Morgunblaðið - 20.11.1983, Side 32
80
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. NÓVEMBER 1983
Getty..
RAUNIR
HINNA
RÍKU
eftir
Russel Miller
óhjákvæmilega í þá hættu, að
þeim yrði rænt í sama augnamiði.
Fietcher Chase, fyrrverandi
FBI-lögreglumaður, sem starfaði
hjá fyrirtækinu Getty Oil, hélt til
Rómaborgar til þess að taka sam-
an skýrslu um þetta mál fyrir
Jean Paul Getty I. Sú skýrsla
staðfesti grunsemdir gamla
mannsins. Áður en Paul III hvarf,
hafði hann sagt í spaugi í partíi í
Róm, að hann ætlaði sér að svið-
setja sitt eigið mannrán til þess að
þvinga fé út úr afa sínum. Það var
óg sagt, að Paul III skuldaði um
20.000 sterlingspund (um 840.000
ísl. kr.) hjá eiturlyfjasölum borg-
arinnar. Einn af bílstjórum Gett-
ys í Róm sór, að hann hefði séð
Paul eftir mannránið í einu út-
hverfa borgarinnar, og að strákur-
inn hefði tekið til fótanna, þegar
hann tók eftir því, að hann þekkt-
ist.
Það liðu vikur, án þess að dreng-
urinn gæfi nokkurt lífsmark frá
sér. Starfsmenn Getty Oil Italiana
voru við og við látnir vita símleið-
is, að það væru mannræningjarn-
ir, sem hefðu samband við þá. En í
byrjun október tilkynntu starfs-
mennirnir, að það væru greinilega
allt aðrir menn, sem skyndilega
væru farnir að láta til sín heyra í
þessu máli.
Hinn 10. nóvember barst róm-
verska dagblaðinu II Messaggero
smápakki frá Napólí, og í pakkan-
um reyndist vera hægra eyra
Pauls III. Nokkrum dögum síðar
tilkynntu mannræningjarnir í
bréfi, að þeir myndu sneiða af
annan fót drengsins, ef lausnar-
gjaldið yrði ekki greitt innan
fárra daga.
Þessir atburðir breyttu öllum
viðhorfum á svipstundu. Eftir
langvarandi viðræður við ráðgjafa
sína á Sutton Place, lýsti Jean
Paul Getty I því yfir, að hann væri
fús að greiða allt lausnargjaldið.
Hinn 15. desember 1973 — á 81.
afmælisdegi J. Paul Getty — var
Jean Paul Getty III látinn laus, en
hann fannst í nánd við Lagonegro,
mörg hundruð kílómetra fyrir
sunnan Napólí. Að frátöldu hinu
afskorna eyra hans, reyndist hann
líkamlega ótrúlega vel á sig kom-
inn.
Oábyrgir erfingjar
í skilmálunum fyrir greiðslum
til barna sinna, hafði Paul Getty
II, við stofnun sérstaks sjóðs í því
skyni, tekið greinilega fram, að
ekkert barnanna mætti giftast
innan tuttugu og tveggja ára ald-
urs ella yrðu allar greiðslur til
viðkomandi felldar niður þegar í
stað. Vart Hafði Jean Paul Getty
III verið látinn laus eftir ránið,
þegar hann skyndilega fyrirgerði
rétti sínum á milljónagreiðslum
úr framfærslusjóði föður síns,
með því að ganga að eiga hina 24
ára gömlu Martine Zacher, en hún
kom með 18 mánaða gamalt barn
frá sínu fyrra hjónabandi og átti
þegar von á barni með Paul Getty;
hann var þá nýlega orðinn 17 ára.
Hvað sem gerzt kann að hafa á
bak við tjöldin í sambandi við rán-
ið á Paul, er eitt víst, að þessi at-
burður varð að reglulegri martröð
í huga hans. Eftir að hann hafði
verið látinn laus, gat hann aldrei
verið einn einasta dag án þess að
taka róandi meðul.
Sumarið 1976, þegar Jean Paul
Getty I lézt úr krabbameini á
Sutton Place, kom í ljós eftir útför
hans síðasta viðbótin við erfða-
skrá hans, en þar sagði, að elzti
sonarsonur hans og nafni, Jean
Paul Getty III, svo og faðir hans,
megi hvorugur nokkurn tíma hafa
neitt með Sutton Place að gera, né
koma þar nálægt. Paul III hélt
með eiginkonu sinni, Martine, til
Lundúna og dvaldi þar um hríð, en
fór svo þaðan vestur til Kali-
forníu, þar sem hann gerði alvar-
lega tilraun til að byrja nýja
ábyrgari lífsháttu. Hann lagði sig
allan fram við að losna undan
fjötrum áfengis og eiturlyfja,
gerðist tíður gestur í kvikmynda-
verunum í Hollywood og fékk
meira að segja að leika eitt og eitt
smáhlutverk í kvikmyndum. Sum-
ir vina hans segja, að fæstir hafi
gert sér að fullu ljós þau langvar-
andi sálrænu áhrif, sem ránið hafi
haft á Paul III. Þrátt fyrir ítrek-
aðar tilraunir tókst honum að
minnsta kosti ekki að venja sig af
viskíi og róandi töflum. Hann var
stöðugt eirðarlaus, feikilega
taugaóstyrkur, virtist að því er
bezt varð séð stefna að því að tor-
tíma sjálfum sér, og að lokum
hratt hann síðustu traustu stoð-
inni frá sér, eiginkonunni Mart-
ine, sem hafði haft mjög bætandi
og róandi áhrif á skapferli hans.
Þá átti Paul aðeins skammt ófarið
á leiðarenda, — þeirrar skelfilegu
lífsreynslu, sem hann varð fyrir
hinn 5. apríl 1981, þegar hann fékk
heilablóðfallið og hné niður.
í einangrun
Um Jean Paul Getty II ganga
þær sögur, að hann sitji bak við
lokuð rimlatjöldin i húsi sínu við
Cheyne Walk, gæði sér á kara-
mellum allan guðslangan daginn
og hafi þungar áhyggjur af æða-
hnútum, sem valdi því, að fótlegg-
ir hans séu aumir og bólgnir. Einn
af þeim örfáu, sem koma annað
slagið, er læknir, sem kemur ak-
andi í Bentley með bilstjóra við
stýrið, og er vanur að staldra við í
um það bil hálftíma. 1 samanburði
við útlit annarra húsa við Cheyne
Walk, virðist hús Gettys — áður
heimili enska skáldsins Swinburn-
es — illa við haldið og heldur
óhrjálegt. Bak við gluggarimlana
sést, að málningin er farin að
flagna af, og brúnleit útihurðin er
farin að veðrast og láta á sjá.
Að undanskildum einkaþjóni og
ritara, býr Getty II einn síns liðs í
húsinu. Nágrannarnir hafa þá
sögu að segja, að þá sjaldan Getty
fari út úr húsi, sé það alltaf að
næturþeli: Hann fer þá út úr hús-
inu um eittleytið og snýr venju-
lega heim aftur eftir þrjár eða
fjórar klukkustundir.
Aðeins einu sinni hefur Getty
látið nokkuð opinberlega frá sér
heyra, varðandi neitun sína á
greiðslu lækniskostnaðar fyrir
sinn veika son. í skriflegri yfirlýs-
ingu sinni til Times sagði hann:
„Sá sem álítur, að hin hörmulegu
örlög sonar míns láti mig ósnort-
inn eða að ég taki því með jafnað-
argeði, ef hann á eftir að verða
ríkinu til byrði, þekkir mig ekki.
Ég hef aldrei vanrækt að uppfylla
lagalegar skyldur mínar og hef
reynt að fullnægja þeim skyldum,
sem á mér hvíla sem föður.“
SARA MOON/SPANG OLSEN
BARA TVÖ AF ÓTAL ÞEKKJUM NÖFNUM SEM SJÁST Á
EFTIRPRENTUNUM FRÁ OKKUR. MARGAR STÆRÐIR OG ÖLL VERÐ.
MYNDIN
Dalshrauni 13
S. 54171
Líður þér illa
í svartasta skemmdeginu
Lausnin er Bláa lónið
Já, þeir eru margir íslendingarnir sem eru búnir aó fá nóg
af stressi og orðnir steinuppgefnir á öllu.
Nú erum viö búin að opna Bláa lónið sem er 1. flokks
hvíldarhótel og stendur við hið frábæra Bláa lón. Dvöl þar
hressir, bætir og kætir alla.
1. flokks herbergi með baði og nuddsturtu, sjónvarpi og
vídeói á öllum herbergjum. Allar veitingar á lágu verði.
Gott útivistarsvæöi í nágrenninu tilvalið til göngutúra og
þess háttar. Sundsprettur í Bláa lóninu gerir öllum gott.
Þú færð bót í Bláa lóninu.
Bláa lóniö,
sími 92-8650.