Morgunblaðið - 17.02.1984, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 17.02.1984, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. FEBRÚAR 1984 7 Skattaþjónustan og Tölvuþjónustan auglýsa: Áratugareynsla i framtalsgerö ein- staklinga, jafnt launþega sem rekstr- araöila. Tímapantanir í síma 82023 kl. 9—17, daglega. Skattaþjónustan sf., Langholtsvegi 115, Bergur Guðnason hdl. 1. Önnumst uppgjör og ársreikninga fyrir rekstraraöila. 2. Einnig bjóöum viö mánaöarlega tölvuvinnslu á fjárhags-, viö- skiptamanna- og launabókhaldi. 4 Tölvuþjónustan sf., bókhalds- og rekstraraöstoö, Langholtsvegi 115, sími 31520. & ORKUSMRAMN ÚTUÓS ÍSKAMMDEGMU Kombi-Pack útiljósið er með 80 watta kvikasilfursperu, sem gefur 4-falt meiri birtu en 75 watta venjuleg Ijósapera, með nánast sömu orku. Það er sterkbyggt og auðvelt í uppsetningu. Kombi-Pack eykur öryggi hvar sem er, t.d. á vinnu- og skólasvæðum, við útihús og á bæjarhlaðinu. Lýsið umhverfið með Kombi-Pack. Heimilistæki hf SÆTUNI 8-S: 27500 Maðurínn „gjörnýtt sam- félagsvera“ í grein um Orwell og 1984 sem birtist hér í Morgunblaðinu sl. sunnu- dag, vekur Sigurlaugur Brynleifsson máls á því, að á tuttugustu öldinni hafí ríki Hitlers, Leníns og Stal- íns einkennst af þeirri stefnu að maðurinn eigi sér aðeins tilverurétt sem gagnsöm og gjörnýtt sam- félagsvera. I»eir sem ekki nýttust á þcnnan hátt hjá þeim Hitler, Lenín og Stal- ín „voru afmáðir". Síðan lýsir Sigurlaugur þeim að- ferðum sem einræðisherrar í þessum samfélögum gripu til í „samfélags- fræði" og hann segir meðal annars: „Til þess að tryggja sem best varanleika samfélags- ins, varð að hafa í hendi sér allar upplýsingar og fræðslu, sem voru kerfinu gagnleg, öll þekking sem stakk f stúf við ríkjandi hugmyndafræði var óæski- leg. Því urðu hinar nýju valdastéttir að ráða bæði hugmyndum manna um nútíð og framtíð og fortíð. Kortiðin var nýtt að svo miklu leyti sem hún hent- aði nútíðinni. Þar með varð bráðnauðsynlegt að slíta algjörlega öll tengsl við for- tíð og arfleifð. Fortíðarsag- an var föLsuð til þess að gera hhit framfara nútím- ans sem glæstastan. Fræðshikerfið var aðlagað samfélagsstcfnunni, ,,skól- inn verður í samvinnu við heimilin að búa nemendur undir líf og starf í (lýðræð- is) samfélagi, sem er í sf- fclldri þróun ...“ Samfé- lagið staðlaði fræðslukerfið í eigin þágu og valið var það til fræðshi um hina dökku fortíð, sem hentaði samfélagsformum framtíð- arínnar. SöguföLsunin hófst með þessum fyrirmælum. Listin var tekin heldur bet- ur í þjónustu samfélagsins, bókmenntir og hljómlist Því samfélagssinnaðri sem valdamenn voru því þrengdi meira að allri ILsisköpun, þykkhúðaðir kerfískontóristar mótuðu listastefnu ríkisins.** Ilmræðan og tillagan um íslandssögukennslu: „Kveikjan hjá Morgunblaðinu“ — sagði Hjörleifur Guttormsson Alþingi og íslandssagan Fyrir þingi liggur tillaga um að átak verði gert til aö styrkja stöðu íslandssögunnar í skólakerfinu, en Eiöur Guðnason er fyrsti flutningsmaður hennar. Umræöurnar um þessi mál hafa þróast í ýmsar áttir. í Staksteinum i dag er rifjað upp það sem Sigurlaugur Brynleifsson sagði um söguna í grein um Orwell og 1984 og teknar setningar úr ræöum þingmanna á þriðjudaginn þegar þeir ræddu sög- una. „Umræðan“ hér og nú Menn þurfa ekki að hafa fylgst náið með um- ræðum um kennshi í ís- landssögu undanfarið til að sjá, að Sigurlaugur Bryn- leifsson sendir þeim sneið hér á landi sem telja skyn.samlega.st að stikla aðeins á stóru í sögu þjóð- arinnar vegna þess að sögukennsla eigi að vera um nútímann en ekki for- tíðina. „Ilmræðan" um íslands- söguna hélt áfram á alþingi þríðjudaginn 14. febrúar síðastliðinn. Meðal þeirra sem tóku til máls var Hjörleifur Guttormsson, en hann er nú talsmaður Al- þýðubandalagsins í öllum málum sem fyrir þingið koma. Eru ræður hans venjulega ekki undir tveimur „hjöllum", það er að segja rúmur hálftími og er kaffistofa þingsins jafn- an þéttsetin þennan hálf- tíma. Ein ásta-ðan fyrír því að þingmenn telja sér fyrir bestu að drekka kaffi á meðan Hjörleifur talar, er að hann ver jafnan löngum tíma til að lesa upp úr Morgunblaðinu í ræðustól þingsins. Allir þingmenn fá blaðið og finnst þeim óþarft að láta Hjörleif matreiða efni þess ofan í sig. Kæða Hjörleifs Gutt- ormssonar um íslandssög- una snerist að mestu leyti um Morgunblaðið. Var Hjörleifur hinn reiðasti yfir því að blaðið skyldi hafa vakið máls á sögukcnnslu í íslenskum skóhim, það ætti að láta sérfræðingum í samfélagsfræði söguna eft- ir. f lok ræðu sinnar mælti Hjörleifur þessi orð: „Það er nánast ekki hægt að líkja því við annað heldur en upphaf að einskonar galdraofsóknum, eins og þar hefur veríð gengið fram.“ Þá vita menn það. Hjörleifur Guttormsson lít- ur þannig á að skrif í Morgunblaðinu um ís- landssögukennslu síðan { nóvember 1983 séu „upp- haf að einskonar galdra- ofsóknum". Ih-ssí viðbrögð Hjörleifs Guttormssonar eru dæmi- gerð fyrir þá sem eru hræddir við almennar um- ræður um eitthvert mál og vilja þagga þær niður, hvað sem það kostar. Talsmaður Alþýðubandalagsins vill að „umræðunni" sé hætt hér og nú. Kemur það ekki á óvart miðað við söguleg viðhorf Hjörleifs Gutt- ormssonar til miðlunar á upplýsingum til almenn- I ings, en skoðanir sínar í þeim efnum hefur hann sett skýrast fram í SÍA- skýrslunum. Afstaða Kvennalistans Tveir þingmenn Kvennalistans tóku til máls um fslandssöguna á þriðjudaginn. Sigríðnr Dúna Kristmundsdóttir hafði þetta m.a. til mál- anna að leggja: „Staðreyndin er em- faldlega sú, að í íslands- sögunni er að miklu leyti þagað um íslenskar kon- ur... Okkur nægir að skoða þá mynd af nútíðar- sögunni, sem birtist okkur dags daglega í dagblöðun- um. Þar er þagað þunnu hljóði um það, sem konnr hafa til málanna að leggja," Ohætt er að fullyröa, að Sigríður Dúna gat ekki val ið sér órökstuddara dæmi til að rökstyðja alhæfingn sína um fslandssöguna. Engu er líkara en hún hafí ekki einu sinni kynnst 120 árum þjóðarsögunnar, hvað þá heldur hún hafi lesið fornsögurnar en kon- ur eru ýmist hreyfiafl eða höfuðpersónur þeirra flestra. Utsala - Utsala Útsala Sérverslun meö barnafatnaö finnska LAUGAVEGI 28, SÍMI 22201.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.