Morgunblaðið - 17.02.1984, Blaðsíða 40
FÖSTUDAGUR 17. FEBRÚAR 1984
VERÐ í LAUSASÖLU 20 KR.
MorRunbladið/ RAX
Túnið hvarf í flóðinu
Sigfús Traustason, bóndi í Rauðuskriðum, er hér þungur á brún þar sem
hann þræðir það sem eftir er af 50 metra vegarkafla að bænum, sem
flóðið í Markarfljóti hreif með sér. Sjá nánar fregnir af flóðunum á
Suðurlandi í opnu.
Bandaríkja-
markaður:
Þorskblokkin
lækkar um 3,5%
ÞORSKBLOKK hefur lækkað á
Bandaríkjamarkaði um 3,5%, eða úr
116 sentum pundið í 112. Guðmundur
H. Garðarsson, blaðafulltrúi SH, og
Sigurður Markússon, framkvæmda-
stjóri sjávarafurðadeildar SÍS, sögðu í
samtölum við Morgunblaðið í gær-
kvöldi, að ástæður lækkunarinnar
væru miklar birgðir af þorskblokk í
Bandaríkjunum, sem væru tilkomnar
vegna stóraukins framboðs frá Kan-
ada og Evrópulöndum.
Gat Guðmundur þess, að heild-
arbirgðir væru taldar vera um 35
milljónir punda, borið saman við 17
milljónir punda á sama tíma í fyrra.
Þá lækkaði karfablokkin úr 80 sent-
um pundið niður í 75 sent, eða um
6,25%.
Samkvæmt þeim upplýsingum,
sem Morgunblaðið aflaði sér i
gærkvöldi má lauslega áætla, að
3,5% lækkun á þorskblokk hafi í för
með sér í námunda við 40 milljóna
króna samdrátt í útflutningstekj-
um, ef tekið er mið af tölum síðasta
árs.
Verðlag á þorskblokkinni hefur
verið lítið breytt á undanförnum
misserum, en í októbermánuði 1982
var verðið 112 sent. Það var síðan
komið í 118 sent í desember 1982.
Þannig hélzt verðið fram í ágúst á
síðasta ári, þegar það var lækkað
um 1,7% niður í 116 sent.
Ríkisstjórnin gerir
BHM launatilboð
Fjármálaráðuneytið fyrir hönd
ríkisvaldsins gerði Bandalagi há-
skólamannna tilboð í kjaramálum í
gær. Tilboðið mun vera innan 4%
rammans sem settur er í fjárlögum
um launahækkanir á árinu, en ekki
Flugleiðir visa ásökunum Amarflugs á bug:
Arnarflug gerði aldrei
athugasemd við iðgjöldin
„ÁRIÐ 1978 varð samkomulag um
að flugfloti Arnarflugs og Flugleiða
yrði á sameiginlegum vátrygg-
ingarskírteinum. Það liggur fyrir, að
þessi samvinna leiddi til stórlækk-
unar á iðgjöldum Arnarflugs," segir
m.a. í yfirlýsingu frá Flugleiðum
vegna fréttar í Mbl. í gærdag um
ágreining félagsins og Arnarflugs
um tryggingargreiðslur, en Arnar-
flug hefur ákveðið að skjóta málinu
til dómsstóla.
„Þessi samvinna hélzt óbreytt
yfir fjögur tryggingartímabil, það
er árin 1978—1982. Hlutur Arnar-
flugs í iðgjöldum var áveðinn í
samræmi við áætlanir og upplýs-
ingar sem fengust á alþjóðamark-
aði í London. Mjög mörg atriði
koma til greina þegar iðgjöld af
tryggingum flugvéla eru reiknuð
út, meðal annars í hvaða heims-
hluta vélunum er flogið og hvaða
verkefnum þær sinna," segir
ennfremur.
Þá segir í yfirlýsingu Flugleiða:
„Arnarflugi var ávallt tilkynnt
hvaða iðgjöld kæmu til með að
gilda fyrir hvert tryggingartíma-
bil og gerði félagið aldrei athuga-
semdir við þær upphæðir. Arnar-
flug gat hvenær sem var slitið
þessu samstarfi, teldi félagið hag
sínum betur borgið með öðru móti.
Fullyrðingum þess efnis, að Arn-
arflug hafi ofgreitt iðgjöld er vís-
að á bug af hálfu Flugleiða. Flug-
leiðir telja ekki viðeigandi að ræða
fjárhagsleg samskipti félaganna
nánar á opinberum vettvangi, þótt
yfirlýsingar Arnarflugs út af
þessu máli gefi vissulega tilefni til
þess.“
var hægt í gærkveldi að fá nánari
uppiýsingar um í hverju tilboðið væri
fólgið, en það verður lagt fyrir launa-
málaráð BHM á fundi þess seinni-
partinn í dag.
Nú er beðið eftir niðurstöðum
úr samningaviðræðum Alþýðu-
sambands Islands og Vinnuveit-
endasambands íslands, og því
biðstaða í öðrum kiaradeilum.
Fundur var með ASI og VSÍ í
gærmorgun og til nýs fundar hef-
ur verið boðað í dag. Samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins er
samkomulag í burðarliðnum, en
þóýmis atriði enn óútkljáð. Aðilar
í röðum beggja eru andsnúnir
þeim samningsdrögum sem fyrir
hendi eru og óvíst hvernig heild-
arsamtökin bregðast við, þó svo
samninganefndirnar nái ein-
hverju samkomulagi. Stefnt er að
því að hægt sé að leggja tillögur
fyrir formannaráðstefnu ASl sem
haldin er seinnipartinn á sunnu-
dag. Rætt verður um 12 þúsund
króna lágmarkslaun og samning
til um það bil árs. Þá er reiknað
með að ríkisstjórnin komi til móts
við hina lægstlaunuðu með til-
færslum af einhverju tagi. Eftir er
að ákveða beinar launahækkanir,
en allt er þetta enn á umræðustigi
og getur breyst í samræmi við
niðurstöðu annarra liða samning-
anna.
10 manna samninganenfnd
BSRB átti fund með samninga-
nefnd fjármálaráðuneytisins í
gærmorgun. Á fundinum voru
vinnubrögð rædd og á 60 manna
samninganefndarfundi BSRB síð-
ar um daginn var ákveðið að bíða
átekta með allar ákvarðanir.
Fundur verður með BSRB og rík-
inu í dag hjá ríkissáttasemjara,
þar sem rædd verða ýmis atriði í
núverandi kjarasamningi sem
ágreiningur hefur verið um hvern-
ig beri að túlka. 60 manna nefndin
kemur saman aftur eftir helgi til
að meta stöðu mála.
Þá verður einnig fundur í ÍS-
AL-deilunni í dag kl. 14.00.
Straumur hefur ekki verið minnk-
aður á kerum í álverinu undan-
farna daga eins og þó var fyrir-
hugað. Sú straumminnkun sem
gerð var á mánudag og þriðjudag
úr 103 kílóamperum í 96 á kerum í
öðrum skálanum hefur verið látin
duga og straumur ekki minnkaður
síðan. Álhæð í kerunmum hefur
hins vegar verið lækkuð í sam-
ræmi við áætlun sem um það hafði
verið gerð.
„Sannfærður um að ég
hef sigrast á hvítblæðia
segir Einar Stefánsson, en bióðmergur úr systur hans var fluttur yfir í hann
FYRIR rúmu ári voru Einari Stefánssyni, 32 ára rafvirkja í Kópavogi, færó
þau tíðindi, að hann þjáðist af krónísku hvítblæði. Læknir hans tjáði honum
að til væru lyf, sem haldið gætu sjúkdóminum niðri um tíma, en hvítblæði
hefði alltaf sigrað að lokum og staðið yfir höfuðsvörðum fórnarlamba sinna.
Þó kvaðst læknir hans hafa heyrt um að erlendis hefði verið skipt um
beinmerg í fólki, en það væri á tilraunastigi. Einar var sendur til Sigmundar
Magnússonar, læknis, til rannsókna.
Einar Stefánsson, til vinstri, á heimili sínu í gærkvöldi ásamt Finnboga
Kjeld. Morgunblaðið/RAX.
Fyrir tilstilli Sigmundar fór
Einar síðastliðið sumar til Lúnd-
úna. Með honum fór systir hans,
Guðbjörg Sigrún Stefánsdóttir, og
beinmergur úr henni var fluttur
yfir í Einar. „Ég er sannfærður
um að ég hef sigrast á hvítblæði.
Á bara eftir að ná upp starfs-
þreki,“ sagði Einar í samtali við
Mbl. á heimili sínu í Kópavogi í
gærkvöldi. í dag heldur hann til
Lundúna til reglubundins eftir-
lits. „Þeir vilja fá að fylgjast með
mér,“ sagði hann og lífið brosir
við honum og fjölskyldu hans, en
Einar er kvæntur Hrönn Hall-
dórsdóttur og eiga þau þrjár dæt-
ur. Ef fram heldur sem horfir þá
er hann fyrsti íslendingurinn sem
kemst yfir hvítblæði — þann
skelfilega sjúkdóm. Þökk sé enn
einu afreki vísindanna.
„Mér datt ekki annað í hug en
komið værj að leiðarlokum þegar
ég fékk fréttir af því að ég þjáðist
af hvítblæði. Var settur á lyf til
þess að halda sjúkdóminum niðri
og í rannsóknir til þess að kanna
hvert systkina minna gæti gefið
mér beinmerg. Ég sannfærðist
fljótlega um að ég kæmist yfir
sjúkdóminn. Sú sannfæring
styrktist eftir að við systkinin
fórum í júlí til viðtals við dr.
Goldman, sem hefur þróað með-
ferð gegn hvítblæði.
Við fórum aftur utan í septem-
ber og þá fóru beinmergsskiptin
fram. Ég var settur í geisla- og
lyfjameðferð til þess að drepa þær
frumur, sem framleiða blóðkorn-
in. Fékk svo beinmerg Guðbjargar
þegar blóðframleiðsla mín hafði
stöðvast. Tíu dögum síðar komu
fram vísbendingar um, að blóð-
framleiðsla væri hafin — að bein-
mergurinn væri farinn að starfa
eðlilega. Þar með hafði ég fengið
blóðeinkenni systur minnar.
Á 20. degi fór ég af sjúkrahús-
inu. Þá var blóðframleiðsla eðlileg
en ég þurfti að fara þrisvar í viku
í sjúkrahúsið til rannsókna. Lið-
lega 60 dögum eftir aðgerð fékk ég
að fara heim. Aukaverkanir voru
sáralitlar, svo og einkenni um að
líkami minn hafnaði hinum nýja
blóðmerg. Allt starfslið á sjúkra-
húsinu, sem er í einkaeigu í Har-
ley Street, var stórkostlegt. Þá
hafa vinir og kunningjar verið
okkur hjónunum ómetanleg stoð,
að ógleymdum þeim Sigmundi og
Geir Þorsteinssyni, heimilislækni
okkar," sagði Einar Stefánsson.
Finnbogi Kjeld, útgerðarmaður,
kom á heimili Einars þegar blaða-
maður var á leið út. Hann er ný-
kominn frá Lundúnum, þar sem
hann gaf systur sinni, Kristjönu
Kjeld blóðmerg en hún er í sams
konar meðferð og Einar.