Morgunblaðið - 30.03.1984, Page 3

Morgunblaðið - 30.03.1984, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. MARZ 1984 Sigurður Helgason sýslumaður afhendir Friðrik Sigurjónssyni gjöf sýslu- nefndar, skrautritað skjal með yfirskriftinni „Hreppstjóri í hálfa öld“. Morgunblaöið/BB. Hreppstjóraskipti á Vopnafirði \o<V •xí' v<v- / <3V & / Sýning 28. mars-1. apríl 1984 að Skaftahlið 24 Einstök syning: Kynning á tölvuheimi IBM, i fortíð, nútið og framtið. Sýningaratriði við allra hæfi: Sögusýning - Leikþáttur - Camlar og nýjar IBM- tölvur og tölvubunaður - Kínverskt lyklaborð - Tölva sem kann að teikna - Tölva sem sýnir handskrifuð bréf. Sýningargetraun: IBM PC einkatölva í verðlaun! Sýningin er obin frá 15.00 til 21.00 virka daga, og frá 10.00 til 21.00 um helgina. Sýning fyrir alla fjölskylduna. Börn yngri en 12 ára i fylgd með fullorðnum. Ókeypis aðgangur. Verið velkomin. Vopnafirdi, 27. mars. Hreppstjóraskipti hafa orðið á Vopnafirði og er sá atburður í frá- sögur færandi ekki síst vegna þess að fráfarandi hreppstjóri, Friðrik Sigurjónsson, hefur gegnt því emb- ætti í hartnær hálfa öld. í hófi sem sýslumannsembættið hélt fráfarandi hreppstjóra 7. mars síðastliðinn flutti sýslumaður, Sigurður Helga- son, Friðrik þakkir embættisins fyrir gott og heilladrjúgt starf. Einnig færði sýslumaður honum gjöf sýslunefndar N-Múlasýslu sem var skrautritað skjal með yfirskriftinni „Hreppstjóri í hálfa öld“. Friðrik þakkaði fyrir sig og gat þess að hann væri nú búinn að vera allt of lengi í starfi, eða allt frá því í júní 1933. Þó sagði hann að sárast væri kannski að hætta nú þegar aðstaða hreppstjóraemb- ættisins væri orðin svona góð eins og er í dag og sagði það mikinn mun frá því sem var, þegar hann var að byrja og þurfti að fá inni með skrifstofu sína hjá vinum og vandamönnum ef svo bar undir. Friðrik óskaði síðan eftirmanni sínum í hreppstjóraembættinu, Birnu Einarsdóttur, til hamingju með nýja starfið, og Vopnfirðing- um til hamingju með nýja hrepp- stjórann. Jafnframt því að vera Birna Einarsdóttir hreppstjóri ein af örfáum konum í embætti hreppstjóra á landinu mun Birna Einarsdóttir vera sú yngsta sem tekur við slíku embætti, en hún er 25 ára. Þess má að lokum geta, að hinn 31. desember ’81 fékk Friðrik Sigurjónsson riddarakross Hinnar íslensku fálkaorðu fyrir góð og vel unnin störf sem hreppstjóri Vopn- firðinga i tæp 50 ár. B.B. ÞEKKING EFLIR tíÖDARHAG Rok —ijwwe* ■ meö b\órr Minnum á verölaunaafhend- inguna i Lava Loppet-mara- þonskíðakeppninni á vegum Úrvals 7. apríl nk. ~~~ssæs!!2ssxz fmassF^. ..._cnoertsso". ** . ■ onsen, .paKKi F\ug\eiöa ftið UrónillTtl rðn?aDúaRvartettinn œ

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.