Morgunblaðið - 22.10.1983, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. OKTÓBER 1983
Minning:
Árni Vilmunds-
son, Keflavík
Fæddur 22. janúar 1914
Dáinn 11. október 1983
Vinur minn og samstarfsmaður
um árabil, Árni Vilmundsson,
verður til moldar borinn frá
Keflavíkurkirkju í dag.
Árni veiktist fyrst í maí sl. og
allt frá þeim tíma átti hann í
harðri baráttu við þann sjúkdóm
sem leiddi hann til dauða 11.
október sl. Löngu og erfiðu sjúk-
dómsstríði er lokið. Árni vinur
minn varð að lokum að lúta í
lægra haldi fyrir manninum með
ljáinn, en slík eru jú ferðalok
okkar allra.
Árni Vilmundsson fæddist 22.
janúar 1914 í Grindavík. Hann var
næstelstur 13 systkina, sonur
hjónanna Vilmundar Árnasonar
og Guðrúnar Jónsdóttur. Hann
ólst upp í foreldrahúsum og dvaldi
hjá foreldrum sínum fram til 25
ára aldurs.
Árni starfaði við landbúnað og
stundaði sjóróðra ásamt smíðum
meðan hann dvaldi hjá foreldrum
sínum. Árið 1937 fór hann á mót-
ornámskeið Fiskifélags íslands og
lauk þar prófi með góðum vitnis-
burði. Eftir það réðst hann vél-
stjóri á vélbátum, en árið 1947
setti hann á fót í Keflavík eigið
bílaverkstæði sem hann rak í 5 ár.
Árið 1955 gerðist hann hluthafi
í Aðalstöðinni í Keflavík og var
leigubílstjóri til 1960. Þá hóf Aðal-
stöðin rekstur bensínstöðvar og
starfaði Árni við þá stöð þar til
hann varð flokksstjóri hjá Kefla-
víkurbæ fram til ársins 1973. Árið
1973 gerðist hann húsvörður við
Gagnfræðaskólann í Keflavík og
gegndi því starfi þar til yfir lauk.
Árni kvæntist eftirlifandi konu
sinni, Laufeyju Guðmundsdóttur
ættaðri af Eyrarbakka árið 1946.
Þeim varð þriggja barna auðið.
Þau eru Vilmundur, Sigrún og Jó-
hanna. Auk þess ól Árni upp fóst-
urson, Friðrik Hermann Frið-
riksson.
Þetta er aðeins þurr upptalning,
skýrsla um ævi látins vinar. Hún
segir vitanlega fátt um gerð Árna
og einkenni eða neitt það sem
geymist í minningunni, en það er
þó það eina sem eftir er þegar leið-
ir skilur.
Ég kynntist Árna fyrst árið
1967, en þá hafði ég ráðið mig sem
sumarafleysingamann við bensín-
afgreiðslu á Aðalstöðinni í Kefla-
vík. Við unnum þá saman eitt
sumar.
En árið 1973 liggja leiðir okkar
saman að nýju er hann gerðist
húsvörður við Gagnfræðaskólann
í Keflavík.
Mér varð strax ljóst að Árni var
einstakur maður fyrir margra
hluta sakir. Því skal ekki leynt að
hann var ekki gallalaus frekar en
við hin og hann var ekki allra. En
hinu skal ekki gleymt að kostirnir
voru yfirgnæfandi.
Hann var ákveðinn og hug-
myndaríkur, var fljótur til að
leysa úr málum, var þúsund þjala
smiður. Hann var sterkur persón-
uleiki og hafði ákveðnar skoðanir
á mönnum og málefnum. Við urð-
um fljótt góðir kunningjar og sá
kunningsskapur þróaðist upp í
einlæga vináttu. Síðasta árið varð
samstarf okkar enn nánara en áð-
ur og þá gerði ég mér best ljóst
hvern mann hann hafði að geyma.
Við ræddum mikið saman um hin
ýmsu mál — og það voru ekki allt-
af skólamál sem þá voru rædd!
Hann kunni ógrynni skemmti-
sagna og vísna. Auk þess var hægt
að leita ráða hjá Árna í mörgum
málum. Lífsreynslan hafði kennt
honum svo ótal margt og hann
kunni að miðla af þeirri reynslu.
Á þessu vori varð ég og mín fjöl-
skylda fyrir áfalli þar sem mér
fannst dauðinn höggva þungt og
óvægilega. Þá fann ég hversu góð-
an vin ég átti þar sem Árni var.
Hann kom hvern morgun á
skrifstofu mína, ræddi málin hisp-
urslaust og taldi í mig kjark og
þrek. Hann gerði það sem flestir
forðuðust, þ.e. að tala um orðinn
hlut, einmitt það sem mér kom
best á þeim tíma. Árni gerði sér
ljóst hvað mér bjó í sinni — og
fáir hafa betur skilið vísuna góðu:
Utan manninn allir sjá
orð og gjörðir heyra.
En hyggjuranninn horfa upp á
held ég kosti meira.
Steingrímur Thorsteinsson seg-
ir í einu kvæða sinna:
Vor er indælt eg það veit
þá ástar kveður raustin
en ekkert fegra á fold ég leit
en fagurt kvöld á haustin.
Við getum líklega flest tekið
undir með skáldinu að haustið sé
fegurst árstíðanna, gróðurinn
skarti sínu fegursta og litirnir í
hrauninu skírast og taka á sig
djúpan og fallegan blæ.
Því verður auðvitað ekki neitað
að það var komið haust I lífi Árna
Vilmundssonar, hann var að verða
sjötugur. En hann var hraustur og
stundaði heilbrigt líferni. Hann
hlakkaði til að lifa sitt haust og
undirbjó sig til þess. Meðal annars
var hann tilbúinn með lítinn bát,
„skemmtisnekkju", eins og hann
nefndi bátinn stundum, sem hann
ætlaði að „leika sér á“ þegar hann
hætti störfum við skólann. En tii
þess kom aldrei — veikindi hans
og fráfall komu fyrirvaralaust og
óvænt.
Ég votta einlæglega ættfólki
Árna samúð mína og alveg sér-
staklega eiginkonu hans. Ég geri
mér grein fyrir þeirri tilfinningu
sem heltekur hjartað og sálina er
sá tapast sem alls ekki má missa,
þegar sá hverfur sem gefið hefur
lífinu stóran hluta af tilgangi sín-
um.
í nýútkominni ljóðabók Hann-
esar Péturssonar segir skáldið
þetta svo blátt áfram og skýrt:
Sá er eftir lifir
deyr þeim sem lifir
en hinn dáni lifir
í hjarta og minni
manna er hans sakna.
Þeir eru himnarnir
honum yfir.
Loks vil ég þakka Árna Vil-
mundssyni samfylgdina og ein-
læga vináttu.
Blessuð sé minning hans.
Gylfi Guðmundsson
Ævinlega setur okkur hljóð,
þegar einhver sem við þekkjum er
burt kallaður héðan af jörðu.
Okkur finnst allt í einu við verða
svo miklu fátækari. Við vissum að
vísu að hverju stefndi en þó, kær
vinur, bróðir eða mágur er okkur
horfinn bak við móðuna miklu.
Það skarð sem kemur þá í hópinn
verður í rauninni aldrei aftur
fyllt.
í þessu tilfelli kemur ekki mað-
ur manns í stað.
Þetta kom mér í hug, þegar
mágur minn, Árni Vilmundsson,
lést í Sjúkrahúsi Keflavíkur þ. 11.
þ.m. Nú þegar Árni er allur, finnst
mér ég eiga honum dálitla skuld
að gjalda og verði ég að launa
hana með nokkrum kveðjuorðum
frá okkur sem stóðu honum nærri,
s.s. systkinum og þeirra fjölskyld-
um.
Árni fæddist að Löndum, Stað-
arhverfi í Grindavík. Hann var
sonur hjónanna Guðrúnar Jóns-
dóttur frá Stærri-Bæ í Grímsnesi
og Vilmundar Árnasonar frá
Sperðli í Landeyjum. Á Löndum
ólst Árni upp í stórum systkina-
hópi, en þau voru alls þrettán og
var Árni annar elstur í röðinni.
Árni fer fljótt að vinna og
hjálpar til við öll algeng störf
heima við.
Skólaganga er stunduð í eina
fjóra vetur. Þá var farið fótgang-
andi austur í Járngerðarstaða-
hverfi, en þar var barnaskólinn.
Þó þetta þyki langur gangur í
dag, hef ég oft heyrt systkinin frá
Löndum tala um hvað þetta hafi
verið mikið skemmtilegur æsku-
tími.
Árni var mjög liðtækur til allr-
ar vinnu og virtist allt leika í
höndunum á honum. Hann þótti
mjög laginn smiður hvort sem
smíðað var úr tré eður járni.
Árni stundaði mikið sjó bæði á
opnum árabátum og einnig mót-
orbátum.
Árið 1937 fór hann til Reykja-
víkur á námskeið og aflaði sér þar
mótoristaréttinda. Hana var ofsa
glúrinn við allar vélar, enda rak
hann um skeið bifreiðaverkstæði.
Það var líka alltaf leitað til Árna
ef eitthvað fór úr skorðum með
bílinn og var hann þá ævinlega
fljótur að bregða við því hann var
manna hjálpfúsastur. Það var svo
margt sem hann lagði gjörva ^önd
á að langt mál yrði að telja það
allt upp.
Árni stundaði leigubílaakstur
bæði í Reykjavík og hér í Keflavík.
Tvö ár keyrði hann hjá Flugfélagi
íslands. I nokkur ár var hann
verkstjóri hjá Keflavíkurbæ. Sl.
tíu ár gegndi hann húsvarðarstöðu
hjá Gagnfræðaskóla Keflavíkur.
Það starf rækti hann af stakri
samviskusemi eins og annað sem
honum var falið.
Hér í Keflavík steig Árni sitt
stærsta gæfuspor er hann hitti
sína ágætu eiginkonu, Laufeyju
Guðmundsdóttur. Hún er Árnes-
ingur að ætt en flyst ung til Kefla-
víkur. Hún stóð sem klettur við
hlið hans þar til yfir lauk. Árni og
Laufey byrjuðu búskap sinn í
Reykjavík fyrir nákvæmlega 38
árum, eða 11. október 1945. Þau
giftu sig 22. janúar 1946. En það
má segja að það hafi verið
merkisdagur í lífi þeirra hjóna en
það er afmælisdagur þeirra
beggja.
Laufey lifir mann sinn ásamt
fjórum börnum. Þau eru: Vil-
mundur, bifreiðarstjóri, kvæntur
Önnu Skaftadóttur; Sigrún, henn-
ar unnusti er Magnús Emilsson,
kennari; Jóhanna, gift Jóhanni S.
Kristbergssyni, skipasmið; Her-
mann Friðriksson, verkstjóri, gift-
ur Jóhönnu Júlíusdóttur. Her-
mann var tveggja ára þegar Lauf-
ey og Árni kynntust og ólst hann
upp hjá þeim.
Ég held mér sé óhætt að segja
að Árni hafi reynst honum sem
einu af sínum eigin börnum eða
sem besti faðir. Barnabörnin eru
sex. Laufey og Árni bjuggu nokkur
ár í Reykjavík, einnig bjuggu þau
um nokkurt skeið að Húsatóftum í
Grindavík, en lengst af hafa þau
búið í Keflavík, nú síðast í mörg ár
að Smáratúni 11.
Þegar við lítum til baka verða
okkur efst í huga ótal margar góð-
ar minningar og viljum við nú
þakka honum allt sem liðið er.
Kæra Laufey, börn, tengdabörn
og ekki síst afabörnin, við biðjum
þann, sem við ávallt leitum til
þegar á bjátar, að gefa ykkur
styrk.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
(V.Briem.)
Helga Sigurðardóttir
+
Eiginkona mín, dóttir, móðir og amma,
ELSA MAGNÚSOÓTTIR,
Álfheimum 38 R.,
lést i Landspítalanum 20. október.
Björn Lárusson,
Halldóra Björnsdóttir, Valgerður Skarphéðinsdóttír,
Ingveldur H. Björnsdóttir, Valgerður Björnsdóttir,
Birna Jóna Jóhennsdóttir, Lárus Björnsson.
Móöursystir mín,
GUDRÚN HARALZ,
er látin. Utförin hefur fariö fram í kyrrþey aö ósk hlnnar látnu.
Bergljót Sveinsdóttir.
+
Eiginmaöur minn og fósturfaöir
JÓN ELÍASSON,
verslunarmaður,
Eskihllð 8a,
lést í gærmorgun aö heimili sínu.
Lilja Hafliöadóttir,
Ragnar Kærnested.
Eiginmaður minn, + BJÖRN HALLDÓRSSON,
Fjólugötu 19a,
er látinn. Marta Pétursdóttir.
+
GUDMANN SIGURÐSSON,
Melbraut 12, Garði,
lést í Landspítalanum 17. þ.m. Jaröarförin fer fram frá Útskála-
kirkju miövikudaginn 26. október kl. 2 e.h.
Ingibjörg Þórðardóttir,
Þórður Guðmannsson,
Kristjón Guðmannsson,
Kristin Jóhannesdóttir.
+
HJALTI KNÚTSSON,
Fjalli, Skeiöum,
andaöist 20. október.
Jón Guðmundsson,
Sigríður Guðmundsdóttir.
+
Eiginmaöur minn,
BÚI ÞORVALDSSON,
andaöist í Landspítalanum 20. október.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Jóna Erlendsdóttir.
+
Maðurinn minn,
ÓLAFUR S. MAGNÚSSON,
kennari,
Skálará, Blesugróf,
veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju, mánudaginn 24. okt. kl. 3.
Fyrir hönd barna, tengdabarna og barnabarna,
Geröa Jónadóttir.