Morgunblaðið - 08.02.1984, Page 18

Morgunblaðið - 08.02.1984, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 1984 Um sam- félagsfræði Tólf athugasemdir í tilefni af blaðaskrifum — eftir dr. Wolfgang Edelstein Inngangsorð Umræður um samfélagsfræði og íslandssögu bárust mér ekki til eyrna fyrr en nú um áramót. Þótt seint sé, langar mig til að leggja orð í belg þar sem málið er mér nákomið: ég stóð fyrir vinnuhópi um gerð námsefnis í samfélags- fræði á vegum menntamálaráðu- neytisins þegar verkið hófst af fullum krafti 1974 og hef tekið þátt í því síðan. Hér skal þó ekki rætt sérstaklega um hlutdeild íslandssögu í námsefni samfélags- fræðinnar; því efni hafa verið gerð ágæt skil og ranghermi um afnám íslandssögu og staðhæfingar um að hún sé á hrakhólum stödd í nýju samfélagsfræðinni hrakin með augljósum rökum. Hins vegar hafa ýmsir aðrir þættir málsins ekki hlotið tilhlýðilega athygli. Ég mun draga nokkra þeirra fram í upphafi máls míns en fjaila svo nánar um þá á eftir. A. Endurskoðun námsefnis í sögu, landafræði, svo og átthaga- fræði og fleiri efnisþáttum undir heitinu samfélagsfræði er hluti af heildarendurskoðun námsefnis í öllum námsgreinum og öllum ár- göngum grunnskólans. Þessi endurskoðun hefur fylgt reglum og venjum sem allir geta kynnt sér. B. Breytingar á sögu og landa- fræði, þ.e. efni, gerð og markmið hinnar samþættu samfélagsfræði hafa verið margkynntar bæði kennurum, sérfræðingum og öll- um almenningi um hartnær 10 ára skeið. C. Efni, gerð og markmið sam- félagsfræði á grunnskólastigi eiga litla eða enga samleið með því námsefni sem notað er á félags- sviði framhaldsskólastigsins og stundum hefur gengið undir heit- inu samfélagsfræði. D. Leitast hefur verið við að fá valinkunna menn og sérfróða um íslandssögu, landafræði, mann- kynssögu, fornleifafræði, mann- fræði, hagfræði o.s.frv. til liðs við höfunda samfélagsfræðinnar, til að fara yfir og gagnrýna allar námseiningar sem samdar hafa verið undir merkjum hennar. E. Þeir sem unnið hafa að þessu verki hafa gert það í þágu nem- enda og kennara, með hliðsjón af þroska þörfum nemendanna á grundvelli og faglegrar þekkingar og með tiltæka fræðiþekkingu um námsefnisgerð að leiðarljósi. Þeir voru sannfærðir um að þeir væru að framfylgja yfirlýstri stefnu lögmætra yfirvalda og að þeir hefðu að bakhjarli meirihlutavilja þeirra sem létu sig skólamál varða. F. Þai) er hrein firra að halda að samfélagsfræði sé samsæri eða tilraun til vinstri innrætingar, svo sem hverjum verður ljóst á auga- bragði sem kærir sig um að berja námsefnið augum. Samfélags- fræðin er vísvitandi tilraun til að framfylgja markmiðsgrein grunn- skólalaganna, og að svo miklu leyti sem þessi námsgrein er póli- tísk er hún „borgaraleg“, lýðræð- issinnuð og tekur mið af velferð einstaklingsins. 1. EndurskoÖun námsefnis á grunnskólastigi Heildarendurskoðun námsefnis á grunnskólastigi hefur verið meginverkefni skólarannsókna- deildar menntamálaráðuneytisins síðan um 1970. Þetta er um- fangsmikið verk á alþjóðlegan mælikvarða og tekur til allra námsgreina í öllum árgöngum grunnskólans. Samfélagsfræðin er aðeins hluti af þessu heildarverki og villandi að ræða um hana eins og ekkert samband væri milli hennar og annarra þátta þessa heildarverks. 2. Opinber umræða um stefnu Endurskoðun námsefnis á grunnskólastigi var gerð að for- gangsverkefni skólarannsókna- deildar eftir rækilega umfjöllun bæði innan ráðuneytisins og með- al fulltrúa allra stiga, stofnana og starfsstétta menntakerfisins, kennara- og skólastjórasamtaka og á þingum um uppeldismál ár eftir ár allt frá 1966. Það varð fljótt ljóst að námsefni grunnskólans var víða úrelt bæði kennslufræðilega og hvað varðar inntak og að verulegt átak þurfti til nýsköpunar á því. Opinber um- ræða og stefnumörkun um þessi mál fór m.a. fram á fjölmennum ráðstefnum. Einkum ber að minn- ast á tvær ráðstefnur skólamanna á Laugarvatni árin 1971 og 1972, og ráðstefnu í Hrafnagili í Eyja- firði sumarið 1973 þar sem endur- skoðun námsefnis í öllum helstu greinum grunnskólans var rædd ítarlega í ljósi fenginnar reynslu. Endanlega var nú mörkuð sú meg- instefna sem fylgja skyldi, m.a. um tengingu samfélagsgreina og fylgt hefur verið síðan. Þetta verð- ur ljóst, m.a. af viðmiðunar- stundaskrá, sem ráðuneytið gefur út í auglýsingu með reglugerðar- gildi á hverju ári og hefur gert um margra ára skeið. Það er fráleitt að gefa í skyn að ákvarðanir um breytingar á stöðu námsgreina, t.d. sögu og landa- fræði, hafi farið leynt. Hitt er svo annað mál að kennarar hafa verið sjálfráðir um þá ákvörðun hvort þeir kenndu samþætt efni eða héldu hefðbundnum hætti. Eftir sem áður er gamla efnið í fullu gildi — enda af litlu öðru að taka í 5.-9. bekk enn sem komið er — þó margir kennarar kvarti yfir því, en ekki nýjungunum. Þegar öllu er á botninn hvolft virðist óhætt að segja: (a) að fáar ákvarðanir í skólamálum hafi fengið eins ræki- lega, almenna og lýðræðislega um- fjöllun og þær sem teknar voru um endurskoðun og nýskipan sam- félagsgreina og (b) að fáar ákvarð- anir hafi veitt kennurum sjálfum eins mikið svigrúm um fram- kvæmd. Enginn, sem ekki kaus svo sjálfur, var skyldaður til að taka upp nýtt efni eða nýja aðferð. 3. Reglur og venjur um endurskodun námsefnis Til þess að gera mönnum ljóst hvað liggur að baki ákvörðunum um endurskoðun eða framkvæmd- um á þessu sviði er vert að rekja feril endurskoðunar á námsefni í hinum einstöku greinum nokkuð nánar: I framhaldi af hinni al- mennu umræðu á ráðstefnu fyrir og um 1970 myndaðist sú hefð í umfjöllun um endurskoðun náms- greina á grunnskólastigi, að menntamálaráðherra skipaði hverju sinni nefnd kunnra skóla- manna og sérfræðinga til þess (a) að gera úttekt á stöðu greinarinn- ar í íslensku skólastarfi; (b) að bera saman stöðu hennar við sam- svarandi grein(ar) í nágranna- löndunum; (c) að gera tillögur til úrbóta, ef nefndinni þætti þess þörf. Nefndarálitin voru birt og send fjölmörgum aðilum til um- sagnar. Flestar nefndanna gerðu einnig framkvæmdaáætlanir um gerð nýs námsefnis (þ.e. tilrauna- útgáfur, tilraunakennslu, um kynningu og námskeið, kostnað og mannaflaþörf til verksins í heild). Liggur fyrir safn álitsgerða um endurskoðun námsefnis í hinum ýmsu greinum, og er þar saman kominn mikill fróðleikur bæði um inntak greina og vinnubrögð skólarannsóknadeildar, sem áhugamenn um mennta- og skóla- mál gætu skoðað sér að meina- lausu. 4. Nefndarálit um samfélagsgreinar Svo sem ofangreind vinnubrögð gerðu ráð fyrir var nefnd skipuð árið 1970 til að gera úttekt á stöðu og ástandi samféiagsfræða á grunnskóiastigi. í nefndinni sátu Andri ísaksson prófessor, Haukur Helgason skólastjóri, Loftur Gutt- ormsson sagnfræðingur og Stefán ól. Jónsson deildarstjóri. Nefndin skilaði áliti og tillögum í desember 1971. Nefndarálitið var birt í fjölriti sem siður var og sent fjölmörgum aðilum til umsagnar og til upplýsingar. Meginniður- staða nefndarinnar var að stefna bæri að samþættingu samfélags- greina, auka kennsluna, leggja áherslu á meginatriði, skilning og virka vinnu nemenda, m.a. í formi heildstæðra verkefna. Þetta nefndarálit varð svo umræðu- grundvöllur á þinginu að Hrafna- gili sem áður er getið um. Sú um- ræða leiddi til nokkurra breytinga þar sem sýnt þótti að tillögur um inntak hinnar samþættu greinar bæru að hluta of mikinn keim af átthagafræðihefðum og stefndu ekki nógu ljóst að því að skil- greina þekkingarmarkmið grein- arinnar í heild. 5. Sérstaða sam- félagsgreina Samþætt samfélagsfræði átti sér ekki svipaða hefð á íslandi og í nágrannalöndum okkar ef frá er talin átthagafræði í yngri bekkj- um bamaskólans og tilraunir fs- aksskóla ti) að nýta erlenda reynsiu hérlendis. Það hlaut því að sumu leyti að verða vandasam- ara verk að endurnýja samfélags- greinar og móta í nýrri mynd heldur en hefðbundnari greinar eins og stærðfræði eða eðlisfræði, svo dæmi séu nefnd, en þær höfðu til viðmiðunar fastmótaðar vís- indagreinar. Fræðsla um samfélagið var þó að flestra dómi ekki síður mikil- væg en fræðsla um náttúruna, og það því fremur sem samfélagið varð margbrotnara og þjóðfélags- gerðin flóknari. Greinin átti því allt í senn að miðla þekkingu um ýmis svið sem iítið hafði verið fjallað um á þessu skólastigi, vekja spurningar og hjálpa nem- endum að átta sig á hinu verka- skipta og torskilda þjóðfélagi sem tekið hafði við af „gagnsæju" bændasamfélagi fyrri tíma. Fyrstu tilraunir vinnuhóps til að semja námseiningar voru ítar- lega ræddar á Hrafnagilsfundin- um 1973 (ásamt nefndarálitinu). Samkomulag varð um að stofna skyldi til vinnuhóps, er mundi starfa að því veturinn eftir — í framhaldi af umræðunni og tillög- um nefndarinnar — að gera heild- aráætlun um uppbyggingu skipu- legrar „samfélagsfræði" fyrir grunnskólann allan og jafnframt hefjast handa um samningu námsefnis. 6. Gerö greinarinnar í grundvallaratriö- um Um veturinn lagði vinnuhópur reyndra sögu- og landafræðikenn- ara á barna-, unglinga- og fram- haldsstigi auk nokkurra ráðgef- andi sérfræðinga undir stjórn greinarhöfundar nánari drög að hinni „nýju“ grein. Jafnframt hófst vinna að einstökum náms- einingum, einkum fyrir barnastig- ið. Námsefnisgerðin átti að taka mið af þroskasálfræði náms, möguleikum til að virkja nemend- ur, og nýta reynslu barna eftir því sem unnt var. Tengja skyldi land- fræðilega og sögulega þætti náms- efnisins mannfræðilegum, hag- fræðilegum, félagslegum og sál- fræðilegum þáttum með eftirfar- andi markmið fyrir augum: nem- endur skyldu öðlast skilning á samtíð sinni og sögu; tengslum einstaklingsins við umheiminn; mannsins við náttúruna; fslands- sögu við mannkynssögu. Á ungl- ingastigi skyldi áhersla lögð á nútímann — þ.e. iðnbyltingu og þéttbýlismyndun og afleiðingar þeirra fyrir einstakiinga og þjóðir, sérstaklega íslendinga. Efnisþættirnir eða viðfangsefni fyrir einstök námsár eru í stórum dráttum þessi: 1. námsár: Fjölskyldan og skól- inn. 2. námsár: Líf og umhverfi í sveit, þorpi og borg á íslandi. 3. námsár: ólíkar lífvistir manna: líf í köldu landi (Grænland fyrr og nú); líf í heitu landi (Tanz- anía fyrr og nú); við sjávarsíð- una á íslandi fyrr og nú. (Ráð- gert er og að semja námsein- ingu um „Líf fólks á íslandi áð- ur fyrr“ þar sem sjálfsþurft- arbúskapur íslendinga á fyrri öldum er meginviðfangsefnið. Þetta námsefni ætti að geta nýst frá þriðja námsári til unglingastigs eftir því hvernig það er kennt.) 4. námsár: Samskipti, siðir, venj- ur, reglur, lög; uppruni manna á jörðinni; steinöld; landnám fslands; daglegt líf á landnáms- öld; víkingar: heiðni og kristni; fyrstu aldir fslandsbyggðar. 5. námsár: fsland og umheimur þess: drög að landafræði Evr- ópu. 6. námsár: Landafundir og líf- vistir manna í útálfum, „út- breiðsla Evrópu" um heiminn. 7. námsár: ísland: frá fátækt til framtaks (þ.e. saga íslands, einkum atvinnu- og menningar- saga, frá því um 1700 fram til um 1920). Landafræði íslands, jarðfræði. 8. námsár: Iðnbylting og stjórn- bylting: Nútímasagna og áhrif hennar á íslandi. Islenskt sam- félag 1920 til vorra tíma. 9. námsár: ísland: nútímaþjóðfé- lagið og vandamál þess. Einn heimur: heimssamfélagið. Þess gefst auðvitað ekki kostur hér að lýsa því sem liggur að baki þessum fyrirsögnum, en þó gefa þær nokkra vísbendingu um stefnu, inntak og aðferð: Það er farið frá næsta umhverfi til hins fjarlægara, frá umhverfiskönnun til sögunáms, frá heimahögum heiman, frá einföldum fyrirbær- um til flókinna. Söguleg fyrirbæri eru staðsett í umhverfi sínu á yfir- borði jarðar og í lífvistum hennar og tengd þeim á skipulegan hátt. Dr. Wolfgang Edelstein Stefnt er að því að nemendur verði virkir, spurulir og forvitnir við námið. Markmiðið er að nemendur skilji það sem fjallað er um og þess vegna er mikil áhersla lögð á kennsluaðferðir sem stuðla að þessum markmiðum. Það er að sönnu hægara sagt en gert að fylgja þessum markmiðum í námsefnisgerð og kennslu. Eru umfangsmiklar kennsluleiðbein- ingar m.a. til vitnis um það, — og virðast þó ekki allar hafa tekist nógu vel. Mörg námskeið hafa ver- ið haldin um efni og kennsluað- ferðir, oftast við góðan róm þátt- takenda. Áhugamönnum um efni og kennsluaðferðir skal bent á námskrá um samfélagsfræði og útkomið námsefni (hjá Náms- gagnastofnun). Ekkert af þessu fer leynt. Betur sjá augu en auga. Ekki sakaði að umræðan færi fram á grundvelli heimildanna. 7. llpplýsingar um samfélagsfræðina Niðurstöður vinnuhóps voru birtar 1974 í bæklingi sem gefinn var út í stóru upplagi á vegum Menntamálaráðuneytisins (Um samfélagsfræði). Bæklingnum var dreift til allra skóla landsins, til stofnana og til fjölmiðla. Þó fjöl- miðlar gæfu málinu ekki mikinn gaum (skólamál þykja sjaldan blaðamatur — og menntamála- stefna jafnvel enn síður — nema hægt sé að nýta þessi málefni í öðru skyni), þá var samfélags- fræðin nokkuð rædd í sjónvarps- þáttum á þessum tímum (m.a. í þætti þar sem Eiður Guðnason ræddi við höfund þessarar greinar af skilningi og innsæi); ennfremur í blaðagreinum, á fundum kenn- arasamtaka, og ekki síst á kenn- arastofum þar sem tilraunaefni var kennt. Rétt er að minnast hér einnar slíkrar umræðu sérstak- lega: Vorið 1974 fór fram ágæt ráðstefna í háskólanum, þar sem sagnfræðingar ræddu um „sögu og samfélagsfræði“ sem námsgreinar og vinnuhópar og höfundar sátu fyrir svörum. Eftir því sem verki miðaði áfram, voru upplýsingar um stöðu þess og horfur birtar í bæklingum ráðuneytisins, ræddar á haust- þingum kennarasamtakanna á ári hverju vítt um land og við hundr- uð kennara sem sóttu námskeið í samfélagsfræði á vegum Kennara- háskóla íslands. Þá voru kennarar og skólastjórar beðnir að koma upplýsingum um samfélagsfræði til foreldra þegar efni hennar var tekið til kennslu og mörg verkefni kröfðust beinlínis samvinnu við foreldra. Allmargir svonefndir „verkstæðisskólar" tóku að sér sérstaklega að fylgjast með sam- félagsfræðinni og skipuleggja kerfisbundna tilraunakennslu í greininni. Tugir kennara kenndu námsefnið í tilraunaskyni á hverju ári, gagnrýndu það og lögðu höfundum ráð. Taka ber skýrt fram að enginn kennari eða skóli hefur nokkru sinni verið skyldaður til að taka upp samfélagsfræðiefni móti vilja sínum eða gegn betri vitund. Þvert á móti: Námstjórar greinarinnar og vinnuhópar lögðu á það hið mesta kapp að enginn kenndi efn- ið sér þvert um geð og að efni hinna hefðbundnu greina héldi Iöggildi sínu óskertu. Hitt er ann-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.