Morgunblaðið - 22.10.1983, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. OKTÓBER 1983
29
Eyjólfur Snœbjörnsson
Olafsvík — Minning
Óðum fækkar á meðal okkar því
fólki sem telst til svonefndrar
aldamótakynslóðar, fólkinu sem
með dugnaði, nægjusemi og ósér-
hlífni ruddi brautina fyrir okkur
sen nú búum við allsnægtir. Það er
sjónarsviptir í hverju byggðarlagi
við fráfall þessa fólks. Með því
hverfur einnig mikil þekking og
fróðleikur sem það hefir aflað sér
í hinni löngu vist í Jífsins skóla.
Laugardaginn 8. október sl. var
kvaddur hinstu kveðju í Ólafsvík-
urkirkju frændi minn og vel-
gjörðamaður, Eyjólfur Jóhann
Snæbjörnsson, en hann varð bráð-
kvaddur 4. október sl. Fjölmenni
var við útför Eyjólfs, enda var
hann vel kynntur og vinmargur.
Eyjólfur fæddist í Ólafsvík,
nánar tilgreint í Bakkahúsi á
Snoppu 16. október 1906. Foreldr-
ar hans voru Guðmunda Jónatans-
dóttir og Snæbjörn Eyjólfsson.
Hann fór eins og aðrir jafnaldrar
hans ungur á sjó og einnig til fisk-
vinnu á Vestfjörðum. Þegar svo
Hraðfrystihús Ólafsvíkur var
stofnsett árið 1939, gerðist hann
starfsmaður þess og vann þar
samfelllt til ársins 1981 að hann
hætti störfum, þá 75 ára. Lengst
af var Eyjólfur verkstjóri. Hann
var mikill og góður starfsmaður,
vinnuglaður og jafnan hress og
skemmtilegur. Stráði hann orku
og lífsgleði í kringum sig.
Eyjólfur kvæntist árið 1937
Önnu Þórðardóttur frá Borgar-
holti. Hlaut hann þar tryggan og
góðan lífsförunaut. Þau hjón eign-
uðust þrjú börn. Eitt þeirra
misstu þau á fyrsta ári, son sem
hét Eysteinn Þórður. Dætur
þeirra eru Halla, gift Herði Sigur-
vinssyni og Guðmunda, gift Jóni
Ríkharðssyni. Þær eru báðar bú-
settar í Ólafsvík. Konu sína missti
Eyjólfur 11. september 1982.
Heinjili þeirra Önnu og Eyjólfs
stóð fyrst í Bakkahúsi, síðar á
Borg, en lengst af á Grundarbraut
20. Þar ríkti jafnan friðsæld og ró.
Reglusemi og nægjusemi var þar í
hávegum höfð. Þar átti ég ungur
gott skjól og jafnan reyndust þau
hjónin mér vel og einnig móður
minni eftir að hún varð ekkja.
Eyjólfur varð bráðkvaddur, eins
og að framan sagði. Skyndilegt
fráfall kom því í veg fyrir að í verk
kæmist að taka upp á band frá-
sagnir Eyjólfs af daglegu lífi
Ólsara á árum áður og þætti úr
atvinnusögu byggðarlagsins. Þó er
til á myndbandi samtalsþáttur um
þessi efni, en til stóð að nýta gott
minni og einstaka frásagnarhæfi-
leika Eyjólfs betur, því hann var
mjög fróður um menn og málefni.
Við leiðarlok er ég þakklátur
fyrir allt það góða sem til mín og
minna beindist frá þessum sóma-
manni. Trúmennska hans við Guð
og menn var af bestu gerð. Sú
trúmennska hefir nú fært honum
þá uppskeru sem heitið hefir verið.
Dætrum og öðrum aðstandend-
um óskum við hjónin allrar bless-
unar. Jóhann
Minning:
Friömar S. Björns-
son frá Meðalnesi
Fæddur 13. júní 1916
Dáinn 10. október 1983
Vinur minn, Friðmar Björnsson
frá Meðalnesi í Fellahreppi, verð-
ur jarðsettur í dag. Friðmar var
fæddur að Reykjum í Mjóafirði í
stórum systkinahópi, en var ungur
settur í fóstur í Meðalnes, þar sem
hann taldi æ síðan heimili sitt. í
Meðalnesi stundaði hann búskap
framanaf, en eftir að hann brá búi
vann hann við það sem til féll, þó
mest sem vélagæslumaður, við
járnsmíði og viðgerðir ýmiskonar.
Seinni ár endurbyggði Friðmar
íbúðarhúsið í Meðalnesi og hafði
gert það að hlýlegum bústað fyrir
efri árin.
Með Friðmari er fallið eitt vígi
þeirrar sterku sjálfsbjargarvið-
leitni, þrautseigju og þolgæðis,
sem einkennt hefur íslensku þjóð-
ina gegnum aldirnar og fleytt hef-
ur henni gegnum þær þrautir sem
gengið hafa yfir. Þetta er meðal
annars ástæða þess að ég sting
niður penna til minningarskrifa
um Friðmar Björnsson.
Friðmar var maður rólegur og
dulur og bar ekki upp skoðanir
sínar við hvern sem var, hann var
skapmaður nokkur þó hann dyldi
það vel og þótti sumum hann sér-
lundaður og harður í viðmóti.
Þetta voru einmitt hans sérein-
kenni sem fólust i hans sterka
vilja og ákveðni við að ná mark-
miðum sínum. Friðmar var þó
ávallt glaður i góðum hópi og
sýndi þá oft það viðmót sem hon-
um var í raun eðlilegra.
Á besta aldri lenti Friðmar í
slysi sem leiddi til þes að hann
missti annan fótinn og gekk við
gervifót síðan. Einnig þetta setti á
manninn mark og mótaði skap-
gerð hans. Aldrei heyrðist hann
kvarta yfir sínu hlutskipti í lífinu
og aldrei kveinka sér yfir fötlun
sinni sem háði honum þó nokkuð.
Ekki þáði hann styrk vegna ör-
orku sinnar enda lítið fyrir að
þiggja af öðrum.
Hann vann sín störf þegjandi,
af samviskusemi, ósérhlífni og
stakri alúð. Allt hans fas ein-
kenndist af þrautseigju og þolin-
mæði og með einbeitni var stefnt
fast að settu marki.
Friðmari kynntist ég barn að
aldri á síldarárunum á Seyðisfirði
þar tengdust okkar fyrstu vináttu-
bönd sem síðan voru sffellt að
styrkjast. Síðan vorum við aftur
saman á Ekkjufelli hjá afa mínum
og ömmu þar sem Friðmar dvaldi
oft. Þá ræddum við Friðmar oft
langtímum saman um margvísleg
málefni, hann átti alltaf stund til
að svara spurningum 12 ára
stráklings, en það var einmitt það
sem mest hændi mig að Friðmar.
Innri maður Friðmars sást ávallt í
því hversu góður hann var börn-
um. Dóttir mín var eitt þeirra sem
hreifst mjög af honum, og áttu
þau margar stundir saman þegar
Friðmar dvaldist hjá okkur síð-
ustu ævidagana, sem enginn vissi
að þá voru nær taldir. Eins og
venjulega gaf Friðmar sér tíma til
að svara spurningum barns, lesa
og spjalla. Þegar sú litla hljóp
fagnandi til hans, sást að ísinn
bráðnaði og úr svip hans skein
einlæg hlýja.
{ dag spyr hún: „Hvar er Frið-
mar, hvenær kemur hann?“ Hún
skilur ekki dauðann ennþá og ef til
vill vitum við sem eldri erum lítið
meira. En þar var skoðun Frið-
mars skýr, hann var forlagatrúar
og trúði á líf eftir þetta líf, hann
drakk í sig allt efni um dulspeki og
skyggni og sagði alltaf að líf sitt
væri ákveðið fyrirfram, því gæti
enginn breytt.
Þessi fátæklegu orð lýsa ekki
lífshlaupi Friðmars frá Meðalnesi
enda er þeim ekki ætlað að gera
það. Þau eru aðeins upprifjun mín
á kynnum við mann sem ég mun
aldrei gleyma, kynnum sem ætíð
munu verða mér hvatning í lífinu.
Ég og fjölskylda mín minnumst
Friðmars með gleði, gleði yfir að
hafa fengið að kynnast honum og
njóta samvista við hann, sem þó
sannarlega hefðu mátt verða
meiri og lengri.
Sigurður Grétarsson
t
Móöir mín,
SIGURBORG ÓLAFÍA BJARNAOÓTTIR
frá Stykkishólmi,
Hverfisgötu 35b,
Hafnarfirói,
veröur jarösungin mánudaginn 24. okt. frá Fríkirkjunni í Hafnarfiröi
kl. 13.30.
Fyrir hönd systklna,
Kolbrún Jónsdóttir.
t
Útför móöur okkar og tengdamóöur,
MARGRÉTAR BJARNADÓTTUR,
Hverfisgötu 37, Hafnarfirói,
veröur gerö frá Hafnarfjaröarkirkju, þriöjudaginn 25. október kl.
13.30.
Ingibjörg Ingvarsdóttir,
Kristín Ingvarsdóttir,
Árni Ingvarsson,
Gunnar Ingvarsson,
Halldór Jóhannsson ,
Ólafur Á. örnólfsson,
Geröa Garóarsdóttir,
Ragna Páladóttir.
t
Eiginmaöur minn,
GUOMUNDUR ÁGÚSTSSON,
bakarameistari,
Vesturgötu 52,
veröur jarðsunginn frá Dómkirkjunni, þriöjudaginn 25. okt. kl.
13.30.
Þeim sem vildu minnast hans er bent á Styrktarfélag vangefinna.
Þuríður Þórarinsdóttir.
t
Innilegar þakkir fœrum viö þeim, sem sýndu okkur samúö Cij
hlýhug viö andlát og jaröarför móöur okkar, tengdamóöur, ömmu
og langömmu,
GUOBJARGAR KRISTINSDÓTTUR,
fyrrv. Ijósmóður,
Siglufirði.
Haraldur Árnason, Karólína Hallgrímsdóttir,
Freyja Árnadóttir,
Pétur Pétursson, Ingibjörg Kjartansdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Viö þökkum innilega auösýnda samúö viö andlát og útför
HÓLMFRÍDAR HELGADÓTTUR,
Grundarstíg 10.
Systkinin.
t
Hugheilar þakkir flytjum viö öllum sem sýnt hafa vinarhug og
vottaö samúö viö andlát og útför eiglnmanns míns, fööur okkar,
tengdafööur og afa,
TÓMASAR GUÐJÓNSSONAR,
vélstjóra,
Tjarnarstíg 2, Seltjarnarnesi.
Sérstakar þakkir færum viö starfsfólki hjúkrunardeildar Hrafnistu í
Hafnarfirði.
Sigríöur Pálsdóttir,
Adolf Tómasson, Sigrún Baldvinsdóttir,
Guöjón Tómasson, Þuríöur Gísladóttir,
Valdimar Tómasson, Anna Sigríður Zottga,
Guðrún S. Tómasdóttir Siguröur Sumarliöason
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir til allra þeirra sem vottuðu okkur samúö og vln-
arhug viö andlát og jarðarför
JÓNS NIKÓDEMUSSONAR,
fyrrverandi hitaveitustjóra,
Lindargötu 7, Sauðárkróki.
Anna Friðriksdóttir,
Sigurlaug Jónsdóttir, Gunnar Helgason,
Friðrik Jónsson, Elínborg Garöarsdóttir,
Valgarð Jónsson, Kay Jónsson,
Kjartan Jónsson, Beverly Jónsson,
Bjarni Jónsson, Gyða Flóventsdóttir,
t
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö viö andlát og útför
KARLS NORDDAHL
frá Hólmi.
Starfsfólki Borgarspitalans sem hjúkraöi honum í erfiöum veikind-
um, svo og frændum og vinum, biöjum viö guös blessunar.
Fyrir hönd vandamanna.
Salbjörg Norðdahl.
t
Innilegar þakkir færum viö öllum sem sýndu okkur samúö og
vinarhug viö andlát og jarðarför eiginmanns míns, föður okkar og
afa,
ARNGRÍMS GUÐBJÖRNSSONAR.
Sérstakar þakkir skulu færöar starfsfólki vlö gervinýra Landspítal-
ans fyrir góöa umönnun á liönu ári.
Guöný Bergsveinsdóttir,
börn og barnabörn.
t
Innilegar þakkir færum viö öllum þeim sem sýndu okkur samúö og
hlýhug viö fráfall eiginmanns míns, fööur okkar, tengdafööur og
afa,
AGNARS BOGASONAR,
og vottuöu minningu hans viröingu.
Jóhanna Svava Pálsdóttir,
Bogi Agnarsson, Helga Gísladóttir,
Páll Agnarsson,
Sturla Agnarsson, Sólveig Harðardóttir
og barnabörn.
Krossar á leiði
Framleiöi krossa á leiöi.
Mismunandi geröir. Uppl. í síma 73513.