Morgunblaðið - 08.11.1983, Side 24

Morgunblaðið - 08.11.1983, Side 24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. NÓVEMBER 1983 28 Friðrik Sophusson: Stjórnvöld aflétti nú þegar lögbind- ingu kjarasamninga í framboðsræðu sinni til for- manns lýsti Friðrik Sophusson, varaformaður Sjálfstæðisflokks- ins, yfir þeirri skoðun sinni að stjórnvöld skyldu aflétta nú þegar banni við samningsréttinum. Orðrétt segir Friðrik: „Verka- lýðshreyfingin hefur tekið lög- bindingu samninga með virð- ingarverðri hófsemi og stillingu. Árangur aðgerðanna hefur byggt á skilningi og stuðningi alls almennings. Þess vegna geta stjórnvöld nú sýnt styrk sinn og trú á eigin verk með því að af- létta nú þegar lögbindingu kjarasamninga." Pólitísk andúð á sér- framboði sjálfstæðis- manna á Vestfjörðum — sagði Sigurlaug Bjarnadóttir SIGIJRLAUG Bjarnadóttir gagn- rýndi í ræðu sinni á landsfundinum þá málsmeðferð sem tillaga þeirra, sem stóðu að sérframboði sjálf- stæðismanna á Vestfjörðum við síðustu kosningar, fékk í miðstjórn flokksins. Þar hefði sérframboðs- mönnum ekki verið gert kleift að skýra frá sínum hugmyndum, held- ur hefði miðstjórnin keyrt málið í gegn með slíkum hætti að sér fynd- ist fyrir neðan allar hellur. Sagði Sigurlaug það ekki nema sjálfsagt að miðstjórnarmenn kynntu sér málið frá fleiri en einni hlið. Það hefði verið Ijóst að pólitísk andúð hefði verið á sérframboðinu innan flokksforystunnar. Sigurlaug kvaðst hafa tekið þá ákvörðun að bjóða sig ekki fram til endurkjörs í miðstjórn þar sem hún hefði setið síðustu 10 ár. Þaðan ætti hún sumar ánægju- legar minningar, en þó væru þær fleiri sem væru „beiskari á bragðið". Síðan sagðist Sigurlaug hafa lýst yfir því á opinberum vettvangi, að nauðsynlegt hefði verið að grípa til harkalegra efnahagsráðstafana, en hún teldi að ríkisstjórnin hefði átt að taka meira tillit til þeirra sem minna mættu sín. „Nú sem fyrr var byrjað á röngum enda," sagði Sigurlaug. Sjálfstæðisflokkurinn má ekki verða tákn stöðnunar Birgir Isleifur Gunnarsson: Við hljótum að bægja Alþýðubanda- lagsmönnum frá valdastólum BIRGIR ísleifur Gunnarsson sagði m.a. í ræðu á landsfundinum, að Alþýðubandalagið væri siðspillt- asta stjórnmálaaflið á íslandi og þá hlytu Sjáifstæðismenn að bægja þeim frá valdastólum um ókomna framtíð. Hér birtist í heild um- ræddur kafli ræðunnar: „Alþýðu- bandalagið ætlar sér með öllum til- tækum ráðum að koma þessari rík- isstjórn frá sem fyrst. Alþýðubandalagið hafði mikil völd hér í þessu þjóðfélagi sl. 5 ár. Þeim fannst völdin góð og þeir nutu þess að geta komið sínu fólki fyrir i kerfinu og að geta spillt fyrir eins og i stóriðju- og orkumálum. Ég held hins vegar að það hafi komið glöggt í ljós i stjórnartíð þeirra og í öllum viðbrögðum nú eftir kosningar , þar sem nánast er snúið við blað- inu í öllum málum á einni nóttu, ég tel að þetta hafi leitt í ljós að Alþýðubandalagið er siðspillt- asta stjórnmálaaflið á íslandi. Þar fara menn, sem einskis svíf- ast. Á þeim bæ er ekki skeytt um skömm né heiður. Mannorð, hamingja og einkalíf eru þeim framandi hugtök, þegar pólitísk- ir andstæðingar eru annars veg- ar. Engir brosa gleiðar, þegar svo ber undir, en engir hafa rýting- inn í erminni jafn vel brýndan og forystumennirnir í Alþýðu- bandalaginu. Öll þeirra saga sýn- ir að tilgangurinn helgar meðal- ið. Við Sjálfstæðismenn hljótum að bægja þeim frá valdastólum um ókomna framtíð." „íslenzk stjórnmál eru á tíma- mótum. Pólitísk samtrygging er á undanhaldi,“ sagði Ellert B. Schram m.a. í ræðu á landsfundin- um á laugardag. Hann bstti því við að afstaða almennings til stjórnmálaflokkanna væri að — sagði Ellert B. Schram breytast. Því mætti Sjálfstæðis- flokkurinn ekki verða tákn stöðn- unar. — Enda yrðu stjórnmála- foringjar ekki framar teknir í dýrl- inga tölu. I ræðu sinni gerði Ellert að umtalsefni þá ákvörðun sína að taka sér ieyfi frá þingstörfum um óákveðinn tíma. Kvaðst hann ekki hafa farið leynt með að hann hefði sóst eftir mejri áhrif- um í flokknum. Einnig gerði hann sér ljóst að þingmennska væri erfitt og vanþakklátt starf, en hann hefði engan áhuga á að einangrast i flokknum. I mörg- um málum hefði ekki verið leitað til hans, s.s. í stjórnarmyndun- arviðræðunum sl. vor. Ellert sagði ennfremur, að hann hefði engan áhuga á að spilla samstöð- unni í flokknum; en með því ætti ekki að afsala mönnum þeim rétti að hafa skoðun. Sagt hefði verið að hann væri að svíkja flokkinn með því að taka ekki sæti á þingi, en þetta viðhorf samrýmdist ekki frelsishug- myndum hans. „Stærstu og ein- ustu svikin eru að svíkja hug- sjónir, — og það er ég ekki að gera,“ sagði Ellert. Það væri kominn tími til að þátttaka í stjórnmálum þjónaði ekki per- sónulegum metnaði heldur hug- sjónum. Loks kvað Ellert víðar hægt að gera Sjálfstæðisflokkn- um gagn en á þingi. Með þessu væri hann þó ekki að segja að hann hygðist hlaupast á brott úr flokknum. Meðan Sjálfstæðis- flokkurinn fylgdi stefnu sinni mundi hann styðja hann. Þorsteinn Pálsson og Friðrik Sophusson á skrifstofu Sjálfstæðisflokksins í gærmorgun. Auk þeirra eru á myndinni Kjartan Gunnarsson, framkvæmdastjóri flokksins, Inga Jóna Þórðardóttir, framkvæmdastjóri fræðslu- og útbreiðslumála, Auður Sigurðardóttir, Petrea I. Jónsdóttir og Þóra Emilía Ármannsdóttir og Arni Sigfússon, framkvæmdastjóri Fulltrúaráðsins. Landsfundarfulltrúar hylltu frú Ernu Finnsdóttur, eiginkonu Geirs Hallgrímssonar. Geir Hallgrímsson og frú Vala Thoroddsen ræðast við. Ljóam.Ól.K.M.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.