Morgunblaðið - 09.12.1983, Qupperneq 16
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 1983
Kíkt inn á Kjarvals-
staðakvöld og rætt
við unga fólkið
Fullt út að dyrum af ungu fólki á Kjarvalsstöðum.
„ ... það fóru að vaxa goggar á fólk og svo komu þeir æðandi í áttina til mín.“ Stúdentaleikhúsið sýnir þaetti úr
nýjum unglingabókum.
„Skemmtilegast að horfa á leikritin," sögðu stelpurnar úr Bústöðum,
Herdís, Hrafnhildur, Sigrfður og Elín Rós.
„Unglingarnir búnir að vera til fyrirmyndar í umgengni á Kjarvalsstöð-
um,“ segir Sylvía Jóhannsdóttir. Hér er hún að gefa framkvæmdastjórum
kynningarvikunnar kaffi.
Fellahelli þegar við vorum í
fyrsta bekk, þá fórum við á
diskótekin. Það er bara þannig
að þegar maður er komin í þriðja
bekk fer maður ekki lengur
þangað. Og þá vantar stað þang-
að sem maður getur farið og hitt
fólk, ekki bara úr Breiðholti
heldur líka annarstaðar úr
Reykjavík.
Hvað með unglingadiskótek-
in?
Þau eru ágæt en það er bara
opið um helgar og þá er svo
ofboðslega dýrt inn. Það mætti
vera einhver svona samkomu-
staður þar sem maður getur kíkt
inn á virkum dögum og hitt fólk
án þess að fara með aleiguna í
það.
Að síðustu fengum við okkur
te og smurt brauð á kaffiteríu
Kjarvalsstaða og spurðum
Sylvíu Jóhannsdóttur sem rekið
hefur teríuna síðustu þrjú árin
hvernig gengið hefði þessa kynn-
ingarviku.
Það hefur verið mikil umferð
hérna og komist allt upp í 500
börn á dag. Það eru því óvenju-
legir en góðir gestir á kaffiteríu
Kjarvalsstaða. Yfirleitt er það
fólk sem kemur á sýningarnar
sem fær sér hér kaffi og eru
margir fastagestir. Terían er
opin daglega 2—7 þegar húsið er
opið og lengur ef eitthvað sér-
stakt er eins og núna. Á sumrin
er hægt að setja stóla og borð út
á stétt og drekka þar kaffi, það
er að segja ef veður leyfir. En
það hefur verið mikið um að vera
þessa viku og einstaklega gaman
að fá krakkana sem hafa verið
alveg til fyrirmyndar í hegðun
og umgengni.
Kjarvalsstaðakvöld var hald-
ið fyrir unglinga á þriðju-
daginn og voru blm. og Ijós-
myndari Mbl. þar meðal gesta.
Fjöldi unglinga var mættur á
staðinn strax hálftíma áður en
skemmtunin hófst og þurfti ekki
að segja þeim tvisvar að ganga í
bæinn þegar opnað var inn í að-
alsal. Þar hafði verið komið fyrir
stóru sviði og settust áhorfendur
á gólfið framan við það, enda
hefði ekki verið pláss fyrir stóla.
Stúdentaleikhúsið hóf leikinn og
flutti þætti úr unglingabókum
sem gefnar verða út fyrir jólin.
Síðan flutti Pældíðí-hópurinn
atriði úr kynfræðsluleikritinu
Pældíðí og loks lék hljómsveitin
Ikarus, en söngvari hljómsveit-
arinnar er Megas. Milli atriða
var rápað fram í kaffiteríu og
notuðum við tækifærið til að
spjalla við skipuleggjanda
kvöldsins, Guðrúnu Erlu Geirs-
dóttur og nokkra gestanna.
Guðrún Erla: Þetta Kjar-
valsstaðakvöld er þannig tilkom-
ið að þegar samþykkt var að
Æskulýðsráð fengi inni með
kynningarviku sína hér ákváð-
um við í stjórn Kjarvalsstaða að
bjóða unglingunum upp á sér-
staka dagskrá. Fannst okkur það
upplagt fyrst við værum búin að
fá þann aldurshóp í húsið sem
hvað sjaldnast kemur hingað.
Dagskráin er sett saman sér-
staklega fyrir þetta kvöld og
sniðinn að þessum aldurshópi.
Það hefur verið ánægjulegt að fá
þau, þetta eru væntanlegir sækj-
endur þessa húss og það sem af
er kynningarvikunni hefur allt
farið vel fram og verið ágætis
umgengni.
Næst hittum við að máli þá
Arngeir Hauksson, Val Gauta-
son og Hörð ími Einarsson.
(15—16 ára): Við fréttum af tón-
leikunum og ákváðum að koma
hingað. Annars sækjum við ekki
neina æskulýðsmiðstöð heldur
sjáum sjálfir um að hafa ofan af
fyrir okkur. En Megas er
skemmtilegur, við sáum hann á
friðarhátíðinni í Laugardalshöll-
inni og hlökkum til að sjá hann
hér.
Þær stöllur úr Bústaðahverfi,
„Við fréttum af tónleikunum og ákváðum að fara,‘
Hörður ímir.
Arngeir, Valur og
Guðrún Erla Geirsdóttir skipulagði Kjarvalsstaðakvöldið, en hún er í
stjórn Kjarvalsstaða.
Herdís Wöhler, Hrafnhildur
Stefánsdóttir, Sigríður Ingadótt-
ir og Elín Rós Hansdóttir
(15—17 ára), sögðust vera búnar
að dveljast meira eða minna á
Kjarvalsstöðum síðan kynn-
ingarvikan hófst: Þetta er fín
dagskrá hérna og það skemmti-
legasta er að horfa á leikritin.
Við erum í leiklistarklúbbi í fé-
lagsmiðstöðinni Bústöðum og á
leiklistarkvöldinu hérna sýndum
við trúðaatriði sem við sömdum
sjálf og tókst það bara nokkuð
vel. Við höfum sótt Bústaði síð-
ustu þrjú til fjögur ár, fyrst vor-
um við þar svo til á hverju kvöldi
í allskonar klúbbstarfi og á
diskótekinu á föstudögum, en nú
komum við sjaldnar. Maður vex
upp úr þessu og fer að fara ann-
að.
Andrea Gunnarsdóttir, Lárus
Arason og Hrönn Hreiðarsdóttir
búa í Breiðholti og voru að koma
í fyrsta sinn á dagskrá Æsku-
lýðsráðs.
Okkur finnst dagskráin hér
vera alveg meiriháttar. Leikritið
Pældíðí var frábært og okkur
finnst að það ætti að sýna þetta
í skólunum því það vantar alveg
kynfræðslu. Fellaheliir er okkar
félagsmiðstöð en við höfum ekki
tekið mikinn þátt í starfinu þar.
Skátarnir hafa verið teknir
framyfir og höfum við starfað
með skátafélagi hverfisins, Haf-
örnum, í mörg ár. Nú erum við í
dróttskátasveit sem krakkar á
aldrinum 15—17 ára starfa í. Við
förum í útilegur, höldum kvöld-
vökur, förum á námskeið í
skyndihjálp og gerum margt
fleira æðislega skemmtilegt.
Ætli við höfum ekki farið mest í
„Meiriháttar dagskrá hérna,“ sögðu Andrea, Lárus og Hrönn.