Morgunblaðið - 30.03.1984, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. MARZ 1984
íslandssiglingar Rainbow Navigation Inc.:
Hyggjast flytja bæði fyrir
Bandaríkjaher og einkaaðila
BANDARÍSKA skipafélagið Rain-
bow Navigation Inc., sem hefur í
hyggju að yfirtaka flutninga á veg-
um Bandaríkjahers til herstöðv-
arinnar á Keflavíkurflugvelli,
stendur nú í samningaviðræðum
við bandarísku sjóferðastofnunina,
Federal Maritime Administration.
Hún er eigandi þriggja 2.200 tonna
gámaflutningaskipa síðan fyrri eig-
andi þeirra varð gjaldþrota. Tvö
þeirra hyggst Rainbow Navigation
nota til Islandssiglinganna.
Bandaríska skipafélagið getur
nánast fyrirhafnarlaust tekið
þessa flutninga að sér, því skv.
bandarískum lögum ber að flytja
allan hervarning með bandarísk-
um skipum sé þess nokkur kost-
ur. Aðeins tvö lönd í heiminum,
ísland og Bermuda, eru nú með
þessa flutninga í eigin höndum
því bandarísk skipafélög hafa
ekki talið þá arðvænlega. Skipa-
félagið Moore-McCormick ann-
aðist þessa flutninga hingað til
lands lengi vel en hætti því 1967
af einmitt þeirri ástæðu, það var
ekki talið borga sig. Síðan hafa
íslensk skipafélög, Eimskip og
Hafskip, séð um flutninga fyrir
Bandaríkjaher til íslands. Þeir
flutningar hafa að verulegu leyti
verið grundvöllur þess að hægt
sé að halda uppi vikulegum ferð-
um milli landanna, að sögn for-
ráðamanna skipafélaganna. Þeir
hafa lýst þungum áhyggjum sín-
um vegna áforma Rainbow Navi-
gation Inc.
„Þetta er raunveruleg ógnun
við siglingar íslenskra skipa
milli íslands og Bandaríkjanna,"
sagði Hörður Sigurgestsson, for-
stjóri Eimskips, í samtali við
blaðamann Mbl. um þetta mál í
gærkvöldi. „Sem stendur eru
5—6 íslensk skip í siglingum
milli landanna, sigla utan með
sjávarafurðir á Bandaríkja-
markað og heim að verulegu
leyti með varning fyrir varnar-
liðið. Það er ýkjulaust að segja,
að verði af þessum áformum
Rainbow Navigation myndu 2
eða 3 af þessum skipum falla út
og verða algjörlega verkefna-
laus. Fjárhagslegum grundvelli
yrði kippt undan þessum sigling-
um íslensku skipafélaganna á
milli íslands og Bandaríkjanna."
Gámaflutningaskipin tvö, sem
Rainbow Navigation Inc. hyggst
leigja af Federal Maritime
Administration, liggja við festar
í Green Cove Springs í Florida.
Þau hafa verið eign bandarísku
sjóferðastofnunarinnar í rúmt
ár, eða síðan stofnunin leysti til
sín þrjú slík skip, er bandarísk
stjórnvöld höfðu veitt lán til
byggingar á. Þá var upphaflegur
eigandi skipanna, félagið Ameri-
can Atlantic Shipping Inc., farið
á hausinn.
Talsmaður Federal Maritime
Administration, Clyde Ball,
sagði i samtali við blaðamann
Mbl. í gær að leigutilboði Rain-
bow Navigation Inc. í skipin til
tveggja ára hefði verið tekið en
viðræður stæðu enn yfir um nán-
ari útfærslu á samningnum.
Hann hefði ekki verið undirrit-
aður enn og ekkert væri frá-
gengið um annað en sjálfa leig-
una á tveimur skipanna, Ama-
zonia og Antillia. „Mér er kunn-
ugt um að þeir hafa í hyggju að
hefja siglingar milli Bandaríkj-
anna og fslands og annast flutn-
inga fyrir herinn og einkaaðila,"
sagði Ball.
Rainbow Navigation Inc. er
nýstofnað dótturfyrirtæki ann-
ars bandarísks skipafélags,
Housing Transport Internation-
al í New Jersey. Einnig er stór
hluthafi í Rainbow skipafélagið
Trans American Shipping. Hörð-
ur Sigurgestsson, forstjóri Eim-
skips, sagði ekkert vera því til
fyrirstöðu að hægt væri að anna
flutningunum til hersins hér
með tveimur 2.200 tonna skipum,
sem bæru um 100 gáma hvort, en
hann taldi hæpið að hægt væri
að halda áætlun með tveimur
skipum af þeirri stærð, ekki síst
að vetrarlagi.
íslensku skipin, sem annast
þessa flutninga nú eru 3.000 og
4.000 tonn. Hvert þeirra ber
200—250 gáma í ferð. Flutn-
ingarnir fyrir bandaríska herinn
hafa verið og eru íslensku skipa-
félögunum afar mikilvægir enda
er herinn einn stærsti viðskipta-
vinur þeirra. Um og yfir helm-
ingur tekna íslensku skipa-
félaganna af siglingum milli fs-
lands og Bandaríkjanna er feng-
inn af þessum flutningum.
Björgólfur Guðmundsson, for-
stjóri Hafskips hf., sagði í sam-
tali við blaðamann Mbl. í gær, að
allar líkur væru á að bandaríski
herinn ætlaði Rainbow Navigat-
ion að taka við þessum flutning-
um. „Flutningarnir fyrir herinn
hafa tryggt hagkvæmni og ör-
yggi í að koma okkar vörum á
markað erlendis," sagði Björg-
ólfur. „Ef af þessu verður hlýst
af umtalsvert tekjutap auk þess
sem þetta myndi veikja íslensku
skipafélögin rekstrarlega. Við
höfum annast samgöngur á milli
landanna sjálfir í hartnær tvo
áratugi, enginn hefur viljað gera
það fyrir okkur, enda skiptir það
okkur miklu máli sem sjálfstæða
þjóð að hafa þessa hluti i okkar
eigin höndum. Ég lít á þetta sem
mjög alvarlegt mál, þetta ætti að
vera stór þáttur í eðlilegum sam-
skiptum þjóðanna, rétt eins og
flugið, og mín skoðun er sú að
við megum aldrei sleppa hendi
af samgöngum milli fslands og
annarra landa. Útlendingar
geta, eins og dæmin sanna,
ákveðið á einum degi að hætta
siglingum til íslands vegna þess
að þeir borgi sig ekki, þannig að
þetta myndi veikja allar okkar
samgöngur vestur um haf.“
Andlitsmynd eftir Gerdu Schmidt
Panknin.
Myndir frá
íslandi og
Grænlandi
SÝNING á málverkum þýska lista-
mannsins Gerdu Schmidt Panknin,
sem haldin verður á vegum félagsins
Germaníu, verður opnuð í Bogasal
Þjóðminjasafnsins á morgun, laug-
ardaginn 31. mars, kl. 14:00.
Gerda Schmidt Panknin málaði
myndirnar á ferðum sínum um ís-
land og Grænland á árunum 1980
og 1981.
Sýningin verður opin daglega
frá kl. 14:00 til 19:00 til 15. apríl.
Fjalakötturinn:
Stofnfundur samtaka
um varðveislu hússins
Skálholtsskóli efnir
til tónlistarkvölds
Norræna húsið:
Lögreglan í Kópavogi:
Herferð
um helgina
Lögreglan í Kópavogi hefur beðið
Morgunblaðið að koma því á fram-
færi, að hún hyggist um helgina vera
sérstaklega á varðbergi gagnvart
óskoðuðum bifreiðum og ölvuðum
ökumönnum, jafnt dag sem nótt.
Fimmtán ökumenn voru teknir
af Kópavogslögreglunni um síð-
ustu helgi grunaðir um ölvun við
akstur og hafa aldrei verið fleiri.
Iðnaðar-
bankaránið
óupplýst
RÁNIÐ í Iðnaðarbankanum 10.
febrúar sl. er enn óupplýst. Rann-
sókn þess er haldið áfram hjá Rann-
sóknarlögreglu ríksins, að sögn I»ór-
is Oddssonar, vararannsóknar-
lögreglustjóra.
Fátt eða ekkert þykir nú benda
til þess að þar hafi verið að verki
sami maður og nú er meðal
ákærðu vegna ránsins við Lands-
bankann við Laugaveg 77 viku síð-
ar. Þegar krafist var áframhald-
andi gæsluvarðhalds yfir honum
fyrir Sakadómi Reykjavíkur í gær
var Iðnaðarbankaránsins hvergi
getið né heidur í ákæruskjalinu
vegna ránsins við Landsbankann.
Rangt nafn
í GREIN um íslandsmeistaramót-
ið í vaxtarrækt í Morgunblaðinu í
fyrradag birtust fjórar myndir,
m.a. mynd af Sigurði Gestssyni,
sem sigraði í sínum þyngdar-
flokki. Sigurður var þar sagður
heita Gísli Rafnsson. Hlutaðeig-
endur eru beðnir velvirðingar á
þessum mistökum.
Lýðháskólinn í Skálholti efnir til
tónlistarkvöids í Norræna húsinu,
föstudaginn 30. mars kl. 20.30.
Meðal þeirra sem fram koma á
dagskránni, sem nemendur og kenn-
arar skólans sjá um, eru: Motettu-
kórinn, Dajassdúett úr FÍH, Anna
Norman mun leika á píanó, þeir
vísnavinir Gísli Helgason og Ingi
Gunnar Jóhannsson syngja, einnig
Oddur Albertsson og Martin Ring-
man. Dagskráin er í norrænum
anda og verkin, sem flutt verða, á
flestum Norðurlandamálum. Gefst
gestum auk þess færi á að kynnast
starfsemi Skálholtsskóla.
Tilefni kvölds þessa er að nem-
endur skólans eru á förum til Fær-
eyja, en í vetur hefur skólinn tekið á
móti fjölda gesta, sem kynnt hafa
Færeyjar, auk þess sem nemendur
hafa stundað nám í færeysku. Er
þetta fyrsta utanlandsferð skólans.
STOFNFUNDUR samtaka um varð-
veislu hússins Aðalstræti 8, Fjalakatt-
arins, verður haldinn á Hótel Borg nk.
sunnudag kl. 16.00. _
Að stofnfundinum stendur sá
hópur manna, sem nýlega sendu
menntamálaráðuneytinu og borgar-
yfirvöldum áskorun um að tryggja
varðveislu Fjalakattarins. 1 áskor-
uninni lýsti hópurinn sig reiðubúinn
til að beita sér fyrir stofnun sam-
taka um friðun hússins og var í
framhaldi af því sett á laggirnar
nefnd til að annast undirbúning
fyrir stofnun slíkra samtaka. Mun
nefndin gera grein fyrir störfum
sínum á fundinum á Hótel Borg og
þeim hugmyndum, sem komið hafa
upp varðandi tilhögun og fjáröflun
við friðunina. Þá verður borin fram
tillaga um stofnun samtakanna og
nafn þeirra.
Fundarstjóri verður Ólafur B.
Thors.
Starfshópurinn sem vann að vali
á nýrri þyrlutegund fyrir gæzluna,
hefur komist að niðurstöðu og lagt
til að keyptar verði franskar
Dolphin-þyrlur. Þær þykja mjög
hagkvæmar og búnar beztu eigin-
leikum þyrla af svipaðri stærð. Við
erum tveir þyrluflugmenn í val-
nefndinni og við þekkjum að sjálf-
sögðu bezt þá tegund, sem við höfð-
um mesta reynzlu af og töldum
hana í upphafi beztu vélina, en við
vandlega skoðun höfum við komist
að annarri niðurstöðu'og er það
samhljóða flugvélaverkfræðingi og
öðrum nefndarmönnum. Ég tel að
aldrei hafi verið eins vel staðið að
vali tækis í fluggæzluna og í þessu
tilviki með mikilli vinnu, skoðun,
reynzluflugi og sérfræðikönnun í
alla staði. Við Landhelgisgæzlu-
menn teljum skipta öllu máli að
hefja nú þegar aftur rekstur þyrlu
í stað TF-RANAR, hugsanlega með
leiguvél ef töf verður á kaupum, en
umfram allt er það mitt mat að við
verðum að byggja þennan rekstur
upp sjálfir af öryggi og skynsemi í
þágu þjóðarinnar."
u
„Mikilvægt að hefja nú feegar
rekstur þyrlu í stað TF-RÁNAR
— segir Páll Halldórsson flugstjóri, en
valnefnd mælti með tegundinni Dolphin
„VIÐ erum ákveðnir í að gefast ekki
upp þrátt fyrir áfallið að missa TF-
RÁN, en það er ákaflega mikilvægt að
þyrluflugið stöðvist ekki lengi, bæði
með tilliti til þjálfunar manna og allra
hluta vegna í starfi Landhelgisgæzl-
unnar, því eftir því sem mánuðirnir
líða saxast á öryggið," sagði Páll Hall-
dórsson, flugstjóri hjá Landhelgis-
gæzlunni í samtali við blm. Mbl. en
hann á jafnframt sæti í starfshóp Land-
helgisgæzlunnar, sem hefur kannað
hvaða þyrlu væri æskilegt aö kaupa
fyrir gæzluna, en niðurstaða nefndar-
innar er að kanna kaup á þvrlu af
franskri gerð, Dolphin. í starfshópi
gæzlunnar eiga sæti: Páll Halldórsson
flugstjóri, Þorsteinn Þorsteinsson
flugvélaverkfræðingur, Sigurður Stein-
ar Ketilsson stýrimaður og l*órður Ingi
Guðmundsson hjá Hagsýslustofnun.
„Þyrlurekstur Landhelgisgæzl-
unnar varðar allt starf björgunar-
og öryggismála á landinu og á stór-
an þátt í landhelgisgæzlu," sagði
Páll. „Það er í rauninni ekki stór
þáttur ríkisins í þessum málum á
landinu, en ég held aö flestir séu
sammála um að hjá honum verði
ekki komist í ákveðnum atriðum og
að undanförnu hefur rignt yfir
okkur fyrirspurnum frá öllum
landshlutum, þar sem spurt er um
gang mála varðandi þyrlukaupin,
en þessar fyrirspurnir eru m.a.
tengdar öryggismálum sjómanna,
þar sem þyrlurekstur gæzlunnar
hefur bjargað mörgum mannslífum
og verið til mikillar hjálpar. Þyrlu-
deild Landhelgisgæzlunnar og
björgunarsveitin á Keflavíkur-
flugvelli hafa byggt hvor aðra upp
á margan hátt og það hefur komið
fram í samtölum við bandarísku
flugmennina. Þeir hafa oft ekki
nema eina vél til taks og það hefur
komið fyrir að þeir hafa ekki haft
vél þegar það h^xur skipt máli, nú
síðnsX fyrir nokkrum dögum. Það
hefur einnig komið sér vel í okkar
þyrluútgerð hve við erum vel kunn-
ugir staðháttum og má nefna
Breiðafjarðarslysið þar sem TF-
RÁN bjargaði þremur mönnum í
slæmu veðri og skyggni, en þá
komst þyrla gæzlunnar fyrst á
vettvang vegna kunnugleika flug-
manna og betri tækjabúnaðar.