Morgunblaðið - 10.11.1983, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 10.11.1983, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1983 45 ð n k 1151 tawbffl JélWámd, SVARAR Í SIMA 10100 KL. 10—12 FRÁ MÁNUOEGI "3T IWIIWIK „Samtök heimilisfriðar og sameiningar — heimiliskirkjan" Hallfríður Georgsdóttir skrifar: „Velvakandi. Mig langar til að biðja þig að vekja athygli á fólki sem gengur í hús og býður fram aðstoð, svo sem heimilishjálp endurgjalds- laust. Rík áhersla er lögð á, að þetta kosti ekkert. Tvisvar með stuttu millibili hafa komið karl og kona, sama konan í bæði skiptin, til foreldra minna, sem búa ásamt öðru fullorðnu fólki í tvíbýlishúsi í hverfi, þar sem að- allega er eldra fólk. Þetta par vildi endilega komast inn til að veita aðstoð t.d. við húsverk og í fyrra skiptið skildi það eftir pésa með heimilisfangi, símanúmeri og nafni þessara samtaka, sem það tilheyrir, en þau heita „Sam- tök heimilisfriðar og samein- ingar — heimiliskirkjan“. IVJ Lll istana og fæst af því fallegt. Það lítur e.t.v. vel út fyrir saklaust fólk, en reyndin leiðir annað í ljós. Tilgangurinn með heim- sóknum til fólks getur augljós- lega verið að hafa eitthvað út úr því. Ekki veit maður, hvað þeim hefur orðið ágengt hér á íslandi eða hve heimilin eru mörg, sem þeir hafa komist inn á. Morgunblaðið ætti að birta áð- urnefnda grein úr Kirkjuritinu; þar er að fá ítarlegar upplýs- ingar um Moon-istana.“ Séra Moon talar til stuðnings- manna sinna á fundi í New York 1981. Fólk þetta talar með erlendum hreim. Einnig voru á þessum pésa tvö erlend mannanöfn. Ég hringdi í biskupsskrifstofu og spurðist fyrir um samtök þessi; einnig til rannsóknarlög- reglunnar og bað um að þetta yrði athugað. Við íslendingar erum sem bet- ur fer það vel stödd að geta t.d. leitað til Félagsmálastofnunar, ef þörf er á aðstoð. Nú hef ég fengið þær upplýs- ingar hjá biskupsskrifstofu að þessi samtök séu svokallaðir „Moonistar". í Kirkjuritinu 3. hefti 1980 er grein um samtökin, þýdd úr dönsku („Tongil-famili- en“), en aðalaðsetur þeirra er í Bandaríkjunum. Flestir hafa heyrt um Moon- við sjónvarpsnotendur að þröngva þeim inn á heimili þeirra. En áfram með smjörið. Miðviku- dagur: Þegar börnin tóku sendiráð- ið. Dönsk heimildarmynd um yfir- töku barna á sendiráði Dana í Chile til að knýja yfirvöld um upplýs- ingar um foreldra þeirra sem hurfu! Hvers eiga þeir sem greiða afnota- gjald íslenska sjónvarpsins að gjalda? Þetta eru fá dæmi af mörgum um þá afþreyingu, sem sjónvarpið býð- ur upp á. Sjónvarpið verður aldrei annað en afþreyingartæki, hversu mjög sem útvarpsráð eða forstöðu- maður „lista- og skemmtideildar" þráast við að koma sínum hugðar- efnum að. Uppástunga J.B. um að leikrit, sem leikhúsin hér eru hætt að sýna, verði sýnd í sjónvarpinu er góð og hefur um það verið spurt, en engin svör fengist önnur en þau að það sé örðugt vegna samninga við leikara og fieiri aðila! Og hér kemur senm- lega skýringin. Sjónvarpið á engan tilverurétt í sjálfu sér, því það er okkur íslendingum ofviða að reka svo flókna og dýra stofnun sem „sjónvarp" er í raun. Það má halda uppi stofnun sem „kalla“ má sjón- varp, en það íslenska er engan veg- inn líkt því sjónvarpi sem fólk hef- ur áhuga á. Þessir hringdu ... Er hægt að lita mokkakápur? Soffía Magnúsdóttir hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Mig langar til að forvitnast um það, hvort ekki er einhver sem veit um, hvort hægt er að lita mokkakápur. Stórhöfðing- legt boð Sveinn Sveinsson hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Mig langar að geta þess, að Tommi, Tómas Tómasson, matreiðslumað- ur, bauð okkur vistmönnum á Hrafnistu í Reykjavík í Tomma- borgara-veislu. Þetta var stór- höfðinglegt boð og veitingarnar eftir því. Sem fyrrverandi mat- sveinn álít ég, að ekki sé hægt að geta betur í góðri matargerð en gert er hjá Tommaborgurum. Ég sendi Tómasi og starfsfólki hans hjartans kveðjur og þakkir. Ekkert heyrst frá Neytendasamtökum eða almenningi um þetta frumvarp Arnar Jónsson hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Nýlega lögðu alþýðuflokksmenn fram á þingi frumvarp um að gefa frjáls- an innflutning á grænmeti. Ég er alveg undrandi á því hvað ég hef lítið orðið var við stuðning við þennan frumvarpsflutning, frá al- menningi. Og ekkert hefur heyrst um þetta mál frá Neytendasam- tökunum. Gaman væri ef Jón Magnússon útskýrði það fyrir okkur. Eins og stendur er einokun á þessum innflutningi og mér er kunnugt um að allt kál, sem flutt er til landsins, lendir í 70% tolli og vörugjaldi. Og ekki er verið að fara ódýrustu leiðina með vöruna, því að hún er öll flutt í flugi. Sú fragt er þrisvar sinnum dýrari en flutningur sjóleiðis. Svo er al- menningur látinn borga brúsann. Með meira frjálsræði á þessu sviði ykist vöruúrvalið og verðið lækk- aði, þannig að mér finnst fyllsta ástæða til þess að styðja þennan frumvarpsflutning alþýðuflokks- manna. Ég skora á sjálfstæðis- menn að styðja þá í að koma mál- inu í gegn. Það væri hins vegar engin frágangssök, þó að innflutn- ingur yrði stoppaður, meðan verið er að taka upp eigin framleiðslu landsmanna. Slfkt tíðkast um alt- an heim. Hér á landi er innflutn- ingur ávaxta frjáls og það hefur sýnt sig, að þar er þjónusta góð og samkeppni mikil. Þetta hefur líka komið fram í hagstæðu verði og miklu vöruúrvali. Og hví skyldu þessi fyrirtæki ekki geta bætt grænmeti við sig. Þar nýtist sama húsnæðið og sömu tækin og því ekkert til fyrirstöðu fyrir þau að hefja innflutning og dreifingu. 53? SIGGA N//QGA g ‘ftlVERAU Kópavogsbúar athugið! Við bjóðum alla almenna hársnyrtingu svo sem: Permanent, klippingu, lagningu, hárþvott, litun, blástur, strípur, skol, djúpnæringu o.s.frv. Opiö fra kl. 9—18 á virkum dögum og kl. 9—12 á laugardögum. Pantanir teknar í síma 40369. Veriö velkomin. HÁRGREIÐSLUSTOFAN ÞINGHÓLSBRAUT 19. HUGSAÐU þig tvisvar um áður en þú kaupir bakarofn. Blomberg býður fjölbreytt úrval af ofnum og kæliskápum til innbyggingar í innréttingar. Hægteraðstaðsetja ofninn, eða kæliskápinn í réttri vinnuhæð og setja samskonar hurðir á kæliskápinn og notaðar eru í innréttinguna. Og þad er 2ja ára ábyrgð á Blomberg, taktu eftir því. Blomberq - Stílhrein hagæða heimilistæki. EINAR FARESTVEIT & CO. HF. BERGSTAÐASTRÆTI I0A Sími I6995 Við höfum ágæta sjónvarpsstöð á Keflavíkurflugvelli, og úr því að við getum verið þekkt sem þjóð fyrir að nota flugvöllinn þar og flugbrautir, sem eru byggðar af Bandaríkja- mönnum og allri flugstarfsemi þar haldið uppi af þeim, þá getum við eins samið um afnot af sjónvarpinu þeirra, sem við höfðum not af á sín- um tíma. Við höfum aldrei efni á að byggja alþjóðaflugvöll og reka hann, og við höfum heldur ekki efni á að reka sjónvarp. Svo einfalt er það.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.