Morgunblaðið - 10.11.1983, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1983
Einarsson
Afmæliskveðja:
Svavar
Fyrir þá sem til þekkja er það
næsta ótrúlegt að Svavar Einars-
son sé orðinn svo gamall sem raun
ber vitni. En þó svo að hann með
karlmennsku og nánast æsku-
þrótti beri aldurinn einstaklega
vel, verður staðreyndum ekki neit-
að og Svavar verður nauðugur
viljugur að sætta sig við að hafa
nú náð því marki að fylla hóp
okkar sem lifað höfum í hálfa öld.
Svavar er fæddur í Reykjavík
þann 10. nóvember árið 1933. For-
eldrar hans voru hjónin Svanborg
Þórðardóttir og Einar Jóhann
Jónsson. Þau hjón slitu samvistir
þegar í frumbernsku Svavars og
var það þungt áfalUfyrir hinn
unga svein, því hlutskipti hans
varð af þessum sökum að hann var
settur í fóstur hjá vandalausum.
Það er að sjálfsögðu öllum ljóst
hvílíkt áfall það er hverju barni að
fá ekki að alast upp og mótast í
faðmi eigin foreldra. Og ekki fer á
milli mála að þetta þunga áfall
hefir á margan hátt sett svip sinn
á allt lífshlaup Svavars.
Svavar Einarsson tók snemma
út þroska sinn, óx og þroskaðist til
glæsilegs karlmennis, sem óhjá-
kvæmilegt var að veita athygli.
Svavar er hár vexti og þrekinn eft-
ir því, dökkur mjög á brún og brá
og þótt hið hrafnsvarta hár hans
sé í dag lítið eitt grásprengt, er
þrótturinn og karlmennskan sí-
ung.
Rétt liðlega tvítugur réðist
Svavar til starfa í lögreglu
Reykjavíkurborgar og starfaði þar
við góðan orðstír um árabil. Á
þessum árum festi Svavar ráð sitt
og giftist Gunnhildi Ólafsdóttur
og eignuðust þau tvö börn, Einar
Ólaf og Halldóru. Þau hjón slitu
samvistir eftir nokkurra ára sam-
búð.
Tekjur lögreglumanna voru á
þessum árum fremur rýrar og
varð það til þess að Svavar hætti
þar störfum og hóf leigubílaakstur
sem hann stundaði um langt ára-
bil. En svo sem oft er raunin með
unga menn, þá hvarflaði hugur
Svavars til annarra starfa og vann
hann því ýmis önnur störf, m.a.
við akstur áætlunarbíla Norður-
leiða að ógleymdum sjómanns-
störfum. Svavar hefir alla tíð ver-
ið reglumaður hvað áfengi snrrtir
en þó ekki sloppið áfallalaust í
gegnum þessa hálfu öld, sem hann
á nú að baki.
Svo sem fram hefir komið í
þessu afmælisrabbi er Svavar hið
mesta glæsimenni og því er ekki
að undra, að hið veikara kyn hefir
mjög komið við sögu í lífi hans.
Kann ég ekki að nefna þær konur
sem hann hefir búið með í lengri
eða skemmri tíma en veit þó að
hann hefir með þessum sambýl-
iskonum eignast níu mannvænleg
börn, sem öll eru nú komin til vits
og þroska.
Það mun hafa verið árið 1978
sem Svavar flutti hingað til
Gautaborgar. Og þó svo að ég hafi
lítillega þekkt til hans heima á ís-
landi, þá er það ekki fyrr en á
síðustu mánuðum að ég kynnist
honum að marki. Svavar hefir hér
ytra lengst af starfað hjá Volvo-
verksmiðjunum, og starfar þar
mikill fjöldi fólks og af ýmsu þjóð-
erni. Einn af starfsfélögum Svav-
ars, pólskur að uppruna, ræddi
einu sinni sem oftar um það ólýs-
anlega böl, sem landar hans heima
í Póllandi eiga við að búa. Kynnin
við þennan pólska starfsfélaga
leiddu svo smám saman til þess að
Svavar tók sér ferð á hendur og
fór til Póllands til þess að fá að sjá
með eigin augum það sem við hin
fáum að heyra og sjá í fjölmiðlum.
í þessari sinni fyrstu Póllands-
reisu kynntist Svavar þrítugri
stúlku þarlendri. Ferðirnar til
þessa hrjáða lands hafa síðan orð-
ið fleiri og nú er svo komið að
Svavar er heitbundinn umræddri
stúlku.
Kynni Svavars af þeirri niður-
lægingu, sem pólska þjóðin verður
að þola, hafa orðið til þess að
valda straumhvörfum í lífi hans.
Hann heillaðist af hetjulund og
hófsemi Pólverjanna, og hin trú-
arlega eining, sem heldur þjóðinni
saman, varð til þess að vekja hann
til umhugsunar um eilífðarmálin
og um sína eigin andlegu velferð.
Allt þetta varð svo til þess að
Svavar tók að sækja samkomur
hjá okkur hvítasunnumönnum í
L.P. Stiftelsi, og þar upplifði hann
Jesúm Krist sem sinn persónulega
frelsara.
Þótt ekki séu nemar fáar vikur
síðan þetta átti sér stað, hefir
ótrúleg breyting orðið í lífi og
háttum Svavars. Hann setur nú
allt sitt traust á meistarann mikla
frá Nasaret, biður og vonar til
Hans að pólsk yfirvöld gefi heit-
mey hans, móður hennar og syst-
ur, leyfi til þess að flytjast frá
ógnarvöldum kommúnismans
hingað til Svíþjóðar og svo von-
andi síðar meir til öruggrar vöggu
lýðræðis heima á íslandi. Ég og
fjölskylda mín ásamt fjölmörgum
trúarsystkinum óskum Svavari
vini okkar allra heilla í tilefni
fimmtusafmælisins og biðjum
Guð að blessa honum ókomin ævi-
ár.
Þorvaldur Sigurðsson
Heimilisfang Svavars er:
Hjallbo Lilgatan 13
42433 Angered
Sverige
Bókaútgáfan Iðunn:
„Tóbías og vinir hans“
Barnabók eftir Magneu frá Kleifum
ÚT ER komin hjá Iðunni barna-
sagan Tobías og vinir hans eftir
Magneu frá Kleifum. Sigrún Eld-
járn myndskreytti. Þetta er sjálf-
stætt framhald sögunnar Tobías
og Tinna, sem út kom í fyrra.
Áður hefur Iðunn gefið út tvær
sögur um krakkana í Krummavík
eftir sama höfund. Aðalpersónan í
Tobías og vinir hans er lítill dreng-
ur, en hann á góða vini þar sem
eru Sighvatur listmálari og Tinna
dóttir hans. Efni sögunnar er
kynnt svo á kápubaki: „Nú er
sumar og Sighvatur ætlar að ferð-
ast um landið á skrýtna bílnum
sínum og mála. Krakkarnir fá að
koma með og Sighvatur segir að
Tobías eigi að vera hjálparkokkur
hjá sér. Þetta verður afa skemmti-
legt ferðalag og margt að sjá úti í
náttúrunni. Vinátta þeirra þriggja
vex og dafnar þetta sumar, og
fleiri koma við sögu, bæði börn og
fullorðnir. Einu sinni er reyndar
nærri því illa farið ...“
Tobías og vinir hans er 112 blað-
síður. Oddi prentaði.
649.-
589.-
889,-
_____-----------^ kr' "".„Q
---- (i'Uoaro/vest' . \ 48v
nuúlpur ^D,parn/flaue\skrag gr. 1.389-
LJorraÚ\Pa
Dömubuxurur-^-
Dömubuxuru ^,
Herrabuxururvetr
♦
Sími póstverslunar er 30980
V
HAGKAUPS