Morgunblaðið - 08.11.1983, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. NÓVEMBER 1983
33
bótar og þakka í afmælisgrein til
Hauks. Það er órofa vinátta hans,
konu hans og fjölskyldu til mín og
fjölskyidu minnar. Menn skynja
ekki alltaf til fulls, hve mikils
virði góðra manna samfylgd er.
Hún er ómetanleg hverjum ein-
asta manni, og við Haukur höfum
verið ævifélagar.
Þegar ég og kona mín vorum á
ferðalögum saman erlendis, og
synir okkar yngri, þá skildi ég eft-
ir bréf hjá þeim stílað til Hauks
og Láru, varúðarráðstöfun ef
óhapp skyldi henda.
Það var stutt á milli Haukagils
og Saurbæjar, og það hefur alla
tíð verið stutt á milli bæja okkar
Hauks, og ég vona og veit að svo
verður áfram.
Til bæjar Hauks og Láru mun-
um við hjónin ganga og sækja
þangað holl ráð og félagsskap.
Haukur er sjötugur í dag. Hann
er í eldlínu fyrirtækis síns og
áhugamála, við Þóra óskum hon-
um, Láru og allri fjölskyldunni til
hamingju á afmælisdaginn og
biðjum þeim alls hins besta um
langa framtíð.
Hjörtur Jónsson
Haukur Eggertsson forstjóri er
sjötugur í dag. Hann er fæddur á
Haukagili í Vatnsdal, sonur þeirra
merku hjóna er þar bjuggu, Ág-
ústínu Grímsdóttur og Eggerts
Konráðssonar. Þrátt fyrir þessi ár
að baki er Haukur enn í fullu
starfi við fyrirtæki sitt Plast-
prent, sem hann hefur gegnum ár-
in gert að einu stærsta og best
rekna fyrirtæki landsins. Hann
hefur verið leitandi og beint huga
sínum og hönd að því að finna
hvað best hentaði almenningi til
þæginda og hagsbóta og árangur-
inn er þetta stóra fyrirtæki.
Haukur Eggertsson er frjór í
hugsun og hagur á hönd, en það er
ríkt í ætt hans. Hann á gott með
að umgangast fólk af öllum stétt-
um, er hlýr í viðmóti og vekur
virðingu við kynni. Þeim sem best
þekktu æskuheimili hans koma
þeir eiginleikar ekki á óvart því
þar á bæ ríkti sterkur vilji til
mennta og framfara. Eggert bóndi
var vel lesinn. Hann var einn
þeirra manna rrfeS góða dóm-
greind sem námu af bókum, höfðu
augun opin fyrir nýmælum og
drukku í sig anda aldamótaáranna
og hugsjónir þeirra. Ágústina
kona hans var góð kona og hjarta-
hlý sem gott var að leita til ef á
bjátaði.
Aldrei gleymi ég ljósinu hennar
Ágústínu í glugganum forðum. Ég
kom þá í stórhríð að nóttu ofan
frá Gilhaga, ungur að árum, við
annan mann. Milli bæjanna Gil-
haga og Haukagils er um klukku-
tíma gangur, en stormurinn var í
fangið, snjókoman og myrkrið
byrgðu sýn og ófærðin jókst við
hvert fótmál. Samfylgdarmaður
minn var reyndur ferðagarpur og
ratvísi hans viðbrugðið; en þegar
við komum á suðurtúnið á Hauka-
gili, þar sem hallar undir fót heim
að bænum, var ég orðinn örmagna
og vonlítill um að geta kafað snjó-
inn með storminn í fengið, þarna á
túninu var snjórinn upp í mitti,
saman barinn svo allra krafta
þurfti að neyta til þess að mjaka
sér áfram fetið, ég var að að gefast
upp. Þá sá ég ljós framundan. Það
var skært eins og stjarna í hríð-
arbylnum og myrkrinu og því
fylgdi þvílíkur máttur að ég af-
þreyttist um leið, vonleysið hvarf
og snjórinn og stormurinn virtust
líka hverfa. Við gengum á vit
ljóssins sem skein út um eldhús-
gluggann á Haukagili, Ágústina
hafði sett það f gluggann. Þessu
ljósi og konunni sem setti það þar
gleymi ég aldrei. Ég hygg að
Haukur hafi fengið sitt leiðarljós
úr föðurgarði.
Við Haukur erum úr sömu sveit,
og kona mín, Kristín Þorsteins-
dóttir frá Eyjólfsstöðum í Vatns-
dal, og hann eru bræðrabörn. Milli
þeirra hefur alltaf verið góð
frændsemi og vinátta og mun það
hafa miklu ráðið um að við Hauk-
ur byggðum saman húsið að
Barmahlíð 54. Fyrstu skóflustung-
una tókum við á haustnóttum árið
1946 og fluttum inn í það fyrir jól
1948. A þessum árum var lítið um
byggingarefni og þurftum við víða
að leita fanga. Þá voru heldur eng-
in húsnæðismálalán föl og við
auralitlir. Við lögðum því oft nótt
við dag við byggingu þessa fram-
tíðarheimilis okkar og þá kom
verkkunnátta Hauks og hagleikur
sér vel. Nú höfum við búið hér í 35
ár. Það er orðið langt sambýli og
hefur aldrei skuggi á fallið. Fyrir
það vil ég þakka.
Haukur Eggertsson er kvæntur
Láru Böðvarsdóttur frá Laugar-
vatni, vel gefinni og myndarlegri
konu eins og hún á ættir til að
rekja, eða hver man ekki Böðvar
Magnússon á Laugarvatni sem
hann sá, það glæsimenni. Lára
varð sjötug í ágúst sl. Hún er
stjórnsöm, tillögugóð og félags-
lynd og hið góða sambýli er ekki
síður henni að þakka. Ég man enn
þegar börn okkar flugust á Og
Lára skildi þau að með lagni án
þess að halla á neitt þeirra og
leiddi þeim fyrir sjónir að svona
ættu þau ekki að haga sér. Hvar
sem Lára Böðvarsdóttir fer og
dvelur mun hún bæta, stækka og
fegra.
Þrátt fyrir ár ykkar, góðu hjón,
eruð þið bæði svo ungleg og frisk-
leg að ævikvöldið er enn langt
framundan. Við hjónin óskum
Hauki til hamingju með afmæl-
isdaginn. Lifið heil.
Haukur tekur á móti gestum á
afmælisdaginn í Domus Medica á
milli kl. 5 og 8.
Guðlaugur Guðmundsson
Saturday Night Fever - Það var þá
Staying Alive - Það er núna
DANSSKOLI
Heiðars Ástvaldssonar
Brautarholti 4 - Drafnarfelli 4
10 tíma námskeið
Fyrsti timinn verður sunnudaginn 13. nóv.
Innritun frá kl. 1-6, í símum 38126 og 39551
dagana 7.-12. nóvember.
GBtDU
VERD-
SAMANDURD
Valsa súkkulíkið
er aldeilis tilvalið
í baksturinn.
Það fæst
bæði Ijóst og dökkt
og 400 grömmin
kosta aðeins 58 krónur,
eða eitthvað þaðan af minna!
Kynntu þér verðið!