Morgunblaðið - 10.11.1983, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1983
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö-
alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift-
argjald 250 kr. á mánuöi innanlands. i lausasölu 20 kr. elntakiö.
Vandi atvinnugreina
Skráðir atvinnuleysisdagar
í októbermánuði sl. vóru
14.600 talsins, sem svarar til
þess að 676 manns eða 0,6% af
Islendingum á vinnualdri hafi
verið atvinnulausir allan mán-
uðinn. Tíu fyrirtæki í sjávar-
útvegi, veiðum og vinnslu,
sögðu upp um 200 starfs-
mönnum í þessum mánuði.
Vitað er að fjöldi fyrirtækja í
þessari undirstöðugrein þjóð-
arbúsins hangir á rekstrar-
legri horrim, bæði vegna afla-
samdráttar og óhóflegs láns-
fjárkostnaðar.
Fyrir aðeins tveimur árum
gaf þorskurinn, okkar helzti
nytjafiskur, 470.000 tonn í
þjóðarbúið. Fiskifræðingar
leggja nú til að ekki verði
gengið nær stofninum en með
200.000 tonna afla 1984, ef
halda eigi í horfi, eða vinna
nokkuð á, um stærð hrygn-
ingarstofnsins. Þessi fiski-
fræðilega staðreynd þrengir
enn kjör og möguleika þjóðar-
innar verulega.
Sigurður Kristinsson, for-
seti Landssambands iðnaðar-
manna, sagði m.a. á 40. iðn-
þingi íslendinga:
„Þá ber þess og sérstaklega
að geta, að erfið afkoma og
greiðslustaða sjávarútvegsins
og raunar fleiri innlendra at-
vinnugreina er nú farin að
bitna nokkuð á þeim iðngrein-
um, sem öðrum fremur fram-
leiða fjárfestingarvörur fyrir
atvinnulífið og annast viðhald
á þeim, einkum í málm- og
skipasmíðaiðnaði, byggingar-
og verktakaiðnaði og rafiðn-
aði, en þetta eru einmitt um-
fangsmestu iðngreinarnar
innan Landssambands iðnað-
armanna."
Sigurður tók skýrt fram að
ekki væri um neyðarástand að
ræða, þó vandinn væri sums
staðar stór, eins og í skipa-
smíðaiðnaði, og svæðisbundið í
byggingariðnaði. Brýnt væri
engu að síður að „tryggja
fyrirtækjum í þessum iðn-
greinum aðstoð til hagræð-
ingar og vöruþróunar, enda
leggi fyrirtækin fram áætlanir
í þeim efnum."
Forseti Landssambands iðn-
aðarmanna sagði orðrétt:
„Þær hagstjórnaraðgerðir,
sem nú hefur verið gripið til
og ég hef lýst nokkrum orðum,
skipta allan atvinnurekstur á
íslandi miklu. Nái yfirlýst
markmið ríkisstjórnarinnar
um lækkun verðbólgu fram að
ganga, ekki aðeins um
skamma hríð heldur til lengri
tíma, mun allur rekstur verða
auðveldari og áætlanagerð
batna, jafnt hjá einkaaðilum
sem opinberum. Sé vikið að
iðnaðinum sérstaklega er mér
bæði ljúft og skylt að lýsa því
yfir hér, að öll iðnfyrirtæki
njóti þeirra almennu hags-
bóta, sem í atlögunni gegn
verðbólgunni felast."
Af framangreindu má sjá,
að hefði ekki verið gripið til
þeirra efnahagsaðgerða, sem
gert var í sumar, til að ná
niður verðbólgu og viðskipta-
halla og rétta nokkuð af
rekstrarstöðu undirstöðuat-
vinnuvega, byggjum við í dag
við víðfeðmt atvinnuleysi.
Það er grundvallaratriði ef
tryggja á viðunandi atvinnu-
ástand í landinu og forða
hruni í þjóðarbúskapnum, að
efnahagsleg markmið ríkis-
stjórnarinnar nái fram að
ganga. í þeim efnum eru ekki
aðeins pólitískir forsjármenn
þjóðarinnar undir smásjá al-
mennings, heldur ekki síður
viðsemjendur á vinnumarkaði.
Undirstöðuatvinnuvegir,
eins og sjávarútvegur og iðn-
aður, sem felur í sér vaxtar-
broddinn að nýrri lífskjara-
sókn þjóðarinnar, skipta sköp-
um um heill eða hrun í þjóðar-
búskapnum og lífskjörum
þjóðarinnar. Það er heillavæn-
legra fyrir þegna þjóðfélagsins
að standa saman um lausn
vandans en slást á rústum ís-
lenzkrar velferðar.
Velferð fólks
skipi öndvegið
Mmargt hefur vel tekizt í
heilbrigðiskerfi okkar,
enda verðum við íslendingar
allra karla og kerlinga elztir.
Engu að síður verðum við fyrir
stórum skakkaföllum af völd-
um vissra sjúkdóma, eins og
krabbameins og hjarta- og
æðasjúkdóma. Þar skortir enn
verulega á að við höfum byggt
upp heimavarnir við hæfi, þó
heilbrigðisstéttir séu í stakk
búnar til stærri átaka.
K-bygging Landspítala, sem
hýsa á krabbameinssjúklinga,
bæði í geisla- og lyfjameðferð,
er brýnasta mannvirkjagerðin
á sviði heilbrigðismála í dag,
samhliða kaupum á geisla-
meðferðartæki. K-bygging á
jafnframt að hýsa skurðstof-
ur, en fjöldi skurðaðgerða á
Landspítala eru um 4000 á ári,
rannsóknastofur og stoðdeild-
ir.
Aðstæður í þjóðarbúskapn-
um bjóða að vísu ekki upp á
mikið framkvæmdasvigrúm.
Morgunblaðið vill þó leggjast
á sveifina með þeim, sem
halda fram hlut heilbrigðis-
kerfisins í skiptingu takmark-
aðs fjármagns. Velferð fólks,
ekki sízt heilsufarslega, þarf
að skipa öndvegið í þeirri
þróun til betri tíma, sem við
öll kjósum að stuðla að.
Heyrðum ókennilegt hljóð
og sáum ljósleiftur
— rætt við Höskuld Skarphéðinsson, skipherra
á varðskipinu Óðni, á slysstaðnum í Jökulfjörðum
isafirði, 9. nóvember, frá Hjálmari Jónssyni, blaðamanni Morgunblaðsins.
„JÁ, VIÐ höfum fundið leifar af
flakinu, sem staðfesta að hér hafi
átt sér stað hörmulegt slvs,“ sagði
Höskuldur Skarphéðinsson, skip-
herra á Óðni, þegar blaðamaður
Morgunblaðsins ræddi við hann
skömmu fyrir hádegi í gær um
borð í varðskipinu í Jökulfjörðum
skammt frá þar sem talið er að
TF-Rán hafi hrapað í sjóinn.
„Hvað raunverulega gerðist
verður að bíða rannsóknar
þeirra aðila, sem það heyrir und-
ir, en það heyrðist skyndilega
ókennilegt hljóð í talstöðinni og
síðan kom ljósleiftur eins og frá
lendingarljósum þyrlunnar. Síð-
an heyrðist ekkert meira," sagði
Höskuldur.
Höskuldur sagði að þyrlan
hefði komið frá Reykjavík og
tekið eldsneyti á ísafirði í gær og
lent á Óðni kl. 17:52. Áhafnar-
meðlimirnir hefðu borðað og
hvílt sig og flugvirki hefði yfir-
farið þyrluna. Um kvöldið hefði
þyrlan ætlað í æfingaflug, þar
sem m.a. átti að æfa hífingar
upp í þyrluna og fara í flug um
Djúpið. í morgun hefði þyrlan
átt að fara með vörur frá Súða-
vík í Galtarvita. Klukkan 14 í
dag átti TF-Rán að vera komin
til Reykjavíkur vegna verkefnis,
sem beið hennar þar.
„Þeir fóru í loftið klukkan
22.53,“ sagði Höskuldur enn-
fremur. „Örskammri stundu síð-
ar heyrðist eitthvað óskiljanlegt
í talstöðinni og menn sáu ljós-
leiftrið. Ég hafði farið hérna yfir
í ganginn og var að reyna að
fylgjast með þyrlunni eftir
flugtakið. Ég get ekki almenni-
lega gert mér grein fyrir hve
langur tími leið, en það hafa í
mesta lagi verið 1—2 mínútur
þangað til þetta heyrðist í tal-
stöðinni og ljósið sást.“
Höskuldur sagði að Óðinn og
línubáturinn Orri frá ísafirði
hefðu í sama mund fundið brak
úr þyrlunni, m.a. stykki úr rotor-
blaði, að því er þeir töldu, og
óuppblásið björgunarvesti.
Rækju- og línubátar komu til
hjálpar við leitina og töldu
varðskipsmenn átján báta. Fé-
lagar í björgunarsveitum SVFÍ
og hjálparsveitum skáta voru
komnir á staðinn um kl. 12.30
þeir fyrstu og gengu fjörur um
nóttina, þar sem heitir Kvíar.
Höskuldur Skarphéðinsson skipherra um borð í Óðni. MorKunblaðlö/Frl6Þi6fur