Morgunblaðið - 22.10.1983, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. OKTÓBER 1983
37
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 11—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
^ W !'£**<*'
m L a/ • n
\w<A\<mpx?umx}:
Þessir hringdu . . .
Okkur varð star-
sýnt á handbragðið
Aðstandandi hringdi og hafði
eftirfarandi að segja: — Okkur
hjónin langar til að senda þakk-
lætiskveðju til frú Kristbjargar,
blómaversluninni Stráinu á Eg-
ilsstöðum. Hún aðstoðaði okkur í
sambandi við tvær jarðarfarir
ástvina okkar og leysti verk sitt
svo stórkostlega vel af hendi og
af svo mikilli virðingu og reisn,
að okkur varð starsýnt á hand-
bragðið. Það var listaverk. Kær-
ar þakkir.
Réttara að birta
mynd af hljóm-
sveitinni allri
Járnsíðulesandi hringdi og
hafði eftirfarandi að segja: —
Við urðum mjög vonsviknar,
tvær vinkonur, yfir Járnsíðunni
á miðvikudag (12. okt.), að það
skyldi bara birtast mynd af
Þorsteini Gunnarssyni trymbli í
hljómsveitinni Icelandic Sea-
funk Corporation, en ekki hljóm-
sveitinni allri. Það hefði verið
miklu skemmtilegra, eins og
sýndi sig með hinar hljómsveit-
irnar, sem myndir birtust af á
sömu síðu. Þó að Þorsteinn sé
æðislega góður trommuleikari
og hafi tekið frábært sóló þarna,
fannst okkur, að réttara hefði
verið að birta mynd af allri
hljómsveitinni. Er hægt að bæta
úr þessu?
- O -
Sigurður Sverrisson blaða-
maður tjáði okkur að hann hefði
reynt að ná mynd af hljómsveit-
inni við þetta tækifæri, en ekki
tekist. Og sökum mannabreyt-
inga hefði ekki verið hægt að
notast við gamla mynd. En úr
þessu yrði bætt.
Hvað er orðið af
Arnþrúði og Páli?
Ingibjörg Baldursdóttir hringdi
og hafði eftirfarandi að segja: —
Mig langar til að beina fyrirspurn
til forráðamanna útvarpsins:
Hvað er orðið af hinum ágætu út-
varpsmönnum Arnþrúði Karls-
dóttur og Páli Þorsteinssyni? Svo
virðist sem bæði Dropar og syrp-
urnar hans Páls hafi horfið með
öllu af dagskránni, eftir að vetr-
ardagskrá hófst. Var ekkert litið
til vinsælda þessara þátta í skoð-
anakönnuninni, þegar tekin var
ákvörðun um það, hvort þeir héldu
velli í dagskránni?
A heims-
mælikvarða
„Velvakandi.
Fyrir nokkrum dögum vorum við
hjónin stödd í höfuðborginni og
ákváðum að halda upp á 40 ára
brúðkaupsafmæli okkar með dætr-
um og tengdasonum. Ákveðið var
að fara út að borða. En hvert?
Fyrir valinu varð Hótel Holt.
Við vildum vera flott á því og
pöntuðum kampavín með matnum.
Þegar þjónninn kom með flöskuna,
sagði hann, að hún væri gjöf frá
staðnum í tilefni afmælisins.
Þetta viljum við þakka fyrir, svo
og góðan mat og alla þjónustu, sem
var á heimsmælikvarða.
Það mætti oftar lofa það, sem vel
er gert, en gera minna af því að
lasta sí og æ það sem miður fer.
Friðný og Jónas G., Húsavík."
Skrifið eða hringið
til Velvakanda
Velvakandi hvetur lesendur til að skrifa þættinum um hvaðeina, sem
hugur þeirra stendur til — eða hringja milli kl. 11 og 12, mánudaga til
föstudaga, ef þeir koma því ekki við að skrifa. Meðal efnis, sem vel er
þegið, eru ábendingar og orðaskipti, fyrirspurnir og frásagnir, auk pistla
og stuttra greina. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð, en nöfn, nafnnúmer
og heimilisföng verða að fylgja öllu efni til þáttarins, þó að höfundar
óski nafnleyndar.
Sérstaklega þykir ástæða til að beina því til lesenda blaðsins utan
höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti sinn hlut ekki eftir liggja hér í
dálkunum.
GÆTUM TUNGUNNAR
Sagt var: Bilið þar á milli er einn meter.
Rétt væri: ... er einn metri.
Séra Guðmundur Torfason.
(Teikning bróðursonar hans, Finns Jónssonar á
Kerseyri.)
kominn, þegar hann rankar við sér,
þjakaður af timburmönnum.
Reykjavíkurbragur yngri
Eg var á ferð um fölva nóttu
foræði vóð um grýtta slóð,
tók mig að syfja undir óttu
á hæð hjá vörðu kyr því stóð.
Byltu mér veiti bróðir helst
þá bjarminn lýsti fagrahvels.
Ei er mér Ijóst hve lengi gisti
lúinn véböndum dauðans í.
Þegar eg upp reis yfir lysti
óhíjóðum, skvaldri, harki, gný;
gerðist nú ys og ógnarskrölt
sem ótal nauta kuldabrölt.
Mér varð litið til hægri handar,
húmskýlu fyrir augað brá
mér fannst sem þytu illir andar
út úr hyldýpis myrkri gjá,
reykbræluhnettir hófu köf,
hátt sem úr mestu kolagröf.
Allt eins og milli steins og sleggju
stóð eg og horfði þvílíkt á,
af þessu hissa hvorutveggju.
Hlaupandi koma mann ég sá.
„Komdu sæll, vinur,“ kvað eg þýtt,
kátur var hinn og tók því blítt.
Tók eg nú þegar þennan frétta
þá orðin raáttu til hans ná:
„Hvar er eg staddur? Hvað er þetta?
Hvaðan er þessi svæla frá?
Segðu mér upp á ást og tryggð,
er hérna nálægt mannabvggð?"
Hann hlær og segir: „Svo má kalla,
sýnist þér hérna fjarska Ijott?
þú ert ekki með öllum mjalla,
eitthvað hefir þig villt í nótt.
Hér er mannbyggð, já, heldur rík,
höfuðstaðurinn Reykjavík."
Þá lýsir sögumaður mönnum og
mannlífi í Reykjavík, eins og það
kemur honum fyrir sjónir. Um
konurnar í bænum farast honum
orð á þessa leið:
Hér finnast konur, frúr og meyjar
sem farfa sig með ýmsum lit,
þær glæsilegu gullhlaðs-eyjar
ganga langt yfir mannlegt vit;
eg fæ ei þeirra fegurð lýst,
frómlyndi og hegðun allra sízt.
Kvendin sura gráa kjóla bera
með kransa eins og fléttað hár,
járnbentar eins og á að vera,
út svo þær fái gengið skár,
svo kurteisar að ker fullt má
koll þeirra setja skaðlaust á.
Þær kveða: Jæ e kokkepige
kan vals og snakker dansk, er feit,
en hitt að mjólka kýr og kvie,
kindur og múkke flór í sveit,
so skidt, so tossuð, líðileg
eg líð það ei, fjandinn gæli í mig.
Hann gefur utanbæjarmönnum
ýmis ráð, ætli þeir að gera sér ferð
til kaupstaðarins. M.a. segir hann:
Þá skaltu bera hring á hendi,
hárið greitt út í vangann sé,
ellegar munu menn og kvendi
mjög að því færa háð og spé,
fólk er hér útásetningssamt
við sveitafólk og hæðnistamt.
íslenska tungu mátt ei mæla
menn kunna iítt á henni skil,
kokaðu sem þú ætlir æla
einhverju sem ei hefir til,
kreistu svo orðin upp úr þér
allt eins og sumir gera hér.
Og loks segir séra Guðmundur
um Reykjavík og Reykvíkinga:
eða vansæma þennan stað
en við ef hefi aukið dygðum
ætla eg fyrirgefist það.
Sannindin bar að segja þér,
því sannleikurinn beztur er.“
* v.
Mittismálid?
Ef þú hefur átt svo um munar í vandræð-
um með aukakílóin og mittismilið, þá hef-
urðu kannski komizt að því að skyndi-
megrun og töfrakúrar hrökkva sjaldnast
langt. Nei, þá er bezt að taka málið föstum
tökum og læra að lifa lífinu á skynsamleg-
an hátt með hollum og góðum mat.
Við bjóðum námskeið í þessa veruna, þar
sem er reynt aö taka á sem flestum þátt-
um varöandi mat og mataræði, svo þið
getið haft ánægju, en ekki áhyggjur af
mat.
Námskeiöið hefst laugardaginn 5. nóv-
ember. Upplýsingar {síma 31486 kl. 17—19
virka daga.
Dr. Eiríkur Örn Arnarson sálfræðingur,
Sigrún Davíðsdóttir.
j-y , Nobiínr
Citroén
nœstbesti
fwsturinn!
Citroen GSA Pallas C-mat
Citroén GSA Pallas
Citroén GSA Pallas
Citroén GSA Pallas
Citroén GS Pallas
Citroén CX Pallas
árg. km. Verð
1982 40.000 290.000.-
1982 24.000 265.000,-
1982 29.000 260.000.-
1980 36.000 180.000-
1979 37.000 125.000,-
1978 60.000 260.000.-
Opið í dag
frá kl. 14—17
‘ ~ G/obusr^zn
Hurðarpumpur
Margar stærðir
Þettilistar
á huröir og glugga
® U Vf fí/.
STOFNAÐ
z
1903
'ea&tmaent
ÁRMÚLA 42 ■ HAFNARSTRÆTI 21