Morgunblaðið - 08.02.1984, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 08.02.1984, Qupperneq 42
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 1984 42 Steinunn G. Guðna- dóttir — Minning Fædd 19. september 1924 Dáin 30. janúar 1984 Mér er ljúft að minnast Stein- unnar frænku minnar, sem ég hef haft kynni af allt frá æskudögum mínum. Hún lést í Borgarspítalan- um 30. janúar sl., eftir nokkurra daga legu. Enda bar lát hennar brátt að, án nokkurs undirbún- ings. Foreldrar hennar voru Lovísa Svava Jónsdóttir í Hvítadal í Saurbæ, Halldórssonar og Guðni Jóhannesson, sjómaður, Pálssonar formanns í Bolungarvík, Össur- arsonar í Hnífsdal. Steinunn missti móður sína 1. janúar 1933, rúmlega átta ára gömul, og tvístraðist þá systkina- hópurinn til ættingja og vanda- manna. Þá voru börnin orðin sjö. En þau voru: Þóra, Kristrún, Steinunn, Markúsína (sem ólst upp hjá foreldrum mínum), Jó- hannes og Svavar, en 7. barnið, Lovísa, lést tveimur árum eftir lát móðurinnar. Steinunn ólst upp frá þeim tíma hjá föðursystur sinni Guðrúnu Jónu Jóhannesdóttur og manni hennar Guðjóni Sveinssyni, Jónssonar, Sigurðssonar í Neðri- húsum í Ónundarfirði, einnig ólu þau upp frænda Steinunnar, Guð- jón Kristján Þórarinsson, sem búsettur er í Svíþjóð. Þau Jóna og Guðjón eru látin fyrir nokkrum árum. Þau voru barnlaus. Stein- unn giftist eftirlifandi manni sín- um Guðmundi Jónassyni, skipa- smið, Jónssonar skipasmiðs í Reykjavík, Guðmundssonar á Hrauni. Þau eignuðust tvö mann- vænleg börn, Guðjón smið, kvænt- an Karen Christensen, og eiga þau einn son, Snorra Stein, og Marg- réti sagnfræðing. Áður en Steinunn giftist Guð- mundi vann hún við verslunar- störf hér í borg. Kom sér þá vel hennar prúða framkoma og snyrtimennska, sem henni var í blóð borin. Enda bar heimili henn- ar glöggt vitni um góðan smekk og sérstaka snyrtimennsku, sem þau hjónin voru svo mjög samtaka um. Henni var annt um systkini sín og gerði mikið til að hafa samband við þau. Minnist ég gleðistunda á heimili þeirra Steinunnar og Guð- mundar með þakklæti. Einnig minnist ég er faðir Steinunnar, Guðni Jóhannesson, varð 90 ára og öll fjölskyldan kom saman sem hafði tvístrast, vegna fráfalls móðurinnar, fyrir 50 árum. Mjög svo hugljúf gleðistund, sem seint mun gleymast. Við hið ótímabæra fráfall Stein- unnar er mikill harmur kveðinn að eiginmanni og börnum. Vinir hennar og aðrir unnendur sakna hennar einnig sárt — og allir þeir mest, er þekktu hana best. Garðar Sigurðsson Að kvöldi 30. janúar siðastliðins lést í Borgarspítalanum Steinunn Guðrún Guðnadóttir, langt um aldur fram. Steina, eins og við kölluðum hana, fæddist í Reykjavík 19. sept- ember 1924, dóttir Guðna Jóhann- essonar sjómanns og konu hans Svövu Lovísu Jónsdóttur, næstelst sjö barna þeirra. Árið 1932 deyr Svava móðir Steinu frá barna- hópnum. Systkinunum var komið í fóstur hjá vandamönnum. Steina fóstraðist hjá Jónu Jóhannesdótt- ur föðursystur sinni og manni hennar, Guðjóni Sveinssyni, en þau tóku einnig að sér annað frændsystkini Jónu, Guðjón Þór- arinsson, sem nú býr í Svíþjóð. Jóna og Guðjón Sveinsson eru nú bæði látin. Hinn 23. febrúar 1952 giftist Steina eftirlifandi eiginmanni sín- um, Guðmundi Jónassyni skipa- smið. Þau eignuðust tvö börn, Guðjón húsasmið og Margréti sem stundar háskólanám. Guðjón er kvæntur Karen Christiansen og eiga þau soninn Snorra Stein, en Margrét býr enn í foreldrahúsum. Steina og Guðmundur hófu snemma að reisa sitt eigið hús að Básenda 7 hér í borg. Á þeim árum átti ungt fólk eins og þau fátt ann- að að veganesti til húsbyggingar en bjartsýnina og samheldnina. En með elju og þolinmæði hefur þeim tekist að byggja upp fallegt heimili. Steina hafði unun af því að fegra og prýða heimili sitt og naut smekkvísi hennar sín þar til fulls. Hver hlutur vandlega valinn og svo haganlega fyrir komið að þeir gáfu heimilinu hlýlegt yfirbragð. Það er erfitt að ímynda sér Bás- enda-heimilið án Steinu, en við fáum að njóta handbragðs hennar sem þar er á öllu. Hún var mikil atorkumanneskja og vann af miklum krafti að því sem hún tók sér fyrir hendur. Ber ekki aðeins heimilið þessu vitni heldur og umhverfi þess, garður- inn sem hún snyrti af alúð þá fáu mánuði ársins sem færi gafst. En Steina og Guðmundur létu þar ekki við sitja. Síðasta sumar hófu þau byggingu sumarbústaðar á eigin landi við Þingvallavatn. Hver frístund var notuð til að koma honum upp. Þegar við lítum yfir farinn veg minnumst við margra ánægju- stunda í Básenda, ekki síst er við hittumst þar um hver áramót. Kom þá vel í ljós hin mikla hlýja og alúð sem einkenndi viðmót Steinu. Hún var höfðingi heim að sækja, gestrisin og rausnarleg. Með sinu hlýja viðmóti laðaði hún að sér litla frænda sinn, Ragnar. Áttu þau saman margar skemmtilegar stundir, einkum þegar hann átti að „hjálpa" henni í garðinum, en eflaust fór þó meir fyrir spurningum hjá Ragnari. Það var mikil ánægjustund í lífi Steinu þegar fyrsta barnabarnið fæddist fyrir aðeins tveimur árum síðan. Augasteinninn hennar, Snorri Steinn, sem hún síðan gætti hluta dags. Ríkur þáttur í fari Steinu var hjálpsemin, kom það vel í ljós er Sína systir hennar og vinkona átti um sárt að binda vegna fráfalls manns síns. Reyndist þá Steina hennar stoð og stytta á þeim erf- iðu tímum. Þakklæti er okkur efst i huga þegar við nú kveðjum Steinu, sem gaf okkur svo mikið af sjálfri sér. Einnig flytjum við sérstakar þakkir frá Sínu fyrir allt. Elsku Guðmundur, Magga, Guð- jón og Karen, við biðjum guð að styrkja ykkur í sorg ykkar. Minningin um Steinu lifir. Helena, Jón Ingvar, Sigurður og Bryndís Halldóra Þórðar- Minning: Ólafur Þorsteins- son Akranesi dóttir — Fædd 14. maí 1891 Dáin 25. janúar 1984 Halldóra Þórðardóttir var fædd í Ráðagerði á Seltjarnarnesi, dótt- ir hjónanna Þórðar Jónssonar út- vegsbónda og hafnsögumanns þar, og konu hans, Þórunnar Jónsdótt- ur. Halldóra ólst upp í Ráðagerði yngst í stórum systkinahópi. Hún settist í Kvennaskólann í Reykja- vík og að loknu prófi þaðan kenndi hún hannyrðir við Mýrarhúsa- skóla á Seltjarnarnesi um tíma. Á þessum árum voru tímar mikilla breytinga á atvinnuháttum þjóð- arinnar. íslendingar voru að hefja för sína af skútuöld til þeirrar tæknialdar, sem við þekkjum í dag. I Ráðagerði eins og annars stað- ar á Seltjarnarnesi var skútuút- gerð að leggjast niður og með til- komu vélskipa fluttist útgerð að meira eða minna leyti til Reykja- víkur. Á Seltjarnarnesi voru eins og allir vita engin hafnarmann- virki og með bættri höfn í Reykja- vík var ekki nema eðlilegt að út- gerðin af nesinu flyttist þangað. Halldóra Þórðardóttir fylgdist vel með þessum breytingum og hún átti eftir að taka mikinn þátt í þeirri tækni- og iðnaðarbyltingu sem var að hefjast hér á landi, þó ekki snerti sú þátttaka útgerð. Halldóra lét ekki staðar numið þegar skólaverunni í Kvennaskól- anum lauk, heldur hélt hún áfram námi og lagði nú stund á tungu- málanám, má þar nefna dönsku, ensku og þýzku jafnframt frekara hannyrðanámi. Á þessum árum hefur það sennilega ekki verið al- gengt að konur legðu fyrir sig tungumálanám, en það sýnir að hún hefur verið óvenju framsýn kona. Árið 1912 steig Halldóra sitt mesta gæfuspor þegar hún giftist Minning Gísla Guðmundssyni gerlafræð- ingi, miklum mannkostamanni. Við kynni af Gísla hófust jafn- framt kynni Halldóru af þeirri iðnaðarbyltingu sem hér var að hefjast. Gísli Guðmundsson var ekki síður framsýnn maður en hin unga eiginkona hans. Hann hafði numið gerlafræði í Danmörku og farið til frekara náms í Austur- ríki, Þýzkalandi og Frakklandi. Hann hafði áður stofnsett fyrstu gosdrykkjagerð á íslandi, „Sani- tas“. Hann hóf fyrstur manna hér á landi að gerilsneyða mjólk og stuttu síðar stofnsetti hann Smjörlíkisgerðina „Smára" en þá var fyrst hafin framleiðsla á smjörlíki hér. Gísli var einnig einn af stofnendum Mjólkurfélags Reykjavíkur og átti þátt í stofnun fjölmargra fyrirtækja. Hann var forstöðumaður Rannsóknarstofu Ríkisins, formaður framfarafélags Seltirninga og í skólanefnd Mýr- arhúsaskóla. Halldóra tók mikinn þátt í störfum manns síns jafnframt því sem hún stýrði heimilishaldinu af mikilli röggsemi. Halldóra varð fyrir þeirri miklu sorg að missa mann sinn þegar hann var aðeins 44 ára gamall. Stóð hún þá uppi ein með tvö börn þeirra, Guðrúnu og Guðmund, og Björgu bróður- dóttur Gísla, sem alist hafði upp hjá þeim frá 3ja ára aldri, en hún lézt aðeins 21 árs gömul. Halldóra lét ekki deigan síga þrátt fyrir mótlætið, hún bjó áfram í húsi þeirra Gísla á Smiðjustíg 11 í Reykjavík og hélt heimili sitt áfram af mikilli reisn. Börnum sínum kom hún til mennta, Guðmundur nam hús- gagnasmíði og fór til framhalds- náms í Svíþjóð, en Guðrún hélt til náms í Leipzig í Þýzkalandi. Það hefur verið mikið átak að senda börn sín til náms erlendis á árun- um fyrir stríð, enda ekki eins al- gengt þá eins og nú tíðkast. Guðrún giftist síðar Þorvarði R. Jónssyni verzlunarmanni og eign- uðust þau eina dóttur, Eddu, sem Halldóra annaðist unga í langvar- andi veikindum Guðrúnar. Þor- varður og Guðrún slitu samvistir eftir 12 ára hjúskap. Guðmundur kvæntist Guð- björgu Sigurbergsdóttur frá Eyri við Fáskrúðsfjörð og eignuðust þau þrjár dætur, þær Dóru, Oddnýju og Ernu. Langömmu- börnin hennar eru nú 10 talsins. Halldóra Þórðardóttir var glæsileg kona og tíguleg og hún átti allt það til, sem bezt prýðir hverja konu. Hún var kona vel les- in og heima i flestum hlutum og mátti hvergi vamm sitt vita. Hún var trúuð kona og hógvær og hall- mælti aldrei nokkrum manni. Hún hafði mikinn áhuga á spiritisma og las mikið um þau mál. Halldóra gerðist ung félagi í Oddfellowreglunni í Reykjavík og voru henni falin þar ýmis trúnað- arstörf. Sá sem þetta ritar kynntist Halldóru þegar hún var komin á efri ár. Hún bjó þá enn yfir mikilli reisn og tíguleika. Mér verður lengi minnisstætt hvað faðir minn bar mikla virðingu fyrir Halldóru og svo held ég að hafi verið um alla er henni kynntust. Hún varð, eins og áður segir, þátttakandi er iðnbylting var að hefjast á íslandi og fylgdist vel með þeim málum alla tíð síðan, hún var og unnandi góðra lista og miðlaði gjaman af þekkingu sinni. Um leið og ég þakka henni fyrir samfylgdina færi ég þakkir frá börnum mínum, sem hún var svo mikils virði. Megi góður Guð geyma hana. Hálfdán Henrýsson Fæddur 10. aprfl 1910. Dáinn 2. febrúar 1984. Ólafur Þorsteinsson, frændi minn af Akranesi, hefur dvalið á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund í svo fjöldamörg ár, að það er sjónarsviptir að honum, þegar hann er nú fallinn frá. Hann var góður og hjálpsamur við vistfólk og þægilegur í umgengni við starfsfólkið. Hann var hlédrægur og óágengur við hvern mann, enda fór v'nn talsvert einförum. Hann kom á bókasafn Grundar nærri því á hverjum opnunardegi til þess að lesa þar — sá eini á öllu heimilinu sem það gerði. Einnig sótti hann messur á heimilinu á hverjum einasta sunnudegi, árið um kring. Það er óhætt að halda því fram, að slíkur maður sé fyrir- mynd í framkomu á elliheimili. Ólafur fæddist á Krossi á Akra- nesi 10. apríl 1910. Foreldrar hans voru Þorsteinn ólafsson frá Stóru-Fellsöxl, föðurbróður minn og Kristín Eyjólfsdóttir, ættuð af Skaga. ólafur leitaði á sjóinn, fór í smiðju hjá Héðni en fór síðan í Vélstjóraskólann. Síðan var hann á ýmsum togurum, þ.á m. með tog- aranum „Gulltoppi" sem annar vélstjóri og á stríðsárunum var hann á „Súðinni". Eftir veru hans á Súðinni tók heilsu hans að hraka. Varð hann brátt óvinnufær og fór hann þá sem vistmaður á Grund, í marsmánuði 1963. Þar hefur hann átt heima síðan. Árið 1931 giftist Ólafur Ingiríði Guðmundsdóttur og áttu þau þrjú börn: Baldur og Óskar, sem báðir eru sjómenn og verkamenn í Straumsvík, og Sigrúnu, sem gift er íslendingi og búsett í Svíþjóð. Þetta er myndar- og dugnaðar- fólk. Móðir þeirra, Ingigerður, dó fyrir aldur fram 1951. Vistmenn og starfsfólk Grundar sakna þessa góða vinar og senda honum ljúfar kveðjur. Guð veri sál hans náðugur og veiti honum góða heimkomu. Á.Ó.E. t Þökkum öllum þelm er sýndu okkur samúö og hlýhug vlö andlát og jaröarför móöur okkar og systur, PÁLÍNU GUNNLAUGSDÓTTUR, Áshamri 34, Vestmannaayjum. Börn, systkini og aörir vandamenn. Birting afmælis- og minningargreina ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minn- ingargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í mið- vikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. í minn- ingargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Þess skal einnig getið, af marggefnu tilefni, að frumort ljóð um hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíð- um Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.