Morgunblaðið - 17.02.1984, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. FEBRÚAR 1984 15
„Ég trúi á mátt
upplýsingarinnar"
Ljósm. Mbl. KKK.
„Adalatriðiö er aö týna ekki
sögu sinni og menningu," segir
Mari Kollandsrud, arkitekt frá
Osló, sem stödd er hér á landi
um þessar mundir í boöi Nor-
ræna hússins og Árbæjarsafns.
Hún er framkvæmdastjóri For-
tidsminneforeningen, sem eru
heildarsamtök félaga áhuga-
manna um verndun fornminja í
Noregi. Hún hefur undanfarna
daga haldiö erindi hér á landi
um verndun húsa í Noregi sem
og um varðveislu gamalla trjáa
og framhald af átakinu „Plant et
tre“ sem hún stóö fyrir árið 1977.
Við gefum henni orðið:
„Þessi samtök okkar eru ein
elstu umhverfisverndarsamtök í
Norður-Evrópu, en þau voru
stofnuð árið 1844. Þá var sterk
þjóðernishreyfing í Noregi eftir
að við losnuðum úr sambandi við
Svíþjóð og allt menningarstarf
blómstraöi. Það má segja, að það
sem skilur okkar starfsemi frá
svipaðri starfsemi annarra
þjóða megi kannski rekja til
þess, að embætti þjóðminjavarð-
ar í Noregi var ekki formlega
stofnað fyrr en árið 1912. Fram
að þeim tíma var það Fortids-
minneforeningen sem sá um
verndun og viðhald allra þjóð-
minja í landinu og hafði mann á
launum frá ríkinu við starfann.
Síðan hafa samtökin starfað sem
áhugamannahópur og við höfum
helgað okkur þjóðminjum sem
ekki falla undir embætti þjóð-
minjavarðar. Hvarvetna er
- segir Mari Kol-
landsrud, arkitekt
frá Osló, sem er
hér á landi í boði
Norræna safnsins
og Arbæjarsafns
fjöldinn allur af minjum sem
ekki er friðaður, en sem að okkar
mati verður að varðveita", segir
Mari Kollandsrud.
En hvernig er starfseminni
háttað?
Við höfum þann háttinn á, að
við erum fjögur fastráðin við að-
aldeildina í Osló, en síðan höfum
við 20 deildir víða um land þar
sem áhugamenn starfa kaup-
laust. Það má náttúrulega segja,
að þær eru ekki allar jafn af-
kastamiklar, en ég tel að allir
geri sitt besta. Fólk hefur mis-
mikinn tíma til starfa sem þess-
ara. Síðan gefum við út tímaritið
Fortidsvern fjórum sinnum á ári
og sendum til allra félaga okkar.
Þar reynum við að miðla sem
mest af upplýsingum því við telj-
um að með því náum við til
flestra. í blaðinu er fjallaö um
minjar, gömul vinnubrögð og
þar eru gefnar leiðbeiningar um
viðhald og endurnýjun gamalla
húsa. Ég trúi á mátt upplýs-
ingarinnar í þessu sambandi.
Hvernig fjármagniö þiö starf-
semina?
„Nú, í samtökunum eru um
6000 manns sem borga fast ár-
gjald og síðan fáum við ríkis-
styrk. Við leggjum mikla áherslu
á að varðveita þær 36 eignir sem
samtökin eiga sjálf, en þar á
meðal eru 8 af 32 stafkirkjum
sem eftir eru í Noregi. Fáum við
góða hugmynd getum við einnig
sótt um styrki til norska menn-
ingarmálaráðsins. Það höfum
við nokkrum sinnum gert og hef-
ur það gefið góða raun. Við gáf-
um t.d. nýverið út upplýsinga-
bækling um glugga fyrr og nú
með aðstoð þess, sem vakið hefur
feikilega mikla athygli. Við
reynum að miðla upplýsingum á
þann hátt að þær verði skemmti-
legar og höfum tekið eftir að
starf okkar er farið að bera
árangur. Ef við viljum fá fólk
með verðum við að geta gefið góð
ráð. Fólk hefur í raun áhuga, allt
sem það vantar eru upplýsingar.
Varðandi viðhald á eignum
okkar, þá fáum við styrki frá
ríkinu — slíkt höfum við ekki
fjárhagslegt bolmagn til að
framkvæma."
Þiö beitiö ykkur fyrir varöveislu
á fleiri hlutum en húsum og híbýl-
um?
„Já, við höfum beitt okkur
fyrir endurgerð gamalla skipa,
brúa og vega. Við teljum að öll
þau spor sem maðurinn hefur
skilið eftir sig hafi þýðingu fyrir
nútímann, jafnt sem framtíðina.
Það er þá annað hvort vegna
þess að um er að ræða fallega
Mari Kollandsrud, arkitekt frá Osló.
hluti eða eitthvað sem hefur
sagnfræðilegt gildi."
Þú flytur einnig fyrirlestra
hjá Skógræktarfélagi Islands og
Félagi landslagsarkitekta meðan
á dvöl þinni stendur hér?
„Það kemur til vegna þess að
ég hef í mörg ár verið félagi í
norska garðyrkjufélaginu. Við
fengum þá hugmynd að koma af
stað hreyfingu sem við kölluðum
„Plant et tre“ árið 1977 og lét ég
þá tala mig inn á að taka að mér
að stjórna því fyrirtæki. Það
hafði ég þó í rauninni aldrei ætl-
að mér, enda haft meira en nóg
að gera þau fimm ár sem ég hef
starfað hjá Fortidsminneforen-
ingen. Það kann að hljóma ein-
kennilega í eyrum íslendinga að
Norðmenn takist á hendur svo
markvissa gróðursetningu trjáa,
en tilgangurinn var sá að fá
fleiri tré og meiri gróður í borgir
og bæi. Af skógum höfum við
nóg, en okkar draumur var að fá
fólk til að hugsa jafn mikið um
trjágróður við byggingu húsa
sinna og almennar rörlagnir.
Þetta gekk það vel að við vitum
um 200.000 tré sem voru gróð-
ursett fyrir okkar tilstilli. Við
stofnuðum síðar félag sem við
köllum „Treets venner" og gefum
í sambandi við það út upplýs-
ingablað um tré og trjágróður.
Varðandi ísland dettur mér í
hug í þessu sambandi, að ég hef
alltaf heyrt að hér væru engin
tré. Ég get hins vegar ekki séð
annað en þið íslendingar hafið
verið leiknir í því að græða upp í
kringum ykkur. Aðalatriðið er
bara að gefast ekki upp,“ sagði
þessi hressilega og afkastamikla
kona að lokum.
Höfðaströnd:
Snjóa hefur tekið upp - mikil svellalög
Bc í Höíiaströnd, 16. febrúar.
ÞÓ ÞENNAN dag sé aðeins sunn-
ankaldi og hlýindi, þá hefur und-
anfarið verið stórviðri á suðri og
suðvestri, en ekki hefur rignt mik-
ið. Snjóa hefur þó mikið tekið
upp, sem að okkar mati hafa oft
verið meiri. Svellalög eru þó tölu-
verð, en aðalvegir að verða auðir.
Á Hofsósi er byrjað á skel-
veiði og hvað sem framhaldið
verður þá vantar frekar fólk til
vinnu á staðnum. Togarar á
Sauðárkróki hafa fiskað vel að
undanförnu og hefur því at-
vinna í frystihúsunum verið
með betra móti.
Skemmtanatími héraðsins er
nú með mesta móti og má segja
að þorrablót séu haldin í hérað-
inu tvisvar í viku og þau sækja
aldnir sem ungir og skemmta
sér vel saman. Er þetta að verða
gamall siður, eða frá 1887, að
fyrsta þorrablót mun hafa verið
haldið að Hólum í Hjaltadal, þó
með nokkru öðru sniði en nú er.
Fólkinu líður vel og unir vel
við sitt.
Björn í Bæ.
I
A AP BILASIMANUM.
VERÐ AÐEINS
KR.57.500-
Vegna breytinga á tollalögum getum viö nú boðið
AP 2000 bílasímann á stórlækkuðu verði.
AP 2000 bílasíminn hefur nú þegar sannað ágæti sitt við
íslenskar aðstæður og viðhaldsþjónusta Heimilistækja er
sú traustasta á landinu.
AP 2000 er til á lager, til afgreiðslu strax.
Við erum sveigjanlegir í samningum.
0
Heimilistæki hf
SÆTÚNI 8-S: 27500
OOTT FOLK