Morgunblaðið - 10.11.1983, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. NÖVEMBER 1983
3
Lítil flugvél nauðlenti við Egilsstaöaflugvöll:
„Hafði sáralítinn tíma
til að verða hræddur"
— segir Þórhallur Þorsteinsson flugmaður vélarinnar
„ÉG MISSTI aflið af mótornum
skömmu eftir flugtak og vélin var
þá aðeins í um 100 metra hæð. Ég
hafði sáralítinn tíma til þess að
vera hræddur og ákvað að láta vél-
ina svífa niður á túnið, þar sem ég
þekki aðstæður vel,“ sagði Þórhall-
ur Þorsteinsson í samtali við Morg-
unblaðið í gær, en hann varð fyrir
því á þriðjudag að flugvél sem
hann flaug missti afl við flugtak af
Egilsstaðaflugvelli.
Nauðlenti hann síðan vélinni,
sem er eins hreyfils og af Cessna
gerð, á svokölíuðu Finnsstaða-
nesi, sem er skammt frá norður-
enda flugbrautarinnar á Egils-
stöðum.
„Ég hafði hugsað mér að ef
ekki tækist að láta vélina svífa
yfir á túnið, en þarna var kýll
sem ég þurfti að komast yfir, að
sveigja vélinni frá og lenda á ár-
eyrum þarna við. En svo sá ég
það að ég myndi hafa það af yfir
kýlinn og yfir á túnið, og þá bað
ég þann sem með mér var og er
einkaflugmaður líka, að tilkynna
það að við værum að nauðlenda
við brautarendann," sagði Þór-
hallur.
„Síðan lentum við og vélin
grófst tiltölulega fljótt í snjó að
framan, en hörð skán var yfir,
þannig að vélin valt í lending-
unni yfir á vinstri væng og
hvolfdi síðan. Vélin er minna
„Kafsöltun" allt
frá Austfjörð-
um til Akraness
„KAFSÖLTUN" er nú allt frá
Austfjörðum og suður og vestur
með landinu allt til Akraness. Mik-
il veiði hefur verið undanfarna
daga og að kvöldi þriðjudagsins var
búið að salta í um 165.000 tunnur.
Samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins var mikið saltað
í gær, en þar sem saltað var fram
á nótt fengust ekki nákvæmar
upplýsingar um magnið. Á
þriðjudag og aðfaranótt miðviku-
dags var vitað fjölmörg skip með
um 45.000 tunna afla samtals. í
gær var síld landað á Raufarhöfn
og eitthvað mun hafa farið norð-
ur fyrir. Var þá „kafsöltun" á
flestum Austfjarðahöfnum,
Hornafirði og allt vestur um til
Akraness. Samkvæmt upplýsing-
um Mbl. gæti söltun lokið alveg á
næstu dögum, verði veiði áfram
eins mikil og undanfarna daga.
Síldin er enn fremur smá, en þó
ber nokkuð á stórri síld innan um
og eru farmarnir fremur mis-
jafnir hvað stærð síldarinnar
varðar.
FVItSTA loðnan á vertíðinni veidd-
ist í birtingu í gærmorgun. Eftir því,
sem næst verður komizt, fengu 4
skip þá 200 til 300 lestir hvert. Um
20 skip voru komin á miðin um 50
mílur út af Langanesi í gærkvöldi.
Loðnan er ekki veiðanleg í
dagsbirtu vegna þess hve djúpt
hún liggur og því biðu skipin
átekta til myrkurs í von um ineiri
afla. Hafa þau því ekki tilkynnt
loðnunefnd um löndunarstað. Eft-
ir því, sem næst verður komizt,
voru það Hákon ÞH, Súlan EA,
Kap II VE og Hrafn GK sem afla
fengu.
Ólafsvík:
Már á veiðar eftir
2ja mánaða frátafir
Ólafsvík, 9. nóvember.
TOGARINN Már hélt til veiða síð-
astliðinn mánudag eftir um það bil
tveggja mánaða frátafir vegna vél-
arviðgerðar. Þrátt fyrir þessa töf
togarans hefur ekki orðið atvinnu-
leysi hér.
Línubátar hafa fengið 4—6
tonn í róðri en gæftir hafa þó
verið stopular. Hjá netabátum
hefur aflinn verið misjafn, 3—9
tonn í róðri. Dragnótabátar hafa
af og til fengið góðan afla.
í gær fékk Auðbjörg til dæmis
16,2 tonn. Þegar þetta er skrifað
er hér blíðuveður, og dragnóta-
bátarnir blasa við augum hér úti
á víkinni og virðast hlakka yfir
veiði.
Helgi
©
INNLENT
skemmd en ég hélt í gær; stél og
vængir eru talsvert skemmd, en
búkurinn er alveg heill," sagði
Þórhallur.
Þórhallur gat þess að menn frá
Loftferðaeftirlitinu hefðu komið
til Egilsstaða í gær og ekki væri
ljóst hvað valdið hefði mótor-
stöðvuninni, en hugsanlegt væri
talið að orsökin væri grugg og
vatn í bensini.
Þórhallur og félagi hans, Hall-
dór Bergsson, sluppu ómeiddir
frá óhappinu.
Morgunblaöiö/Bernhard.
Flugvélin TF-RPM, af gerðinni Cessna 150, sem varð að nauðlenda við
Hellubæ í Hálsasveit í Borgarflrði í fyrradag eftir að hafa flogið á
raflínu. Flugmaðurinn slapp ómeiddur.
Fyrsta loðnan
veiddist í gær
Í8WSS
IÍINU EIN4 S4NN4 SKÍmiANDI
Sviss er fyrir skíðafólk það sem skíðin eru fyrir skíðaskóna; Rétti staðurinn
að vera á.
Og áfangastaður skíðaferða Arnarflugs til Sviss er engu líkur. Wallis-dalur-
inn er gjarnan nefndur Kalifornía Svisslendinga vegna einstakrar veðursæld-
ar, og Anzére er skíðabær sem skíðasnillingarnir svissnesku sækja sjálfir
óspart í.
íbúðir farþega Arnarflugs eru nýjar og glæsilegar og í Anzére hefur verið
hugsað fyrir öllum hugsanlegum þægindum til handa gestunum - skíða-
brekkurnar eru rétt við dyrnar og engar biðraðir við lyfturnar. Þar eru
skíðaskólar fyrir byrjendur og lengra komna, barnapössun, glæsileg heilsu-
rækt, sundlaugar - og ótal veitingahús og fjörugir næturklúbbar.
VERD FR4 KR.16.599
(miðað við 4 í stúdíóíbúð)
Innifalið: Flug þriðjudagsmorgna frá Keflavík til Genfar um Amsterdam,
rútuferð til Anzére, íbúðagisting í 13 nætur, þrif á íbúð, fararstjórn og
ferðin heim aftur.
SKELUJM OKKURÍ
„SVISSNESKAÍ’ SKÍD4IÍÓPINN
Flugfélag með ferskan blæ
ARNARFLUG Leitið til söluskrifstofu Arnarflugs,
jí|pK Lágmúla 7, sími 84477
umboðsmanna eða ferðaskrifstofanna.