Morgunblaðið - 09.12.1983, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 1983
35
Ljfem. Mbl. KÖE
Sundakaffi opnað
Sundakaffi var opnaö í Sundahöfn, fimmtudaginn 1. desember síðastliðinn. Á myndinni sjást eigendur staöarins,
Þorsteinn Örn Þorsteinsson og Margrét Geirsdóttir, sem segja að hér sé um að ræða kaffiteríu og hamborgarastað.
„Gengnar leiðir“ eftir
Jón Gísla Högnason
BÓKAFORLAG Odds Björnssonar
sendir nú frá sér nýja bók eftir Jón
Gísla Högnason frá Læk, og nefnist
hún „Gengnar leiðir“.
í bókinni eru minningarþættir
átta samferðamanna. Jón Gísli
hefur áður tekið saman safnrit
með frásögnum alþýðufólks. Með
hans eigin orðum er þetta „lífsr-
eisa um langvegu, sem farin var af
þeim, sem geta glaðst og fundið
til“.
í kynningu forlags segir: „í bók-
inni eru sögur úr sveit og frá sjáv-
arsíðunni, ilmur úr sveit og angan
af hafi, — og lýsing á þvi hvernig
ísland nútimans varð til. Sviðið er
vítt, en merkastar munu þykja
frásagnir af atvinnu- og búsetu-
þróun á Suðurlandi." Mikill fjöldi
ljósmynda er í bókinni og henni
fylgir ítarleg nafnaskrá. 216 bls.
Jón Gísli Högnason
Síldveiðun-
um að ljúka
— 51.500 lestir komnar á land
„ÞAÐ MÁ segja að sfldveiðunum sé að Ijúka. Á mánudag voru bara tvö skip á
miðunum fyrir austan, en eitthvað fieiri á þriðjudag og miðvikudag og veiði-
kvótinn að verða uppfylltur," sagði Ástráöur Ingvarsson, veiðieftirlitsmaður, í
samtali við Morgunblaðið í gær.
Samkvæmt upplýsingum hans þá
voru komnar um 51.500 lestir af síld
á land, en upphaflegt aflamark var
52.500 lestir. Nokkur viðbót kom þó
til vegna verðmætamarks og fryst-
ingarmarks. Þannig hafa hringnót-
arbátar nú fengið um 35.000 lestir,
en upphaflega var leyfilegt afla-
mark þeirra 34.500 lestir og 460 há-
mark á bát. Að meðaltali hafa
hringnótarbátar nú fengið 550 lest-
ir hver. Reknetabátar hafa nú feng-
ið um 15.500 lestir, en heildarafla-
mark þeirra nam upphaflega 16.500
lestum og 520 lesta hámarki á
hvern bát. Þá eru komnar um 1.000
lestir síldar í lagnet á land.
ÞESSAR stöllur, Ingibjörg Jónsdóttir og Margrét Helgadóttir, efndu til
hlutaveltu fyrir nokkru og færðu Samtökum um byggingu tónlistarhúss
ágóðann sem var rúmlega 1.100 krónur.
KÆRAR ÞAKKIR
Byggingarhappdrætti SÁÁ þakkar
íslenskum konum og öllum öðrum
ómetanlegan stuðning.
Dregið hefur verið í happdrættinu um
10 SAAB bíla. Þessi númer hlutu vinning:
104897 276116
178021 281471
198343 296191
219952 299384
271660 307043
Úrslit í verðlaunasamkeppninni um nafn á
nýju sjúkrastöðina verða væntanlega
tilkynnt við vígslu hússins síðar í þessum
mánuði.
BYGGINGAR
HAPPDRÆTTI
SAA1983
yyx
MHdðfyrír
N KítySINtíASKíAN Ht B|
GatBtÚnsorH
Opið í dag föstudag til kl. 22
og á morgun laugardag til kl. 18
AIIKLIG4RÐUR
MARKAÐUR VÐSUND