Morgunblaðið - 30.03.1984, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. MARZ 1984
5
Samstarfshópur um friðarviku:
Hafnar „formlegri aðild“
Varðbergs að friðarmóti
— tillaga Friðarhóps kirkjunnar felld
SAMSTARFSHÓPUR um friðarviku á páskum komst að
þeirri niðurstöðu á fundi á miðvikudagskvöldið að ekki væri
unnt að samþykkja þá hugmynd Friðarhóps kirkjunnar, að
Varðberg, félag áhugamanna um vestræna samvinnu, fengi
að vera „formlegur aðili“ að friöarvikunni. Hins vegar var
ákveðið að öðrum samtökum en hinum „formlegu“ gæfist
kostur á einskonar aukaaðild með því að fallast á ávarp
friðarvikunnar sem „formlegu“ aðilarnir samþykktu.
Frá því var skýrt í Morgunblað-
inu síðastliðinn föstudag að
Sveinn Grétar Jónsson, formaður
Varðbergs, hefði verið kallaður á
fund við kirkjunnar menn á Bisk-
upsstofu á sínum tíma og þar var
stungið upp á því við hann að
Varðberg gerðist þátttakandi í
friðarvikunni. Taldi Sveinn það
hugsanlegt. Nú hefur samstarfs-
hópurinn sem sé ákveðið að Varð-
berg geti ekki orðið „formlegur að-
ili“ að friðarvikunni. Á fundinum
á miðvikudagskvöld var felld til-
laga frá fulltrúum Samtaka her-
stöðvaandstæðinga um að í ávarpi
friðarvikunnar yrði lýst yfir and-
stöðu við notkun kjarnorkuvopna
að fyrra bragði.
Hér fer á eftir fréttatilkynning
frá samstarfshópnum um friðar-
vikuna:
„Undanfarna 2 mánuði hefur
hópur fulltrúa ýmissa friðarsam-
taka unnið að undirbúningi frið-
arviku á páskum. Undirbúningur
dagskrár er á lokastigi, og verður
hún kynnt innan tfðar. Á fundi
hópsins þ. 28. mars var gerð sam-
þykkt um, að ávarp friðarvikunn-
ar yrði svohljóðandi:
„Við skorum á Bandaríkin og
Sovétríkin og önnur kjarnorku-
veldi að gera samkomulag um
stöðvun kjarnorkuvígbúnaðar og
hefja kerfisbundna afvopnun.
Meðan unnið er að slíku sam-
komulagi ætti hvergi að koma
fyrir kjarnorkuvopnum eða tækj-
um tengdum þeim.
Slíkt samkomulag gæti orðið
fyrsta skrefið til allsherjar af-
vopnunar, sem er lokatakmark
friðarbaráttu.“
Öllum þeim, sem til friðarvik-
unnar koma, en hún verður haldin
í Norræna húsinu, mun gefast
kostur á að undirrita ávarp þetta.
Á þessum sama fundi hópsins
var einnig eftirfarandi samþykkt
gerð:
„1. Þau samtök, sem hafa starf-
að að undirbúningi friðarvikunnar
undanfarnar vikur og mánuði, eru
formlegir aðilar að friðarvikunni.
Þessi samtök eru Friðarsamtök
listamanna, Friðarhreyfing ís-
lenskra kvenna, Friðarhópur
kirkjunnar, Samtök lækna gegn
kjarnorkuvá, Samtök eðlisfræð-
inga gegn kjarnorkuvá, Samtök
herstöðvaandstæðinga, Samtök
um friðaruppeldi, Friðarhreyfing
framhaldsskólanema, Hin óháða
friðarhreyfing framhaldsskóla-
nema, Friðarhópur einstæðra for-
eldra og Friðarhópur fóstra.
2. Öðrum samtökum, sem geta
fallist á ávarp friðarvikunnar eins
og það var samþykkt á fundinum
þ. 28. mars og sem starfa að frið-
armálum, verður gefinn kostur á
stuðningsaðild að friðarvikunni.
Yrði stuðningsaðildin í formi und-
irskriftar ávarps vikunnar og yfir-
lýsingar um stuðning við hana.
Einnig yrði um einhverja beina
þátttöku í starfsemi friðarvikunn-
ar sjálfrar að ræða.“
Á þessum fundi var enn fremur
skipuð nefnd, sem mun vinna að
því að finna þessum samtökum
stað í hinni formlegu dagskrá,
óski þau eftir því.
Beiðnir um stuðningsaðild þurfa
að hafa borist til Sigrúnar Val-
bergsdóttur á skrifstofu Banda-
lags ísl. leikfélaga, Hafnarstræti
9, sími 16974, fyrir 5. apríl nk.“
Færeyskir línubátar eru nú aftur komnir á íslandsmið og þessa
mynd tók Tómas Helgason af einum þeirra suður af landinu í
fyrradag.
Vér mótmælum
— athugasemd frá nokkrum nemendum í Vogaskóla
Morgunblaðinu hefur borizt eft-
irfarandi athugasemd við skrif í
Þjóðviljanum frá nokkrum nem-
endum í Vogaskóla:
Vér nokkrir nemendur í Voga-
skóla viljum hér með koma á
framfæri mótmælum vegna
greinar er birtist í Þjóðviljanum
þann 28/3 1984.
í áðurnefndri grein segja 3
nemendur frá reynslu sinni í
„Áróðursferð á hervöllinn í
Keflavík", en við teljum að ferð í
þessum dúr hafi aldrei verið far-
in. Sagt er í greininni að einn af
okkar ágætu kennurum hafi
viðhaft lofsöng um veru varnar-
liðsins á Keflavíkurflugvelli og
aðild okkar að NATO, en hið
rétta er, að hann minntist aðeins
á að fólkið í kring hefði atvinnu
af veru varnarliðsins og hvað við
ætluðum að skoða á varnarliðs-
svæðinu. Að öðru leyti lýsti hann
bara landslaginu í kring.
Þegar við komum til Keflavík-
ur fórum við beint á slökkvistöð-
ina, en halda mætti að þær
hefðu helst úr lestinni, því að
ekki var minnst einu orði á hinar
frábæru viðtökur sem við feng-
um þar. Sama virðist vera upp á
teningnum hvað þakklæti varðar
fyrir þann höfðinglega mat sem
við fengum hjá íslenskum aðal-
verktökum, og viljum við koma á
framfæri sérstökum þökkum til
Friðriks Eiríkssonar fyrir mjög
góðan mat.
Þaðan var farið í Offisera-
klúbbinn, en þar fengum við að
sjá „slides“-myndir um hlutverk
varnarliðsins á íslandi.
í greininni er sagt að nemend-
ur hefðu talið þetta vera „ein-
hliða áróður", en okkur finnst
það einræðislegt að þessir nem-
endur ætli sér að tala fyrir hönd
alls hópsins.
Þegar við fórum að leggja
spurningar fyrir blaðafulltrúa
hersins um herinn og starfsemi
hans, fóru þessir nemendur að
spyrja um alls óskyld efni, eins
og til dæmis hvers vegna komm-
ar fengju grænan stimpil í pass-
ann, þegar þeir færu til USÁ.
að lokum viljum við taka það
fram að þetta var vettvangsferð,
ein af þrem sem við höfum farið,
en ekki starfskynning eins og
fram kemur í greininni.
Nokkrir nemendur
í Vogaskóla.
FRÍ-klúbburinn og ÚTSÝN kynna
ki.
19.00 Húsið opnað og kynntur nýr lystauki. Afhending happdrættismiða og
sala bingóspjalda. ÞÚ HEFUR 4 MÖGULEIKA A AÐ FÁ ÓKEYPIS
ÚTSÝNARFERD Á SUNNUDAGINN AO VERÐMÆTI KR. 80.000.
20.00 Veislan hefst.
VAXTAR-
RÆKT
Nýbakaöur ís-
landsmeistari í
vaxtarrækt
Hrafnhildur og
Gísli Rafnsson
sýna glæsilegan
vöxt og hnykla
vöövana.
FIMLEIKASYNING
Landsliðið í fimleikum
(liðamótalausir lista-
menn) Islandsmeistar-
arnir Hulda Ólafsdóttir
og Davíð Ingason.
FIMLEIKAKEPPNI
Hermann Gunnarsson
lýsir æsispennandi
keppni Davíðs Ingasonar
og Guðjóns Gislasonar.
Kynning á öllum
þátttakendum í
keppninni
Ungfrú og
herra ÚTSÝN
fjölmennasta feg-
uröarsamkeppni á
islandi. 60 þátttak-
endur kynntir. Síð-
asta tækifæriö aö
bætast í hóp kepp-
enda.
Matseðill
Pönnusteikt grísasneið
„NEMROD" framreidd meö
brúnuðum kartöflum,
rjómasoðnu blómkáli, bök-
uðum eplum, ristuðum tóm-
at, smjörsteiktum ananas,
hrásalati og Robertsósu.
Ávaxtaís meö portúgalskri
möndluköku og rjóma.
Bingó:
Spilaö um
3 glæsilegar
Útsýnarferöir
'84.
Portugalski söngvarinn
og gitarleikarinn
J.J. Silva skemmtir
Happdrætti:
Allir matargestir taka
þatt i ókeypis happ-
drætti
Vinningur: Utsynarferö.
w'.AmaW9eS';'
8S£S%SÖ>,
Himr frabæru
Magnús Þór Sig-
mundsson og Jó-
hann Helgason
syngja frumsamin lög.
Nýr seiömagnaður
dans
„V00D00"
undir stjórn Kolbrúnar
Aöalsteinsdóttur.
Tízkusýning
Modelsamtökin sýna vor- og sumarfatnaö Pepper og
Aranella frá Sonju undir stjórn frú Unnar Arngrims-
dóttur.
Kynnir kvöldains
hinn bráðfríski og
fjörugi Hermann
Gunnarsson.
Hljómsveit Gunnars Þórð-
arsonar leikur ffyrir dansi.
Danssýning:
Stefán og Viöar, nemendur úr
Dansskóla Heiöars Ástvalds-
sonar, sýna „DANSBRJÓTINN".
09 40 0»®'
\e9®’