Morgunblaðið - 17.02.1984, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. FEBRÚAR 1984
23
Hagkaup hafnaði styrk til reksturs dagheimilis:
Okkur fannst þetta
harla lítill styrkur
- segir Gisli Blöndal, fulltrúi framkvæmdastjóra
„l>ETTA kemur fyrst og fremst til af því art okkur fannst þetta harla lítill
styrkur. Við fórum fram á að fá sama styrk greiddan og greiddur er til
annarra heimila, eins og til d«mis heimila Sumargjafar og KFUM, en þau
styrkir horgin um 50% af rekstrarkostnaði, en bjóða okkur 17%,“ sagði Gísli
Blöndal, fulltrúi framkvæmdastjóra Hagkaups í samtali við Morgunblaðið.
Nýlega hafnaði Hagkaup styrk
frá Reykjavíkurborg, vegna rekst-
urs dagheimilis fyrir starfsmenn
fyrirtækisins. Óskaði Hagkaup
eftir 50% rekstrarstyrk, en var
boðið 17%, og ákváðu forráða-
menn Hagkaups að leggja heimilið
niður.
„Okkur fannst þessi styrkur
ekki nægilegur til þess að halda
áfram rekstri heimilisins, og þetta
er aðalskýringin. Hin skýringin er
sú að aðsókn að heimilinu hefur
minnkað og þar af leiðandi ekki
eins áhugavert í augnablikinu
fyrir okkur að standa í þessum
rekstri, en við höfum rekið dag-
heimilið síðan fyrir miðjan sl. ára-
tug,“ sagði Gísli.
Gísli var spurður að því, hvað
yrði um börnin sem á heimilinu
væru, og svaraði hann því til að
það fólk sem átt hefði börn þar,
væri að leita sér að plássi fyrir
börnin, „og höfum við ákveðið að
aðstoða fólkið við ,það og greiða
kostnaðinn eitthvað niður,“ sagði
Gísli Blöndal.
Greenland far-
ið til veiða
IsafjörAvr, IS. lebráar.
Grænlenski rækjutogarinn Green-
land bélt til veiða frá ísafirói síödeg-
is í dag, fimmtudag.
Skipið lenti í erfiðleikum um 90
sjómílur undan Vestfjörðum um
síðustu helgi. Varðskipið Ægir fór
togaranum til aðstoðar. Þegar
Ægir kom á staðinn, var vont veð-
ur og gekk erfiðlega að koma
dráttartaug yfir í rækjutogarann,
sem rak vélarvana undan sjó og
vindi. Togarinn hafði fengið á sig
brotsjó og tók vörpu hans út með
þeim afleiðingum að hún fór í
skrúfu skipsins.
Eftir að tekist hafði að koma
dráttartaug í Greenland, var hald-
ið áleiðis til ísafjarðar og komu
skipin þangað að morgni síðastlið-
ins sunnudags. Sjópróf fóru fram
hjá bæjarfógetanum á ísafirði á
mánudag.
Úlfar.
„Sherry-skinka44
á markaðinn
FYRIR nokkrum dögum var haldinn
stjórnarfundur í Hagsmunasamtök-
um hrossabænda í bændahöllinni í
Reykjavík. Vió það tækifæri kynnti
Gunnar l*áll Ingólfsson nýjung frá
fyrirtæki sínu ísmat hf.
Þetta var skinka búin til úr
hrossakjöti og svínakjöti. Nafnið
var komið og var það „Sherry-
skinka." Samsetningin er þannig:
75% hrossakjöt og 25% svínakjöt,
engin aukaefni nema dálítið krydd
og svo nokkrir dropar af sherry til
að „mýkja kjötið“ eins og Gunnar
orðaði það.
Allir sem lentu í því að bragða á
skinkunni voru sammála um
ágæti hennar, þó hafði einn stóð-
eigandi orð á því að hann saknaði
þess að finna ekki bragð af
hrossakjötinu. Gunnar Páll taldi
þessa skinku verða mun ódýrari
en skinku sem búin til á hefðbund-
inn hátt úr svínakjöti.
(Fréttatilkynning)
Yfirmenn á íslenzka flotanum:
Tæplega sextán
hundruð undanþágur
- frá október 1982 til jafnlengdar 1983
PÉTUR Sigurðsson, alþingismaður, bar nýlega fram á Alþingi
fyrirspurn til samgönguráðherra um veittar undanþágur til að
gegna stöðum yfirmanna í íslenska flotanum. Skriflegt svar
ráðherra var lagt fram í Sameinuðu þingi fyrir nokkru. Þar
kemur fram að á tímabilinu 1. október 1982 til jafnlengdar 1983
vóru veittar 1592 undanþágur til að gegna slíkum störfum. Þess-
ar undanþágur sundurliðast sem hér segir:
Undanþágur til skipstjórastarfa 161
Undanþágur til stýrimannastarfa 437
Undanþágur til fyrsta vélstjóra 539
Undanþágur til annars vélstjóra 635
Undanþágur sámtals 1592
Vatnadreki Björgunar hf. veróur notaóur við verkið.
Tvær ýtur komnar út í Engey
Starfsmenn Björgunar hf. fluttu í gær seinni ýtuna af tveimur út í Engey. í dag eóa á morgun á aó reyna aó ná
Sandeynni af rifinu við eyna og veróa ýturnar notaóar til þess verks.
SUMIR VERSLA DYRT -
AÐRIR VERSLA
HJÁ OKKUR
NÚ er
svínakjöt á
GÓÖUverði...
Svínalæri t />Q-00
AÐEINS prkg'
Svínabógur 1 /^Q.OO
AÐEINS X \3Z7 pr kg’
Svína
kótilettur
.00
pr.kg.
Kynnum í dag
Ekta Kínverskan
pottrétt
Á TILBOÐSVERÐI:
Franskmann \ |/n AA
kartöflusktfur *
Fransmann Franskar kartöflur
8095500 2kgl28-o°
Opið til kl. 7 í kvöld
en frá kl.9-4 ámorgun
AUSTURSTRÆT117 STARMÝRI 2