Morgunblaðið - 30.03.1984, Qupperneq 1
72 SIÐUR
STOFNAÐ 1913
75. tbl. 71. árg._____________________________________FÖSTUDAGUR 30. MARZ 1984_________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
Eldflaugaárás á
skip á Persaflóa
Nikósíu, 29. mars. Al'.
GRÍSKT flutningaskip varö í dag fyrir eldflaug á Persaflóa og kom mikill
eldur upp í skipinu. Eru þær fréttir hafðar eftir fulltrúa skipafélagsins en
sjálfir segjast írakar hafa í dag eyðilagt fjögur írönsk skip og skotið niður
tvær þyrlur. Er þetta önnur árás þeirra á skip í Persaflóa á tveimur dögum.
Talsmaður gríska skipafélags-
ins í Aþenu sagði, að eldflaug, sem
skotið hefði verið af landi, hefði
lent í vélarrúmi skipsins en ekki
væri vitað hve miklar skemmdirn-
ar væru. Áhöfnin, 16 menn, yfir-
gaf skipið og komst heilu og
höldnu um borð i íranskan drátt-
arbát. írakar hafa lýst botn
Persaflóa bannsvæði en grískir út-
gerðarmenn, sem hafa orðið illa
úti í samdrættinum og minni sigl-
ingum, hafa þrátt fyrir það sent
skip sín þangað.
Utanríkisráðherra írans, Ali A.
Velayati, kallaði erlenda sendi-
herra í Teheran á sinn fund í dag
og fór þar hörðum orðum um „geð-
veikislegar árásir íraka á skip á
alþjóðlegri siglingaleið". Útvarpið
í Bagdad sagði, að snemma í
morgun hefði sést til fjögurra ír-
anskra skipa á leið til borgarinnar
Bandar Khomeini og hefðu þá ír-
ösk skip og herþotur ráðist á þau.
Hefðu öll skipin orðið fyrir
sprengjum og að auki hefðu tvær
íranskar þyrlur verið skotnar
niður þegar þær voru sendar
áhöfnum brennandi skipanna til
hjálpar.
í fréttum frá íran segir, að 47
manns hafi fallið og enn fleiri
særst þegar írakar hafi gert árás-
ir á þrjú þorp fyrr í vikunni.
ÓVENJULEGT BÓNORÐSBRÉF
Paul William, 28 ára gamall leiksviöstæknimaður í London, og unnusta
hans, Karine Pearce, 24 ára gömul hjúkrunarkona, standa hér fyrir
framan tveggja hæða strætisvagn og mjög nýstárlegt bónorðsbréf frá
William. Pegar Karine fór í vinnuna í gærmorgun blasti þessi mikla
áletrun við þegar strætisvagninn kom: „Ég elska þig — viltu giftast mér,
Karine?" Karine tók sér far með vagninum og sagði já þegar hún hitti
William.
Bandaríkin:
Neyðar-
ástand
New York, 29. mors. Al*.
NEYÐARÁSTAND ríkir nú í Norð-
ur- og Suöur-Karólínu í Bandaríkj-
unum eftir að 16 fellibyljir gengu
yfir ríkin. 73 hafa látið lífið, 600 slas-
ast og þúsundir manna eru heimilis-
lausar.
Sjúkrahús í ríkjunum báðum
eru víða yfirfull af fólki, sem hef-
ur slasast í veðurofsanum, en í
sumum þorpum stendur varla
steinn yfir steini. „Sum húsanna
eru hér bara ekki lengur. Bara
fokin út í veður vind,“ sagði Luth-
er W. Haggins, lögreglustjóri í
Red Springs í Norður-Karólínu.
E1 Salvador:
Danmörk:
Henrik prins leiðist að vera
launalaus drottningarmaður
Kaupmannahofn, 29. mars. Frá Ib Björnbak, fréttaritara Mbl.
UM ENGAN mann er nú meira talað í Danmörku en Henrik prins,
eiginmann Margrétar Danadrottningar. Ekki vegna þess, að hann hafi
hagað sér eitthvað illa, heldur af því að hann vill vera matvinningur og
ekki bara á framfæri konu sinnar. Hafa orðið um þetta mál nokkuð
heitar umræður á þingi og utan þess.
Henrik, sem verður fimmtug-
ur á sumri komanda, sagði í
dagblaðsviðtali nú fyrir nokkru,
að það tæki meira en lítið á
taugarnar að vera í raun algjör
öreigi og þurfa að biðja aðra um
allt, sem hann vanhagaði um.
„Jafnvel i gamla daga, sem nú
eru stundum kenndir við karl-
rembu, hafði drottning ríkjandi
konungs sinn eigin fjárhag,"
sagði Henrik.
Henrik hefur ekki aðrar tekj-
ur en þá vasapeninga, sem kona
hans lætur hann fá, en hún fær
frá danska ríkinu rúmlega 72
milljónir ísl. kr. á ári. Af þeim
verður hún hins vegar að greiða
laun 175 manna, halda við fjöl-
mörgum höllum og greiða allan
kostnað við opinberar heimsókn-
ir í útlöndum. Það er því yfirleitt
lítið afgangs enda eru dönsku
hátignirnar ekki í hópi neinna
auðkýfinga.
Henrik prins er eini drottn-
ingarmaðurinn í Evrópu, sem er
algjörlega upp á konu sína kom-
inn. T.d. er Philip prins í Eng-
landi og Klaus í Hollandi ætlað-
Henrik Margrét
ur sérstakur framfærslueyrir í
fjárlögum en í dönsku fjárlögun-
um er Henrik ekki til, fellur bara
undir drottninguna.
Um þetta mál hafa orðið nokk-
uð fjörugar umræður á þingi og
sýnist sitt hverjum, þ.e.a.s. kon-
um og körlum. Karlmennirnir
benda á, að hann hafi unnið mik-
ið og gott starf fyrir land og
þjóð, kynnt danskar framleiðslu-
vörur og verið fulltrúi þjóðar-
innar við ýmis tækifæri, og þess
vegna ekki nema eðlilegt, að
honum verði greidd einhver
laun. Konurnar hins vegar, jafnt
til hægri sem vinstri og allt þar
á milli, eru sammála um, að
Henrik eigi engin laun að fá og
að hann hafi bara gott af því að
sækja peningana til konu sinnar.
Málin standa nú þannig, að
stjórnin mun hlynnt því að
Henrik fái einhver laun en vill
þó bíða eftir áliti drottningar
sjálfrar.
AP
Svona var umhorfs víða í borgum og bæjum í Suður- og Norður-Karólínu
í Bandaríkjunum eftir að hver fellibylurinn á fætur öðrum æddi yfir ríkin.
I»essi mynd er frá bænum Newberry og sýnir það, sem eftir er af
dansskólanum þar.
D Aubuisson
játar
Duarte
ósigur
San Salvador, 29. mars. AP.
ROBERTO D’Aubuisson, forseta-
frambjóðandi hægrimanna í El
Salvador, viðurkenndi í dag ósigur
sinn fyrir Jose Napoleon Duarte,
frambjóðanda kristilegra demó-
krata, í fyrri umferð forsetakosn-
inganna. Þegar 25% atkvæða höfðu
verið talin hafði Duarte gott forskot
á D’Aubuisson og er búist við, að
það aukist þegar á líður talninguna.
Endanleg úrslit verða þó ekki kunn
fyrr en eftir helgi.
Á fréttamannafundi í dag sagði
D’Aubuisson, að flokkur hans,
fyrir
Arena-flokkurinn, fengi um 31%
atkvæða en kristilegir demókratar
44%. Óskaði hann Duarte til ham-
ingju með sigurinn og kvaðst í
seinni umferðinni mundu leita
stuðnings þeirra fjögurra hægri-
flokka annarra, sem tekið hefðu
þátt í kosningunum.
Þegar fjórðungur atkvæða hafði
verið talinn hafði Duarte fengið
40%, D’Aubuisson 31% og Guerr-
ero, leiðtogi Þjóðarsáttarflokksins
22,8%. Talið er víst, að Duarte
muni auka forskot sitt þegar farið
verður að telja atkvæði frá
stærstu borgunum enda sækir
hann fylgi sitt einkum til mið-
stéttarfólks og bænda.
Úrslit í kosningunum verða ekki
endanlega ljós fyrr en í næstu
viku og kennir yfirkjörstjórn um
árásum skæruliða, sem með
skemmdarverkum ollu rafmagns-
leysi í höfuðborginni og víðar um
landið á kjördag. Salvador-búar
margir, starfsmenn bandaríska
sendiráðsins og erlendir frétta-
menn segja hins vegar, að aðal-
lega sé um að kenna nýjum lögum,
sem áttu að koma í veg fyrir kosn-
ingasvindl. Samkvæmt þeim var
kjósendum öllum gert að kjósa á
ákveðnum stöðum, þar sem þeir
eru skráðir, en það reyndist mikl-
um erfiðleikum bundið vegna þess,
að tugþúsundir manna hafa orðið
að flýja heimili sín vegna óaldar-
innar í landinu.