Morgunblaðið - 08.11.1983, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. NÓVEMBER 1983
31
Ragnhildur Stefánsdóttir myndhöggvari og Orri Vigfusson framkvæmda-
stjóri í Glit við einn brennsluofna í GliL
Nýr myndhöggvari
í Listasmiðju Glit
RAGNHILDI Stefánsdóttur mynd-
böggvara hefur verið fengin Lista-
smiðja Glits til afnota fram í vormán-
uði 1984, en þá hyggst hún halda sýn-
ingu á verkum sínum.
Ragnhildur er 25 ára Reykvíking-
ur, og hefur lokið námi í myndmót-
unardeild Myndlista- og handíða-
skóla (slands, en hefur auk þess
lært til verka í Myndlistaskólanum í
Reykjavík og stundað nám í Amer-
íku. Ragnhildur hefur átt verk á
nokkrum samsýningum hér heima
og erlendis. I Listasmiðju Glits mun
Ragnhildur einkum fást við högg-
myndalist og gerð lágmynda.
f marsmánuði siðastliðnum
opnaði Davíð Oddsson borgarstjóri
Listasmiðju Glits, vinnuaðstöðu,
sem fyrirtækið leggur listamönnum
til ákveðinn tíma í senn til að vinna
að listsköpun við bestu skilyrði.
„Ragnar Kjartansson myndhöggv-
ari var fyrsti listamaðurinn, sem
varð aðnjótandi þessa heiðurs, og
hélt hann nýlega stóra einkasýningu
í Listmunahúsinu," segir í frétt frá
Glit.
Kjarvalsstaðir:
Fjölmenni á iðnkynn-
ingu Víkur í Mýrdal
í marga mánuði hefur ekki verið
eins mikil aðsókn að Kjarvalsstöðum
og þegar átta iðnfyrirtæki f Vík f
Mýrdal buðu til iðnkynningar á Kjar-
valsstöðum, en nokkur þúsund manns
sáu sýninguna sem var ókeypis fyrir
gesti.
Auk iðnkynningarinnar var boðið
upp á sviðasultusmakk fyrir gesti,
blóðmör og lifrarpylsu frá Slátur-
húsinu í Vík og Matkaup hf., en
Mjólkurbú Flóamanna lagði til
mjólk og mysu og renndi stærsti
flutningabíll Mjólkurbúsins, 20 m
löng bifreið, í hlað á Kjarvalsstöð-
um með afurðirnar.
Þóra Kristjánsdóttir, listráðgjafi
Kjarvalsstaða, sagði í samtali við
Mbl. að mikill fjöldi fólks sem aldrei
hefði komið í Kjarvalsstaði hefði
komið á iðnkynninguna og skoðað
um leið aðrar sýningar hússins og
kvaöst Þóra mjög ánægð með þessa
þróun því á þennan hátt stækkaði sá
hópur sem heimsækir Kjarvalsstaði.
Fundur um fæðu og krabbamein
Manneldisfélag íslands og Krabba-
meinsfélag Reykjavíkur efna til sam-
eiginlegs fræðslufundar í dag, 8. nóv-
ember, í stofu 101 í Lögbergi, húsi
Lagadeildar Háskóla íslands, og hefst
kl. 20.30. Fundarefni er Fæða og
krabbamein.
Tvö framsöguerindi verða á fund-
inum. Prófessor Hrafn Tulinius
fjallar um áhrif bætiefna gegn
krabbameinum og um fæðutengdar
breytingar á tíðni krabbameina
hérlendis, en dr. Jón óttar Ragn-
arsson dósent ræðir um áhrif auk-
efna, trefjaefna og fleiri fæðuþátta
á krabbamein. Almennar umræður
verða að erindunum loknum. Fund-
arstjóri verður Tómas Á. Jónasson
yfirlæknir. Fundurinn er öllum
opinn.
(Úr frétutilkjrnnlngu.)
Fundur um kjarnorkuvopnalaus Norðurlönd
f NORRÆNA húsinu í dag verður
haldinn fundur fimm stjórnmála-
samtaka undir yfirskriftinni „Er yfir-
lýsing um kjarnorkuvopnalaus Norð-
urlönd leið til slökunar spennu f
okkar heimshluta?"
Að fundinum standa Samband
Alþýðuflokkskvenna, Friðarhópur
Alþýðubandalags kvenna, Kvenna-
framboðið, Kvennalistinn og
Bandalag jafnaðarmanna. Inn-
gangserindi flytja þau Ingibjörg
Hafstað, kennari, Kristján Jóns-
son, nemi, og Árni Gunnarsson,
fyrrv. alþingismaður. Verða fyrir-
spurnir og umræður að loknum
inngangserindunum. Fundarstjóri
verður Guðrún Helgadóttir, alþing-
ismaður, en fundurinn hefst kl.
20.30.
| 'smáaögiýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — sméiaugiýsingar
VEROBRÉFAMARKAPUR
HUSI VERSLUNARINNAR SIMI 83320
KAUPOGSALA VEOSKULDABRÉFA
Hilmar Foss
Lögg skjalaþýö. og dómtúlkur,
Hatnarstræti 11, siml 14824.
Krossinn
Námskeiö meö yfirskriftinnl •ilff
•vör viö vandamálum nútímans
hefst í kvöld kl. 20.00 aö Alf-
hólsvegi 32, Kópavogi. Leiö-
beinandi er Janis Wheeler. Alllr
velkomnir.
i til sölu i
I - - 4A1
Víxlar og skuldabréf
i umboössöiu.
Fyrirgreiösluskrifstofan, Vestur-
götu 17, sími 16223. Þorleifur
Guömundsson, heima 12469.
Teppasalan Laugavegi5
Laus teppl og mottur í glæsilegu
úrvali.
Teppasalan, Laugavegl S.
Fallegt olíumálverk
til sölu eflir Þórarin B. Þorláks-
son. Einnig Husqvarna-herrlfflll
smíöaár ca. 1850. Síml 73676.
Til sölu kápur
(tweed), slá, draktir, skinnkrag-
ar. Skipti um fóöur í kápum.
Kápusaumastofan Diana,
Miötúni 78, sfmi 18481.
Ódýrar bækur
Ljóömæli Herdísar og
Ólínu og Litla skinniö
til sölu á Hagamel 42. Simi
15688
I.O.O.F. Rb. 1 = 133118814 E.T.
1 — 9 III.
□ Sindri 497878117 - 1. FR.
Atk.
□ Edda 59831187= 1.
□ Edda 59831187 = 2.
Ad. KFUK
Amtmannsstíg 2B
Fundur í kvöld kl. 20.30. Krlstnl-
boösflokkur KSF sér um fund-
inn. Kaffi á eftir.
Allar konur velkomnar.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3
SÍMAR11796 og 19533.
Myndakvöld
Feröafélagiö veröur meö
myndakvöld, miövikudaginn 9.
nóvember kl. 20.30, á Hótel
Heklu, Rauöarárstig 18. Efni:
Siguröur Kristinsson sýnir
myndir teknar undanfarin ár i
feröum um Noröausturland,
Austfiröi. Heröubreiöarllndir og
Myvatn Eftir hlé: Davíö Olats-
son sýnir myndir úr ferö til
Svalbaröa í sumar og segir frá
þessari forvitniiegu eyju. Allir
veikomnir meöan húsrúm leyfir.
Veitingar í hléi.
Feröafélag Islands.
Bibliuleshringur í kvöld kl. 20.30.
Samhjálp.
Fimir fætur
Dansæfing veröur haidin í Hreyf-
ilshúsinu sunnudagainn 13. nóv.
kl. 21. Mætiö timanlega. Nýir fé-
lagar ávallt velkomnir.
Fíladelfía
Almennur bibliulestur i kvöld kl.
20.30. Ræöumaöur Einar J.
Gíslason.
Skíöadeild Víkings
Þrekæfingar veröa í Baldurs-
haga, Laugardal, á mánudögum
kl. 20.30 og miövikudögum kl.
18.50 og i Félagsheimili Vikings,
fimmtudögum kl. 18.30.
Stjórnin.
Frá Sálarrannsóknar-
félaginu í Hafnarfirói
Fundur veröur i Góötemplara-
húsinu fimmtudaginn 10. nóv.
kl. 20.30. Dagskrárefni annast:
Halldór S. Rafnar og séra Sig.
Haukur Guöjónsson.
Stjórnin.
handmenntaskolinn
91 - 2 76 44
r«w KYWWIWGABWIT SltftUIB SCWT HtlM I