Morgunblaðið - 08.02.1984, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 08.02.1984, Qupperneq 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 1984 Stríðsletursfrétt Þjóðviljans PJOÐVIIIINN <tSk«<Nakrrf ■nuM.A mrnn<kjo<> fehrúar 1984 fimmludagur 49. árgangur 27. lölublað Sjá3 LAUNAFOLKII ISTORI3S1 I • Auglýsingabceklingur ríkis- stjórnar sendur til útlanda | • Lokka til sín auðhringa med þvíad benda á lágu launin hér |* Ríkisstjórnin og Rockefeller hrósa landinu fyrir óhóflegan vinnutíma I • Bjóda raforku á svipudu verði og Alusuisse hringurinn fær nú! » ódýrari raforka en í Ástralíu og Brasilíu segir ríkisstjórnin! I • Fáheyrð óskammfeilni gagn- vart launafólki í landinu I • Ríkisstjórnin býður erlendum auðhringum blygdunarlaust uppá viðvarandi lág laun í landinu! "■ »— """" "'...T, iemhugunlciihefoulhun> 1 rckuKiMlm.lmvr.k mur lllu tmtð|una á RryA.rl.r* l*rir irm h.U áhuf. rni |yfll mrSnum It m.ll- (H orkufrrk. .nnutur um ,núJ -f „| B.rgn lUciH Gunnurxvmur ork. __ ■ ■ L.........■ r 1 'i-v tum r.rfc tuu . . : ____ .____.. .... .... _ < h»v Munhuilun Bunk . H..nildMk|unum Ihrtlurlvr irmkHI mun *rr« ráagiulurlv.rU'k.. I|irmulum. h-1' vrm háur upphcAir rru I huf. I hirkl.nitnum veg.r m « k.Mlm.ilmvifk-ni.O|..n utluAur \.Orlyr.ruk |um |*r mHBuA ralmugn. fru l.umKv irk.un Kjl..rku\tr.'..k 1—“------**■ mun \rrAu \umn.ng\uir..k. mill. I und\v.ik|una. ..y fv..rlu,k.\in\ ►»* cr l.klryl IH u* \cr»a undif þ\. raí- I n annarv vlaAur a NofAurkmdum orfcunu é ■vlpuAuvrrBI o* MhwAorráAufKVII* nu hv „V.nnulaun á Itlund. eru hagtinA . vumanhurA. \ laun I Skund.navlu og m|6g hag»l*A I vamanhurA. v laun I Banda«(k|unum , teg.r i uugiy»ingah*klingi rlk iMl)érnatmnat og dðllurfynrl«k.\ Rockefellrrv hank — f lAnaAarféAuneyt.___ KhilmélmverkuniAiunnar HofAahakka VI Rcyk|a\ik Auglyv.ngahakl.ngur.nn her he.nA „Tck.fa fjármagnrndur . Ki\.lmálmvrrk\m.A|u á Idanu. .• aA hann v< gcrAur á vegum iAnaAarr*Auni-yl.\.n\ a Klvilverk\m.A|unn. og Chave ttonomclrav wm mu. vera dóllurfyr.rt*ki h.nv vfAfrcga hanka Roekefcllcr .Aaf llindirvir.kun þ(.»V.I|anM Baklingur [x\v hcfur vrraS wndu lA kikka auAhnnga lil f|.irlr\lingar )u ■•* annarv orkufrrk\ <#n I Fyrirlitning atvinnurek- segir Magnús E. Sigurðsson - . | formaður bóka- enda er takmarkalaus ErSwS swr sssr: íSrSss ------------- SrasríSi-ir ssssasassuK t6 eftir Birgi ísl. Gunnarsson I stefnuyfirlýsingu núverandi ríkisstjórnar segir í kaflanum um orkumál og orkufrekan iðnað: „Nýjum aðilum verði gefinn kost- ur á eignaraðild í Kísilmálmverk- smiðjunni." Þetta er fráhvarf frá stefnu iðnaðarráðherra Alþýðu- bandalagsins, sem stefndi að því að Kísilmálmverksmiðjan yrði al- gjört ríkisfyrirtæki, hvað sem það kostaði. Kynningarbæklingur Til að hrinda þessu í fram- kvæmd fól iðnaðarráðherra tveimur fulltrúum úr stóriðju- nefnd og tveimur fulltrúum úr stjórn Kísilmálmverksmiðjunnar að annast verkefnið. Fyrsta skref- ið í þá átt var að láta útbúa kynn- ingarbækling um fyrirhugaða verksmiðju ásamt ýmsum upplýs- ingum um land og þjóð. Þessi bæklingur hefur ýmist verið send- ur völdum fyrirtækjum, sem hugs- anlegt væri að vildu slíkt samstarf eða bæklingurinn afhentur á kynningarfundum sem haldnir hafa verið með fulltrúum ein- stakra fyrirtækja. Til aðstoðar við samningu bæklingsins og til að ná sambandi við einstök fyrirtæki var fengið þekkt ráðgjafarfyrir- tæki í Bandaríkjunum, Chase Ec- onometrics. Þessi aðferð er þekkt víða um heim og mikið notuð þeg- ar líkt stendur á. Þjóðviljinn gerir þennan bækl- ing að umtalsefni sl. fimmtudag í forsíðugrein með stríðsletursfyr- irsögn. Frétt blaðsins er mjög óheiðarleg, svo að vægt sé til orða tekið, og því skulu hér tekin til meðferðar þau helstu atriði, sem Þjóðviljinn gerir að umtalsefni. Hjörleifur og Rockefeller Gagnrýnt er í blaðinu að fyrir- tækið Chase Econometrics skuli fengið til aðstoðar í þessu efni. í blaðinu segir, að fyrirtækið muni „vera dótturfyrirtæki hins víð- fræga banka Rockefellers, Chase Manhattan Bank í Bandaríkjun- Birgir ísl. Gunnarsson „Hér skal hvorki borið blak af Chase Econo- metrics né Rockefeller, enda vafalaust óþarfi á þessum vettvangi. Á hitt verður hins vegar að benda að fyrirtækið Chase Econometrics hafði þegar starfað fyrir Kísilmálmvinnsluna all- lengi áður en núverandi ríkisstjórn var sett á laggirnar og stóriðju- nefnd hóf afskipti af málinu. Það var fyrri stjórn Kísilmálmvinnsl- unnar undir forystu Halldórs Árnasonar, fulltrúa Hjörleifs Gutt- ormssonar, sem réð Chase Econometrics til ráðgjafarstarfs í þágu Kísilmálmvinnslunnar.“ um. Dótturfyrirtækið mun vera ráðgjafarfyrirtæki í fjármálum, þar sem háar upphæðir eru í húfi.“ Hér skal hvorki borið blak af Chase Elconometrics né Rockefell- er, enda vafalaust óþarfi á þessum vettvangi. Á hitt verður hins veg- ar að benda að fyrirtækið Chase Econometrics hafði þegar starfað fyrir Kísilmálmvinnsluna alllengi áður en núverandi ríkisstjórn var sett á laggirnar og stóriðjunefnd hóf afskipti af málinu. Það var fyrri stjórn Kísilmálmvinnslunn- ar undir forystu Halldórs Árna- sonar, fulltrúa Hjörleifs Gutt- ormssonar, sem réð Chase Econo- metrics til ráðgjafarstarfs í þágu Kísilmálmvinnslunnar. Þeir Hjörleifur og Rockefeller voru góðir saman meðan það var og hét og við sem síðar komum að málinu fengum ágætan arf, þar sem voru viðskiptin við Chase. Raforkuverðið Annað gagnrýnisatriði Þjóðvilj- ans er að í bæklingnum sé raforka boðin „á svipuðu verði og Alu- suisse-hringurinn fær nú“. Um raforku er sérstakur kafli í bækl- ingnum. Þar er þess getið, hversu mikil orka sé virkjanleg á íslandi í samræmi við sameiginlegt álit Landsvirkjunar og Orkustofnun- ar. Síðan segir: „Kísilmálmverk- smiðjan mun fá rafmagn frá Landsvirkjun. Raforkuverðið mun verða samningsatriði milli Lands- virkjunar og fyrirtækisins og er líklegt að það verði lægra en það rafmagnsverð, sem nú fæst í lönd- um eins og Ástralíu og Brasilíu og öðrum löndum, sem bjóða upp á tiltölulega ódýra raforku og helst koma til greina fyrir staðsetningu nýrra kísilmálmverksmiðja og annars orkufreks iðnaðar." Þetta kallar Þjóðviljinn að verið sé að bjóða orku fyrir 10 mills. Brasilía og Ástralía í fyrsta lagi er rétt að benda á að hér er ekki um neitt samnings- tilboð að ræða, heldur aðeins al- mennar upplýsingar byggðar á staðreyndum. í öðru lagi, þá eru Ástralía og Brasilía sérstaklega nefnd vegna þess, að þegar bækl- ingurinn var skrifaður lágu fyrir upplýsingar um rafmagnsverð til nokkurra kísilmálmverksmiðja í Ástralíu og Brasilíu. Þessar upp- lýsingar voru frá tveimur ráðgjaf- arfyrirtækjum, sem bæði voru fengin til starfa meðan fulltrúi Hjörleifs var stjórnarformaður. Þessi fyrirtæki eru Chase Econo- metrics, sem fyrr er nefnt og Com- modities Research Unit I Bret- landi. í Ástralíu var vitað um verð til nýrra verksmiðja og var það allt að 28 mills. í Brasilíu var vit- að um verð til kísilmálm- og járn- blendiverksmiðja og var það 25-26 mills. Sveiflur í Brasilíu Rétt er að taka fram að miklar sveiflur eru í rafmagnsverði í Brasilíu, þegar það er reiknað í bandarískri mynt (1 mill = 1/1000 úr Bandaríkjadollara). Ástæðan er gífurleg verðbólga í Brasilíu og tíðar gengisfellingar, en raf- magnsverðið til stóriðjufyrirtækja þar er uppgefið og reiknað í mynt þeirra Brasilíumanna. Þegar verð- ið er reiknað í Bandaríkjamynt, getur það því skipt máli, hvoru megin við gengislækkun menn lenda. Svo að vitnað sé til fleiri landa má nefna að rafmagnsverð í Bandaríkjunum og víðast í Evrópu er mun hærra, t.d. býður Noregur nýjum fyrirtækjum 20 mills. Að lokum skal á það bent varðandi þennan þátt málsins, að í þeirri skýrslu, sem Hjörleifur Gutt- ormsson lagði fyrir Alþingi á sín- um tíma, reiknaði hann með raf- magnsverðinu 17,5 mills og við það voru allar áætlanir hans miðaðar. Vinnuafl á íslandi Þriðja gagnrýnisatriði Þjóðvilj- ans er kafli í bæklingnum, sem fjallar um vinnuafl, og finnst Þjóðviljanum þar „launafólki storkað". Svo að menn fái svart á hvítu, hvað í þessum kafla segir er rétt að birta hann hér orðréttan: „Vinnuafl á íslandi er sér- staklega vel menntað hvernig sem á málið er litið og ekkert þeirra stóriðjufyrirtækja, sem stofnsett hafa verið á íslandi Vestmannaeyjar: Stanslaus loðnulöndun hjá bræðslunum tveimur Vestmannacvjum, 6. febrúar. FRÁ ÞVÍ fyrir helgi hafa drekk- hlaðnir loðnubátar streymt hingað af loðnumiðunum og stanslaus löndun hefur verið hjá bræðslunum tveimur, sem hér eru starfandi. Er vinnslan hjá þeim komin í full- an gang og ilmandi peningalyktin blæs hressilega yfir bæinn. Um miðj- an dag í dag hafði FÍVE tekið á móti 11.000 tonnum og FES 4.000 tonnum og hjá báðum verksmiðjunum voru bátar í biðröðum við löndunardæl- urnar. Vitað var um níu skip sem voru á leið til Eyja, flestum með full- fermi. Hér er þróarrými fyrir um 20.000 tonn og vinnsluafköst verk- smiðjanna mikil. Að sögn Viktors Helgasonar, yfirverkstjóra hjá FÍVE, er loðna sú sem borist hefur til verksmiðjunnar í sérlega góðu ásigkomulagi og óvenju feit miðað við árstíma. Sjómenn segja óhemju mikið magn af loðnu í sjónum og ljóst að margir bátar munu verða fljótir að fylla kvóta sinn með slíkri veiði, sem verið hefur undanfarna daga. Enn eru um þrjár vikur áður en loðnan verður hæf til hrognatöku. Skipverjar á netabátnum Valdi- mar Steinssyni VE 22 hafa aflað sérlega vel að undanförnu. í janú- ar landaði báturinn níu sinnum alls 303 tonnum og á föstudag landaði hann 37 tonnum til viðbót- ar. Er þá meðalafli í löndun 34 tonn. Þetta eru þau mestu afla- brögð netabáts á þessum árstíma, sem elstu menn hér minnast. Afli bátsins er að mestu ufsi, en einnig nokkuð af þorski. Fjörkippur er nú að færast í vertíðina eftir rólegheit lengst af janúarmánuð. Er ekki annað að heyra á mönnum hér en töluverðr- ar bjartsýni gæti með verðtíðina. Menn telja ótíðina í janúar og rótfiskeríið hjá Valdimar Sveins- syni vita á góða vertíð og þorskur sá sem veiðst hefur er stór og vænn. Togarar hafa aflað ágætlega að undanförnu og er afli þeirra frá áramótum þessi: Breki 328 tonn í tveimur veiðiferðum, Sindri 308 tonn í þremur veiðiferðum, Klakk- ar 204 tonn í tveimur veiðiferðum, Bergey 208 tonn í 4 veiðiferðum og Vestmannaey 73 tonn í einni veiði- ferð. Hkj. Ljósm.: Sigurgeir. Mikil loðnuveiði hefur verið að undanförnu og koma bátarnir inn með fullfermi hver á eftir öðrum. Þessi mynd var tekin í Eyjum um helgina og eru það Helga II RE og Þórður Jónasson EA, sem bíða hér drekkhlaðnir eftir löndun.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.