Morgunblaðið - 08.11.1983, Síða 42
46
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. NÓVEMBER 1983
Atvinnuleysi brostið
á i siávarplássum
Uppboðshamrinum hefur verið lyft:
sagði Valdimar Indriðason í þingræðu í gær
VALDIMAR INDRIÐASON
(S), þriðji þingmaður Vestlend-
inga, sagði efnislega á Alþingi í
gær að brostið væri á atvinnu-
leysi hjá fjöida verkafólks, sem
unnið hafi í sjávarútvegi, aðal-
útflutningsframleiðslu okkar. —
Það eru alvarleg tíðindi, sem
snerta nánast hvert heimili í
landinu, að búast megi enn við
verulegri aflaminnkun á ís-
landsmiðum. — Þegar eru um
150 manns atvinnulausir á Akra-
nesi vegna lokunar á tveimur af
fjórum frystihúsum staðarins.
Þetta skeður meðan deilt er
um það, hvernig fara skuli
með skuldir eins togara, er
þessi frystihús eiga. Skuldir
þessa skips, sem ég fullyrði að
hafi verið vel rekið, hafa
hrannast upp hjá opinberum
sjóðum, vegna óhóflegs fjár-
magnskostnaðar, verð-
tryggðra lána og gengisbreyt-
inga, þannig að ekkert verður
við ráðið.
Þingmaðurinn sagði fram-
angreint í umræðu um frum-
varp til laga, þessefnis, „að
lágmarksverð á sjávarafla
verði ákveðið í frjálsum samn-
ingum af fulltrúum fiskkaup-
Valdimar Indriðason, alþingismaður.
enda og fiskseljenda í Verð-
lagsráði sjálfu", sem tveir
þingmenn Bandalags jafnað-
armanna flytja. Kolbrún
Jónsdóttir (BJ), áttundi lands-
kjörinn þingmaður, mælti
fyrir frumvarpinu, og verður
nánar vikið að framsögu
hennar hér á þingsíðu síðar í
vikunni.
„Uppboðshamrinum hefur
verið lyft“, sagði Valdimar
Indriðason, „og nú bíður þetta
verkafólk á Akranesi eftir því,
hvort hann verður látinn falla
eða ekki. Ef hann fellur verður
þarna um varanlegt atvinnu-
leysi að ræða — og Akranes er
því miður ekki eini staðurinn í
landinu, sem þetta ástand vof-
ir yfir... Þess vegna skora ég
á sjávarútvegsráðherra og rík-
isstjórn, að leita allra ráða til
þess að leysa þessi mál sem
allra fyrst. Það er engin lausn
að fara að bjóða upp hluta af
flotanum vegna vanskila í
opinberum sjóðum og svipta
þannig mörg hinna minni
byggðarlaga undirstöðu at-
vinfluöryggis".
Hérlendis ríkir sérstaða í
verðlagsmálum sjávarafurða,
sagði Valdimar. Hjá hinum
stærri fiskveiðiþjóðum ríkir
hinn frjálsi uppboðsmarkaður,
sem byggir á nálægð stórra
neytendasvæða, en við íslend-
ingar þurfum að taka mið af
neytendamörkuðum erlendis
fyrir unninn fisk, og þeim
markaðssveiflum, sem þar
myndast, erum við því miður
háð. Hann dró í efa að breyt-
ing á núverandi kerfi verði til
bóta, allra sízt fyrir sjómenn
og útvegsmenn.
Stuttar þingfréttir:
„Innantökur þingmanna“ og skilyrt
niðurgreiðsla orku til húshitunar
____________________________C.1 HITUN_______________________________
Til hitunar á ibúðarhúsnæði.
(Orkugjald 1,19kr/kWh)
Orkugjald, niðurgreitt 0,71 kr/kWh
Fastagjald 3xF1 5.610,00 kr/a
Roftími er allt að 2x 1 'h klukkustund á dag.
Mynd 3. Ur q ja I d*k r ó Ro fmagntv* I tno r iklt Int Nr.58
• Bráðabrigðalög ríkisstjórnar-
innar um launamál komu til
framhalds fyrstu umræðu, sjötta
fundinn í röð, í neðri deild Al-
þingis í gær. Svavar Gestsson
(Abl.) flutti langa tölu og hélt því
m.a. fram, að „innantökur væru
í þingmönnum Sjálfstæðis-
flokks“ yfir því að þurfa að
greiða þessum „framsóknariög-
um“ atkvæði.
• GUÐMUNDUR EINARS-
SON og KRISTÍN KVARAN,
þingmenn Bandalags jafnað-
armanna, hafa lagt fram til-
lögu til þingsályktunar um
orkusparnað. Tillagan felur
það m.a. í sér að orka til hús-
hitunar skuli því aðeins greidd
niður að hús uppfylli skilyrði
byggingarreglugerðar um ein-
angrun. Eigendur húsa, sem
ekki uppfylla þau skilyrði, eigi
hinsvegar kost á hagstæðum
lánum til að kosta einangrun
húsa sinna.
• Lagt hefur verið fram
stjórnarfrumvarp til breyt-
inga á umferðarlögum, sem
gerir ráð fyrir þeirri megin-
breytingu að Bifreiðaeftirlit
ríkisins annist skráningu öku-
tækja í stað lögreglustjóra.
Fella á niður skyldu til að um-
skrá ökutæki við flutning milli
lögsagnarumdæma. Með frum-
varpinu „er lagður grundvöllur
að því að tekið verði upp fast
númerakerfi fyrir allt landið".
Á sl. ári vóru hér á landi rúm-
lega 107.000 bifreiðar, ný-
skráningar vóru 11.200 og um-
skráningar 26.100.
• JÓN KRISTJÁNSSON (F)
flytur tillögu til þingsályktun-
ar um nýja flugbraut á Eg-
ilsstöðum. Á sl. ári vóru 2.355
lendingar á Egilsstöðum, far-
þegar sem fóru um völlinn
41.692, flugflutningur 600 tonn
og póstur 146 tonn.
Ófeigur Björnsson
„Á Palli“ — sýning Ófeigs
Björnssonar í Gallerí Grjót
,jÁ PALLI“ er yfirskrift sýnigar
Ófeigs Björnssonar, listamanns ,
sem nýlega opnaði í Galleri Grjót. Á
sýningunni eru 23 verk sem Ófeigur
hefur unnið í silfur, gull, leður, sjáv-
arsteina og vambir, allt frá fíngerð-
um skartgripum í stór leðurverk.
Verk sín kallar Ófeigur „Mynd-
verk“ og byggir form og útlit
þeirra eftir efninu sem hann vinn-
ur með hverju sinni. Þannig eru
gull- og silfurgripirnir ekki
skrautumgjörð um litaða steina,
heldur er það málmurinn sem
ræður ferðinni. Á sýningunni eru
nokkur verk gerð úr sjávarstein-
um og vömbum. Sagðist Ófeigur
hafa fengið þá hugmynd í nýaf-
staðinni sláturtíð, en hann hitar
steinana, íklæðir vömbum og mót-
ar. Leðurverkin mótar ófeigur í
blautt leður og þurrkar síðan í
leirbrennsluofni.
Sýning ófeigs í Gallerí Grjót er
fyrsta einkasýning hans, en hann
hefur tekið þátt í samsýningum
hér á iandi sem erlendis. Sýningin
er opin frá kl. 12.00—18.00 á virk-
um dögum og frá kl. 14.00—18.00
um helgar. Hún stendur til 17.
nóvember, en eftir það fara nokk-
ur verkanna á norræna farand-
sýningu sem stendur yfir I tvö ár
og endar á íslandi.
Laugarásbíó sýnir
„Landamæramútur“
LAUGARÁSBÍÓ hefur tekið til
sýninga myndina „Landamæra-
mútur“. í fréttatilkynningu frá
kvikmyndahúsinu segir m.a. um
efni myndarinnar: „Landamæri
Bandaríkjanna og Mexíkó eru sér-
stæð, a.m.k. að einu leyti. Þar er
meiri ásókn af hálfu smyglara af
öllu tagi en um getur annars stað-
ar.
Þeir Cat og Charlie eru
starfsmenn innflytjendaeftirlits
Bandaríkjanna og verkefni
þeirra er að vera sífellt á verði
meðfram landamærunum til að
hindra smygl af öllu tagi. Þarna
verða hinir opinberu starfs-
menn fyrir ýmis konar freist-
ingum, því það getur verið erfitt
að standast mútur, fyrir þð eitt
að loka augunum á vissum and-
artökum eða haga eftirlitsferð-
um öðru vísi en venjulega.
Cat sér ekkert athugavert við
að afla sér aukatekna á þennan
INNLENT
hátt, en Charlie hefur lengi ver-
ið því frábitinn.
Sakir eyðslusemi konu sinnar
verður Charlie að taka þátt í
„bissness" með Cat, en hann
gerir sér ekki grein fyrir því að
Cat er kaldrifjaður náungi sem
svífst einskis."
í sömu fréttatilkynningu seg-
ir ennfremur: „Verð á sýningum
kl. 5 og 7 mánudaga og föstu-
daga er kr. 50.“