Morgunblaðið - 09.12.1983, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 1983
13
Slagsmál sem upp-
hófust í gamni end-
uðu með harmleik
UNGUR maður var fyrir
skömmu dæmdur í Sakadómi
Kópavogs í 6 mánaða skilorðs-
bundið fangelsi og gert að
greiða 900 þúsund krónur í ör-
orkubætur með 5% ársvöxtum
frá 13. maí 1978 og 90 þúsund
krónur miskabætur með banka-
vöxtum fyrir að hafa slegið
niður 25 ára gamlan mann með
þeim hörmulegu afleiðingum að
hann lamaðist. Ungi maðurinn
hefur áfrýjað málinu til Hæsta-
réttar.
Tildrög málsins eru þau, að
mennirnir hittust á dansleik í
veitingahúsinu Klúbbinum í
Reykjavík þann 13. maí 1978.
Var það undir lok dansleiksins
að þeir tóku tal saman, en þeir
voru gamlir skólafélagar.
Ákærði ber að þeir hafi rætt
saman í bróðerni og ákveðið að
fara út til að slást, fyrst og
fremst fyrir orð þess er slasað-
ist. Síðan fóru mennirnir út og
tóku að „dangla hvorn í annan
án þess að slá högg,“ eins og
hinn slasaði komst að orði. í til-
vitnuðum texta, sem tekinn er
úr dóminum, er hann nefndur
vitni.
„Þetta var gert í gamni og
fylgdi því engin alvara. Eftir
eitt höggið frá ákærða beygði
vitnið sig niður, varð hrætt og
sló frá sér. Höggið lenti á and-
liti ákærða, sem þá sló vitnið í
andlitið. Vitnið gerði sér eigi
grein fyrir því hvar höggið frá
ákærða lenti námkvæmlega né
heldur hvernig það féll til jarð-
ar að öðru leyti en því að vitnið
féll utan í járnþil. Varðandi
upptök átakanna taldi vitnið að
hvorugur þeirra hafi átt hug-
myndina hinum fremur að þeim
og upphófust þau í gríni.“
Ákærði sagðist hafa hjálpað
þeim er slasaðist á fætur og
viljað hætta en hinn vildi það
ekki og haidið áfram. Hafi hann
þá fengið þungt högg í andlitið
þannig að 3 til 4 tennur brotn-
uðu og hafi hann reiðst og sleg-
Ungum manni
gert að greiða
milljón í skaða-
bætur eftir að
maður sem hann
lenti í átökum
við lamaðist
ið eitt högg með krepptum
hnefa nokkuð þungt, þannig að
hinn féll aftur fyrir sig og lenti
höfuð hans á steinkanti við
kjallaratröppur í sundinu.
Hann kvaðst hafa farið að hon-
um og stumrað yfir honum og
lyft höfði hans og fundið að það
var máttlaust. Hafi hann virst
rænulaus. Sagðist hann hafa
ætlað að draga hann til og færa
út úr sundinu og dregið hann
um hálfan annan metra.
Vitni sem fylgdist með átök-
unum örlagaríku bar, að í
fyrstu hefðu þeir verið að grín-
ast. Sá er slasaðist hefði fallið
en staðið upp aftur en eftir eitt
höggið frá ákærða fallið aftur
fyrir sig á steinkant og ekki
staðið upp aftur. Fleiri hefðu
drifið að og ákærði lent á átök-
um við mann, sem kom aðvíf-
andi og var þeim átökum lýst
sem heiftúðuglegri en hinum
fyrri.
Kallað var á lögreglu og
sjúkrabifreið og hinn slasaði
fluttur í slysadeild Borgarspít-
alans. í ljós kom að maðurinn
hafði hálsbrotnað og skaddast á
mænu og lamast. Maðurinn hef-
ur verið í endurhæfingu síðan.
„í tilfellum sem þessum er
naumast að vænta nokkurs um-
talsverðs bata. Ekki er óhugs-
andi að slasáði verði sjálffær
um nauðþurftir sínar, en um
vinnugetu í framtíðinni er það
að segja að líkur eru til að slas-
aði hljóti nokkra umtalsverða
vinnugetu nánast engar.
Svo sem að ofan greinir er nú
ekki að vænta frekari bata en
orðinn er. Þykir því eðlilegt að
meta nú örorku slasaða og þykir
hún hæfilega metin frá slysdegi
100% varanlega," segir meðal
annars í skýrslu læknis frá 17.
júní 1980 um ástand mannsins.
Dóminum þótti sannað að
ákærði hefði veitt þungt högg af
ásetningi með þeim afleiðing-
um, að hinn slasaði hlaut var-
anlega líkamsskaða. Örorkutjón
þótti hæfilega metið krónur 2,7
milljónir króna og miskabætur
hæfilega ákveðnar 270 þúsund
krónur. f dóminum segir:
„Ljóst er að bótaskylda
ákærða er fyrir hendi. Hins
vegar verður að líta til þess að
ákærði átti ekki einn allan þátt
í því að valda því stórkostlega
líkamstjóni sem tjónþoli varð
fyrir. í því sambandi verður að
telja að bæði hafi tjónþoli sjálf-
ur átt nokkurn þátt í því að
skapa þær aðstæður sem þarna
urðu þótt ósannað sé að hann
hafi brotið tennur ákærða og
svo hafi óhappatilviljun ráðið
því að miklu leyti hvernig til
tókst. Þegar þetta er virt þykir
rétt að ákærði bæti tjón að '/3
hluta og ber því að greiða kr.
900.000 vegna örorku ásamt 5%
vöxtum af þeirri fjárhæð frá 13.
maí 1978 til greiðsludags en
ekki þykir rétt að dæma vaxta-
vexti á dómkröfu þar sem slíkt
hefur aldrei tíðkast, kr. 90.000 í
miskabætur ásamt vöxtum svo
sem þeir eru tilgreindir í dóms-
orði og krónur 5.759 vegna út-
lagðs kostnaðar við örorkumat
og örorkutjónsútreikninga..."
Þá er ákærða gert að greiða
allan sakarkostnað skipaðs
verjanda og saksóknarlaun. Sig-
ríður Ingvarsdóttir, fulltrúi
bæjarfógetans í Kópavogi, kvað
upp dóminn. Jónatan Sveinsson,
saksóknari, flutti málið af hálfu
ákæruvaldsins og verjandi
ákærða er Stefán Pálsson, hrl.
Ur aftursæti
venjulegs fólksbíls
eru margar útgöngnleiðir
fyrirböm
án þess að nota dvmar!
Öll viljum viö tryggja sem best öryggi barnanna
okkar í umferðinni. Við vitum að það er ekki
nóg að láta þau sitja í aftursætinu, heldur er
mikilvægt að þau séu örugglega skorðuð, hvorl
sem það er í bílstól, burðarrúmi eða bílbelti.
Við höfum sérhæft okkur í öryggisbúnaði fyrir
börnin,-búnaði sem hentar í flestar gerðir fólks-
bifreiða.
Barnastólar
(fyrir 9 mán - 6 ára)
Barnapúðar
(fyrir 6-12 ára)
Barnarúmsfestingar
(fyrir 0-9 mán)
Beltastóll
(fyrir 6-12 ára)
Fótgrindur fyrir beltastól
(fyrir 6-12 ára)
VELTIR HF.
Simi35200
Verzlanir mega
hafa opið til
kl. 22 í kvöld
og 18 á morgun
SAMKVÆMT reglugerð um
afgreiðslutíma verslana í
Reykjavík og ákvæði kjara-
samninga verslunarfólks er
heimilt að hafa verslanir
opnar í desembermánuði sem
hér segir:
Föstudag 9. desember til kl.
22.00, laugardag 10. desember
til kl. 18.00, föstudag 16. des-
ember til kl. 22, laugardag 17.
desember til kl. 22.00, föstudag
23. desember til kl. 23.00, Þor-
láksmessa, laugardag 24. des-
ember til kl. 12.00, aðfanga-
dagur, laugardag 31. desember
til kl. 12.00, gamlársdagur.
Fróöleikur og
skemmtun
fyrirháa sem lága!
11
aolæia
Sindaír Spectrum
Ef þú hefur áhuga á að kynnast tölvum, læra á þær,
leika þér við þær, tefla við þær, læra af þeim, vinna
með þeim, láta þær vinna fyrir þig og fylgjast með
þeim ótrúlegu möguleikum sem felast í
tölvutækninni, ættirðu að bytja á Sindair Spectrum.
Sinclair Spectrum er ótrúlega fullkomin, með 16K
eða48Kminni, allar nauðsynlegar skipanir
fyrir Basic fjöldi leikja-.kennslu-og viðskipta-
forrita, grafiska útfærslu talna, tengimöguleika við
prentara og aðrar tölvur - og svo auðvitað litlnn
Þar að auki er diskettudrif væntanlegt innan tíðar.
Sinclair Spectrum er stórkostleg tölva .
48K tölvan kr. 8.508.- 16K tölvan kr. 6.544.-
öý
Heimilistækí hf
HAFNARSTRÆTI 3 - 20455- SÆTÚNI 8- 15655