð yfir djúpum dal í
huganum, sem fullur er þakklætis
til þessa einstaka vinar, sem horf-
inn er af sjónarsviðinu þó minn-
ingin um hann máist seint.
Örugglega fylgja hlýjar hugsan-
ir frá öllu frændfólki mínu til
Jóns, þegar hann að lokum yfir-
gefur Skaptafell. Þangað verður
ekki eins að koma.
Það virðist eðlilegast að kveðja
Jón með ljóði og er það tekið að
láni hjá Davíð frá Fagraskógi.
„Sú jörð á réttinn, kröfu til krafta minna,
sem kenndi mér, snauðu barni, að
hugsa og vinna,
og aldrei vega vorkunnsemd eða leiði
að vökulum bónda, sem ræktar sína heiði.“
Blessuð sé minning Jóns Stef-
ánssonar.
Hrafn Pálsson
var í vanda staddur, gat ég alltaf
leitað til þeirra. Ég veit að það er
tekið tillit til þess í lífsins bók.
Ég kynntist Garðari vorið 1974,
er við störfuðum saman við leigu-
bifreiðaakstur hjá Bifreiðastöð
Steindórs. Hann var geðþekkur
náungi, glaðlegur og svipléttur, og
hrókur alls fagnaðar hvar sem
hann kom.
Ég á margar góðar minningar
um samverustundir okkar og lofa
ég Guð fyrir það að aldrei hafði
hvorugur gert hinum neitt er iðr-
ast þyrfti síðar.
Drottinn varðveit þú sál félaga
vors og fylg honum, þar sem
mannleg augu hafa aldrei litið. Ég
þakka þér fyrir að lofa mér að
hafa fengið þann heiður að fá að
taka þátt í hinu skamma hlutverki
Garðars hér í þessu jarðlífi.
Góður guð styrki og veri þeim
nálægur er líða og syrgja.
Ronald Kristjánsson
Garðar Ólafsson
sjómaður — Kveðja
ÁSINN
Opnum í kvöld, laugardaginn 22.10. kl. 19, nýjan veltingastaö (kaffiteríu) og leiktækja-
sal aö Hverfisgötu 105.
Kaffiterían opin trá ki. 9
aö morgni til 23.30 alla daga nema sunnudaga frá kl. 11—23.30.
Viö bjóðum uppá kaffi með fjölbreyttu meðlæti, smurt brauð, einnig ýmsa heita smárétti, öl, gos og sælgæti.
Á\