Morgunblaðið - 08.11.1983, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. NÓVEMBER 1983
3H**9tmÞIafeifr
Utgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö-
alstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift-
argjald 250 kr. á mánuði innanlands. I lausasölu 20 kr. eintakið.
Traust staða
Sjálfstæðisflokksins
Drengskapur hefui
áttubönd okkar ke
i
sagði Friðrik Sophusson að loknu formannskjöri
Engum getur blandast
hugur um trausta stöðu
Sjálfstæðisflokksins að lokn-
um landsfundi. Málefnaleg
samstaða er eindregin innan
flokksins og með því að kjósa
Þorstein Pálsson flokks-
formann í fyrstu atrennu
staðfestu landsfundar-
fulltrúar sömu eindrægnina
í afstöðu til manna. Geir
Hallgrímsson skilar góðu búi
þegar hann kveður for-
mennsku í Sjálfstæðis-
flokknum eftir 10 ára mis-
kunnarlaust starf.
Kjartan Gunnarsson,
framkvæmdastjóri Sjálf-
stæðisflokksins, minnti
landsfundinn á þá staðreynd
að félagar í flokknum eru um
23 þúsund. Þessi tala ein
sýnir að Sjálfstæðisflokkinn
verður að telja til þeirra
fjöldahreyfinga sem gera
kröfu til sérstakrar athygli í
krafti hinna mörgu félags-
manna. Miklu skiptir að
þannig sé haldið á stjórn
flokksins að skoðanir þeirra
sem fylkja sér undir merki
hans njóti sín í réttu hlut-
falli við fjöldann sem aðhyll-
ist þær. I þeirri baráttu
stendur formaður flokksins í
fylkingarbrjósti. Þegar
niðurstaða lá fyrir í próf-
kjöri sjálfstæðismanna á
Suðurlandi í janúar síðast-
liðnum þar sem Þorsteinn
Pálsson hlaut efsta sæti var
þannig komist að orði um
hann hér á þessum stað:
„Fyrir Sjálfstæðisflokk-
inn, Suðurlandskjördæmi og
þjóðina alla er mikill fengur
að fá Þorstein Pálsson til
starfa á alþingi. Alþjóð hef-
ur kynnst því best eftir að
hann varð framkvæmda-
stjóri Vinnuveitendasam-
bands íslands, að þar fer
maður sem flytur mál sitt af
rökfestu og sanngirni. Er
ekki að efa að hann mun með
sama hætti standa vörð um
hagsmuni umbjóðenda sinna
á Suðurlandi og Sjálfstæðis-
flokknum bætist maður á
þingi sem hefur öðlast mikla
stjórnmálareynslu utan
þess.“
Frá því þessi orð voru
skrifuð hefur frami Þor-
steins Pálssonar innan Sjálf-
stæðisflokksins orðið mikill
á skömmum tíma. Hann hef-
ur nú með góðum og afdrátt-
arlausum stuðningi axlað
mikla ábyrgð. Hann ávann
sér traust og trúnað sam-
starfsmanna og viðmælenda
á vettvangi kjaramála. Und-
ir forystu Þorsteins hafa
sjálfstæðismenn sameinast í
Suðurlandskjördæmi og
leyst á farsælan hátt úr
ágreiningi. í báðum tilvikum
hefur Þorsteinn Pálsson sýnt
að hann hefur hæfileika sem
formaður Sjálfstæðisflokks-
ins þarf að vera búinn, að
vera fastur fyrir en um leið
mannasættir.
Landsfundur Sjálfstæðis-
flokksins breytir engu fyrir
ríkisstjórnina. í stjórnmála-
ályktun fundarins er lýst
eindregnum stuðningi við
stjórnina. Á fundinum sjálf-
um komu engar kröfur fram
um að flokkurinn hætti
stjórnarsamvinnu við Fram-
sóknarflokkinn. í meginat-
riðum vilja sjálfstæðismenn
að haldið sé áfram á sömu
braut í efnahagsmálum. Það
tókst að ná sameiginlegri
niðurstöðu milli launþega,
atvinnurekenda og þing-
manna á vettvangi flokksins
þrátt fyrir ólík viðhorf til
bráðabirgðalaganna um af-
nám samningsréttar. Stefn-
an í utanríkis- og öryggis-
málum stendur óhögguð eft-
ir landsfundinn, en Sjálf-
stæðisflokkurinn er eina
stjórnmálaaflið í landinu þar
sem ekki er tvískinnungur í
ályktun um sjálfstæði og
varnir þjóðarinnar.
Geir Hallgrímsson getur
litið stoltur til þess hvernig
staðan er í Sjálfstæðis-
flokknum þegar hann kýs að
ganga út úr iðukastinu. Við
val á formanni í hans stað
stukku landsfundarfulltrúar
yfir eina kynslóð ef þannig
má að orði komast og þeir
hikuðu ekki einu sinni við að
taka þá áhættu sem í því
felst, tóku ákvörðunina án
þess millispils sem skipu-
lagsreglurnar leyfa með tvö-
faldri kosningu. Þegar
Þorsteinn Pálsson þakkaði
traustið vitnaði hann í ólafs
sögu Tryggvasonar í Heims-
kringlu, þar sem segir frá
því er Ólafur reiddist Úlfi
hinum rauða í Svoldarorr-
ustu lagði ör á streng og
miðaði á Úlf sem sagði þá:
„Skjót annan veg konungur
þangað sem meiri er þörfin."
Þannig valdi hinn nýi for-
maður sér söguleg einkunn-
arorð sem lýsa vel þeim
ásetningi hans að komast
hjá deilum innan flokks en
verða þeim mun öflugri í
átökum við andstæðingana.
Allir þeir sem vilja frelsi
einstaklingsins til orðs og
æðis og að staðinn sé öflugur
vörður um sjálfstæði þjóðar-
innar hljóta að fagna því að
brjóstvörn þessara sjónar-
miða meðal stjórnmálaflokk-
anna lýtur formennsku
manns er starfar í þessum
anda.
„Kæru vinir og samherjar. Ég tek
við því trausti, sem þið hafið sýnt mér
í dag, með þakklæti og í auðmýkt.
Mikill vandi fylgir þessu starfl og það
er undirorpið miklu miskunnarleysi,"
sagði nýkjörinn formaður Sjálfstæðis-
flokksins, Þorsteinn Pálsson, er hann
sté í ræðustól loks er fagnaðarlátun-
um linnti eftir að kjör hans hafði verið
tilkynnt á landsfundi Sjálfstæðis-
flokksins á sunnudag.
Mikil stemmning
Stemmningin í Sigtúni, þar sem
fundurinn fór fram, var einstök,
kynngimögnuð væri nær að segja.
Eftir skipan fundarstjóra og fund-
arritara hófst kosning til formanns
um kl. 14.20 og lauk tæpum 50 mín-
útum síðar. Hófst þá talning at-
kvæða og gekk hún greiðlega fyrir
sig.
Á meðan á talningu stóð bolla-
lögðu menn hver yrði niðurstaða
fyrri umferðar því flestir voru
þeirrar skoðunar, að kjósa þyrfti
tvívegis til að knýja fram úrslit, en
greindi eðlilega á um niðurstöður.
Nokkrir voru þeirrar skoðunar, að
kæmi til annarrar umferðar, myndi
fylgi Birgis, hafnaði hann í 3. sæt-
inu í fyrri umferðinni, fara jafnt
yfir á Þorstein og Friðrik. Yrði
Friðrik í 3. sætinu færi fylgi hans
nær allt yfir á Birgi, en aðrir töldu
þetta ekki rétt og að verulegur hluti
stuðningsmanna Friðriks, myndi
snúast til fylgis við Þorstein. Skoð-
un viðmælenda blm. var því sú, að
ef Þorsteinn hlyti ekki meirihluta í
fyrstu umferð gæti róðurinn orðið
þungur fyrir hann, en það færi þó
eftir því hve mikið hann mundi
skorta til þess að ná meirihluta.
Þorsteinn Pálsson 608 at-
kvæði í fyrri umferð
Þegar fundarstjóri, Þorvaldur
Garðar Kristjánsson, sté í pontu kl.
15.30 mátti heyra saumnál detta í
þéttskipuðum sal veitingahússins.
Las hann upp niðurstöður kosn-
ingar til formanns: Alls greiddu
1080 manns atkvæði, 8 seðlar voru
ógildir. Birgir Isleifur Gunnarsson
hlaut 180 atkvæði eða 16,79%, Frið-
rik Sophusson hlaut 281 atkvæði
eða 26,81%, Þorsteinn Pálsson 608
atkvæði...
Lengra komst hann ekki því
landsfundarfulltrúar tóku af honum
orðið, risu úr sætum og klöppuðu
hinum nýkjörna formanni ákaft lof
í lófa. Ætlaði fögnuði seint að linna.
Eftir að hafa tekið við árnaðarósk-
um frá fundarstjóra, sem óskaði
þess að gifta mætti fylgja hinum
nýkjörna formanni í störfum fyrir
Sjálfstæðisflokkinn til framgangs
hugsjónum hans, til heilla landi og
lýð, sté Þorsteinn í pontu. Hann
sagði m.a.:
Þakkaði drengilega keppni
„Á þessari stundu færi ég vinum
mínum og samherjum, Birgi Isleifi
Gunnarssyni og Friðrik Sophussyni,
þakklæti fyrir drengilega keppni.
Það hefur verið ánægjulegt að geta
gengið til þessa fundar. Þó að andi
sameiningar ríki hér nú hafa menn
skipst í hópa vegna þessa kjörs. Ég
segi við ykkur nú: ég ætla að gleyma
stuðningshópi Þorsteins Pálssonar,
Friðriks Sophussonar og Birgis Is-
leifs Gunnarssonar. Ég ætla að
muna allt það fólk, sem hér hefur
verið á fundinum og hjálpað til við
að gera hann jafn ánægjulegan og
eftirminnilegan og raun ber vitni.
Það er margt að þakka, en ég
nefni eitt nafn. I tíu ár hefur Geir
Hallgrímsson verið í forystu
Sjálfstæðisflokksins. Við kunnum
honum þakkir fyrir hans fórnfúsa
starf og hans baráttu. Menn kunna
að meta viljastyrk og æðruleysi
Geirs Hallgrímssonar. Hann bogn-
aði aldrei í storminum. Hann skil-
aði okkur sameinuðum á þennan
landsfund."
„Mikið starf fyrir höndum"
Þorsteinn Pálsson hélt áfram:
„Við eigum mikið starf fyrir hönd-
um vegna þeirra erfiðleika, sem
steðja að þjóðfélaginu. Við eigum
mikið starf fyrir höndum við að
varðveita þá einingu, sem hér ríkir.
Ég vænti þess og veit það reyndar,
að við sem höfum keppt í for-
mannskjörinu munum starfa saman
einhuga að málefnum flokksins".
Rifjaði hann upp orð Úlfs hins
rauða í Svoldaorrustu, er ólafur
konungur hafði reiðst við hann, lagt
ör á streng og miðað á hann. „Skjót
annan veg konungur þangað sem
meiri er þörfin. Við skulum beina
skotum okkar þangað sem þeirra er
þörf. Strengjum þess heit, að vinna
af einhug fyrir þjóðina, og landið
okkar, ísland."
Ræðu Þorsteins var ákaft fagnað,
en að henni lokinni tók Friðrik
Sophusson, varaformaður Sjálf-
stæðisflokksins, til máls. Hann
sagði m.a.:
Nýr meiður hefur laufgast
„Við lifum hér stórkostlega stund.
Brotið hefur verið blað í sögu
flokksins. Á frostköldum vetrardegi
hefur það gerst, að nýr meiður hef-
ur laufgast á styrkum stofni
Sjálfstæðisflokksins. Þótt hausta
taki þá er líf í þessum stofni. Nær-
ingin kemur frá rótinni, þeirri sömu
rót sem liggur djúpt í íslenskum
jarðvegi. Rót Sjálfstæðisflokksins.
Drengskapur og ánægjuleg
keppni hefur treyst enn betur vin-
áttubönd okkar sem stóðum í
keppninni um formannssætið. Fyrir
það er ég þakklátur. Ég vil ennfrem-
ur þakka stuðningsmönnum mínum.
Við ræddum saman rétt í þessu ég
og nýkjörinn, formaður og ég hef
ákveðið að gefa kost á mér sem
varaformaður flokksins. Ég hlakka
til þess að geta orðið að liði fyrir
flokkinn. Ég óska Þorsteini Pálssyni
til hamingju með þennan stórkost-
lega sigur. Hugsjón Sjálfstæðis-
flokksins er vel borgið í höndum
hans. Ég bið landsfundarfulltrúa að
rísa úr sætum því til staðfestingar."
Ákvað að bjóða sig ekki
fram til varaformanns
Birgir ísleifur Gunnarsson, þriðji
maðurinn í formannskjörinu tók því
næst til máls. Hann sagði m.a.:
Friðrik Sophusson og Birgir fsl. Gunnarsson ræðast við eftir að úrslit lágu fyrir
í formannskjöri á landsfundinum. Ljósm. RAX.
Göngum ft
breiðri, óro
sagði Birgir ísleifur Gunnarsson, ei